Morgunblaðið - 23.11.1966, Síða 13

Morgunblaðið - 23.11.1966, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ 13 MiðvikuðagttT 5S. nóv. 1966 Guðmundiir 0. Hagalín skrifar: „Bezt að fara stiilt af stað...“ Steinunn Eyjólfsdóttir: Hin gömlu kynni og fleiri sögrur. — Bókaútgáfan Eeiftur, Keykjavík 1966. KONA, sem er fædd og uppalin hér í Reykjavík hefur sagt mér ýmsar sögur frá bernskuárum Ei'num. Og hún hefur tjáð mér, að þá er hún og leikfélagar henn ar voru orðin þreytt á einhverj- um síenöurteknum og af full- orðna fólkinu viðurkenndum leikjum, hafi allt í einu dottið upp úr einhverjum krakkanum: „Eigum við ekki annars að koma að gera kúnstir?" ' Þessu kveður hún ávallt hafa verið vel tekið, og svo var þá upp á ýmsu fundið, sem siða- vandir aðstandendur tóku ekki gott og gilt, ef þeir komust á enoðir um það. En ýmsir óvið- komandi menn, sem af tilviljun urðu sjónarvottar, virtust hins vegar oft og tíðum skemmta sér vel — og því betur, sem minna var „af setningi slegið“. Og svo tóku þeir þá að eggja og espa krakkana! Mér hefur stundum dottið þetta í hug þegar ég hef lesið nýjar bækur — oftast, en ekki ávallt eftir unga höfunda. Þá fýsir að ekrifa, trúlega af einhverri innri þörf til að tjá tilfinningar sínar og viðhorf. En hvað sem köll- uninni líður, mundu þeir flestir þrá, að bækur þeirra veki veru- lega athygli — og þá um leið þeir sjálfir. Þeir komast flestir tiltölulega fljótt að raun um, að enginn leikur er að finna sér eðlilegt og um leið sérstakt, en þó ekki afkáralegt form, en brátt hafa þeir komizt að raun um, að til er næstum óbrigðult ráð til oð láta taka eftir sér. Það er ein- ínitt að gera kúnstir. Og þeir sjá, oð það verður gert með ýmsu móti. Dálítið óvenjulegt og jafn- vel andkannalegt efni, klúrt, svo kallað djarft orðalag og svo ým- Iss konar frávik frá venjulegu íormi, jafnvel betra en ekkert að gera kúnstir í réttritun eða eleppa stórum stöfum og lestrar merkjum. Og það er síður en evo, að eins þeir, sem lítið hefur verið gefið grípi til þessa. Stund um gera það svo gáfaðir höfund- or, að maður gæti freistazt til að gruna þá um græsku, — látið eér detta í hug, að þeir hefðu gaman af að sjá viðbrögð þeirra bókmenntalegu spekinga, sem vilja ekkert síður en láta væna eig um að vera gamaldags! Og evo glottir þá kannski hrekkja- lómurinn — ekki sízt ef hann les ritdóm, þar sem einn hinna spakvitru lýsir yfir því í löngu máli, að hann botni hreint ekkert i bókinni, en klykkir svo út með þeirri speki, að þetta muni ef til vill vera það form, sem koma ekuli — eða að slík bók sem þessi geri í rauninni allar áður út komnar af sömu tegund ger- eamlega ómerkar! Þeir vilja auð ejáanlega, þessir bókvitringar, láta blábjánalega og tízkusoltna lesendur segja, að báðir geti nú nokkuð, rithöfundur og ritdóm- I í hinni litlu bók Steinunnar I Eyjólfsdóttur eru tíu stuttar sög ur. Aðeins ein þeirra er óvenju- leg að efnisvali, en engar skæl- ingar í stíl, engin svokölluð dirfska í málfari, ekkert klúrt eða andkannalegt í atburðarás- inni. Mér er sagt, að Steinunn sé ung stúlka, sem láti sér sæma að vinna við fiskpökkun í frysti húsi og trúlega hefur hún ekki hirt eða haft tóm til að kynna sér hina tízkubundnu lífstján- ingu þeirra, sem fegnir vildu hafa augun í hnakkanum eða annað í höku og hitt í enni, ef þeir vektu þá verulega eftir- tekt, en máske er hún líka ónæm íyrir slíku ar, enda ekki snið þeirra þannig yfirleitt, að til þess verði ætlazt. En þær eru sagðar á látlausu og lipru máli, og stíllinn er hnökra- lítill, en hins vegar ekki svipmik- ill. Skáldkonan er auðsjáanlega gædd allríkri glöggskyggni á mannlegt eðli og mannlegt sam býli, sér veilur og vankanta, en er þó ekki ádeilugjörn, enda á hún meira skopskyn en svo, að hún taki hvern mannlegan brest hátíðlega. Sögurnar eru misjafnlega hag- lega gerðar, en sumar sýna hæfni til þeirra taka á efninu, sem sóma athyglis- og kímnigáfu skáldkonunnar. Svo er um Hin gömlu kynni, Köllun, Að hlæja eða gráta, Sögu, sem allir kunna og Þegar óskirnar rætast. Mið- ur tekst um sögurnar Skáldið og skruddan og Hvít blóm — og í Yfirflutningsskrifstofunni, þar sem skáldkonan hefur fengið skemmtilega hugdettu, reisir hún sér hurðarás um öxl. Sumar- kvöld minnir að efni og atburð- arrás um of á kunnar smásög- ur, innlendar og erlendar, sem skrifaðar eru af skáldum, er bet- ur kunna til verka en Steinunn kann ennþá. í útgerðinni er ekki smásaga, ekki einu sinni saga, en þar er af smekkvísi, hófsemi og raunsæi brugðið upp skyndi- mynd úr atvinnulífinu, seinustu drættirnir þannig, að myndin öll verður eftirminnileg. Ég efast um, að Steinunn Eyj- ólfsdóttir hefði orðið sérlega hrif in, þó að hrópað hefði verið fyr ir henni margraddað húrra út af þessari bók hennar. Ég bæti bezt trúað, að hún hefði skellt í góm og sagt: „Ég er svo alveg hissa, hvern- ig mennirnir láta. Þetta bókar- korn mitt er svo sem ekki neitt mikið. Ég var nú bar að þreifa fyrir mér“. En mættum við fá meira að heyra? Guðm. Gíslason Hagalín. Kvöldvaka á Héraði Egilsstöðum 20. nóv. Á FÖSTUDAG var fyrsta kvöld, þriggja kvölda vöku, sem haldin er í félagsheimilinu Yalaskjálf. Sigurður Blöndal, formaður Menningarsamtaka Héraðsbúa, setti kvöldvökuna. Unnar Stef- ánsson, erindreki, flutti því næst erindi um sameining sveit- arféiaga. Því næst voru umræð- ur. í gærkvöldi var fyrsta atriðið á dagskránni: Tekizt á yfir Lagar fljót, einn fulltrúi frá hverjum hrepp. Stjórnandi var Matthías Eggertsson, Skriðuklaustri, en dómari Kristján Ingólfsson, Eski- firði. Karl Guðmundsson leikari og fleiri fluttu gamanþátt, Gam- anmál. Dansað var að lokinai dagskrá. í dag kl. 14, flytur ávarp Sig- urður Blöndal, formaður MH. Annað atriði á dagskrá er ís- lenzk byggingarlist, erindi með skuggamyndum, flutt af Herði Ágústssyni. Tónakvartettinn frá Húsavík syngur. Þá verður kynn- ing á skáldskap séra Stefáns Ólafssonar í Vallarnesi. Séra Ágúst Sigurðsson, Vallarnesi fltur erindi, og Karl Guðmunds- son, leikari, les upp. Þá syngur Tónakvartettinn aftur. Að lokum flytur erindi, og Karl Guðmunds son, fyrrverandi skólastjóri. Steinþór. Vörumorkaður / Listamannaskálanum Opið oðe/ns frá kl. 1-6 e.h. fram á föstudag Notið tækifærið, gerið góð kaup Bifvélavirki Reglusamur ungur bifvélavirki óskar eftir traustri atvinnu úti á landi. Skilyrði að húsnæði fylgi. — Vanur rafsuðu, logsuðu og margs konar viðgerðum á diesel- og benzínmótorum. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 5. des., merkt: „Ábyggilegur — 8533“. Frá sjónarhóli mæðra BOGI Sigurðsson er undanfarna daga búinn að rita mörg orð um samninga Sumargjafar við Starfs stúlknafélagið Sókn og þar eð ég er starfsstúlka hjá Sókn og mál- um þessum nokkuð kunnug, sé ég mig knúða til að rekja þetta mál nokkuð. Þessar línur eru pó eingöngu á mína ábyrgð persónu- lega. Forsaga þessa máls er sú, að á sl. vori fékk Sókn það inn í samninga að álag á eftirvinnu, sem áður hafði verið greitt frá kl. 19 skyldi framvegis vera greitt frá kl. 17. Ennfremur hafa vinnuveitendur, aðrir en Sumar- gjöf, um árabil greitt þeim Sókn arkonum er vinna skemur en 36 stunda vinnuviku 7% hærra kaup en ella. Um þessi atriði stóðu samningaumleitanir Sókn- ar við Sumargjöf. í allt sumar hafði forstjórinn engan áhuga á að tala við félagið. Þegar loks samningar hófust neitaði hann hvorutveggja. Þó kom þar að að hann féllst á 7% en neitaði eindregið eftirvinnuálaginu, sem er 15,13 kr. á tímanum eins og kaup er í dag Út af því stóð verkfallið í 4 daga. Þá varð Bogi Sigurðsson að láta undan rétt- mætum kröfum starfsstúlkna, sem fóru ekki fram á annað en sambærileg kjör við það sem borgað er af öllum öðrum vinnu- veitendum Starfsstúlknafélagsins Sóknar. En Bogi var ekki af baki dottinn, nú hugðist hann að reyna að „hefna þess í héraði sem hallaðist á Alþingi". Hann hafði orðið að láta undan fyrir Margréti Auðunsdóttur og starfs- stúlkum á barnaheimilunum, en nú skyldi hefnd hans hitta ein- stæðar mæður út um allan bæ, því að ekki verður annað skilið af grein hans, en að breyttur lokunartími á barnaheimilum sé bein hefnd fyrir það að hafa orðið að láta í minni pokann í þessu máli. Öðruvísi er ekki hægt að skilja orð hans um 150 þús., sem hann segir Margréti hafa hrifsað úr höndum Sóknar- stúlkna og kastað á glæ!! En það hlýtur líklega að vera sú upphæð sem Sumargjöf sparar sér að borga hálfsdagsstúlkunum, með því að láta þær vinna frá kl. 13—17 í staðinn fyrir að vinna til kl. 18 eins og áður var. Er það í sjálfu sér mjög merkileg yfirlýsing, að þeim peningum, sem ekki eru borgaðir Sóknar- stúlkum, sé á glæ kastað, ekki metur nú forstjóri Sumargjafar starfsemina mikils. Þá er að minnast á sjálfa á- lagsupphæðina, sem virðist for- ráðamönnum Sumargjafar svo mikill þyrnir í augum að þeir treysta sér alls ekki til að borga hana. Ég rengi ekki útreikninga þeirra, en annar reikningur er líka til á því dæmi. Ég hef reikn- að út hvað það myndi kosta á hvert barn, ef því væri deilt þannig niður, og telst mér til að það sé kr. 16,66 á mánuði. Þetta er of há tala, því að þarna hef ég reiknað með að Sóknarstúlk- ur ynnu allt árið en svo er ekki. Á sumrin vinna nær eingöngu nemar auk fóstranna, svo þetta álag yrði svo til ekkert þá mán- uði. Ég er alveg viss um að ef forráðamenn Sumargjafar hefðu. látið svo lítið að leita álits for- eldra, sem hefði sannarlega ver- ið sanngirniskrafa, þá myndu foreldrar sem hlut eiga að máli hafa verið fúsir til að borga þessa upphæð úr sínum vasa. Það kemur fram í greinargerð Sumargjafar að forsendur fyrir þessari ákvörðun um lokunar- tíma barnaheimila sé sú m. a. að starfsstúlkur fái verulega hækk- un með þessum samningum, en fóstrur enga. Það er ekki von, fóstrur eru ekki í Sókn. Eftir að fóstrufélagið gafst upp á því að vera stéttafélag og lagði allt sitt ráð í hendur kjaradóms mun hafa verið lítið um kjarabætur hjá því félagi, t. d. munu þær hafa gleymzt á sl. vori, það þarf nefnilega alveg eins að heyja kjarabaráttu á þeim vettvangi eins og hverjum öðrum og mættu fóstrur vera þess minnugar. Það kann að vera óskadraumur Boga Sigurðssonar að óbreyttar starfs- stúlkur á barnaheimilum verði einnig starfsmenn bæjarins svo þær hætti að gera kröfur um launahækkanir, sem sambærileg- ar séu við aðrar verkalýðsstéttir, og myndi þá e.t.v. skammt að bíða að ófaglærðrar stúlkur á barnaheimilum yrðu „annars flokks vinnuafl", eins og Bogi hefur eftir Margréti Auðunsdótt- ur. Nei, þarna er annar aðili, sem bæði Bogi og forráðamenn Sum- argjafar virðast gleyma, það eru þeir sem eiga börn sín á barna- heimilunum. Við sem þar eigum börn eigum heimtingu á því að svo sé búið að fólkinu að þar veljist jafnan til starfa úrvals fólk, svo sem nú er, og okkur er sízt greiði gerður með því að verið sé að sjá eftir kjarabótum til handa þeim stúlkum sem gæta barna okkar þar á meðan við vinnum svo þær beri minna úr býtum en starfssystur þeirra, sem vinna á barnaheimilum borgarinnar og allar hafa notið fyrrgreindrar kjarabóta frá því í vor. Þá er sú staðhæfing að betra sé barnanna vegna að loka kl. 17 en 18. Mæður sem stunda vinnu neyðast til að senda börn til að sækja börn sín ef lokað er svo snemma að þær geta ekki verið komnar úr vinnu. Væri efni í aðra grein að ræða um þá hlið málsins og slysahættu sem því er samfara. Maria Þorsteinsdóttir. Seljum í dag oo næstu daga alls kenar ( smágallaður mjaðmasíð- buxur í kven og urlioga- stærðum á mjög hagstæðu verði Bolholti 6. s. 20 7 44.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.