Morgunblaðið - 04.01.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.01.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBL,AÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1967. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,06 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDU M MAGINJÚSAR skiphoiti21 símar21190 eftir lolcon simi 40381 "«'1-44-44 \mt\m Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31100. LITLA bíloleígon Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifaliS í leigugjaldi. Sími 14970 BÍIJ\LEIGAISI VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. /L/yrœ? RAUOARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 Fjaðiir, f jaðrabiöð. hljóðkútai púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. BOavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. ÞRBSTUIT^ 22-1-75 BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON Málflutningsskrifstofa Viðtaistimi kl. 1—5 e.h. NÝKOMIB Hamilton Beach hrærivélar. Armstrong strauvélar. BRÆBUBNIB OBMSSON hf. Lágmúla 9. Sími 38820. Verðbólga Lesandi skrifar: „Gleðilegt nýár, Velvakandi Góður. Um þessi áiramót hafa sennilega flestir sett sér eitt- hvert takmark að keppa að á þessu nýbyrjaða ári í»ar hafa sennilega allir, eða við skulum slá varnagla og segja allflestir, lofað sjálfum sér því, að verða við tilmælum ríkisstjórnarinn- ar og vera góðu foörnin og spenna bogann ekki of hátt í verðlaginu, svo að verðbólgu- draugurinn fitni ekki um of á árinu nýja. Ég aetla að segja þér frá örlitlu dæmi þar um, hvernig sumir útfæra þá ósk. Dóttir mín tvítug fór ásamt vinkonu sinni í eitt samkomu hús borgarinnar á gamlárskv. kl. 12. Aðgöngumiðinn kostaði 450.00, fjögur hundruð og fimmtu krónur, og ártti matur að vera innifalinn í verðinu. í»ær höfðu keypt aðgöngumið- ana fyrir fram og óskuðu eftir að fá frátekið borð með fleir- um, en þeim var sagt að þess væri ekki þörf fyrr en á stað- inn væri komið. Ég sagði þeim líka að leyfi hjá vínveitinga- húsum til þess að mega selja inn, væri háð því, að allir hefðu sæti þegar lika væri um mat að ræða. Þegar þær komu inn á um- ræddan stað var fólksfjöldi mikill fyrir og ekki helmingur af gestum gat fengið sæti. Troðningur og ölæði var það sem þar réði ríkjum, og treystu þær vinkonurnar sér ekki til þess að ílendast á þessum stað og fóru strax burt án þess að fá vott né þurrt. Bréfhúfur voru seldar þarna inni á 75.00 kr. stk. í búð kosta þéssar húfur 15.00 kr. Nú Iangar mig til að spyrja, er ekkert eftirlit á þessum stöðum? Er virkilega hægt að féfletta fólk á svona freklegan hátt án þess að nokkurt eftirlit sé þar með? Væri þá ekki rétt framvegis, að líta örlítið eftir þessum ósóma, ef ekki á að vera eintómt kjaftæði um verð- stöðvun og verðlagseftirlit. H. J.“. Selma Lagerlöf Lesandi skrifar: „f útvarpsþættinum: Á hljóð bergi 27. des. lék Björn Th. Björnsson m.a. plötu með upp- lestri Selmu Lagerlöf Julklapps boken. Listfræðingurinn gat þess, að skáldkonan hefði lesið þetta árið 1936 og myndi það vera eini upplestur hennar, sem varðveittur væri á grammofónplötu. En til er ann- ar eldri og ekki síðri upplestur Selmu Lagerlöf á grammofón- plötu, þ.e.: „Svenska diktar- röster: Selma Lagerlöf láser Den heliga natten ur Kristus- legendér“. Þegar ég las kafla úr þýðingu minni á ævisögu Selmu Lagerlöf eftir Hönnu A. Larsen, ritst. The American Scandinavian Review, í Ríkis- útvarpið 1944, þá var sú plata með upplestri skáldkonunnar spiluð. Einar Guðmundsson". * Ruslið Bangsi skrifar: „Mér er svo annt um alla umgengni, að mér svíður rusla- slóðin inn Miklubraut og Suð- urlandsbraut upp á Ártúns- urlandsbraut upp á Ártúns- höfðann. Þessi slóði er eftir alls konar bíla, sem eru að flytja pappakassa og annað drasl að Sorpeyðingarstöðinni, og hafa ekkert til að halda flutningum á vörupalli, svo að þetta dettur eða fýkur af alla leiðina, öllum til ama og leið- inda. Og borginni til útgjalda- aukningar. Erlendis er stórsekt við að flytja vörur á bifreiðum, sem eru ekki til þess gerðar að tryggja það, að vörurnar eða varningurinn tolli á ökutæk- inu. Eru nokkrar reglur hér um þetta, þá setjið þær strax, kæri borgarstjórL Bangsi". Musteri _ Svava ÞórhallsSóttir hef- ur hringt til blaðsins og beðið þess getið, að það hafi sært hana og hún ekki kunnað við, þegar í þýddri grein í Mbl. um jólin var talað um hofið I Jerúsalem, en það hafi í öllum biblíuþýðingum okkar verið nefnt musterL Vill Velvakandi kóma þessu á framfærL Barnatímar Amma skrifar: „Gleðilegt nýár Velvakandi góður! Það er barnatími útvarpsins sem liggur mér á hjarta. Við vorum svo ánægð með þrenn- ingu barnatímans. En nú um jólin söknuðum við Skeggja Ásbjarnarsonar og Valtýs- dætra. Úr því að við heyrum ekkl lengur í þeim systrum, og þær hafa gefið út í bókarformi barnatima sína, sem ná yfir 13 ár, spyr ég: Eru þetta lokaorð þeirra í sambandi við barna- tímana? Heyrum við aldrei i þeim framar? Nú bið ég bæði þær og Skeggja Ásbjarnarson um svar. Fáum við ekki að heyra þau í barnatímum út- varpsins? Ekkert hefi ég út á frú Önnu Snorradóttur að setja, en á hátíðum vill maður tilbreytingu. Ein af mörgum ömmura sem hlustar með barna- börnunum". Verzlun - Verzlun Óska eftir að kaupa eða taka á leigu matvöru- verzlun. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 8. þ.m., merkt: „Matvöruverzlun“. Ford 1939 óskast keyptur. Til greina kemur enn eldri bíll. — Tilboð er greini helzta ásigkomulag og verð, legg- ist inn á afgr. Mbl., merkt: „Ford — 8349“. Atvinna Maður, sem er vanur að fara með vélar og getur unnið sjálfstaett, óskast til að stjóma litlu verk- stæði. — Upplýsingar í síma 17246. Atvinnurekendur Ungur kennari, með haldgóða þekkingu og reynslu í skrifstofustörfum og viðskiptum, óskar eftir ca. % starfi. — Þeir, sem kynnu að óska frekari upp- lýsinga, leggi inn nöfn og heimilisföng, ásamt laus- legri greinargerð um tegund starfs, á afgreiðslu Mbl. fyrir 7. jan. nk., merkt: „Hálft starf — 8352“. Skrifstofustarf Föndurskóli Námskeið fyrir börn á aldrinum 5—6 ára, Opinber stofnun vill ráða stúlku til bókhaldsstarfa. hefst 9. janúar. Nokkur reynsla í meðferð bókhaldsvéla æskileg. Föndurskóli Bergþóru Gúslavsdóttur. Umsóknir sendist afgr. Mbl., merktar: „8351“. Laugarásvegi 24. — Sími 35562. Orðsending frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur Væntanlegir nemendur dagskólans mæti í skólan- um fimmtudaginn 5. janúar kl. 2 síðdegis. SKÓLASTJÓRI. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Verzlunin Á S G E I R Langholtsvegi 174. — Sími 34320.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.