Morgunblaðið - 01.12.1966, Page 11
Fimmtudagur 1. des. 1966
MORCUNBLAÐID
11
ÍJtnesfavakaii
fimmtudaginn 1. des. Hljómleikarnir hefjast kl. 9.
FÉLAGSHEIMILIÐ STAPL
' +
Oskar Pétursson
sextugur
í tilefni sextugsafmælis Óskars Péturssonar þann
2. des. n.k. ætla Skátafélögin í Reykjavik, Knatt-
spyrnufél. Þróttur og Bandalag ísl. skáta að efna
til samsætis til heiðurs Óskari i Tjarnarbúð 2. des.
n.k. kl. 20,00. Þeir vinir og félagar Óskars, er
▼ildu taka þátt í þessu hófi, eru beðnir að rita
nöfn sín á lista er liggja frammi í Skátabúðinni við
Snorrabraut, hjá Guðjóni Oddsyni í Málaranum
og á skrifstofu B.Í.S. Eiríksgötu 31.
STJÓRNIR FÉLAGANNA.
Gunnar Steindórsson
f DAG er til moldar borinn
Gunnar Steindórsson, sem and-
eðist 23. nóv. sl., 48 ára að aldri.
Hann var fæddur hér í bæ
24. okt. 1918 og voru foreldrar
hans þau Guðrún Guðnadóttir
frá Keldum í Mosfellssveit og
Steindór Björnsson frá Gröf.
Móðir sína missti Gunnar ungur
en faðir hans er enn lifandi á
H-ræðisaldrL
Það var mikið félagslíf með
þessu fólki. Stemdór frá Gröf
var einn af æskulýðsfrömuðum
þessa bæjar um áratugaskeið og
forystumaður, bæði í Góðtempl-
erareglunni og í ungmenna- og
íþróttafélögum bæjarins. Gunn-
ar vandist því ungur að bianda
geði við fólk og mótaðist því
frá fyrstu tíð af félagsstarfi,
enda veit ég fáa sem viljugri
voru til starfa að félagsmálum
en hann var. Hann var búinn
eð starfa í ótal stjórnum, nefnd-
um og ráðum um áratugaskeið,
duglegur og áræðinn, hjálpsam-
«ir og starfssamur.
Við, sem nú erum á miðjum
•ldri og förum að kveðja, hver
•f öðrum, áttum góða æsku í
þessum bæ, þó að erfiðir tímar
væru í efnahags- og atvinnu-
málum. f starfi og leik knýttust
mörg vinaböndin og hafa haldið
til þessa dags. Verkamenn eða
miðstéttarfólk hafði ekki efni
á að kosta börn sín til lang-
•kólagöngu og því hvarf æskan
til starfa á öðrum sviðum. íþrótta
félögin og önnur æskulýðsfélög
tirðu því starfsvettvangur þess-
•rar æsku.
Gunnar fór ungur að starfa í
ÍR og iðkaði þar íþróttir, en tók
jafnframt þátt í öðrum félags-
málum. Það var ekki fyrr en í
•tríðsbyrjun, og eftir að hafa
•tundað verzlunarstörf um skeið,
•ð hann settist í Samvinnuskól-
•nn og lauk þaðan prófi. Starf-
•ði síðan við Póstihúsið í Reykja
vík, þar til hánn stofnaði ís-
lendingasagnaútgáfuna, ásamt
öðrum og veitti henni forstöðu,
bæði sem sjálfstæða fyrirtæki
og eins eftir að Samband isl.
•amvinnufélaga yfirtók það.
Hann var auglysingastjóri hjá
Hilmi h.f. (Vikan, Úrval) um
nokkurt skeið, en starfaði hin
eíðusbu ár hjá Samvinnutrygg-
ingum.
Gunnar var kvæntur Sigríði
Einéirsdóttur og áttu þau tvær
dætur, Helgu, sem er giít Sigur-
geir Steingrhnssyni stud. mag.
og Birnu Eybjörgu, sem er með
móður sinni í heimahúrum.
Það er sárt að sjá eftir starf-
■ömum og góðum mönnum á
bezta aldri, en enginn má sköp-
um renna og við vinir hans og
félagar í ÍR og annarsstaðar
kveðjum hann og þökkum. Megi
minningin um góðan direng vera
buggun harmi gegn.
ÍR-ingur.
Enn einn af forystumönnum
fþróttafélags Reykjavíkur er
horfinn okkur yfir landamærin
miklu. Gunnar Steindórsson,
fyrrverandi formaður í. R. hef-
ur nú kvatt okkur fyrir fullt og
allt í jarðne&kri tilveru okkar
Það er mikil eftirsjá fyrir okk-
ur, sem kynntumst Gunnari vel
og náið í störfum hans fyrir
félag okkar, að vita nú til þess
að við sjáum hann nú ekki fram
ar á fundum okkar, njótum ekki
lengur áhuga hans og dugnaðar,
finnum ekki framar hið hlýja
handtak hans, elskulegt viðmót
og glöðu, bjartsýnu lund og vit-
um, að vandfyllt er skarð það,
er hann skilur eftir í samtaka-
mætti félagsins, sem hann unni
svo heitt og fórnaði svo lengi
kröftum sínum.
Það var Gunnar Steindórs-
son sem kom til mín á sínum
tíma og fór þess á leit við mig
að ég tæki við formannsstarfi
í í. R. á eftir honum. Hann dró
ekki dul á það, hvaða starf biði
mín, hann kom heill til dyr-
anna og sagði mér án umbúða
og án þess að dylja mig nokk-
urs, að kröfurnar væru miklar,
sem gerðar væru til formanna
f. R. og að mikinn tíma þyrfti
til þess, að formannsstarfið gæti
tekist. Þannig kynntist ég Gunn-
ari og þannig var hann jafnan
gagnvart mér, eftir að að bund-
ust vinarböndum. Ég var og hon
um jafnan þakklátur fyrir traust
ið er hann sýndi mér. Og ekki
síður er ég honum innilega
þakklátur fyrir þann stuðning,
er hann jafnan veitti mér í starfi
mínu fyrir félag okkar, ekki
hvað sízt meðan ég þurfti hvað
eftir annað á aðstoð hans að
halda í byrjunarstörfunum. Þessa
sömu sögu geta áreiðanlega fjöl
margir 1. R. -ingar sagt og tekið
undir hana í djúpri og innilegri
þökk fyrir alla þá miklu fóm-
fýsi er hann sýndi okkur í
tíma og ótíma og félagi okkar
í heild.
Gunnar var höfðinglegur í
starfi, djarfur í framgöngu, kjark
mikil átakamaður en líka ljúf
lyndur og mildur og nærgæt-
inn við vini sína og samferðar
menn, höfðingi heim að sækja
og elskulegur heimilisfaðir. Því
er sárastur harmurinn kveðinn
að hinni ágætu konu hans og
börnum. Við í. R. -ingar kveðj
um Gunnar Steindórsson, einn
af formönnum okkar með mikl-
um og einlægum söknuði og
þökkum honum hin mörgu og
miklu störf í þágu félags okkar.
Við biðjum algóðan Guð að vaka
yfir og varðveita eiginkonu hans
ættingja og vini og veita þeim
styrk og stoð á alvarlegri sorg-
ar og tregastundu.
J. V. Hafstein.
Lckað í dag 1. des.
kl. 9 — 12 vegna jarðarfarar.
Baðstofan
IIAFNARSTRÆTI 22.
Ferðaskrifslofa rákisins
LÆKJARGÖTU 3.
Sendisveiain
Piltur óskast til sendiferða fyrir hádegi.
Hf. Hampiðfan
Stakkholti 4 — Sími 11600.
SKREFI A UNDAN .
Reykurinn er hreinsaður
en rétti ameríski