Morgunblaðið - 05.01.1967, Qupperneq 28
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1967
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
JÞessi fallega mynd er tekin úti í Surtsey í fyrradag er visindamenn fóru að kanna nýja
gosið, sem vart varð við nú um nýárið. Sést heim til eyjanna og í baksýn Eyjafjallajökull.
Mótun landslags í Surtsey hefur verið hröð eins og sjá má. af hömrunum ofarlega til hægri.
(Ljósm. Sigurgeir).
Hvimleiður sjúkdómur
hefur borizt til landsins
Menn og nautgripir sýkjast i Eyjafirði
Akureyri, 4. janúar.
MJÖG hvimleiður húðsjúkdómur
á nautgripum og mönnum er
kominn upp í Eyjafirði, svo
nefndur hringormur eða tricop-
hyton-verrucosum. >etta er bráð
næmur sveppasjúkdómur, sem
leggst aðallega á nautgripi,
menn og svín, en óhugsandi er
talið, að sauðfé eða hross géti
tekið veikina. Sjúkdómsins hef-
nr aldrei fyrr orðið vart hér á
landi, en hann er nokkuð al-
gengur í flestum nágrannalönd-
um okkar.
Talið er að sjúkdómurinn hafi
borizt að Grund í Eyjafirði með
dönskum fjósamanni, sem þar
var í sumar og fram í október.
Var hann með húðsjútkdóm í
hársverði og kom með lyf við
honum með sér, en engan hér
grunaði, hvað þar var á ferð-
inni. í nóvember voru allir naut-
gripir á báðum Grundarbúun-
um sýktir, en þar munu vera
um 100 gripir, og varð þá upp-
víst, hvað á seyði var. Þá var
búið að selja kýr þaðan að
Syðri-Grund í Höfðahverfi og
sýktust þar allir nautgripir á
fáeinum dögum. Veikin hefur nú
þegar náð til bæjanna Holtssels,
Finnastaða og Árbæjar í Hrafna
gilshreppi, auk þeirra sem fyrr
voru taldir. Þá hafa tveir karl-
Læknir fluttur flugleiðis
frá Isafirði til Þingeyrar
ÞINGEYRI, 4. jan. — í gær-
kveldi bar það til að komið var
hingað með sjúka konu í barns-
nauð, Jósefínu Friðriksdóttur,
konu Þórðar bónda Jónssonar á
Múla. En rétt í sama mund hafði
laeknir staðarins farið suður til
Reykjavíkur með Esju.
Til bjargar í þessum vanda
varð það úr, að Guðbjörn Gharles
son, flugmaður, var fenginn til
þess að fljúga hingað með lækni
frá ísafirði, og komu þeir kl. 3
í dag. Konan ól síðan barn sitt
milli kl. 6 og 7 og líður konu og
bami vel. í kvöld sótti Guð-
björn lækninn og flaug með
hann til ísafjarðar.
Hér á staðnum þykja þetta
merk tíðindi og bera vott um
það, hve þýðingarmikið það er
fyrir byggðir Vestfjarða að flug-
vél er staðsett á ísafirði, en þar
hefur flugvél Guðbjarnar Oharl
essonar verið frá því á árinu
1965. Og nú hafa verið stofnuð
ahnenn samtök á Vestfjörðum
til að standa fyrir rekstri þess-
arar flugvélar. Þá kom ennfrem
ur í Ijós hversu þýðinganmikið
það er að hinn litli flugvöllur
við Þingeyri er upplýstur, og er
það óvenjulegt að slíkt sé á svo
litlumn völlum, enda gert með
sérstökum hætti og að fyrirsögn
sr. Stefáns Eggertsonar, sem hef
ur sýnt sérstaka árvekni og á-
huga fyrir flugsamgöngum við
þetta byggðarlag.
— Magnús.
menn og ein kona tekið veikina.
Sjúkdómur þessi er afar næm-
ur og erfitt að verjast honum.
Hann smitast helzt við beina
snertingu, en getur auðveldlega
borizt með skó- og vinnufatnaði,
verkfærum og hverju sem er.
Enginn veit hve langlífur svepp-
urinn er, en hitt er víst, að hann
getur lifað mjög lengi t.d. í fjós-
Framhald á bls. 27.
Bragi Ólafsson
aðstoðarborgar-
læknir
BRAGI Ólafsson, læknir, hefur
verið ráðinn aðstoðarborgarlækn
ir í Reykjavík og hefur störf
hjá borgarlæknisemibættinu um
míðjan janúar. Jafnframt hefur
honum verið veitt lausn sem
héraðslækni á Eyrarbakka.
Bragi hefur lengi verið héraðs
læknir í tveimur stórum héruð-
um og er því kunnur norðan
lands og sunnan. Hann var á
Hofsósi 1934—45 og síðan á Eyrar
bakka í yfir 20 ár, en í Reykja-
vík starfaði hann 193>1—34 og
Hafnarfirði 1930—3il.
Reynt að bjarga
Surtseyjarhúsinn
Helzta úrræðið að færa jboð til
SURTSEYJARHUSIÐ stóð enn,
er flugvél Flugfélags íslands
flaug yfir í gærmorgun. Þá hafði
hraunjaðarinn hrannast meira
upp en færzt fram og var nokk-
uð mikil glóð í honum. Var
ákveðið á fundi í Surtseyjarfé-
laginu að reyna að bjarga hús-
inu, ef möguleikar væru á því,
því ekki aðeins er mikið tjón
að missa það, heldur mundi það
líka tefja mjög rannsóknir.
Var á fundinum rætt um þrjá
möguleika, að freista þess að
koma jarðýtu út í eyna, reyna
að kæla jaðarinn með sjó svo
hann hrannist upp eða að færa
húsið sjálft. Verður síðasti kost-
urým líklega tiltækilegastur, þó
erfiður sé. Og í gær var unnið
að undirbúningi málsins. Verður
líklega reynt að draga húsið upp
á kambinn fyrir ofan hvamminn,
þar sem það stendur nú.
Steingrímur Hermannson, for-
maður Rannsóknaráðs, tjáði
blaðinu að leitað hefði verið til
nokkurra aðila, sem væru fúsir
til að veita aðstoð sína, bæði
landhelgisgæzlan með að senda
skip og varnarliðið með láni á
þyrlu, og vísindamenn og áhuga-
menn mundu leggja fram aðstoð
sína. Yrði safnað í dag saman
tækjum og það haft tilbúið, en
varðskip ætlaði í gær að setja
á land slöngur o. fl. Veðurspá er
ekki góð fyrir daginn í dag, en
reynt verður að komast út eins
fljótt og auðið er.
Reykjavíkurborg sem
ur við verkfræðinga
FRÁ því 1. janúar 1966 hefur
verið ósamið við stéttarfélag
verkfræðinga, en þá féll úr gildi
gerðardómur, sem kveðinn hafði
verið upp um kjör verkfræð-
inganna.
Á miðju sl. ári samdi stéttar-
félagið síðan við verkfræðiskrif-
stofu og ýmsa stóra aðila s. s.
Landsvirkjun o. fl., og um ára-
mótin tókst rammasamningur
milli stéttarfélagsins og Reykja-
víkurborgar á grundvelli fyrri
samninga stéttarfélagsins við
áðurnefnda aðila.
Verkfræðingar, er vinna hjá
Reykjavíkurborg eru ekki opin-
berir starfsmenn, heldur er
samið við þá hvern og einn á
grundvelli áðurnefnds ramma-
samnings, og munu samningar
ekki endanlega ákveðnir á næst-
unni. Við þessa ráðningarsamn-
inga verður miðað við sömu
launakjör og vitað er að verk-
fræðiskrifstofurnar gera og
verður samið á sambærilegum
grundvelli, að því er Magnús
Óskarsson, vinnumálafulltrúi
Reykjavíkurborgar tjáði Mbl. f
gær, en ekki kvað hann að svo
stöddu unnt að segja meira um
málið.
w
Islendingur ferst
á Hulltogara
AP — 3. janúar.
ÍSLENDINGUR, Jóhann Sigurðs
«on, 51 árs gamall háseti á Hull-
togaranum Saint Finbarr, týndi
lífi, er eldur kom upp í togar-
anum á jóladag 40 milur út af
strönd Nýfundnalands. Jóhann,
sem var fæddur í Hull, bjó þar
allt sitt líf og kvæntist konu
þaffan. Jóhann hafffi veriff á tog-
urum frá 15 ára aldri að undan-
teknum striffsárunum, þá var
hann skipverji á flutningaskipi.
Hræum kastað fyrir erni
í MARZ næstkomandi ætlar
Fuglaverndunarfélagið að kasta
fyrir örninn hræi, svo að hann
svelti eigi fyrir varptímann, en
að undanförnu hefur mjög erfið-
lega gengið að fá hinn litla
stofn arna til þess að fjölga.
Mbl. hafði af því fregnir að
uppástungu þessa hefði dr. Finn-
ur Guðmundsson, fuglafræðing-
ur gert og sneri það sér til
dr. Finns og spurði hann frekar
um málið.
Dr. Finnur saði að hann teldi
þessa aðgerð einhverja þá lík-
legustu til að fjölga erninum.
Örninn er mikill hræfugl og lífs
síðan fé hætti að falla úr hor.
Að visu hefur fækkun arnar-
ins verið sett í samband við
eitrun, en um svipað leyti og
byrjað var að eitra var komið
á fót fóðurbirgðaeftirliti, sem út-
rýmt hefur hordauðu fé.
Dr. Finnur sagði að í Skot-
landi félli alltaf mikið af svart-
höfðafé úr hor og lifði gullörn-
inn á því, og teldi hann að ef
lögð væru út hræ hér myndi
það bæta lífsskilyrði arnarins
stórlega og jafnvel minnka lík-
ur á að hann færi í eitrað hræ.
Sé þetta gert verða ernirnir
betur undir varptímann búnir og
sé til þess unnt að nota aflóga
skilyrði hans hafa stórversnað ié eða stórgripi og væri þá helzt þar með erninum
að kasta hræinu á eyjar, þar
sem refur næði ekki til þess.
Telur dr. Finnur að aðferð þessi
sé vænlegust til árangurs fyrir
utan að koma í veg fyrir að
ernir séu drepnir.
Ástæða er til að ætla að ern-
ir hafi verið fáir hér á fyrstu
tímum byggðar landsins, en síð-
an hafi þeim farið stórum fjölg-
andi. Fyrir landnámstíð hafa
þeir lifað að mestu á því sem
rekið hefur á fjörur, en er land-
námsmenn komu féll fé þeirra
úr hor, sem bætti lífsskilyrði
arnarins. Á 19. öld er byrjað að
eitra og horföllnu fé fækkar og
í eldsvoðanum týndu 12 manns
lífi.
Kona Jóhanns, Zena, hafði áð-
ur en hún giftist Jóhanni verið
ekkja eftir mann, sem hún missti
22ja ára gömul. Jóhann á tvo
bræður á lífi, Arthur, sem er
háseti á Hulltogaranum Thorn-
ella, og Eric, sem er skipstjóri
á herflutningaskipi í brezka flot
anum.
Faðir Jóhanns var Bergsteinn
Sigurðsson, sem í Hull gekk
undir nafninu „Islenzki Bert“ og
var einn af duglegustu togara-
skipstjórum í Hull þar til hann
beið bana 8. okt. 1940, eir
sprengja hitti skip það. sem
hann var í á leið til íslands sem
farþegi. Móðir Jóhanns lifir enn
í Hull í hárri elli og býr hjá
bróður hans, Eric.
Kvöldfagnaður
FUS á Akureyri
á morgun
KVÖI,DVERÐARFUNDUR Varð
ar, FUS á Akureyri verður I
Sjálfstæðishúsinu uppi á morg-
un föstudag og hefst kl. 7.30 e.h.
Til umræðu verður fjárhags-
áætlun Akureyrar fyrir árið
1967 og mun Gísli Jónsson fylgja
henni úr hlaði.