Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.01.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967. Akureyri, 4. janúar. hennar eru frú Elin Björg i FYRSTT íslendingurinn, sem Eyjolfsdóttir og Magnús Lór- fæddist árið 1967 mun vera enzson, vélstjóri á Sigur- 14 marka stúlka, sem skauzt björgu ÓF 1, til heimilis að í heiminn á fæðingardeild Lyngholti 11, Akureyri. Fjórð»mngssjúkrahússins á Litla stújkan er fjórða barn Akureyri kl. 00.03 hinn 1. foreldra sinna. ' Hún á tvo janúar 1967, eða þegar að- bræður, 9 og 2ja ára og 7 eins þrjár minútur voru liðn ára gamla systur. 1 ar af nýja árinu. Foreldrar — Sv. P. ^ Sæmiieg færð á Suð- ur- og Vesturiandi Þungfært eða ófært annars staðar á landinu isienzkur ferðahópur í þotu á heimssýninguna í Montreai FÆRÐ á þjóðvegum landsins var í gær mjög svipuð því sem verið hefur að undanförnu. Á Suðurlandi var í gær fært um Þrengsli og um Suðurlandsund- irlendi, en þó var vafasöm færð íyrir smábíla í uppsveitum Árnessýslu. Vesturlandsvegur var í gær fær um Hvalfjörð og Borgarfjörð og fært um Bröttubrekku vestur í Dali og um Svínadal vest í Reykhólasveit. Um Snæfellsnes var í gær fært yfir Fróðárheiði allt til Ólafsvíkur og um Kerlingar- skarð til Stykkishólms. Þá var fært frá Stykkishólmi í Grund- arfjörð og einnig um Skógar- strönd. Á Vestfjörðum var mikil ó- færð, en þó var fært innam fjarða fyrir jeppabifreiðar. - ÓLGA Framhald af bls. 1. meiri athygli, sem nýlega var frá því skýrt, að blaðakóngur- inn Thompson, lávarður, hefði tekið yfir „The Times“ kvmn- asta blað Breta, sem verið hef- ur í miklum fjárhagsörðugleik- um. f skýrslu „The Economist" segir, að stóran hluta ábyrgðar- innar á fjárhagsvandræðum dagblaðanna, megi skrifa á reikning blaðaútgefendanna sjálfra. f>eir eru sakaðir um að hafa sýnt alltof lítinn áhuga á nýtízku starfsaðferðum og rekstraraðferðum og fyrir að hafa verið of eftirgefanlegir við verkalýðsfélögin. Jafnframt eru verkalýðsfélögin í Fleet Street vöruð mjög eindregið við þeim alvarlegu afleiðingum, sem and- spyrna þeirra gegn nýbreytni í J 11 blaðaútgáfu og blaðarekstri geti haft. í skýrslunni segir, að unnt ætti að vera að fækka starfs- mönnum blaðanna í Fleet Street um fjögur þúsund og spara þann ig 4.875.000 sterlingspund á ári. i í fyrradag tókst að opna leið- ina um Holtavörðuheiði allt norður til Blönduóss og var hún fær í gærkvöldi, er blaðið hafði síðast af því fréttir. >á var og fært allt norður til Hólmavíkur fyrir stórar bifreiðar. Þegar kemur austur fyrir Blönduós fara snjóalög að þyngj ast og er ófært þaðan til Skaga- fjarðar og eins milli Skagafjarð- ar og Eyjafjarðar. Víðast mun fært innan sveita, því að búið er að ryðja vegi fyrir mjólkur- bifreiðar. Litlum bílum er þó ekki fært. Fært var í gær frá Akureyri um Dalsmynni til Húsavíkur fyrir stóra bíla, en þung færð var þó í uppsveitum Þingeyjar- sýslna. Á Norðausturlandi var mikil ófærð og flestir vegir ófærir. Líkt ástand var á Austurlandi, en þó var fært um Fljótsdals- hérað og Fagradal. Á Suðvesturlandi var fært frá Hornafirði í Suðunsveit og fært var um Almannaskarð í Lónið. MJÖG er skipt um tíðaríar með nýja árinu, og er nú hver dagurinn öðrum betri. Um hádegið var SA-kaldi, skýjað og frostlaust við vest- ur- og norðvesturströndina. En í öðrum landshlutum var NÆSTA sumar mun Montreal borg í Kanada draga að fólk úr víðri veröld, en þar efna Kanada menn til heimssýnmgar í tilefni 100 ára afmælis landsins og vanda mjög til hennar. íslenzk ferðaskrifstofa, Sunna, hefur nú ákveðið að efna til ferðar fyrir 60 manna hóp héðan á heims- sýninguna og verður flogið í þotum alla leið, en stanzað verð- ur einnig í New York. Farið verður frá Reykjavík 12. maí, dvalið til 17. maí í Montreal, eða yfir hvítasunnuna, og einn af þeim dögum ekið til Niagara- fossanna. Þann 17. verður flogið til New York og þaðan heim 24. maí. Verður dvalið í Sheraton- hótelunum á báðum stöðum, en hótel og far kostar 12.800 kr. Einnig er ráðgert að gefa fólki kost á að fara skemmtisiglingu upp St. Lawrencefljót o. fL Heimsýningunni er einmitt komið fyrir á eyjum í St. Lawr- encefljót, sem sumar hafa verið búnar til í þeim tilgangi og einnig á árbakkanum í Montrealborg. Þarna er mjög fagurt, og hafa nú risið margvíslegustu skála- byggingar 70 þjóða, sem þátt taka í sýningunni og Kanada- manna sjálfra, sem ætla að leggja mikið fé í að þessi 100 ára af- mælissýning þeirra verði sem veglegust. Nefnist heimssýning- in „Maðurinn og heimurinn hans“ og á að sýna hvernig mað- urinn hefur komið sér fyrir í heiminum og bætt lífsskilyrði sín með lífsþægindum, vísindum og listum. Hafa verið byggð leik- hús, hljómleikasalir, skemmti- garðar, stór íþróttaleikvangur, alls kyns sýningarhús, kvik- myndahús, kanadískt þorp og fleira og þá sex mánuði sem sýningin stendur streyma til Kanada beztu listamenn og skemmtikraftar, úr öllum heims- álfum auk 30 milljón sýningar- gesta að talið er. íslendingar Staðnir að verki - hurfu út í myrkrið INNBROT var farmið í verzlun ina við Auðbrekku 42 í Kópa- vogi aðfaranótt miðvikudags. Höfðu tveir piltar brotið rúðu í útihurð og kumizt þar inn. Til þeirra sást, en maðurinn, sem sá það, hafði ekki síma, þurfti að hlaupa í næsta hús til að hringja í lögreglu. Og voru pilt- arnir horfnir út í myrkrið, er lögreglan kom á staðinn. Höfðu þeir stolið einhverju af sígarett- um og vindlum. Er málið í rann sókn og ekki búið að ná piltun- um í gær. logn að kalla og heiðskirt og léttskýjað. Þar var þó tals- vert frost inn til landsins, mest 18 st. á Hólsfjöllum, 15 st. í Aðaldal, 14 st. á Héraði og 13 st. á Akureyri. taka þátt í heimssýningunni með hinum Norðurlöndunum, en reistur hefur verið Norðurlanda- skáli á sýningarsvæðinu. Montreal borg er í hinum franska hluta Kanda og þykir bera þess merki. Þar er mikið um góða veitingastaði og skemmtistaði og borgin hefur sérkennilegan svip. Næsta sumar mun Montreal borg í Kanada draga að fólk úr víðri veröld, en þar efna Kanada meim til heimssýningar í tilefni 100 ára afmælis landsins og vanda mjög til hennar. íslenzk ferðaskrifstofa, Sunna, hefur ákveðið að efna til ferðar fyrir 60 manna hóp á heimssýninguna og verður flogið í þotum og einnig stanzað í New York. Verður farið 12. maí og komið aftur 24. maí, og kostar sú ferð 12.8000 kr. Heimssýningin í Montreal er nú í undirbúningi. Hún nefnist GUÐMUNDUR á Rafnkelsstöð- um hefur selt Síldarverksmiðj- unni á Vopnafirði nýjasta bát sinn, Kristján Valgeir, og verð- ur hann afhentur 20. janúar. Báturinn er 356 lestir að stærð og kom til landsins fyrir aðeins tveimur mánuðum. — Úthaldið á bátnum hefur verið mislukkað þennan tíma, síðan hann kom. Ein nótin skemmdist og önnur tapaðist, og svo þurfti að kaupa þá þriðju. Það gerir 4—5 milljónir kr. _ í næturnar, sagði Guðmundur. Ég gat ekki íengið lán til að bjarga þessum nýju skuldum, svo það er ekki annað að gera. Það er þó betra að selja fyrir fullt verð en á nauðungaruppboði. Ég hefði ekki selt Kristján Valgeir hefði ég getað annað, enda er það í óþökk alls míns fólks, því þessir stóru bátar áttu að vera máttarstólparnir hjá okkur og færa okkur síldina að austan. Þetta eru bátarnir, sem hægt er að stunda á veiðar á fjarlægum miðum. Ég er því ákaflega von- svikinn fyrir því að þurfa að gera þetta. Guðmundur kvaðst hafa keypt Kristján Valgeir á 20 milljónir, en hafa selt hann fyrir 22. Þannig hefði hann náð inn helmingnum af nótatapinu aftur. Hann vant- aði þessar fjórar milljónir, til að Laugavatni, 4. janúar. SVO sem kunnugt er af frétt- um hefur staðið yfir bygging á nýju íbúðarhúsi fyrir nemendur Menntaskólans á Laugavatni, en í kvöld byrjuðu nemendur 4. bekkjar og nokkur hluti nem- enda 3. bekkjar að flytjast í hin nýju húsakynni. Mikil ánægja ríkir með húsa- kynnin og munu nemendur verða tveir saman í herbergi, en voru áður fjórir saman og verður því miklu rýmra um þá. Þá hefur skólameistari lýst ánægju sinni með hið nyja íbúðarhús. Hið nýja hús er teiknað af Helga Hjálmarssyni, sem starfar hjá húsameistara ríkisins, Herði Bjarnasyni. Húsið er á tveimur hæðum 270 fermetrar og mun taka 33 nemendur. Bygginga- „Maðurinn og heimurinn hans“ og á að sýna hvernig maðurinn hefur komið sér fyrir í heim- inum, þróað lífsskilyrði, listir og vísindi og gert jörðina byggi- legri. Ætla Kanadamenn ekkert til að spara að sýningin verði þeim til heiðurs, og hafa þegar byggt heilar eyjar úti i Lawrencefljóti, tengt þær í sam- göngutæki og byggt skála, leik- hús, konsertsali, skemmtigarð, gamalt kanadísk þorp, indjána- byggð o. s. frv. Um 70 þjóðir hafa einnig reist þar skála sína, og keppast um að kynna þar lönd sín og sýna það sem dregið getur að þær 30 millj. manna, sem gert er ráð fyrir að sæki sýninguna. Jafnframt verða þar vísindaráðstefnur og beztu kraftar á sviði lista koma til Montreal. íslendingar taka þátt í sýning- unni í skála með öðrum- Norð- urlandaþjóðum. geta staðið í skilum með opin- ber gjöld og annað eftir þetta misheppnaða úthald þennan tíma, sem hann kvaðst telja að hefði unnizt upp, ef báturinn hefði nú farið að afla sæmilega. Vegna síldarleysis við Suðaust- urland hefur síldarverksmiðja Guðmundar verið verklaus. Veiði hefur og verið treg hjá öðrum bátum Guðmundar nú að undan- förnu, nema hjá Jóni Garðari. Þrír af bátunum, Mummi, Freyja og Víðir II eru að búa sig á Þorskveiðar. Jón Garðar er farinn austur á síldveiðar og átti að koma á miðin í gærkvöldL Kristján fór í fyrrakvöld og Sig- urpáll fer um næstu helgi, en unnið er að því að setja niður nótina, sem var uppi á dekki. Maí með 480 tonn af karfa TOGARINN MAÍ kom til Hafn- arfjarðar aðfaranótt þriðjudags með 480 tonn af karfa veiddum á Nýfundnalandsmiðum. í fyrra- dag milli kl. 8. f.h. til kl. 7 e.h. var landað úr togaranum 275 tonnum og mun það einsdæmi, að svo miklu magni skuli landað á einum degi úr togara. Verkstjóri var Jón Þ. Jónsson. meistari er Haraldur Einarsson og er húsið byggt með sérstakri aðferð á vegum Guðmundar Einarsson, hjá Aðalverktökum. Rafvirkjameistari við bygging una hefur verið Eiríkur Eyvinds- son, járn og miðstöð, pípulagn- ingar hefur annazt Suðurnesja- verkstæðið, húsgögn og innrétt- ingar eru gerðar af Form í Hafn- arfirði og milliveggir hjá Þórs- fell. Útveggir hafa verið reistir af Steinstólpum h.f. Umsjón með öllu verkinu hefur Magnús Blöndal annazt með mikilli prýði, en um dag- legan rekstur hússins mun Hilm- ar Einarsson fara. Mtkil bót er að þessu nýja húsi og eru nemendur búnir að hlakka til þeirrar stundar er það yrði tekið í notkun. — BH. Guðmundur ú Ruf n kelsstöðum selur Kristjdn Valgeir Nýr nemendabú- staður fyrir ML.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.