Morgunblaðið - 14.03.1967, Side 31
MOROUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 19&t.
31
EINÞÁTTUNGARNIR, Eins og^
þér sáið og Jón gamli hafa nú
verið sýndir 18 sinnum á litla
sviðinu í Lindarbæ við góða að-
sókn. Nú er aðeins eftir ein sýn
ing á einþáttungunum og verður
hún n.k. fimmtudag þann 16. þ.
m. Þetta eru fyrstu leikritin, sem
sýnd eru á leiksviði eftir Matt-
hías Johannessen, en áður hefur
komið út eftir hann leitt leikrit,
Sólmyrkvi árið 1962. Aðalhlut-
verkin í einþáttungunum eru leik ,
in af Val Gíslasyni og Lárusi
Pálssyni.
Myndin er af Lárusi Pálssyni
og Val Gíslasyni í hlutverkum.
(Frá Þjóðleikihúsinu).
- ÍÞRÓTTIR
Framh. af bls. 30
Tómas Jónsson R. 0.00
2. Guðm. FrímanssonA. 28.02
3. Þorst. Baldsson A. 43.70
Alpatvíkeppnl
drengja 15—16 ára
Unglingameistari:
Bjarni Jensson A.
2. Jónas Sigurbjörnss. A. 36.15
3. Bergur Finsson A. 83.88
Stigakeppni Héraða
Alpabikarinn hlaut
Akureyri með
Akureyri með
2. Reykjavík með
3. HSÞ með
4. ísafjörður með
Norræna bikarinn hlaut
Siglufjörður með 26 stigum
Siglufjörður með
2. Fljótamenn með
3. Reykjavík með
4. ísafjörður með
2.64
63 stigum
63 stig
25 —
17 —
17 —
26 stig
3 —
2 —
1 —
- FRAKKLAND
Framh. af bls. 1
ir öðrum kringumstæðum. Úr-
slitin í Lyon urðu þau að gaul-
listi var kosinn með 15.961 atkv.
frambjóðandi kommúnista fékk
10.387 atkv. og Soustelle 9.470
atkvæði. Hann stjórnaði kosn-
ingabaráttunni frá Madrid.
Kosningaþátttaka 81%.
Rúmlega 24 milljónir manna
voru á kjörskrá til kosninganna
á sunnudag og var kosið í 404 :
kjördæmum. Þátttaka var held-
ur minni en sunnudaginn áður,
eða um 81%. Veður var yfirleitt
gott, vorveður víðast hvar um
landið. Kjörstaðir voru opnaðir
kl. 8 að morgni en aðsókn dræm
fram yfir hádegi.
í hafnarbænum Toulon kom til
alvarlegra átaka á kosningadag
Flokkur manna, vopnaður öxum
heykvíslum og öðrum slíkum
verkfærum gekk berserksgang
og réðst á vegfarendur. Einkum
urðu gaullistar fyrir barðinu á
þeim, m.a. 22 ára sonur eins
frambjóðandans, sem var að aka
eftir aðalgötu bæjarins en slapp
naumlega með brotnar bílrúður.
Fimm menn voru handteknir.
í flestum kjördæmum var kos
ið milli frambjóðenda gaullista
og vinstri manna, annaðhvort
kommúnista eða Vinstri sam-
bandsins og mun þessi samvinna
hafa stuðlað að sigri þeirra. Að
sögn NTB eru hlutfallstölur flokk
anna nokkurn veginn þessar:
gaullistar fengu 42,7% atkvæða,.
vinstri flokkarnir samtals 46,6%,!
þar af kommúnistar 11% — og
Lýðræðislega miðsambandið 9,6
% tæplega.
Viðbrögðin
Viðbrögð frönsku blaðanna við
úrslitum kosninganna, bæði til
hægri og vinstri, urðu þau, að'
sennilega muni de Gaulle lítt!
skeyta um úrslit kosninganna og
fara sínu fram eftir sem áður, —
enda þótt liggi í augum uppi, að
andstaðan gegn stefnu hans fari
vaxandi. Hægra blaðið „L‘aur-
ore“ segir í dag, að kosningaúr-
slitin séu „stórt spurningamerki“,
sem skeyta beri aftan við stefnu
yfirlýsingar stjórnarinnar og for
setans. Leggur blaðið áherzlu á
sigur vinstri flokkanna í kosn-
ingunum og telur einsýnt, að
breyta verði um stefnu, ef hamla
eigi gegn viðgangi þeirra og fylg
isaukningu. Breyti gaullistar í
engu stefnu sinni, segi þeir þar
með, að kosningarnar hafi ekki
verið annað en skrípaleikur.
íhaldsblaðið „Le Figaro", skrif
ar, að í mörgum tilfellum hafi
kjör frambjóðendanna ekkert að
segja. Að vísu muni blöð og stjórn
málasérfræðingar lengi ræða um
kosningaúrslitin og andstaðan
muni leggja á herzlu á tap gaull
ista í málflutningi sínum á þingi.
Blað gaullista „Paris-jour“
skrifar, að kjósendur sem styðji
Vinstrasambandið hafi hlýtt á-
skorunum um að kjósa kommún-
ista þar sem þeir hafa boðið
fram, — hafi þeir heldur kosið
þá en gaullista. Blaðið segir ljóst,
að atkvæðagreiðslur á komandi
kjörtímabili verði spennandi og
muni án efa oft verða mjótt á
munum.
Viðskiptablaðið „Les Echos“
skrifar að ekkert verði eins og
áður — gaullistar séu nú komnir
í erfiða aðstöðu og verði að end
urskoða stefnu sína í mörgum
málum, m.a. efnahagsmálum.
Kommúnistablaðið „L'human-
ite“ skrifar, að hægri armur
þjoðarinnar hafi tapað fylgi, hið
lýðræðislega miðsamband hafi
reynzt lítils megnugt en vinstri
armur þjóðarinnar hafi sigrað,
þrátt fyrir tilraunir gaullista til
þess að hræða kjósendur frá því
að kjóst kommúnista. Bætir blað
ið við að þrátt fyrir óréttlætið í
kosningafyrirkomulaginu hafi úr
slitin sýnt og sannað styrk
vinstri manna.
Óháða blaðið „Combat“ skrif-
ar, að gaullistar hafi nú beðið
sinn fyrsta stóra ósigur og séu
ástæðurnar fyrst og fremst sál-
fræðilega röng kosningabarátta
gaullista og samvinna vinstri
flokkanna í kosningunum. Segir
blaðið, að nauðsynlegt sé fyrir
gaullista að breyta stefnu sinni
samkvæmt úrslitum kosninganna.
Viðbrögð fréttamanna og sér-
fræðinga í Brússel við úrslitun-
um í kosningunum voru yfirleitt
þau, að lítil von væri til þess,
að þau hefðu áhrif á stefnu
frönsku stjórnarinnar í málum
Efnahagsbandalagsins. Er á það
bent í Brússel, að bandalagið hafi
lítt borið á góma í kosningabar-
áttunni — og tæpast verið á það
minnzt, hvort ætti að leyfa nýj-
um ríkjum aðild að því og þar
af leiðandi yrði ekki sagt að
stefna stjórnarinnar í þeim efn
um hefði beðið ósigur. Hinsveg
ar eru uppi getgátur um, að
Couve de Murville, utanríkisráð
herra, sem verið hefur einn helzti
talsmaður Frakka í málum Efna-
hagsbandalagsins, hverfi nú frá
embætti en við taki Edgar Faure,
núverandi landbúnaðarráðherra.
- BRUNINN
Framhald af bls. 10.
fyrir hfeina tilviljun. Hann
geymdi bílinn inni í bílskú.n
um, og var búinn að taka Ur
honum vélina og hjólin undan
honum. Kvöldið áður en brun
inn varð vildi annar sonar
minn, Pétur, endilega setja
hjólin aftur undir hann, en
Geir sagði að ekkert lægi á.
Pétur hafði þó sitt fram og
fyrir bragðið bjargaðist bíll-
inn. Okkur tókst að ýta hon-
um vélarlausum út í bíla-
stæðið við Alþingishúsið. Sið-
ar um daginn, þegar vi:jað
var um bílinn var kominn stór
miði á hann, þar sem s‘óð að
bíllinn ætti ekkert með að
vera þarna — þetta væn
einkabílastæði fyrir aiþingis-
ihennina okkar“.
„Ég er strax farin að íhuga
fbúðakaup, og hef núna sem
er mikinn augastað á íbúð hér
á Melunum. En áður en af því
verður er ég að huga um að
bregða mér út til Glasgow
með strákunum mínum tveim
ur, Geir og Pétri. Maður vcrð
ur að fata sig algjörlega app
á nýtt, því að okkur tók=t
engu að bjarga út, fyrir
klaufaskap í mér. Þannig var.
að þegar ég var að forða mér
út eyddi ég löngum tíma í að
leita að góðum og þykkum
ullarfrakka í fatahengina, þar
sem að auki voru gaymdar
margar dýrindis kápur og
frakkar. En auðvitað hvarfl-
aði ekki að mér að taka það
með mér. Svona er maði’r
snjall 'björgunarmaður", sagði
Sigurður að lokum og kírndi
við. ,
Mikið tjón
Við náðum tali af Einari
Bjarnasyni, forstöðumanni
ríkisendurskoðunarinnar. Sú
stofnun var til húsa á þriðju
hæð Iðnaðarbankahússin;, en
hefur nú flutt starfsen.i sina
að T.augaveg 105.
„Þetta húsnæði hér, sagði
Einar, ,höfum við tekið á
leigu til tíu ára og voru eig-
inlega í þann mund að fara
að flytja hingað, er bruninn
varð. Tjónið, sem við urðum
fyrir, skiptir hundruðum þús-
unda, því að við misstum all-
ar reikni- og ritvélar. Auk
þess misstum við bréfasafn
fyrir nokkur síðustu ár, sem
kemur sér ákaflega illa, því
að oft þarf að grípa til þeirra
Á hinn bóginn get ég varla
sagt, að bruninn hafi að öðru
leyti nokkur áhrif á starf-
semi stofnunarinnar".
Brann hjá finnskum
„kollega“ í haust
Að síðustu náðum við tali
af Gunnari J.. Friðrikssyni,
formanni Félags ísl. iðm-ek-
enda, en félagið var einnig til
húsa í Iðnaðarbankahúsinu.
Hefur nú félagið flutt starf-
semi sína í eitt herbergi í Borg
artúni 1, en Gunnar sagði, að
það væri nú í leit að heppi-
legu húsnæði til bráðabii via,
þar sem iiinn bjóst við að
skrifstofur félagsins í Iðnaðar-
bankahúsinu yrðu vart komn-
ar í lag fyrr en í sumar. Hann
kvað allar sögulegar minjar
hafa varðveizt í brunanum, t.
d. allar fundargerðarbækur.
Hann sagði að ákveðið hefði
verið að aðalfundur félagsins
yrði á fimmtudag nk. til laug
ardags, og yrði engin breyt-
ing á þeirri ákvörðun, enda
þótt eldsvoðinn hefði komið
til í millitíðinni. Ætti það
heldur ekki að koma að sök,
því að allir ársreikningar
hefðu bjargazt, og eins hefði
framkvæmdastjórinn tekið árs
skýrslu sína af skrifborðinu
kvöldið fyrir brunann og far-
ið með hana heim, svo að hún
hefði einnig bjargazt. Varð-
andi tjónið á húsnæðinu sagði
Gunnar, að það væri tryggt
fyrir 400 þús. kr., en hann
taldi mikið vafamál að sú upp
hæð dygði til að bæta sk »ð-
ann.
Gunnar er einnig fram-
kvæmdastjóri íslenzku heims-
sýningarnefndarinnar til Kan
ada, og brunnu ýmis skjöl og
bréf, sem legið höfðu á skrif-
borði hans, varðandi það efni,
og sagði Gunnar að útvega
þyrfti ný gögn. „Annars hef-
ur bruninn engin áhrif á þátt
íslands á heimssýningunni —
hann verður hvorki minni né
meiri en ráðgert hafði verið.
Ég er heldur ekki sá eini,
sem orðið hefur fyrir slíku ó-
happi, því svo einkennilega
vildi til sl. haust, að stór-
bruni varð hjá hinum finnska
kollega mínum. Þetta er ó-
neytanlega skrítin tilviljun —
tveir brunar hjá norrænum
sýningarnefndum — en mað-
ur má samt ekki vera of hjá-
trúarfullur".
- FANNFERGI
Framh. af bls. 32
Brjótast með mjólkina á drátt-
arvélum.
Gunnar bóndi I Seljatungu
kvaðst horfa á fjögurra metra
háan skafl á hlaðinu hjá sér, er
við hringdum í hann. Ekki væri
það þó svo slæmt yfirleitt. En
síðan á föstudag hefði verið stöð
ugur skafrenningur og ofanhríð
öðru hverju. Væru vegirnir eig-
inlega alveg ófærir. Ekki nærri
allir komu mjólkinni frá sér á
laugardag. En á sunnudag kom-
ust bílar eftir aðalveginum, og
bændur brutust með mjólkina
í veg fyrir þá á dráttarvélum. Á
mánudag var ekki reynt að ná
mjólkinni.
Gunnar sagði að venjulega
væri minni snjór í Lág-Flóanum
en uppi í landi. En í fyrra var
þetta á tímabili slæmt, og þó
ekkert væri það eins og núna.
Ekki hefur mikið frost fylgt
hríðinni. en það fór vaxandi í
gær og skafrervningurinn var að
aukast. Er það mjög bagalegt að
koma ekki mjólkinni frá sér.
Miðbik Suðurlands skást
Fréttaritari blaðsins á Hvols-
velli, Otto Eyfjörð, sagði að þó
færð væri slæm í Flóanum, þá
lagaðist hún eftir því sem aust-
ar drægi. Væri ágæt færð úr
Holtunum og austur um sýslur.
Mjólkurbílarnir komu í gær-
morgun í seinna lagi. En um
miðjan daginn, er við tölpðum
við Otto var að hvessa og kom-
inn skafrenningur. sagði hann að
snjór væri nægur til að fjúka
í skafla ef hvessti.
Engar samgöngur í Mýrdalnum.
í Mýrdalnum og þar í kring
eru engar samgöngur eins og
stendur, að því er Sigþór frétta-
ritari blaðsins sagði. Var þar I
gær iðulaus hríð og ekkert reynt
að opna vegi. En þetta ástand
náði þó ekki nema vestur að
Jökulsá.
Á sunnudagsmorgun byrjaði
að snjóa, Mjólkurbílarnir kom-
ust þó leiðar sinnar, en seinni
hluta dagsins lokuðust allir vegir.
Áætlunarbíllinn, sem ætlaði frá
Vík til Reykjavíkur, sneri við.
Hvasst hefur verið og fýkur
snjórinn í skafla og ekkert hægt
að gera fyrr en lægir.
- SVETLANA
Framh. af bls. 1
staðfesti hins vegar, að hún
hefði komið til Sviss á láug-
ardaginn frá Rómaborg og
hefði fengið dvalarleyfi í
landinu tU þriggja mánaða til
að byrja með en ekkert væri
því til fyrirstöðu að það yrði
framlengt um óákveðinn tíma.
Hins vegar lagði hann á það
áherzlu, að hún hefði ekki
beðizt hælis sem pólitískur
flóttamaður í Sviss.
Fyrst á sunnudagskvöldið
var birt í Moskvu fregnin um
Svetlönu — þó þannig, að
ekki var frá því skýrt, að hún
hyggðist ekki snúa aft-
ur til Sovétríkjanna. —
Var aðeins sagt, — „sem svar
við fyrirspurnum frétta-
manna", eins og komist var
að orði í fréttasendingu TASS
að hún hefði í árslok 1966
fengið vegabréfsáritun og
fararleyfi til Indlands, ttil
þess að fara þangað með ösku
eiginmanns síns, indverska
kommúnistans Brijash Singhs.
Væri hún nú erlendis og það
væri algerlega hennar einka-
mál, hversu lengi hún væri
erlendis. Á hinn bóginn höfðu
fjölmargir Sovétborgarar þeg
ar heyrt fréttina frá erlend-
um útvarpsstöðvum og er-
lendum fréttamönnum og
vakti mál þetta mikla athygli.
NTB-fréttastofan hefur eft-
ir áreiðanlegum heimildum í
Nýju Delhi, að sendimenn
Sovétríkjanna þar hafi sakað
bandaríska sendiráðið um að
hafa rænt Svetlönu Stalínu.
Munu stjórnir Bandaríkj-
anna og Indlands annars veg-
ar og Sovétríkjanna hins veg-
ar hafa skipzt á orðsending-
um um mál þetta. Frá Was-
hinton herma fregnir, að
Svetlana hafi beðizt hælis í
Bandaríkjunum en verið synj
að vegna þess, að Bandaríkja-
stjórn hafi ekki viljað skaða
samband sitt við Sovétstjórn-
ina. Þá hefur NTB einnig fyr-
ir satt, að upprunalega hafi
Svetlana ætlað að setjast að í
Indlandi en indverska stjórn-
in hafi ekki viljað það, af
sömu ástæðu og Bandaríkja-
stjórn.
Indira Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, sagði á sunnu
dag, að hún hefði hitt Svet-
lönu að máli nýlega, heima
hjá Dines Singh, aðstoðarut-
anríkisráðherra Indlands, en
fjölskylda hans er búsett I
Kalankankar 1 austurhluta
Utter Prades. Eiginmaður
Svetlönu var frændi ráðherr-
ans. Þær Svetlana og Indira
hittust er Indira var á kosn-
ingaferðalagi og segir Indira,
að Svetlana hafi ekki á það
minnzt bá að hún vildi setj-
ast að í Indlandi.
AP-fréttastofan segir einnig
frá því, að í Kalankar, hafi
tveir sendimenn sovézka
sendiráðsins í Nýju-Delhi
heimsótt Svetlönu. Tveim
dögum síðar hafi hún farið
þaðan til Lucknow, þar sem
hún meðal annars heimsótti
skrifstofu kommúnistaflokks
borgarinnar. Meðan hún var í
Lucknow mun sendimaður
sendiráðsins hafa komið aftur
til Kalankankar. Ennfremur
segir AP, að 6. marz sl. hafi
Svetlana verið komin til
Nýju Delhi og flutzt i sovézka
sendiráðið — en daginn eftir
verið horfin þaðan, þ. e. 7.
marz, er hún fór flugleiðis
frá Nýju Delhi til Rómar í
fylgd með starfsmanni banda-
ríska sendiráðsins, sem síðan
greiddi götu hennar til Sviss.