Morgunblaðið - 04.01.1967, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1967.
Skozka landsliðið
í hnattferö í maí
— til undllrbúnings heims-
meistarakeppni árið 1970
UM miðjan maí leggur skozka
landsliðið í knattspyrnu upp í
30 daga keppnisför og áður en
lýkur fer skozka liðið umhverf-
is hnöttinn. Þetta er upphaf á-
ætlunar til undirbúnings þátt-
töku Skota í næstu heimmeist-
arakeppni 1970. Skotar segja,
að þetta sé umfangsmesta og
glæsilegasta keppnisför sem
nokkurt knattspyrnulandslið hef
ur til þessa tekizt á hendur.
Skotar eru staðráðnir í að
komast í lokakeppnina í næstu
heimsmeistarakeppni og hyggj-
ast hvergi til spara til undir-
búnings liði sínu.
Engin þeirra þjóða, sem Sikot-
arnir koma til með að keppa
við í hinni væntanlegu för,
komst í lokakeppnina síðast. En
Skotar telja það ekki aðalatriði,
því förin miði að því eigi að
síður, að byggja upp skozka lið-
ið að reynslu og getu. Leikið
verður í Israel, Iran, Malaysia,
Hong Kong, Ástralíu, Nýja Sjá-
landi og í Kanada.
Skotar, sem eru í röð elztu
forystuþjóða á sviði knattspyrnu,
eru sannast sagna mjög óánægð-
ir með að þeim tókst ekki að
komast í 16 liða keppnina síðast
— og ætla ekki að láta slíkt
henda aftur, að þeirra sögn.
ítalir sigruðu í riðli þeim er
Skotar voru í í undankeppn-
inni. En Skotar telja að þeir eigi
lið sem geti hvenær sem er
komizt í röð 16 beztu þjóða
heims — svo fremi að undir-
búningurinn sé réttur.
Fram til þessa hafa Skotar
aldrei haft fastráðinn fram-
kvæmdastjóra og stjómanda síns
landsliðs. En eftir að svo illa
tókst til með HM í sumar, sem
raun varð á, var John Prentice
ráðinn í starfið, en skozka sam-
bandið sagði honum upp 3 mán.
síðar vegna ágreinings um Banda
ríkjaför hans sem farin var til
ráðgjafa um stofnun keppnis-
deildar í Bandarikjunum.
Og nú er leitað að nýjum hæf-
um framkvæmdastjóra jafn-
framt sem för landsliðsins er
undirbúin og til hennar valdir
bæði ungir upprennandi leik-
menn og gamlar, reyndar
„stjörnur".
Mikið er ævinlega um félagaskiptun í brezku knattspyrnu-
félögunum. Hér hefur teiknari Daily Express brugðið upp
broslegri mynd af slíkum atburðum.
Þátttakendur á nýafstöðnu unglingamóti TBR.
Bðdminton er stundað 181
tíma á viku af 550 manns
Og ekki tókst crð fuflnægja eftirspurn
AÐALFUNDUR Tennis- og
badmintonfélags Rvíkur var ný-
lega haldinn.
1 Upphafi fundar minntist for-
maður félagsins, Kristján Bene-
diiktsson, tveggja létinna stofn-
enda og velunnara félagsins,
peirra Benedikts G. Waage, heið-
ursforseta Í.S.Í., og Páls Andrés-
sonar kaupmanns.
Þá flutti formaður ársskýrslu
stjórnar og reikninigar voru lagð-
ir fram og samþykktir. Nokkur
rekstrarafgangur varð á árinu,
og var hann að venju lagður í
húsbyggingasjóð félagsins.
Á iiðnu starfsári sá T.B.R. um
framkvæmd 5 badmintonmóta,
þ. e. haustmóts, innanfélagsmóts
og firmakeppni félagsins, og auk
þess var félaginu falin fram-
kvæmd Reykjavíikurmótsins og
íslandsmeistaramótsins, en það
var að venju umfangsmest og
tóku þátt í því al'ls um 80 kepp-
endur frá 6 félögum. þ. á m. frá
3 stöðum utan Reykjavífcur.
Sanna þessi fjölmennu mót
hina öru útbreiðslu þessara
ágætu íþróttar og sívaxandi vin-
sældir hennar.
Unglingastarfið fer fram með
líku sniði og áður. Börn og
unglingar fá ókeypis æfingar og
tilsögn í Valshúsi á laugardögum
kl. 2—4. Er aðsókn mjög mikil.
Kennari þar er Garðar AMonsson,
en hann er jafnframt aðalleið-
beinandi félagsins. Er nú ákveð-
ið að efna til opins unglingamóts,
þar sem keppt verður í 3 aldurs-
flokkum. Er áformað að slíkt mót
verði framivegis fastur liður í
starfi félagsins.
Þá eru samæfingatimar í Vals-
húsi síðdegis á laugardögum, sem
opnir eru öllum félagsmönnum,
og eru þeir vel sóttir.
í haust styrkti T.B.R. tvo fé-
lagsmenn til náms- og æfinga-
dvalar í Danmörku, en Flugfélag
íslands veitti þeim afslátt af far-
gjöldum. Voru það þeir Jón
Árnason, núverandi íslandsmeist-
ari og Garðar Alfonsson sem
jafnframt kynnti sér þjá'lfún og
unlingastarf badmintonfélaga i
Kaupmannahöfn. /
Þá gat formaður þess í skýrslu
sinni, að félagið hefði nú fengið
inni í skrifstiofuíhúsnæði Í.B.R. I
íþróttamiðstöðinni í Laugardal
fyrir stjórnarfundi sína og af-
greiðslu, sem orðin er allum-
fangsmikil með sívaxandi starf-
semi.
Þá hreyfði formaður þeirrl
hugmynd, sem fram hefur kom-
ið, hvort ekki sé timabært að
huga að stofnun sérsamibands
fyrir badminton, þar sem vitað
er að iðkun þessara íþróttagrein-
ar breiðist ör-t út og badminton-
deildir eru starfandi á ýmsum
stöðum á landinu.
Formaður T.B.R. var endur-
kjörinn Kristján Benediktsson,
en aðrir stjórnarmenn eru Jó-
hannes Ágústsson, Kristján Benja
mínsson, Lárus Guðmundsson og
Ragnar Georgsson.
Tveir dómarar
Skortur á húsnæði til æfinga
hefur löngum verið fjötur um
fót og hefur félagið jafnan tekið
á leigu allt nothæft húsnæði, sem
falt hefur verið, bæði íþrótta-
sali, skóla og félaga. í vetur hef-
ur félagið æfingatíma í fjórum
af skólum borgarinnar en mest-
ur hluti æfinganna fer fram í
Valshúsi og í íþróttahöllinni í
Laugardal.
í íþróttahöllinni hefur T.B.R.
nú 6 æfingatíma á viku og mun-
ar mikið um það, þar sem leikið
er þar á 12 badmintonvöllum
samtímis. Samtals hefur félagið
nú á leigu 181 vallartíma á viku
og mun láta nærri að virkir fé-
lagar séu @50 talsins auk ann-
arra félagsmanna. Var þó ekki
unnt að fullnægja eftirspurn eft-
ir æfingatímum (síðari hluta
kvölds). Aftur á móti munu enn
vera lítils háttar lausir tárnar
framan af kvöldi.
í handknattleik
og fjölgað verði um I til 2 í hverju liði
MARGT bendir nú til þess,
að sú heimmeistarakeppni í
handknattleik, sem fyrir dyr-
um stendur í Svíþjóð, verði
sú síðasta, þar sem aðeins
verður einn dómari á vellin-
um í hverjum leik. Alþjóða-
sambandið hefur uppi ráða-
gerðir um að hverfa að
tveggja dómara kerfinu á lík-
an hátt og er í körfuknatt-
leik og íshokkí. Hugmyndin
hefur fengið slíkan stuðning,
að líklegt þykir að breyting
verði hér á á þingi sambands-
ins í Hollandi 1968 og komi
þá til framkvæmda í HM-
keppni í Frakklandi 1970.
Þá eru einnig horfur á að
fjölgað verði í liðunum,
þ.e.a.s. að skiptimenn verði
fleiri en nú er. Nú eru þeir
þrír (auk varkamarkvarðar)
en ýmsir hallast að þvi að
þeir verði 4 eða jafnvel 5.
Hraðinn í handknattleik er
orðinn svo mikill, að tími þyk-
ir kominn til, að fleiri leik-
menn geti fengið sér smáhvíld
oftar.
HSl LaugardalshöU HKR*
íslandsmótið
á handknattleik
9
I. DEILD
KVÖLD
KL. 8.15
FRAM - ÁRMANN
VALUR - VÍKINCUR
Komið og sjáiððspennandi keppni