Morgunblaðið - 05.01.1967, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967.
— Umræður
Framhald af bls. 11
kr., og frá bönkunum um 10
millj . kr. Bankar þeir, sem leit-
að hefur verið til um lánsloforð,
hafa ekki tekið eins í þessi mál
og æskilegt hafði verið. Það
er eingöngu einn banki, sem hef
ur lagt af mörkum það, sem ósk-
að var á þessu ári. Á næsta ári
er gert ráð fyrir að afla 40 millj.
kr. lánsfjár og munu þegar hafa
fengizt nokkur lánsloforð, en að
þessum málum er nú unnið eins
og kom fram í ræðu borgar-
stjóra. Með hliðsjón af því, að
erfitt er að fastákveða einstakar
framkvæmdir fyrr en fé liggur
fyrir til framkvæmdanna og að
öðru leyti með tilvísun til þess,
sem ég hef hér að framan sagt
um hitaveitumálin, legg ég hér
fram frávísunartill. frá borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins
við ályktunartillögu borgarfull-
trúa Aiþb. um hitaveitumál.
Gunnar Helgason, (S). Gunn-
ar gerði að umtalsefni breyting-
artillögur borgarfulltrúa Alþýðu
bandalagsins og Framsóknar-
flokksins við fjárhagsáætlun
borgarinnar. Um tillögu Al/þýðu-
bandalagsins til afnáms fjárveit-
ingar til almannavarna, sagði
hann, að það
væri þjóðfélags
leg skylda þess
opinbera að hafa
undirbúið ein-
hverjar ráðstaf-
anir, sem að
gagni gæti kom
ið, ef hörmungar
vegna náttúru-
hamfara eða
styrjaldar dyndu yfir. Flestar
þjóðir gera það í miklu ríkari
mæli en við. Sagði hann tillög-
una opinbera umhyggjuleysi
Alþýðubandalagsins fyrir öryggi
borgaranna.
Þá sagði Gunnar Helgason
m.a.: Breytingatillögur borgar-
fulltrúa framsóknar eru nokkuð
annars eðlis en breytingartillög-
ur Alþýðubandalagsins. f tillög-
um framsóknarmanna er aðal-
lega leikið sér að því að flytja
upphæðir milli flokka í eigna-
breytingareikningi. Svo sem að
lækka samningsbundnar afborg-
anir af lánum borgarinnar um 5
millj. og hækka framlag til
Byggingarsjóðs borgarinnar, sem
því nemur. Þá er fellt niður fram
lag til ráðhússbyggingar og flutt
á aðra liði.
Slíkar tillögur verða varla
teknar alvarlega, enda held ég,
að háttvirtir borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins og Aiþýðu
bandalagsins ætlist ekki til þess.
Vilji borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar-
flokksins benda á einhverja
tekjuöflunarleið til verklegra
framkvæmda, sem borgararnir
verði ekki að greiða í einni eða
annarri mynd, yrði það mjög í
þökk borgarstjórnarmeirihlut-
ans.
Gísli Halldórsson (S): Að
undanförnu hefur markvíst ver-
ið unnið að því að bæta alla um-
ferð í borginni. f sambandi við
aðalskipulagið fór fram, sem
Gullálmspónn
- Eikarspónn
NÝKOMIÐ
Gullálmspónn (japanskur)
Einkarspónn (þýzkur)
Furuspónn (sænskur)
Álmspónn (Canada)
Brennispónn
Afrormosiaspónn
Palisanderspónn
Zebraspónn
Mahognyspónn
LONDON-LUNDOH
Ef þér eigið frí-
notið tækifærið
Hafið þið kynnt ykkur hinar vinsælu ferðir okkar til London. Næstu ferðir
eru 1.3. janúar, 10. febrúar, 25. marz og 14. apríl.
Ekkert hefur verið til sparað að gera bessar ferðir sem eftirminnilegastar og
þægilegastar. London er skemmtileg stórborg og fararstjóri okkar mun hjálpa
ykkur að kynnast hennL
SJÓNVARP. Við bjóðum farþegum okkar að vera viðstödd upptöku á sjón-
varpsþætti hjá B. B. C.
LEIKIIÚS. Við bjóðum ykkur í leikhús að sjá hinn vinsæla söngleik „The
Sound of Music“ ykkur að kostnaðarl ausu.
VIÐ BJÓÐUM farþegum okkar í kvöldmat í Iceland Food Center, þar sem fólk
fær að borða mat að eigin vali á þessu vinsæla veitingahúsi.
SKOÐUNARFERÐIR. Við förum með ykkur í skoðunarferðir á helztu staði
borgarinnar og heilsdagsferð á sunnudegi til hins fræga háskólabæjar Oxford
og sumarhúss drottningar, Windsorkastala.
HÓTEL. Búið er á fyrsta flokks hóteli í hjarta borgarinnar við Oxford Street.
Bað ög snyrting fylgja hverju herbergi.
SÖFN. Fararstjóri mun fara með þeim, sem þess óska að skoða helztu söfn
og byggingar, svo sem vaxmyndasafn Madame Toussaud, Westminster Abbey,
o. s. frv.
SKEMMTANIR. Fararstjóri mun aðstoða við að útvega miða í leikhús og bíó
og ráðleggja með aðrar skemmtanir.
Kostur gefst á að fafa í ferð, þar sem heimsóttir eru gamlir enskir „pubbar"
og stórir næturklúbbar.
Hringið og við sendum ykkur áætlun.
FERÐASKRIFSTOFAN
LÖIMD & LEIÐIR ÍR.YSS:.”"
kunnugt er, mjög víðtæk xun-
ferðakönnun, til þess að hægt
væri að byggja á traustum grund
velli framtíðarlausn umferðar-
mála borgarinnar.
Öllum götum
var þá skipt
upp eftir því
hlutverki, sem
þaér eiga að
gegna í framtíð
inni, í þágu um
ferðarinnar. Til
þess að tryggja
sem friðsælust
íbúðarhverfi
verður t.d. lögð áherzla á, að
engin óþarfa umferð eigi sér
stað um íbúðargötur, en um
leið verða aðalumferðaæðar gerð
ar eins vel úr garði og frekast er
unnt, svo öll gegnumgangandi
umferð komist þar, sem greiðast
áfram.
Þá hefur verið komið á fót
sérstakri umferðadeild við em-
bætti borgarverkfræðings, sem
sér um framkvæmdir í umferða-
málum. Jafnframt því, sem lög-
reglustjóri hefur endurskipulagt
umferðadeild lögreglunnar.
'Sérstök áherzla hefur verið
lögð á alla fræðslu um umferða-
mál, jafnt fyrir bifreiðastjóra,
börn og allan almenning. En
það hefur sýnt sig að með stór-
aukinni umferð er mjög mikil
þörf á stöðugri fræðslu um þessi
mál. Til þess að tryggja að hún
komi að sem beztum notum hafa
tveir menn verið ráðnir sérstak-
lega í þessu augnamiði. Annar á
vegum umferðadeildar lögregl-
unnar, og sér hann um alla
fræðslu í barna- og unglingaskól
um, en hinn starfar á vegum um
ferðadeildar borgarverkfræð-
ings, og sér um umferðaþætti í
útvarpi og blöðum.
Þá hafa
verið gefnir út um
vegum umferðanefndar og
dreift í skóla og til almennings.
Er sýnt að með síaukinni umferð
er þessi fræðslustarfssemi mjög
mikils virði, því það er án efa
eitt mikilverðasta skilyrði, tiL
þess að draga úr umferðaslysum
að hver og einn þekki allar
venjulegar umferðareglur, og
hverjum og einum sé skylt að
hlíta þeim, jafnframt, sem þeim
beri að sýna fyllstu aðgæzlu í
umferðinni.
Yegna þess hversu bifreiðum
hefur fjölgað á sl. árum þá hef-
ur framlag til umferðamála farið
síhækkandi, eins og fjárhags-
áætlunin ber með sér. í ár var
varið 5,0 millj. kr. til umferða-
mála, en gert er ráð fyrir því
að þessi upphæð verði 6,0 millj.
kr. á næsta ári, eða hækki um
20%.
Þórir Kr. Þórðarson (S); Borg
arfulltrúar Framsóknarflokks-
ins leggja hér fram ályktunar-
till. varðandi byggingu dvalar-
heimilis eða hjúkrunarheimils
fyrir aldrað fólk og hefur borg-
arfulltr. Einar Ágústsson lýst
skoðun þeirra á málinu. En til
þess að við sjáum hverjar fram-
kvæmdirnar hafa verið, skulum
við líta á liði samþykktarinnar
frá þvi í fyrrasumar.
Það ber fyrst að telja, að
samþykkt var að koma á deild
ellimála við skrifstofu félags- og
Þessari deild
hefur verið kom
ið á fót og elli-
málafulltrúi ráð-
inn. Hefur elli-
málafulltrúinn
hafið margvis-
legt starf, haft
samband og sam
starf við elli-
heimili borgar-
innar og veitt
fjölmörgu öldruðu fólki marg-
fyrirgreiðslu í fjármál-
persónulegum málum
nokkrir bæklingar
þessi mál á
víslega
þeim um og
framfærslumála.
Stangaveiðifélag
Reykjavíkur
Kastæfingar félagsins hefjast að nýju í fþrótta-
höllinni í Laugardal sunnudaginn 8. jan. kl. 10.20
fyrir hádegi, og eru fyrir meðlimi S.V.F.R. og
aðra áhugamenn ef húsrúm leyfir. Auk æfinga
í fluguköstum eru sýndir og æfðir nokkrir helztu
veiðimannahnútar og einnig lært að þekkja
helztu veiðiflugur og flugustærðir.
Upplýsingar og áskriftir hjá Halldori Erlends-
syni sími 18382 og Sigbirni Eiríkssyni sími 34205.
Kennslu- og kastnefnd S.V.F.R.
Eldflaugar
Jokerblys
Fljúgandi blys
Stjörnuljós
Sprengjublys
Mikill afsláttur af því litla sem eftir er.
Kaupið ódýr skotfæri með miklum
afslætti fyrir ÞRETTÁNDANN.
Miklatorgi.