Morgunblaðið - 05.01.1967, Side 27

Morgunblaðið - 05.01.1967, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967. 27 — Campbell Framhald af bls. 1. vatni til dauðadags 1949. Sama ár var útlit fyrir að Bandaríkjamenn mundu hnekkja því. >á var það sem Campbell yngri hófst handa. Tilraunir hans til að setja ný met á vatni tókust illa fram- an af og kostuðu hann megn- ið af föðurarfinum. En 1955 setti hann loks heimsmet á Ulls vatni í Bretlandi, 325.6 ikm. á klst. 1964 setti hann nýtt met í Ástraliu 443 km. á klst. Og þetta sama ar setti hann annað hraðaheimsmet á landi, náði 648.7 km. á klst. í gastúbínudrifnum bíl sínum sem hét „Blue Bird“, eins og ■báturinn. Campbell varð því fyrstur manna til að setja hraðamet á landi og á vaini á sama árinu. Ungur að árum þjáðist Campbell af hjartasjúkdómi. Hann var liðsforingi í brezka flughernum á stríðsárunum, en varð bráðlega að ganga úr herþjónustu vegna sjúkdóms þessa. Hann sagði þá að hann væri reiðubúinn að deyja. Hann hafði aldrei setið bak við stýrið í kappaksturs- bíl, er hann ákvað að hnekkja meti John Cobbs á landi, en það var 634.36 km. á klst. frá því 1947. í>ar sem alþjóðalög banna notkun þrýstiloftsvéla í kappaksturs- bifreiðar notaði Campbell þess í stað' gastúrbínuvél. Bíllinn eyðilagðist í fyrstu til raun á Bonneville-sléttunni árið 1960. Campbell slapp á lífi en mikið slasaður. Hann vildi samt sem áður ekki gefa sig, og 1964 rættist draumur hans, eins og fyrr var fra greint. Campbell var 45 ára gam- Auknar skemmdir á Boston Wellvale ENN er í könnun hvort unnt sé að bjarga brezka togaranum Boston Wellvale, þar sem hann er strandaður á Arnarnestánni i ísafjarðardjúpi. Togarinn stendur á stórri klöpp og hafa Skemmdir á botni hans aukizt nokkuð síðustu dagana. 1 í gær var skip frá Landhelgis- gæzlunni að kanna hvort hægt væri að ná olíunni úr togaran- um, en hvarf frá því. Allar at- huganir á því, hvernig hægt sé að ná olíunni úr togaranum án þess að dæla henni í sjóinn hafa fram að þessu engan árangur borið. — Hvimleiður Framhald af bls. 23. tmum og í hvers konar óhrein- jndum. Getur því tekið langan tíma að útrýma veikinni, þar sem hún kemur upp, ef það tekst jiokkurn tíma, enda eru smit- Unarleiðirnar margar og örðugt yið þeim að sjá. Til eru lyf við „hringormi", en mjög seinlegt er að lækna kýr til fulls. Hins vegar ætti ekki að taka langan tíma að lækna menn, ef þeir leita læknis íljótt og rétt lyf eru notuð. Sjúkdómurinn lýsir sér á mönn lim með skörpum hringlaga út- brotum á stærð við tveggjakrónu pening, sem síðar breytast í hrúður, fleiður og sár. Helzt fcoma útbrot þessi á höfuð og háls, en geta borizt um allan líkamann og skilið eftir sig Ijót ör. Á nautgripum verður útbrot- anna fyrst vart á höfði, aðallega kringum augun og getur breiðst þaðan aftur með hálsi og síðum. Ungviði eru næmust fyrir veik- inni. Rétt er að taka fram, að sjúk- ðómurinn fer aldrei á júgur og mjólkin er algjörlega ósýkt og jafnheilnæm og úr heilbrigðum kúm. Hins vegar eru húðir af aýktum gripum stórsekmmdar eða ónýtar. — Sv. P. Islenzka sjónvarpið sást í Stykkishólmi Stykkishólmi, 4. jan. í GÆRKVÖLDI er verið var að sjónvarpa dagskrá íslenzka sjón varpsins sást það mjög greiru- lega hjá Ágústi Sigurðssyni í StykkishólmL Ágúst notar sérstaka gerð loft nets, sem er bandarísk og er ekki greiðuloftnet eins og hér hefur tíðkast heldur standa ele- mentin út í allar áttir frá tveim ur punktum. Heíur Ágúst náð mjög vel tali frá sjónvarpsstöðv um í London og Svíþjóð. Loftnet Ágústar er 2x8 fjögurra feta loftnet,. og segtst hann hafa reynt þá gerð, sem hér hefur tíðkast, 14 eiementa loftnet, og hefar hann með þeim ekki náð nema Keflavíkurstöð- inni. Til þessa hefur ekki verið vit að. að íslenzka sjónvarpið hafi sest svo langt frá Reykjavik og i sumar voru menn frá sjónvarp inu við úrbreiðslumælingar á Snæfellsnesi til þess að athuga hvar bezt væri að staðsetja end- urvarpsstöð fyrir Snæfellsnea, — Fréttaritari. Campbell við stjórnvölinn á horfa á. all er hann lézt. Hann skitdi eftir sig tvö börn af fyrra hjónabandi, dreng og stúlku. Kona hans núverandi, nætur- klúbbasöngkonan Tonia Bern var stödd í London, er hún Bluebird. Kona hans og dóttir frétti um slysið. Er kappakst urshetjunni Stirling Moss var sagt frá dauða Campbells, sagði hann, að þannig hefði Campbell helzt kosið sér að deyja. Línubátar hófu veiðar 2. janúar Akranesi, 4. janúar. LÍNUBÁTARNIR hófu róðra strax hin 2. janúar. Aflinn var sem áður á haustvertíð 6—8 smá Iestir, en til þess að fá þennan afla, er hrekkur ekki fyrir kostn aði, verður að sækja langt eða út á Jökultungu. Draumspakir menn búast þó við vaxandi afla í vestanverðum Faxaflóa. Einn síldarbátur er kominn á Austfjarðamiðin og aðrir eru að búa sig af stað þangað. r Arekstur á Akra- nesi Akranesi, 4. janúar. HARÐUR bifreiðaárekstur varð hér í dag á Akratorgi. Þrjár bifreiðar lentu saman og varð ein þeirra fyrir miklum skemmd um, ef til vill ónýt. Níu ára stúlka var í bifreið- inni, sem skemmdist, og skarst töluvert á höfði. Farið var með hana á sjúkrahúsið, en henni líð ur eftir vonum. Mikil hálka er hér á steyptu götunum vegna undanfarinnar ísingar. - KHIDER Framhald af bls. 1. forseta Alsir, og samherji í and- spyrnuheryfingunni gegn Frökk um. Hann var fjármálaráðherra alsírsku stjórnarinnar eftir að Alsír fékk sjálfstæði, en sumarið 1964 slitnaði endanlega upp úr samstarfi hans og Ben Bella og Khider flúði land, — fyrst til Sviss, síðan Frakklands, en var rekinn úr báðum löndunum vegna stjórnmálastarfsemi hans, sem miðaði að því að koma Ben Bella frá völdum. Eftir flóttann frá Alsír sumar- ið 1964 sökuðu alsírsk yfirvóld Khider um að hafa haft á brott með sér um það bil firnm miilj- ónir sterlingspunda úr sjóðum Þjóðfrelsisflokksins, stjórnar- flokks Alsír. Málið var rannsak að með aðstoð svissneskra aðila, en aldrei fundust sannanir fyr- ir því, að sakargiftir þessar væru á rökinn reistar. Khider hefur verið búsettur á Spáni um hríð, ásamt eiginkonu sinni og yngsta barninu, þriggja ára syni, sem svaf í íibúð þeirra, er Khider var skotinn. Eldri börnin þrjú hafa verið á skólurn í Sviss. fram og Valur unnu í GÆRKVÖLDI fóru fram tveir leikir í 1. deildarkeppninni í handknattleik. Fram vann Ár- mann með 33 gegn 9 og Valur vann Víking eftir spennandi leik með 21 gegn 18. Ekið á 2 kyrr- stæðar bifreiðar FYRIR klukkan 7.45 á gamlárs- dagsmorgun var ekið á bifreið- ina R-18820, þar sem hún stóð í stæði fyrir framan hús númer 26 við Kleppsveg. Við það kast- aðist hún til hliðar og lenti á bifreiðinni R-783 sem var í næsta stæði. Greinileg för voru eftir bif- reiðina sem skaðanum olli. Þau lágu frá Brekkulæk og vestur Kleppsveg, þar sem ökumaður virðist hafa misst stjórn á henni með fyrrnefndum afleiðingum. Síðan hefur ökumaður haldið áfram en skildi eftir málningar- flögur af bifreið sinni sem verið hefur blágrá að lit. Ef einhver kynni að hafa verið snemma á fótum og séð atburðinn er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband við Torfa Jónsson, hjá rannsóknarlögreglunni. Bræðsla og söltun á Vopnafirði Vopnafirði, 4. janúar. SÍ LD AR VERKSMIÐ J AN hefur tekið á móti 35.450 tonnum af síld á árinu 1966 og er fram- leiðslan, lýsi: 6470 tonn, mjöl: 7500 tonn. Á söltunarstöðvunum fjórum hefur verið saltað sem hér segir: Auðbjörg h.f. 4253 tunnur, Hafblik h.f. 1344 tunnur, Austurborg h.f. 1048 tunnur. Söltunarstöð Kristjáns Gíslason- ar 1027 tunnur. — Ragnar. - MINNING Framhald af bls. 20. eða þóknast öðrum. Það átti upp- tak sín í hjartsr hins prúða manns. Hann var trúr því boð- orði, að láta ekki vinstri hönd- ina vita hvað sú hægri gerir. Áður hefur verið minnzt á greind og gáfur Skúla, sem voru mjög farsælar. Þó er eins ógetið, en það er hið óvenjulega trausta sterka minni hans, sem hann hélt óskertu ævina út. Hann las mikið og las vel og kunni því á mörgu skil. Af íslendingasög- unum setti hann Sturlungu í önd vegi og voru honum oft tiltæk tilsvör úr þeim sjóði. Hann var mjög fróður um samtíð sína, menn og málefni og þó litið væri langt til baka. Hann kunni mikið af skemmtilegum tilsvörum merkra manna og ýmsra annarra sem vel kunnu að koma fyrir sig orði. Það var mikið tap, að eng- inn ritfær maður skyldi koma á hans fund til þess að.bjarga þeim verðmætum, meðan verið er að skrifa ýmislegt rugl miðlungs- manna eða þar fyrir neðan. Skúli var þess verður að vera í þessum efnum sem öðrum, sett ur á bekk með fyrirmönnum þjóðarinnar. En því er ekiki að neita, að hlédrægni hans og yfir lætisleysi, var þar erfiður þrösk- uldur. Skúli var mjög góður og skemmtilegur félagi og eftirsótt- ur sem slíkur, og var ekki að undra. Hef ég engan þekkt, sem var sú list jafn lagin og honum að gleyma gjörsamlega tíman- um og allri dagsins önn í góðra vina fagnaði. Veitti hann þá á báðar hendur úr minnissjóði sín um og kryddaði með sinni al- kunnu kímni á sinn persónulega hógværa hátt. Hinn 12.- júní 1926, kvæntist Skúli eftirlifandi konu sinni Val gerði Pálsdóttur, hreppstjóra í Tungu í Fáskrúðsfirði, Þorsteins sonar, Jónssonar. Valgerður er merk kona og vinsæl og var manni sínum sam hent og góður lífsförunautur. Dugnaður hennar er alkunur, hagsýni hennar og rausn. Þau eignuðust þrjá syni: 1. Sveinn, bóndi í Bræðratungu kvæntur Sigríði Stefánsdóttur frá Skipholti. 2. Gunnlaugur dýralæknir I Laugarási, kvæntur Renötu Pandrik, þýzkri að ætt og upp- eldi. 3. Páll, stundar lögfræðinám í Háskólanum, ókvæntur. Hógvær höfðingi er fallinn frá. Hann sat hið sögufræga höf- uðból með fullum sóma og virð- ingu til jafns við hina fornu höfðingja, er gerðu þann garð frægan, hverra nöfn sagan geym ir. í sögu æskusveitar sinnar, sögu sveitarinnar, þar sem hann vann sitt aðalævistarf og í fé- lagsmálasögu Suðurlands, geym- ist nafn hans um ókomna tíð. Biskupstungnamenn kveðja Skúla Gunnlaugsson með virð- ingu og þökk fyrir vel unnin störf. Persónulega kveð ég hér einn minn bezta vin og samstarfs mann. Eg geymi minningu hans í þakklátum huga og finnst mér nú tómlegra í Tungunum. Við hjónin vottum eiginkonu hans, sonunum hans og allri fjöl skylduni, innilegustu samúð. Þorsteinn Sigurðsson. I fyrrakvöld óku tveir piltar út af Bústaðavegi, skammt frá þeim stað, er Kringlumýrarbraut sker Bústaðaveginn. óku þeir á girðingu með þeim afleiðingum, sem myndin sýnir. Báðir menn- irnir, sem í bifreiðinni voru, reyndust ölvaðir, en sögðu að þriðji maðurinn hefði ekið. Sá finnst hins vegar hvergi (Ljósm,; Sv. Þorm.) Lillehammer. — NTB. Norskur reknetabátur fékk I haust óvenju stóra síld i reknet sín. Vó hún 250 grömm og var 29 cm. á lengd. Fiskifræðingar sem rannsökuðu síldina álíta hana 10 ára gamla, en það mun vera hæsti aldur sem sild getur náð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.