Morgunblaðið - 24.11.1966, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. nóv. 1960
Hjartans þakkir til barna, tengdabarna, barnabarna
og barnabarnabarna minna svo og annarra skyldmenna
og vina, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á 75 ára afmæli mínu 18. þ.m.
Guð blessi ykkur öll.
Þjóðbjörg Þórðardóttir,
Hlíðarbraut 5, Hafnarfirði.
t
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG ÞORLÁKSDÓTTIR
Hæðargarði 28,
andaðist í Landakotsspítala þann 22. nóv. sl. —
Fyrir hönd vandamanna.
Sveinn Jónsson, börn og tengdabörn.
Hjartkær faðir okkar,
STEINDÓR H. EINARSSON
lézt að heimili sínu, Sólvallagötu 68, þriðjudaginn
22. nóvember. — Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hins látna.
Hjartkær maðurinn minn og faðir okkar,
NÓI KRISTJÁNSSON
Öldugötu 25A,
andaðist snögglega, mánudaginn 21. nóvember sl.
Anna Ágústsdóttir og börn.
Útför eiginkonu minnar og móður,
FRIÐGERÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR
er andaðist miðvikudaginn 16. nóv., fer fram frá heim-
ili hennar Grundargötu 4, ísafirði, föstudaginn 25. nóv.
og hefst athöfnin kl. 2 e.h.
Sigurður Kr. Sigurðsson,
Margeir Sigurðsson.
Faðir minn, tengdafaðir, bróðir og föðurbróðir,
GUÐMUNDUR L. JÓNSSON
verkstjóri, Freyjugötu 25B,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26.
nóvember kl. 1,30 e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð,
en þeim, sem vildu minnast hans er bent á Hjarta- og
æðaverndunarfélagið.
Fyrir hönd vandamanna.
ÓIi Már Guðmundsson,
Kolbrún Dexter,
Vilborg Jónsdóttir,
Þorsteinn Örn Þorsteinsson.
Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURÐAR E. JÓNSSONAR
verkstjóra, Ásgarði 73,
er lézt 17. þ.m., fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 24. nóvember kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlega
afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, skal bent
á minningarspjöld til styrktar Knattspyrnufélaginu Fram
sem fást í Lúllabúð, verzl. Straumnesi, Bólstrun Harðar
og Carli Bergman, úrsmið.
Rebekka Magnúsdóttir,
Jón Sigurðsson, Magnús Sigurðsson,
Ásgeir Sigurðsson, Guðrún Valgeirsdóttir,
Sigurður E. Ásgeirsson.
Sveinn Jónsson,
börn og tengdabörn.
Kveðjuathöfn um föður okkar og tengdaföður
JÓHANN JÓNSSON
frá Bæ, Álfheimum 58,
^er lézt þann 20. þ.m. fer fram í Fossvogskirkju föstu-
daginn 25. nóv. kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað.
Jarðsett verður að Prestbakka í Hrútafirði laugar-
daginn 26. nóv. kl, 14.00.
Börn og tengdasynir.
n^un^mmm^^^mmmmmmmmmKnBmmmmammmm^mmm^aBBmmmmmmm^^mmm^ma^maum
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar,
dóttur og systur,
AUÐAR GRÉTU VALDEMARSDÓTTUR
Bræðratungu 9, Kópavogi.
Einar H. Guðmundsson,
Jón Ingi Einarsson, Hrafnhildur Einarsdóttir,
Sóley Einarsdóttir, Guðmundur Ólafur Einarsson,
Elísabet Einarsdóttir, Einar Auðunn Einarsson,
Ingileif Jakobsdóttir, Jón Valby Gunnarsson,
RAFMAGniSTALÍUR
Höfum ávallt fyrirliggjandi
hinar velþekktu, sænsku
ASEA rafmagnstalíur,
bæði eins og tveggja hraða, í
stærðunum 250 kg og 500 kg.
JOHAN RÖNNING hf.
Skipholti 15. Sími 10632, 13530
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Sæmundur G. Ruit-
ólfsson —
SÆMUNDUR Guðni Runólfsson
var fæddur í Reykjavík þann
28. ágúst 1883, sonur hjónanna
Guðrúnar Sæmundsdóttur frá
Lækjarbotnum í Landssveit og
Runólfs Gunnlaugssonar, er ætt
aður var úr Fljótshlíð. Meðal
systkina Runólfs voru Guðjón
faðir Skúla læknis og Þórunn
móðir Nínu myndhöggvara.
Til sjö ára aldurs dvaldist Sæ
mundur í foreldrahúsum, að Fúlu
tjörn við Reykjavík, en þá missti
hann föður sinn eftir stutta legu.
Börn þeirra hjóna, Katrín, Guð-
rún og Sæmundur — Guðni
var þá látinn, ungur að aldri —
voru tekin í fóstur af vanda-
mönnum. Sæmundur fór þá til
móðursystur sinnar, Sigríðar, og
manns hennar, Ólafs Jónssonar
bónda í Selsundi á Rangárvöll-
um. Dvaldist Sæmundur hjá
þeim ágætu hjónum til tuttugu
og sjö ára aldurs. Hann var á
árunum 1907—1909 við nám í
Hvítárbakkaskóla.
Árið 1913 kvæntist Sæmundur
Guðríði Ottadóttur frá Kúludalsá
á Hvalfjarðarströnd. Eignuðust
þau fjögur börn, Sigríði, Otta,
Runólf og Harald, sem öll eru á
lífi og starfa hér í borg. Guð-
ríður lézt þann 18. október 1940.
Síðan bjó María Salómonsdóttir
honum heimili.
Eftir að Sæmundur fluttist aft
ur til Reykjavíkur stundaði hann
lengst af raflagningavinnu hjá
þeim Halldóri Guðmundssyni,
rafmagnsfræðingi og Bræðrun-
um Ormson, en vann síðan hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur um
þrjátíu ára bil, eða þar til hann
lét af stöfum fyrir sex árum.
Hann lézt þann 18. þessa mán-
aðar.
Svo má segja að leiðir okkar
Minning
Sæmundar heitins hafi um hált'r
ar aldar skeið legið saman, allt
frá árinu 1916, að við vorum með
í því að stofna karlakór þann er
nú heitir Fóstbræður. Við stóð-
um þar saman, hlið við hlið, í
tuttugu og fimm ár, eða þangað
til ég gafst upp, ef svo má orða
það, en Sæmundur hélt áfram og
söng í kórnum þar til fyrir fáum
árum. Þá var hann árum saman
í söngkór Dómkirkjunnar. Hann
var söngvinn og hafði ágæta
bassarödd. Hann var svo skyldu
rækinn og áhugasamur um allt,
er hann tók sér fyrir, að af bar.
Minnist ég þess t.d. ekki að hann
léti sig vanta á nokkura söng-
æfingu eða við önnur tækifæri
þegar safnazt var saman til söngs
eða gleðskapar. Hann var mað-
ur skapléttur og eignaðist okkur
alla að vildarvinum og bræðrum
í þessa orðs beztu merkingu.
Minning hans er okkur öllum
björt og ástvinum hans ógleym-
anleg.
Hafliði Helgason.
f yytt — Mýtt ítalskir prjónakjólar og peysur. vlugglnn Laugavegi 49.
[ I £ Vegna útfarar Sæmundar G. Runólfsscnar, yrrverandi rafvirkja, verður verzlunin lokuð il kl. 2 í dag, fimmtudaginn 24. nóvember. tLQSSI SF. Laugavegi 176.
Lokað vegna jarðarfarar Vegna jarðarfarar Sigurðar E. Jónssonar, yfir- verkstjóra, verður Pípugerð Reykjavíkurborgar, Artúnshöfða, lokuð eftir hádegi í dag. Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
B 1 c L.©!killl 1 fSop /egna iarðarfarar. Ijólbarðaverkstæði líta Sæmiindssonar Skipholti 5.
I j V. ] Lokceð í dag rá kl. 1—3 e.h. í dag, vegna jarðarfarar Sigurðar E. Jónssonar, verkstjóra, Ásgarði 73. fámsmiðja Gríms Jónssonar Sjargi við Sundlaugaveg.