Morgunblaðið - 04.01.1967, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1067.
Skrifstofustarf
hálfan eða allan daginn, óskar þýzkur námsmaður,
með menntun og reynslu í út- og innflutnings-
verzlun, — þýzk, ensk, frönsk mál. — Tilboð sent
afgr. Mbl., merkt: „Þýzk — 8340“.
Kópavogur - Atvinna
Afgrciðslustúlka óskast. — Upplýsingar
ekki gefnar í síma.
Borgarbúdin
Kársnesbraut 93.
ONSKOLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
tilkynnir
Dagana 4.—6. janúar fer fram innritun fyrir tíma-
bilið 1. jan. til aprílloka að Óðinsgötu 11 eða í
síma 19246.
SKÓLAST J ÓRI.
Vcrzlunarmannafélag
Keykjavíkur.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnað-
armannaráðs og endurskoðanda í Verzl-
unarmannafélagi Reykjavíkur. — Listum
eða tillögum skal skila í skrifstofu V. R.
eigi síðar en kl. 12 á hádegi laugardag-
inn 7. janúar nk.
KJÖRSTJÓRNIN.
Katrín Sveinbjarn-
ardóttir - Minning
At eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiöir.
Vort iíf, sem svo stutt og
stopult er,
það stefnir á æðri Ieiðir.
En upphiminn fegTÍ en augað sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
E. Ben.
KATRÍN var fædd að Hurðar-
baki í Kjós, þann 17. nóvember,
1908. Voru foreldrar hennar, þau
hjónin, Sveinbjörn Guðmunds-
son frá Valdastöðum og Sesselja
Guðmundsdóttir, frá Götu í Ytri
hrepp, Ögmundssonar og Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur bónda
í IleJlisholtum.
Bar Katrín nafn ömmu sinnar
Katrínar Jakobsdóttur frá Valda
stöðum.
Sesselja, móðir Katrínar, flutt
ist í Kjósina með þeim hjónum,
Helgu Gröndal og Þórði Edilons
syni, er hann var skipaður hér-
aðslæknir í Kjósarsýslu árið
1900, en þau bjuggu í Meðalfells
koti í Kjós. Er Þórður flutti til
Hafnarfjarðar 1904 varð Sesselja
eftir í Kjósinni. Var hún þá heit
bundin Sveinbirni, en þau hófu
búskap á Hurðarbaki árið 1906.
En vegna erfiðrar fæðingar,
þegar Katrín fæddist, varð að
leita læknishjálpar og var Þórð
ur að sjálfsögðu sóttur. En það
var ekkert heimatak, þá var lítið
um bíla, byggða vegi og brýr.
Því varð að treysta á hestana.
En það voru taldir um 60 km. til
Hafnarfjarðar (önnur leiðin).
Þórður var mikill að vallarsýn
og að allri gerð, var hann talinn
um 110 kg. að þyngd.
Þá var sími á aðeins einum
bæ, næst utasta bænum í sveit-
inni, (Útskálahamri) en nú er
sími á hverjum bæ. Á þetta er
aðeins minnzt hér, til saman-
burðar, því, sem nú er. Þórði
tókst að hjálpa í þetta sinn,
enda talinn góður læknir.
Freistandi væri að minnast
frekar á fæðingardag Katrínar,
því mun sleppt að þessu sinni,
en þann dag mun ég lengi muna,
því það kom í minn 'hlut að
sækja Þórð.
Þó erfiðlega gengi fyxir
Katrínu að komast í þennan
heim, dafnaði hún vel og óx upp
hjá foreldrum sínum, sem fífill
í túni. Þegar hún var gjafvaxta,
mátti segja, að hún væri með
gjörfulegustu stúlkum í sveit-
inni, þótt þar væri mikið mann-
val.
Rúmlega tvítug giftist Katrín
Sendisveinn óskast
sem fyrst, þarf að hafa skellinöðruréttindi.
Fosskraft
Suðurlandsbraut 32 — Sími 38830.
Einari Ágúst Guðbrandssyni frá
Hækingsdal, en þau slitu sam-
vistum. Þau byrjuðu búskap að
Eyrarkoti en bjuggu síðari í Hæk
ingsdal. Þegar þau bjuggu í Eyr
arkoti, var þar lftill bær heldur
hrörlegur, en þegar inn var kom
ið, var eins og að koma í nýja
byggingu, svo var allt fágað og
1 hreint og framúrskarandi vel um
gengið.
Eignuðust þau hjón tvær dæt
ur Hrafnhildi og Rakel.
Um nokkurt skeið var Katrín
ráðskona hjá rosknum ekkju-
manni í sveitinni. Þá fór að bera
á þeim sjúkleika, sem hún bjó
við æ síðan, til æviloka, eða á
þriðja tug ára. Flutti hún þá til
Reykjavíkur, til að leita sér lækn
inga og til þess að sjá sér og dætr
um sínum farboða, meðan hún
gat eitthvað unnið, sem þó fór
smá minnkandi, því heilsan vildi
ekki batna heldur þvert á móti,
þótt leitað væri lækninga -utan-
lands og innan.
Dvaldist hún ýmist á sjúkra-
húsum eða á heimilum dætra
sinna, eftir að þær stofnuðu heim
ili. Gátu þær þá að nokkru end
urgoldið henni allt, sem hún
i hafði látið þeím í té í uppvext-
! inum. Seinni árin var heilsan orð
! in svo erfið, að hún varð að
styðjast við stafinn til að kom-
ast eitthvað áfram.
Eins og áður getur, áttu Katrín
og Ágúst tvær dætur. Er Hrafn-
hildur gift Tómasi Lárussyni,
fyrrv. skólastjóra og konu hans
Kristínar Magnúsdóttur á Brúar
landi í Mosfellssveit. Er Tómas
verkstjóri að Reykjalundi og búa
þau þar nálægt. Maður Rakelar
er Gísli Antonsson vélvirki og
eru þau búsett á Sauðárkróki.
Þau Sesselja og Sveinbjörn
áttu aðra dóttur, Ósk, sem er
gift Bjarna Bjarnasyni bruna-
verði, og kveður hún nú systur
sína með söknuði og trega. Svo
mun og um alla sem höfðu náin
kynni af Katrínu.
Hér er löngu stríði lokið.
Það er dálítið erfitt að sjá á
eftir fólki á bezta aldri, sem
hefur verið öðrum til mikillar
fyrirmyndar. En því verður að
taka, sem að höndum ber, hvort
sem það er ljúft eða leitt.
Ég kveð svo þessa góðu frænd
konu mína, með nokkrum trega,
með einlægri þökk fyrir aJlt gott
trá hennar hendi, og fyrir þá dáð
sem hún hefir drýgt með fram-
komu sinni. Og bið henni bless-
unar Guðs.
Steini Guðmundsson.
ARAMOTASPILAKVðLD
Fimmtudag 5. jan. kl. 20 I Sjálfstæðishúsiuu
VÖRÐUR
HVÖT
SPILUÐ
FÉLAGSVIST
Sœtamiðar afhentir
á skrifstofu
Sjálfstcsðisflokksins
á venjulegum
skrifstotutíma
Húsið opnað kl. 20
Lokað kl. 20.30
HE/MDALLUR
ÓÐINN
Clœsileg spilaverðlaun
Happdrœfti
ÁVARP
Dr. Bjarni Benediktsson
forsœtisráðherra
Skemmtiþáttur
2 þekktir leikarar flytja
Dans
Dr. Bjarni Benediktsson
Skemmtinefnd