Morgunblaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 1. des. 1966 f Síðari landsleikurinn við Þjóðverja A14 mín. kafla skoraði ísl. liðið 1 mark gegn 6 og Þjóðverjar unnu 26-19 EF reyna á að endurtaka eða betrumbæta einhvern hlut, sem €il- tölulega vel hefur tekizt, fer tilraunin oftast út um Þúfur. Svo var einnig um síðari landsleik Islendinga og Þjóðverja í handknattleik í gærkvöldi. Allur var hann hinum fyrri verri. Ef ekki hefði komið til frábær leikur Hans Schmidt í síðari hálfleik, þar sem hann — að vísu óvaldaður — skoraði 7 glæsileg mörk, hefði leikurinn hreinlega haft slæman heildarsvip og hálf leiðinlegan. En fyrir harðfengi Schmidt og fleiri yfirburði, skoruðu Þjóðverjar 26 mörk gegn 19 — og unnu yfirburðasigur. Svartur var kaflinn hjá ísl. liðinu er það á 14 mín kafla skoraði aðeins 1 mark gegn 6 hjá Þjóðverjunum. Það var rothöggið á baráttu og spenning leiksins. Örugg tök Þjóðverja á leiknum Liðin fóru hægt af stað ag það skapaðist aldrei sú stemning sem fyrra bvöldið. Geir átti fyrsta skotið, sem var varið en síðan sfeoraði Munch og var þá tæp- lega mínúta liðin. örn átti skot sem var varið og síðan Sigurður Einarsson sfeot í stöng. Og þess- uim mistökum svöruðu Þjóðverj- ar með öðru marki. Allt þetta gerðist þó á 2% mínútu. Síðax skorar Örn fyrsta mark Xslands úr víti. En ör- skömimu síðar fá Þjóðverjar vlti og staðan eftir 5 mín. er 1-3 fyrir Þjóðverja. Geir lagaði þetta með laglegum einleik gegnum vörnina og þegar Þorsteinn varði tvívegis stóðu enn vonir til hins bezta. En ísl. liðið náði aldrei sömu tökum á leiknum og kvöldið áð- ur. Hinar lausu og ónákvæmu sendingar tóku að sjást — þær aexn aðeins boðuðu eldsnöggt upphlaup hinna fótfráu Þjóð- verja og mark hjá íslendingum. Mistökin voru stundum hin herfi legustu og nýttust flest Þjóð- verjtwn i vil. Er leið á hálfleikinn tókst ísl. liðinu þó að rétta sinn hlut og kom svo tvívegis að aðeins skildi eitt mark. Sá góði kafli stafaði þó frekar af því að Hans Schmidt hafði ekki stillt „kan- ónu“ sína rétt og skaut nokkr- um sinnuim framnjá, svo ísl. lið- inu gafst færi til nýrra sóknar og möguleigi til að minnka for skotið. Undir lok hálfleiksins seig þó aftur á ógæfuhlið og í hléi var staðan 12-9 fyrir Þjóð- veTja. Góður kafli. Upphaf síðari hálfleiks var bezti leikkafli ísl. liðsins. Þá örl aði á hraða og keppnisskapinu góða hjá liðinu. Liðið^náði und irtökunum í leik og spili stutta gtund. En svo kom áþreifanlega og illþyrmilega í ljós að Schmidt hafði betri augastað á ísl. mark- inu en áður. Á 5 mín kafla skor aði 'hann 4 mörk — öll eins, með tilhlaupi og uppstökki fyrir framan varnarvegginn íslenzka og þó fenötturinn kæmi oftast á svipaðan stað á markið var eins og markverðirnir væru frosnir frammi fyrir þesssum sterklega Þjóðverja og öll hans skot sem 'hæfðu — og það gerðu þau flest núna — höfnuðu í netinu. A Leiðarljósið. Eftir 6 mín var staðan 13 gegn 17. Og nú kom reiðar- slagið. Á næstu 14 mínútum skora Þjóðverjamir 6 mörk gegn 1 og komu þrjú þeirra upp úr hraðhlaupum, sem til var stofnað fyrir klaufalegar sendingar íslendinga eða eld- snögg hlaup Þjóðverjanna inn í hægar sendingar þeirra. Þarna var gert út um leik- inn á líkan hátt og hnefaleik- ari hálfrotar mótherja sinn og leikur sér svo að honum. Varnarleikur Þjóðverja harðn- aði og fengu þeir mildar áminn- ingar en það var eins og dóm- arinn vildi ekki styggja þá með þvtí að stöðva hörkuna með við- eigaindi a'ðgerðum. En jafnvel vítaköstin mistók- ust — og bilið breikkaði, varð 9 mörk mesit. í lokin náðu Islenzku piltarnir Oft voru gróf tök Þjóðverjanna í vörninni. Stökk 2.27 Kínverjinn Ni Chih-Chin stökk 2.27 m í hástökki á Asíuleikun- um í Kambodíu f gær. Afrekið er einum sentimetra lakara en heimsmet Valeri Brumels frá 1963. Kínverjinn er 24 ára og hefur s.l. tvö ár verið í öðru sæti á lista yfir beztu hástökkvara heims. Körluknottleik- ur í dug f dag verður Rvíkurmótinu í körfuknattleik fram haldið. Hefst keppnin kl. 5 síðdegis að Hálogalandi. Þá verða þessir leikir: 4 flokkur Á — ÍR. 3 flokkur ÍR — KR 2 flokkur ÍR — Á 1 flokkur KR — KFR 1 flokkur ÍR — Á Hans Schmitdt skoraði 9 mörk — næstum öll eine. þó aðeins betrd tökum á leiknum®" og kom þar ekki sízt til betri mankvarsLa hjá Kristófer en hjá Þorstemi, þó aldrei væri húin neitt sérstök. Tvívegis komst markamuniurinn í 6 mörk en loka itölurnar urðu 7 marka sigur Þjóðverja, 26-19, Liðin Leikur beggja liða var lakari en kvöldið óður. Það var Hans Schmidit sem reif sig upp úr meðahnennskunni og setti eftir- minnilegan svip á leikinn. Þjóð- verjamir æfðu sýniilega Xang- sendingar fram og hraðhlaup til að taka við þeim. Þetta mistókst mjög hjá (þeim — þannig að mis- heppnaðar sendingar þedrra í leiknum í heild urðu sennilega Ktið færri en hjá íslendingum. En á elílkt hefðu þeir ekki hætt í jöfinuim leik. Þetta var lei/kur kattarins að músinni. Þýzka liðið hafði yfÍTburði i hraðanum og í vörninná, mark- færzlunni — en skotihæfnin var jöfnust ef liðin em boriin saman. Framhald á bls. 34. Haustmót i badminton HAUSTMÓT TBR í badminton fór fram í Valshúsinu sl. laugar- dag, og voru þáttakendur alls 38, allir frá TBR. Að venjiu var að- eins keppt í 3 greinum badmin- tons í þessu fyrsta móti félags- ins, þ.e. í tvílíðaleik karla og kvenna, svo og í tváliðaleik karla í nýliðaflokki. Voru margir leikjanna jafnir og spennandi og þurfti oft að leika aukalotur til að útkljá leiki. Úrslit urðu sem hér segir: Tvíliðaleikur karla: Garðar Alfonsson og Viðar Guðjónseon unnu Finnbjörn Þorvaldsison og Langskot Ingólfs á leið í netið. (Myndir Sveinn Þorni.) Matthías Guðmundsson, 15:8, 15:14. Tvíliðaleikur kvenna: Jónina Nieljóhníiusdóittir og Rannveig Magnúsdóttir unníu Huldu Guð- mundsdóttur og Lovisu Sigurðar- dóittur, 15:11, 16:7. Nýliðaflokkur: Har.aldur Jóns- son og Jafet Ólafsson unnu Helga Benediktsson og Jón Gíslason, 15:11, 15:6. MOLAR Glasgow Rangers unnn í sL viku Borussia Dortmund 2—1 í fyrri leik landanna í Evrópa keppni hikarmeistara. Danskl bakvörðurinn Kaj Johansen skoraði sigurmarkið — óð upp allan völl og skoraði. Everton, ensku bikarmelstar arnir, unnu síðari leik sinn við Real Zaragossa 1—0 fyrir helgina. Fyrri ieikinn unno Spánverjamir 2—0 og halda þeir því áfram í keppni bikar meistara F.vrópu. Finnska körfuknattleiksliðið Torpan Pojat vann báða leiki sina við sænsku meistarana Alvik, í Evrópukeppni körfu- knattleiksliða. Úrslit síðarl leiksins, sem fram fór í Helo ingfors nrðu 85—72. Keino, Keníuhlauparinn frægi, sem á heimsmet í 3000 m hlaupi sagði á þriðjudag að hann hefði sett sér það takmark að bæta heimsmetið í míluhlaupi fyrir OL. í Mex- ico 1968. Bandaríkjamaður- inn Jim Ryun á heimsmetið 3:51.3. Keino sagðist ætla að breyta æfingakerfi sínu vegna þessa. Hann býst við góðum afrekum hjá sér í Mexico ekki sizt vegna þess að Mexico er í ámóta hæð frá sjó og heima borg hans. Sýna og kenna karate HINGAÐ til lands eru feomnir tveir góðir gestir, sem ætla má að iífgi upp á íþróttaMfið. Eru það tveir háskólastúdentar frá Japan, sem báðir hafa unni'ð sér frægð í heiimalandi siínu í Karate. Þeir heita Toshiaki Tani, sem vann meistaratitil Vestiur-Japans í Karate árið 1964, og Akimasa Shimonishi, setm vann þann sama titil árið eftir. Toshiaki Tand kemiur hdngiað fná Norðurlöndum, þar sem hann hefiur kynnt ilþrótt sína að und- anfömiu, en Akiimasa Shimonishi kemiur frá París, en Karate er sérstaklega vinsæl jþrótt í Frakk landi. Hér á landi munu þeir félagar dveljiast nokkum tóma á vegum Judokan, og kynna Karate, sem Shimónlshi Tani. er algjörlegia óþekkt íþrótt hór á landi. En sjón ©r sögu rákari J því ©fni og verður efnt til kynn- ingar og kennslunámskeiðs J næstu viku. Þar munu þeir snýa snilld sdna og leikni, sem er næsta furðiuleg. (Frá JukokanX.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.