Morgunblaðið - 14.03.1967, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.03.1967, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 14. MARZ 1967. iöRÐ Hálf jörðin Efri Sýrlækur í Villingaholts- hreppi Árn. er til sölu. Jörðinni fylgir stórt og grösugt land afgirt þar af 19 hektarar tún. Ræktunarskilyrði eru mjög góð, sendinn jarðvegur fyrir hendi og því mjög góð skilyrði til garðræktar. Selveiði, hefur verið stunduð árlega og skilyrði fyrir hendi til lax- og silungsveiði. Hey- vinnuvélar og nýr plastbátur með vél get- ur fylgt ef óskað er. Allar nánari upp- lýsingar gefur Hafsteinn Þorvaldsson, Engjavegi 28, Selfossi, sími 1545. Kaupfél. Höfn, Selfossi. ERNEST HAMILTON (London) Limited 1 Anderson St. ■ V London S. W. 3. * England. f * STÁLGRINDAHIJS KAKIGO rafmagnssteinborvélar Komið og skoðið nýjasta KANGO-borinn. — Eru mjög hentugar við hvers konar bygginga- vinnu. — eru léttar í meðförum. — Áratuga reynsla hér á landi. — VARAHLUTIR fyrir- liggjandi. Einkaumboð: 7 W' ^ % LUDVIC STORR ij J Laugavegi 15, sími 1-33-33. PITMAN SCHOOL OF ENGLISH Árlegir sumarskólar í London, Oxford og Edinborg. Góð námskeið í ensku, þar sem sérstök á- herzla er lögð á að gera nemendurna hæf- ari til þess að skilja talaða ensku og tala málið reiprennandi. London (University College) 5.júlí til 1. ág. og 2. til 29. ágúst. Oxford 2. til 29. ágúst. Edinborg 14. ágúst til 8. sept. (á sama tíma og Edinborgarhátíðin). Útvegum nemendum húsnæði þeim að kostnaðarlausu. — Lengri námskeið eru einnig haldin allt árið um kring í skólan- um í London. Nánari upplýsingar og ókeypis upp- lýsingabækling fáið þér hjá: T. Steven, Principal, THE PITMAN SCHOOL OF ENGLISH 46 Goodge Street, London, W. 1. Viðurkenndur af mennta- og vísinda- málaráðuneyti Bretlands. SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR Tónabíó. Sviðsljós (Limelia’>,t). Amerísk mynd eftir Charles Chaplin. Höfuðhlutverk: Charles Chaplin, Ciaire Bloom. MEISTARINN gamli, Charles Chaplin, fer líklega senn að ganga út af sviðinu fyrir fullt og allt. Hann verður sjötíu og átta ára á þessu ári, og á hinum langa starfsferli sínu hefur hann víst vakið meiri hrifningu en nokkur annar kvikmyndaleikari. En sem kunnugt er, er hann miklu meira en leikari. Hann er rithöfundur, tónskáld og leik- stjóri þar til viðþótar, í heimi kvikmyndanna hefur hann mark að sér þá sérstöðu, að nálgast aðra tilveru. Það er eiginlega sama, hvaða starfstitil maður velur Chaplin, hvort maður kall- ar hann leikstjóra, leikara, rit- höfund eða tónskáld (sem hann er allt). Þó maður kalli hann eitt hvað af þessu eða allt i senn, þá er eins og maður hafi ýmist van- tjáð sig eða oftjáð. — Hins veg- ar segir Chaplin allt, sem segja þarf og næstum að kalla, segja má, án þess að gera sig hlægi- legan. Limelight er ein af nýrri myndum Chaplins, sé litið yfir alla starfsævi hans. Gerð mynd- arinnar var lokið 1952, en það tók tvö til þrjú ár I allt að fram- leiða hana. Chaplin segir í sjálfs- ævisögu sinni, að þegar myndin var loks fullgerð, hafi hann verið sannfærðari um það, að vel hefði til tekizt en með nokkra aðra mynd sína. Hún hefur lika við- ast hlotið miklar vinsældir, eins og raunar flestar myndir Chapl- ins. Myndin er að efni og útfærslu nokkuð frábrugðin hinum klass- ískustu Chaplinsmyndum. Litli karlinn með hattinn, stafinn, Hitlerskeggið og krumpuðu bux- urnar kemur fram í dálítið öðru gervi. Nu leikur hann roskinn, drykkfeldan gamanleikara, sem í fyrri daga var dáður „skemmti- kraftur“, en fær n ú helzt hvergi atvinnu og getur ekki einu sinni greitt húsaleiguna, nema með höppum og glöppum. Fyrir tilviljun kynnist hann ungri dansmey, en heilsulítilli og verður til þess að bjarga lífi hennar, er hún gerir tilraun til sjálfsmorðs. Hann annast hana og hughreystir, leiðir henni fyr- ir sjónir, hve lífið sé þrátt fyrir allt mikils virði. Mannlega hugs- un má ekki deyða með því að tortíma líkamanum. Smátt og smátt verða gamli gamanleikarinn og unga dans- mærin hvort öðru háðara, eins konar ást og gagnkvæm virðing tengir þau saman. Hún nær sér upp og tekur að dansa á ný á frægum skemmtistöðum. Hún vekur mikla hrifningu, og þakk- læti hennar í garð hjálparmanns síns er takmarkalaus. Og svo kemur, að hún biður hans. Þá hlær Chaplin. Hann er of kaldhygginn raunsæismaður til að gera sér ekki grfein fyrir and- stæðunum: annars vegar rosk- inn, uppgjafagamanleikari, hins vegar ung og upprennandi dans- stjarna, með allt lifið framund- an. Þú elskar mig ekki. Þú elskar Neville, svarar hann angurvært, en þykkjulaust (Neville er ungt tónskáld, leikinn af Sydney, syni Chaplins). Og einn dag yfirgefur Chaplin ungu stúlkuna, til að trufla ekki hamingju hennar . . Limelight er alllöng mynd. Sýningartími hennar um tvær og hálf klukkustund og því torvelt að gera efni hennar nokkur telj- andi skil í stuttum þætti. Hún er ofin saman úr mörgum þáttum listar, til dæmis heyrðist mér tónlistin í henni verðskulda snjallari listgagnrýnanda en mig. Segja má, að miðað við núgild- andi listtízku sé myndin nokk- uð „sentimental" á köflum. Til- finningasemi hefur ekki verið mikið í tízku á seinni árum í ýmsxun listgreinum. Hið óbrigð- ula skopskyn Chaplins kemur þó í veg fyrir, að hið tragíska tema myndarinnar verki yfirþyrmandi á mann. — Gamall listamaður yfirgefur sviðið, ungur gengur inn. í sjálfu sér er ekki yfir neinu að gráta. Listin heldur á- fram að vekja mönnum gleði. Merkið stendur þótt maðurinn falli. Chaplin er sígilt dæmi um það, hvernig miklir listamenn skapa sér sína eigin tízku og vinna henni heimsviðurkenningu i krafti snilligáfu sinnar, á meðan aðrir smærri verða að huga svo grannt að leiðarljósum, sem aðr- ir hafa tendrað, að oft er erfitt að sjá, hvort þeim þokar sjálf- um áleiðis eða aftur á bak. Vantar matsvein og háseta á góðan netabát frá Keflavík, sem er að hefja veiðar. Úppl. í síma 1579 Keflavík og hjá skipstjóra í síma 19916. Kaupmenn — Kaupfélög IRIM vörurnar komnar. Heildverzlun Eiríks Ketilssonar Vatnsstíg 3. — Símar 23472 — 19155. Fræðslu- og skemmtifundur Samband íslenzkra fegrunarsérfræðinga heldur fund í átthagasal Hótel Sögu þriðjudaginn 14. marz 1967 kl. 8.30 stundvíslega. Fundurinn hefst með fundarstörfum sem eru aðeins fyrir félagsmeðlimi. Fræðsluerindi hefjast kl. 9 og eru gestir þá vel- komnir. 1. Fræðsluerindi, Ólafur H. ólafsson kven- sj úkdómalæknir, 2. Tízkufréttir, frú Rúna Guðmundsdóttir, Parísartízkunni. 3. Kvikmynd úr ævi söngkonunnar Marian Anderson. 4. Kaffidrykkja. Verð aðgöngumiða fyrir gesti kr. 50. STJÓRNIN. Félagsvist Breiðfirðiiigafélagsins sem auglýst er fimmtudaginn 16. marz fellur nið- ur vegna sérstakra aðstæðna. Breiðfirðingafélagið. FORD BRONCO - TIL SfiLU - ALKLÆDDUR — TOPPGRIND. MJÖG GLÆSILEGUR í ÚTLITI. Upplýsingar í síma 16084 eftir kl. 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.