Morgunblaðið - 14.03.1967, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1967.
7
Jack hjálpar Judo ósærðum
upp úr körfunni.
Undanfarið hafa skemmt á
Hótel Loftleiðum tveir Hol-
lendingar við mikinn fögnuð
áheyrenda. Yið brugðum okk-
ur þangað á dögunum tii að
spjalla við þessa f jöllistamenn
og horfa á „kúnstir" þeirra,
sem sannast sagna eru ótrú-
legar. Þeir hafa komið fram
hjá Ed Sullivan, sem margir
kannast við úr sjónvarpinu.
„Við höfum unnið saman 1
5 ár“. segja Jack og Judó, en
það er skemmtikraftanafn
þeirra, „en áður höfðum við
ekkert samband haft. Við unn
um báðir sem þjónar á skip-
um Holland-America-línunn-
ar, og þar hittumst við, fór-
um að skemmta farþegunum
með „fífla-kúnstum“, og svo
fór að við hættum þjónsstarf-
inu og gáfum okkur eingöngu
að þessum hlutum“.
Við snúum okkur fyrst að
Judó, sem réttu nafni heitir
Eddie Juda, og verður fyrst
af ókunnugleika á að spyrja
hann, hvort hann sé Indverji?
.,Nei, ég er hvorki Indverji
né fakír, eins og margir halda
af því, að svo virðist, sem ég
sé allur stunginn með sverðum
af Jack félaga mínum, en hins
vegar er ég frá Indónesíu.
Karfan, sem Jack treður mér
ofaní er 62 cm, sinnum 54 cm.
sinnum 34 cm. að rúmmáli,
utanmáls, svo að plássið er
ekki mikið, en ég er það sem
kallað er .,liðamótalaus“, og
þetta gengur vonum framar.
Gegnum þessa körfu stingur
svo Jack 30 hárbeittum sverð
um, og þar af 8, þegar hann
er með kyrfilega bundið fyr-
ir augun, m.a.s. með svarta
flauelishúfu utan yfir trefl-
inum, rétt eins og brugðið var
um höfuð þeirra, sem í gamla
daga átti að lífláta. Þetta at-
riði, að stinga sverðunum
blindandi, höfum við aðeins
sýnt frá síðustu áramótum“.
„Já.“ segir Jack Scheppenk
Þarna standa öll sverð á Judo, sem lokaður er inni í körfunni.
Jack er með bundið fyrir augun. (Ljósmyndirnar tók Kári
Jónasson.
„sumum kann að virðast þetta
mjög hættulegt, og það er
það sannarlega, því að alltaf
getur manni mistekist, en
þetta er nánast eins og að
horfa á taflborð. Hver glufa
á körfunni, er eins og einn
sérstakur reitur og þessa reiti
man ég. Þetta er fyrst og
fremst nákvæmnisatriði. Ég
hika aðeins, um leið og sverð-
ið gengur innúr körfunni, og
finn. hvort eitthvað er fyrir“.
„Og ég get hreyft mig líti-
lega í körfunni, þótt þröng
sé í, bætir Judó við, og þannig
fer sverðið framhjá, en ekki
beint í gegnum mig.
Jack er 40 ára að aldri,
fæddur í Hollandi. „Ég er
kvæntur maður og á 2 börn
8 og 18 ára að aldri. Konan
er ekkert óvön því, að ég sé
langtímum saman á ferðalagi
frá því að ég var á skipunum
Ég hafði áður tekið þátt í leik
klúbbum, og þá leikið fifl
(clown) aðallega meðan ég
var 14-15 ára í skátafélags-
skap. í stríðinu sat ég í fanga
búðum nazista um skeið. þeir
tóku mig, þegar ég var 16 ára.
Var ég á tveim stöðum í West
falen. Sagt var, að þeir vildu
með fangavistinni hindra, að
Hollendingar á þessu aldurs-
skeiði gætu tekið þátt i and-
spyrnuhreyfingunni. Ég á
heima í Rotterdam, en Judó í
Amsterdam og eru um það bil
80 km. á milli okkar".
„Og ég er aldrei heima, og
á engin börn, en ég er kvænt
ur eins og Jack. f byrjun stríðs
ins var ég á Austur-Java, ná-
lægt Surabaya, en þegar Jap-
anar komu var mér strax
dembt í fangabúðir og sat þar
í 414 ár. Það var skelfingar
tími. Eiftir stríðið fór ég til
Ástraliu, og hjálpaði til við
flutning á konum og börnum
heim til Hollands. Síðan lá
leið mín til Indlands. þar
lærði ég Yoga. Síðan lágu
leiðir okkar Jock saman, þeg-
ar við vorum þjónar á skipum.
Og svo fór sem fór“.
Við yfirgáfum svo þessa
ágætu náunga, og nutum þess
að horfa á listir þeirra. Þeir
munu skemmta á Hótel Loft-
leiðum til 22. marz, svo að
það er ekki langur tími eftir,
sem fólk fær að sjá þetta
skemmtiatriði — Fr. S.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Kristjana Gísla-
dóttir verzlunarmær Eskihlíð 11
og Magnús Haraldsson Tækni-
ekólanemi, Hagamel 26.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
tn sína ungfrú Anna Guðmunds-
dóttir. Kirkjuvegi 21, Selfossi og
Ragnar Kristjánsson, Mosgerði
13, Reykjavík.
Akranesferðir Þ.Þ.Þ. m&nuðaga,
priðjudaga, íimmtudaga og laugar-
daga fri Akranesi kl. S. Miðvikudaga
og föstudaga frá Akranesi kl. 12 og
cunnudaga kl. 4. Frá Reykjavík alla
daga kl. 6, nema á laugardögum kl.
Z og cunnudögum kl. 9.
Eimskipafélag islands h.f.: Bakka-
*oss f6r frá Reyðarfirði 11. til Ant-
werpen, Rotterdam og Hamlborgar.
Brúaross fer frá Cambridge í dag 13.
tU Norfolk og NY. Dettifoss fór frá
Tallinn 11. til Ventspils og Kotka.
Fjallfoss fer frá Keflavík í kvöld 13.
til Gautaborgar og Kristiansand. Goða
foss fór frá Dondon 9. til Rvíkur.
og Rvikur. Gullfoss fer rá Kaupmanna
höfn 16. til I.eitii og Rvíkur. Lagarfoss
fór frá Gautaborg 11. tU Rvíkur. Mána
foss fór frá London 9. til Rvíkur.
Reykjafoss fer frá Kaupmannahöfn 15.
til Oslo og Rvikur. Selfoss fer frá
Rvík kl. 05:00 1 fyrramálið til Kefla-
vikur. Skógafoiss fór frá Raufarhöfn
9. til Hull. Zandvoorde og Hamiborgar.
Tungufoss fór frá Rvík 11. til Djúpa-
vogs, Fáskrúðsfjárðar, Rvikur. Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Siglufjarðar og NY. Askja fór frá
Keflavik í gær 12. til Rifshaínar og
| Siglufjarðar. Rannö fór frá Agnefest
11. til Rússlands. Seeadler kom til
Rvíkur 12. frá Hull. Marietje Böhmer
fer frá London á morgun 14. til Rotter
dam. Utan skrifstofutíma eru skipa-
fréttir lesnar í sjálfvirkum símsvara
2-14-66.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er vænt-
anlegt til Húsavíkur 16. þ.m. Jökul-
fell lestar á Vestfjörðum. Dísarfell fór
11. þ.m. frá Odda tU Norðurlandshafna.
Litlafell er væntanlegt til Rvikur i
dag. Helgafell fer í dag frá Reyðar-
firði til Akureyrar. Stapafell fór i
gær frá Vopnafirði til Bromborough.
Mælifell er væntanlegt tU Rvikur 16.
þ.m. Frigomare er í Keflavik.
Hafskip h.f.: Langá fór frá Gauta-
borg 13 til íslands. Laxá er á leið til
Antwerpen. Rangá er Rwík. Selá fer
væntanlega frá Hull í dag.
Skipaútgerð ríkisins: Esja fer frá
Rvík kl. 20:00 I kvöld austur um land
til Vopnafjarðar. Herjólfur fer frá
Vestmannaeyjum kl. 21:00 i kvöld til
Rvíkur. Blikur fer á finvmtudag aust
ur um land til Siglufjarðar. Herðu-
breið var á Raufarhöfn i gœr á suð-
urleið.
Flugfélag fslands h.f. Millilandaflug:
Skýfaxi kemur frá Glasgow og Kaup-
mannahöfn kl. 16:00 i dag. Snarfaxi
fer til Vagar. Bergen og Kaupmanna-
hafnar kl. 09:30 í dag. Vélin er væntan
leg aftur til Rvíkur kl. 16:36 á morg-
un. Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja (2 ferðir), Patreks-
fjarðar, ísafjarðar, Húsavikur og Egils
staða. Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Kópaskers.
Þórshafnar, Fagunhólsmýrar. Horna-
fjarðar. ísafjarðar og Egilsstaða.
Loftleiðir h.f.: Bjami Herjólfsson var
væntanlegur frá NY kl. 00:30. Heldur
áfram til Luxemborgar kl. 10:30. Er
væntanlegur til baka frá Luxemborg
kl. 01:15. Heldur áfram tU NY kl. 02:00.
Leifur Eiríksson fer til Óslóar, Gauta
borgar og Kaupmannahafnar kl. 10:16.
Er væntanlegur frá London og Glas-
gow kl. 00:15.
MALSHATTUR^
Lengfi jórtrar tannlaus baula
á litlu fóðri.
Málmar Kaupi alla málma, nema járn, hæsta verði. Opið kl. 9—17, laugard. kl. 9—12. Staðgreiðsla. Arinco, Skúla götu 55 (Rauðarárport). Simar 12806 og 33821. Þvottur — Þvottur Þvoum allan þvott s. s. skyrtur sloppa og vinnu- fatnað. Einnig stykkjaþvott og blautþvott. Sækjum — sendum Vogaþvottahúsið, Gnoðavogi 72. Sími 33460.
Til leigu Bý 2ja herb. rúmgóð fbúð 'á góðum stað í Kópavogi. Uppl. um fjölskyldustærð og fyrirframgr. sendist afgr Mbl. merkt „Fyrirfram- rgeiðsla — 8460“. Húsbyggjendur Lögum steingrunn, sem um leið sparar eina málningar umferð. Verð kr. 60,00 pr. líter. Málarabúðin Vesturgötu 21. Sími 21600.
Nýir svefnbekkir kr. 2300 Glæsilegir nýir svefnsófar seljast með 1500 kr. afsl. Nælonsvampur, dralon- áklæði. Sófaverkstæðið Grettisgötu 69. Opið 2—9. ’Sími 20676. Keflavík Allt fyrir fermingarstúlkúr Undirkjólar, Skjört fyrir stuttu tízkuna, brjósta- höld, mjaðmabelti, hanzkar fermingarklútar, slæður. Verzlunin Edda.
Litskuggamyndir af ýmsum gerðum. Og módelbækur glæsilegar. Bókabúðin Njálsgötu 23. Matsvein vantar strax á netabát frá Hafnarfirði. Upplýsingar i síma 51119.
4ra herbergja íbúð til leigu í háhýsi. Uppl. í síma 40531. Sportbíll Mercedes Benz Coupé, rauður, m/blæju og föst- um toppi. Aðal-bílasalan, Ingólfstræti 11.
Mótatimbur Til sölu 60—70 þús. fet af lítið notuðu mótátimbri, %“x6“, einnig allmikið af uppistöðum, 2“x4“ l“x4“. Upplýsingar í síma 51371 kl. 6—8 á kvöldin. Stúlka, sem er með 7 ára telpu, óskar eftir ráðskonustöðu, helzt nálægt Vogaskóla; kaup eftir samkomulagL Uppl. í síma 50879.
Hentugt húsnæði, fyrir rakarastofu, óskast á góðum stað í bænum. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl., merkt: „8258“.
Múraranemi Múranemi óskast. Upplýs- ingar í síma 24954.
Thor^þvottavél til sölu. — Upplýsingar í síma 12068. Bandarískur verkfræðingur, starfandi fyrir utan Rvík, óskar eftir herbergi með húsgögnum í bænum. Umsóknir óskast sendar sem fyrst á afgr. Mbl. merkt: „Númer 8267“. Blokkþvingur Vil kaupa blokkþvingur (búkkaþvingur). Upplýs- ingar í síma 37937.
Skuldabréf ríkistryggð og fasteigna- tryggð eru til sölu hjá okkur. Fyrirgreiðsluskrifstofan Fasteigna- og verðbréfa- sala. Austurstræti 14. sími 16223
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Góð 4ra herbergja
endaíbúð
um 105 ferm. á 2. hæð í sambýlishúsi við
Ljósheima til sölu. Sérþvottaherbergi er
í íbúðinni. í kjallara fylgir geymsla, og
hlutdeild í þvottahúsi og vélum í því og
hlutdeild í sameiginlegum geymslum. Þá
fylgir íbúðinni hlutdeild í húsvarðaríbúð.
Teppi fylgja.
NÝJA FASTEIGASALAN
Laugaveg 12. — Sími 24300.
Vélritunarskóli
SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR
Ný námskeið hefjast næstu daga.
Sími 33292.