Morgunblaðið - 20.11.1966, Page 5

Morgunblaðið - 20.11.1966, Page 5
Sunnudagur 20. nðv. 19BS MORGUNBLABIÐ 5 fslendingar eru eftirbátar ná- grannaþjóða í tryggingamálum Rætt við Erðend Lárusson, tryggingafræðing Nýkominn er hingað til lands frá Svíþjóð Erlendur L,arusson, tryggingarfræð- ingur, til starfa sem trygg- ingafræðilegur fram- kvæmdastjóri hjá einu tryggingafélaganna hér í borg, og átti blaðið viðtal við hann í því tilefni fyrir skömmu. • „Þú hefur dvalizt Iengi í Svíþjóð, Erlendur, er það ekki? „Jú, ég hef ásamt fjölskyldu minni, verið búsettur í Stokk hólmi mikið til síðustu 10 ár in, en fluttist heim í maílok í ár. Var ég fyrst við nám í tryggingarfræði og stærðfræði legii statistik við háskólann þar, og var mér, að því loknu boðin staða við hina trygg- ingafræðilegu og statistisku vísindadeild háskólans við vís indarannsóknir og úrlausn hagnýtra verkefna í þesum fræðum, en deildin tekur að sér hverskonar verkefni, er þörf er talnalegrar úrvinnslu eða skipulags á talnasöfnun. Starfaði ég þar síðustu 5 ár- in“. • „Hvers eðlis voru þau verkefni sem þú hafðir með höndum? „Þau voru bæði fræðileg og hagnýt. Fyrr á tímum — og svo er raunar oft enn — setti fólk statistik, eða töluvísi, eins og hún er kölluð, ein- göngu í samband við langar talnarunur og leiðinlegar töfl ur, þar sem í hæsta lagi var reiknað út meðalgildi eða hlut fallstala. Nú er töluvísi há þróuð vísindagrein, eða safn vísindagreina, sem reistar eru á stærðfræðilegum grund- velli. Einkum síðustu 3 til 4 áratugi hefur verið byggt upp hugmyndakerfi og á því reistar aðferðir og kenn ingar, sem samkvæmt reynsl unni hafa mikið hagnýtt gildi á sama hátt og hin hreina stærðfræði. Líkindareikning- urinn er hinn stærðfræðilegi grundvöllur að flestum grein- um töluvísi, og óvissan um nútíð og framtíð í smáu sem stóru sá hráviður, sem fræði- greininni er beitt á. Óvissan um vinning í happdrætti eða spili eru einföld dæmi, óvissa tryggingafélags um tjóna- fjölda og tjónastærðir, óvissa fyrirtækja um framleiðslu, sölu og í framhaldi af því magn nauðsynlegra vöru- birgða, úvissa um nauðsynleg an fjólda símalína í skipti- borði eða fjölda afgreiðslu- borða í verzlun, til þess að annars vegar þurfi viðskipta vinir ekki að bíða of lengi eftir afgreiðslu, og hins vegar að línur og borð standi ekki ónotuð um of, óvissa læknis um notagildi nýrra lyfja eða nýrra læknisaðferða og ó- vissa fiskimanns um veiði- magn og sveiflur í fiskistofni eru nokkur dæmi til viðbótar. Hvernig á að velja úrtak úr stórum hóp til að rétt mynd af hópnum fáist? Getur það átt við úrtak fólks við skoð- anakönnum, framleiðslu á skrúfum í verksmiðjum, þar sem þörf er að fylgjast með gæðum, eða orð og setningar í fornritum, þegar um ákvörð un höfundar er að ræða, svo að eitthvað sé nefnt? Tölvísinni er beitt á hin fjölbreytilegustu fyrirbæri í vorri veröld, og innan fjöl- margra annarra vísindagreina er hún ómissandi þáttur, enda hefur tötuvísi stundum verið nefnd málfræði vísindanna. Eðlisfræði, líffræði og sálar fræði eru nokkur dæmi um vísindagreinar, þar sem töl- vísi er beitt, og þar sem hún hefur þróazt á ákveðinn hátt í samræmi við eðli hverrar vísindagreinar. Ein nýjasta grein töluvísi, sem enn er á miklu byrjunarstigi, fæst við tilraunir til að skilgreina á kerfisbundinn hátt, hvernig manneskjan lærir, hvernig hún tekur við upplýsingum utan að frá, og sarneinast þar að vissu leyti þær 3 greinar er að ofan voru nefndar, þ.e. eðlisfræði, líffræði og sál- fræði Það er staðreynd, að töl- vísin getur gefið margvís- legar upplýsingar um hin ó- líkustu fyrirbæri, og stað- reynd, sem mörgum finnst mótsagnarkennd, er það, að sé úrtak valið úr hóp, full- komlega af handahófi, má oft með mjög mikilli nákvæmni segja til um ýmis sameigin- leg einkenni hópsins, jafnvel þótt úrtakið sé aðeins 25—30 einingar. og að hópurinn sam an standi af milljónum ein- inga“. • „Hjá tryggingafélögum hefur tölvísinni verið beitt á hagnýtum grund- velli, er ekki svo? „Líftryggingafélög eru gott dæmi um hagnýta notkun töluvísi, og má segja, að rekst ur líftryggingafélaga sé alger lega reistur á starðfræðileg- um iíkindagrundvelli, enda eru elztu dæmi gagnaúr- vinnslu einmitt um söfnun upplýsinga um mannfjölda- sveiflur og dánartíðni. Ýmsar athyglisverðar kenn ingar hafa einnig komið fram hin síðari ár um iðgjaldakerfi annarra tryggingagreina, t. d. bílatrygginga, þannig að von andi verður þess ekki langt að bíða, að unnt verði að byggja upp jafn-heilsteypt hugmyndakerfi og nú er til í líftryggingum einnig í öðrum greinurn trygginga. Hefur til- koma rafreikna og bókhalds véla átt drjúgan þátt í því, að kleift er að athuga reynslu liðinna ára á hagkvæman hátt °S byggja úr þeirri reynslu almennar aðferðir og kenn- ingar, sem nota má síðan um framtíðina". • „Hvernig lízt þér á íslenzk tryggingamál"? „Um þau mætti margt rita, en það, sem maður verður fyrst fyrst var við, er hve tiyggingar almennt eru tiltölulegar lítið út breiddar meðal almenninigs, og umhugsun fóilks takmörk- uð, að því er virðist, um þörf þess að byggja upp þjóðfélags legt öryggi sitt með hvers kyns frjiálsuim tryggingum. Sú staðreynd, að tryggingaskil- málar á fslandi ná í mörgum tilfellum skemmra að inni- haldi en hjá nágrannaþjóðum okkar, og að bætur eru oft og tíðum lágar, á sjlálfsag't sinn þátt í þessu. Einnig veldur þessu örugglega sú staðreynd, að oft skortir á, að trygginga- félögin hér á landi sýni þann þjónustuanda við trygginga- taka, sem æskilegur og nauð- synlegur er í nútíma þjóðfé- lagi. Hin sívaxandi velmegun og þar með síaukin fjármuna- söfnun eins-taklinga og fjö'l- skyldna veldur þvtí, að trygig- ingaþarfir almennings eru imiklar, og meiri en margur gerir sér grein fyrir, og hlut- verk tryggingafélaga því mik- ið að vekja áhuga á þessari þörf, svo og að gera trygging- ar sem hagkvæmast úr garði. Sem dæmi má nefna fjöl- skyldu, er hefur komið sér upp íbúð eða húsi, með lán- um, og á á haettu að missa íbúðina, ef fyrirvinnan fellur frá. Tryggingafé'lög eiga fyrst og fremst að vera þjónustu- fyrirtæ-ki fyrir trygginga-taka, samræma þar-f iðgjö-ld og skil- mála, auka þarf fjölbreytni í tryggingum og gera skibnála að miklum mun víðtækari en nú er, þannig að alm-enningur geti gengi'ð í hvaða trgyginga- félag sem er og verið viss um að fá hagkvæ-ma og viðtæka tryggingu, sem fullnægir þörf um hans í flestum atriðum. Almenningur hefur takmark- aða möguleika á því að setja sig inn í skil-mála í einstök- um atriðum og á að geta geng ið að því vísu, að ekki sé eitt- hvert mikilvægt atriði einmitt undante-kning í skilmálum þess félags, er hann tryggir sig hjá. # „En er ekki samkeppnin holl, til þess að hindra, að einokun leiði til óhagstæðra iðgjalda?" „Sa-mkeppni í nútíma- tryggin-gafélagi á að fara fram í hagkvæmum rekstri og þjónustu vi'ð tryggin-ga- taka. Ástandið í íslenzkum tryggingamálum í dag minnir að sumu leyti á ástand það, er ríkti í Svíþjóð fyrir 40 ár- um. Þá ris-u upp ný trygg- ingafélög þar, eins og gorkúll- ur, á þann hátt, að safnað var saman s-ki-lmálum og iðgja-lda- töxtum þeirra félaga, sem fyr ir voru, einu eða tveimur nýj- um atriðum bætt i skilmúla og iðgjöld laekkuð. Félög þessi voru oft lí-ti'l með ónóga sjóði og rekstrar-fé, og s-tjórnað af harðsvíruðum businessmönn- um eða valdafíkn-um náung- um, sem ekki báru skyn á tryggingamál. Þar kom að lok um, áð iðgj-öldin urðu of lág fyrir minnstu f-élögin, sem þar með hurfu úr sögunni, en af þessu skapaðist slí-k ó- reiða og óöryggi fyrir trygg- inkataka og iryggingaifé1!, að tryggingamenn settus-t á rök- stóla unj þessi mál. Var sett á fót eftirlit með tryg-gingafé- lögum, og tryggingafélögin ákváðu að reisa rekstur sinn á samkeppni í kostnaðarhlið og þjónustu, en iðgjaldaskil- málar og taxtar yrðu að mestu samræmdir. Trygginga félögin yrðu rekin á traust- um grundvelli og réttur trygg ingatakans skýlaus. Trygg- ingafélögin yrðu rekin út frá Erlendur Lárusson, tryggingafræóingur. þeim meginsjónarmiðum, að rekstrarlegt öryggi trygg- ingarfélagsins og hagur trygg- ingatakans yrðu tryggð. Átti þetta fyrst við um liftrygg- ingar, en aðrar greinar hafa komið á eftir. Bílatryggingar í Svíþjóð hafa verið undan- tekning að því leyti, að viss samkeppni hefur verið í þeim efnum fram á þennan dag, en nú hafa bæði taxtar og ið- gjöld að mestu verið sam- ræmd einnig í þeirri grein“. • Eiga tryggingafélög að vera hlutafélög eða gagn- kvæm félög? „Miklar umræður urðu um þetta atriði fyrir nokkrum áratugum á Norðurlöndum, og var það þá rætt til hlítar. Hlutafé er til þess að veita tryggingafélagi styrkan rekstr argrundvöll frá byrjun og stuðlar að nettóiðgjöldum þegar frá upphafi. Gagn- kvæm félög byggja upp sjóði frá tryggingatökum eða öðr- um aðilum og greiða svo arð, ef vel gengur. Hluthafarnir fá réttmæta vexti fyrir þá þjónustu, sem þeir láta af hendi með því að leggja fé í reksturinn. Hvort tveggja skipulagið á jafnmikinn rétt á sér“. • „Hvað segirðu um þau átök, sem hér urðu fyrir nokkru í sambandi við bíla- tryggingar?" „Nauðsynlegt var að koma á þeirri nýjung, sem lengi hefur tíðkazt meðal ná- grannaþjóða okkar, að verð- launa þá, sem ekki valda tjónum, í ríkara mæli en áð- ur hafði verið gert. Er raun- ar furðulegt, að félög þau, sem hafa yfir að ráða margra ára tölvíslegu efni um bíla- tryggingar ,skyldu ekki með hjálp gagnaúrvinnslu byggja upp iðgjaldakerfi fyrr. sem samrýmdist betur kröfum nú- tímans og þörfum neytenda. Hins vegar er ekki þar með sagt, að nú sé í gildi það bíla tryggingakerfi, sem hag- kvæmast sé og bezt henti okk ar aðstæðum. Með keríis- bundinni úrvinnslu þeirra gagna, sem fyrir liggja, ætti að vera hægt að ná nú þegar lengra á því sviði. Það, sem einkum er ábóta- vant í bílatryggingum er, að mínu áliti, hve bætur þær er greiðast, þegar slys verða, eru lágar og miklu lægri en tíðk ast hjá nágrannaþjóðunum, svo og það óöryggi þjóðfélags þegnnaa, sem í því er fólgið, að farþegatrygging skuli ekki sjálfkrafa og í öllum tilfell- um vera falin í hinni lög- boðnu ábyrgðartryggingu“. • „Hvað álítur þú, að helzt sé ábátavant í öðrum tryggingagreinum?” „Mikil deyfð ríkir hér í líf- tryggingum almennt. Er hálf- gert öfugstreymi, að, eins og nú er, er bifreið heimilis oft tryggð gegn öllum hugsanleg um skrámum, en fyriivinna eða fjölskylda alls eigi. Verðbólgan á að vísu sök á því að miklu leyti, að almer.n ingur hefur misst trú á þess- um tegundum trygginga. Hins vegar hefur of iítið ver- ið gert af því að gera ljósa þá staðreynd, að vissar líftrygg- ingar koma verðbólgunni jafnlítið við og t.d. bruna- tryggingar, og að ýmsar iíf- tryggingar jafnvel með vissri sparifjármyndun má gera þannig úr garði, að þær standist verðbólgu að mestu leyti, enda seljast slíkar tryggingar í öðrum löndum, þrátt fyrir verðbólgu. Frjáls- ar sjúkra- og slysatryggingar eru einnig lítt útbreiddar. Virðast þessar tryggingar nær óplægður akui hérlendis. Má í þessu sambandi geta þess, að t.d. í löndum eins og Kanada óg Svíþjóð, sem hafa mjög háþróað almannatrygg- ingakerfi, eru um leið frjáls- ar líf- sjúkra- og slysatrygg- ingar útbreiddari en víðast annars staðar, og sýnir það, að einstaklingsbundnar trygg ingaþarfir fólks vaxa vio bætt almannatryggingakerfi, þar eð auga þess opnast fyrir nýjum og fjölbreyttari þörf- um. Ein tegund trygginga, sem hér er nær óþekkt fyrir- brigði, eru frjálsar hóntrygg ingar starfsmannahópa og stéttarfélaga. Eru tryggingar þessar amerískar að upp- runa, bárust til Evrópu eftir síðustu heimsstyrjöld og hafa náð mikilli útbreiðslu víða í Evrópu, þar á meðal á Norð- urlöndum. Ná tryggingar þessar yfir iíf- sjúkra- og slysatryggingai. Hóptrygging Framhald á bls. 14. ÚR ÖLLUM ÁTTUM Hvað veldnr því, að tryggingar eru lítt út- j breiddar meðal almennings á íslands? — ■ Skortir á þjónustuanda hjá tryggingafélög- j um hér? — Ástandið í tryggingamálum hér : minnir á ástandið í Svíþjóð fyrir 40 árum. — * Lágar bílslysabætur. — Bílfarþegatrygging * ætti sjálfkrafa að vera innifalin í hinni lög- j boðnu ábyrgðartryggingu. — Deyfð í líf- j tryggingum. — Bíll fjölskyldunnar tryggð- ! ur, en fyrirvinnan ekki. — Frjálsar líf-, j sjúkra- og slysatryggingar lítt þekktar á ís- j landi. — Hóptryggingar starfsmanna eru j ódýrar, en nær óþekktar hér. j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.