Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1967. Bí LALEICAN FERÐ SÍMI 34406 Bensín innifalið í leigugjaldi. SENDUM magimúsar SKIPHOLTI21 símar 21190 eftir lokun simi 40381 «.«. 1.44-44 \tmim Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31169. LITLA bilaleigan Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið i leigugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 13. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. i . --'B/lAlí/BAft RAUDARARSTÍG 31 SÍMI 22022 Fjaðiír, fjaðrablóð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir f margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180. Vinnuföt til hvers konar vinnu eru ávallt fyrirliggjandi í mjög fjölbreyttu úrvali V E R Z LU N I N GEYsiBP ýt Bakkus — góður liðsmaður Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Þetta sannað- ist áþreifanlega á Seyðisfirði, eins og fram kom hér í blað- inu á föstudaginn. Landhelg- isgæzlan birtist brezkum tog- arasjömönnum — ekki sem lögregla, aldrei þessu vant — heldur sem hinn gjafmildi bróðir, sem vildi deila gjöfum Guðs með brezkum sægörpum. Var drukkið stíft og síðan slegizt og sagði fréttamaður blaðsins þar eystra, að togar- inn hefði verið eins og slátur- hiis á eftir. Mættu stórveldin læra margt af slátrunaraðferð íslenzka sjóhersins — og ekki er ólíklegt að atburður þessi styrki málstað þeirra sem telja að við ættum sjálfir að taka varnir landsins í okkar hendur. Að líkindum þurfum við ekki á byssum að halda, ef Bakkus verður okkar megin — fram- vegis sem hingað til. „Sprúttsala“ Lesandi skrifar: „Kæri Velvakandi, Einstaklingsframtakið hefur nú heldur en ekki leikið á olíu- félögin. Á sama tíma og olíu- félögin berast . á banaspjót vegna ofsalegrar samkeppni um hylli viðskiptavinanna leyfir einstaklingur sér að selja benzín eftir umsaminn lokunartíma benzínstöðva olíu félaganna (því þau loka öll sínum afgreiðslum jafnsnemma samkv. lögmálum hinnar frjálsu samkeppni). Þegar einstaklingur brýtur á þennan hátt „lög“ olíufélag- anna, telst það ekki hálfgerð sprúttsala? Ég væri illa svik- inn, ef ekki yrði reynt að stöðva þessa „ólöglegu" sam- keppni. — Bifreiðaeigandi“. Staðið í ströngu Húsbyggjandi skrifar: „Mikla athygli hefur það vakið, að níu málarameistarar skiluðu tilboðum í verk eitt, sem hljóðuðu, nákvæmlega eins — upp á eyri. Ljóst er, að þeir standa sem einn og hafa haft samráð, en utanbæj- armaður kemur með 30% lægra tilboð. Við, sem stöndum í hús byggingum, höfum löngum þurft að berjast harðri baráttu en jafnan tapað. Hinir, sem ekki hafa staðið í ströngu á þessum vettvangi, sjá nú e.t.v. betur hvers vegna við höfum kvartað yfir háum byggingar- kostnaði. En þetta er aðeins lítill hluti af heildarkostnaði hverrar byggingar. Menn geta lagt saman og dregið frá að vild. Það var ágætt að þessar upplýsingar komust í blöðin. — Húsbyggj andi“. Biðskylda Hlíðabúi skrifar: Velvakandi, Viltu ekki koma eftirfar- andi á framfæri við umferðar- nefnd: Er ekki tímabært að setja biðskyldu á eftirfarandi götur þar sem þær liggja að Hamrahlíð: Bogahlíð, Stakka- hlíð, Stigahlíð og Háuhlíð. Ég ek oft þarna um og það er mjög varhugavert, einkum í myrkri. Umferðin er orðin töluverð á þessum götum, en gatnamótin öll varasöm. Hlíðabúi'*. Handritahyrnur Húsmóðir skrifar: „Kæri Velvakandi, Ég fæ ekki betur séð að nýju mjólkurhyrnurnar okkar séu hálfgerðar handritahyrn- ur. Þeir hafa sennilega notað það, sem eftir er af íslenzkum handritum í Svíbjóð. Gott var, að þau voru ekki öll étin of snemma. — Húsmóðir“. Dýrlingurinn og börnin Vesturbæingur skrifar: „Velvakandi, Kerlingarnar eru að tala um að Dýrlingurinn í sjónvarpinu sé ekki góður fyrir börnin — og þessvegna sé Dýrlingurinn slæmur. Ég sem fullorðinn maður (þó engin dýrlingur) vil mótmæla þessu og haida fram rétti mínum til þess að krefjast annarrar fæðu en þeirrar, sem kallast barnamat- ur. Sjónvarpið virðir þessar sjálfsögðu kröfur fullorðna fólksins. Ég vil benda hinum nöldursömu kerlingum á það, að börnin eiga að vera háttuð og sofnuð, þegar Dýrlingurinn er fluttur á kvöldin. — Það lýsir ekki mikilli nákvæmni í uppeldi né umhyggju fyrir barnssálunum að leyfa börn- um að drolla langt fram á kvöld af því að þau vilja horfa á sjónvarpið. Aginn og reglan á þeim heimilum er ekki upp á marga fiska. Og það er til of mikils ætlast að aðrir eigi að gjalda vanrækslu þeirra, sem ekki sinna uppeldi barna sinna — og vilja hafa stöðugan barna tíma í sjónvarpinu. — Vesturbæingur." ■^- Pósthólfin Vegna fyrirspurnar til póststofunnar hér í dálkunum í fyrradag hefur póststofan óskað að koma því á framfæri, að leiga fyrir pósthólf hafi ekki hækkað á þessu ári. Sam kv. þessu var hún kr. 125,—, einnig í fyrra. Dönsku blöðin og tilbeiðslan Lesandi skrifar: ,Nú er gifting fyrirhuguð í Danaveldi, konunglegt brúð- kaup, eins og allir vita, sem fylgjast með (þar á ég við þá, sem lesa dönsku blöðin). Mér finnst óhugnanlegt hvernig þessi dönsku heimilisblöð „velta sér up úr" fréttum af kóngafólki, leikurum og öðrum frægum persónum. Það liggur við að maður fái velgju. Sem betur fer eru íslenzku blöðin laus við þessi væmnu tilbeiðslu skrif um frægt fólk. Ég held, að slík skrif geri hinn almenna lesanda minni en hann þarf að vera — minni í sjálfs hans augum, dragi úr honum kjark, geri hann hégómagjarnan og jafnframt þrælslundaðan. Auð vitað er sjálfsagt að sýna öllu tignarfólki virðingu — og reynd ar á fólk almennt að sýna hvort öðru virðingu og tillitssemi í daglegri umgengni. En þessi tilbeiðsla á engan rétt á sér — og oftast þróast hún í þá átt, að blöðin í (leit að góðu efni) verða að snúa til- beiðslu sinni að auðmönnum, því tignarfólkið endist þeim ekki alla eilífð. Þessvegna er farið að tilbiðja fólk vegna peninga þess en ekki hæfileika. — Fyrrverandi lesandi dönsku blaðanna“. Hús í sniíðum Glæsilegt einbýlishús í smíðum á Flötunum Garða- hreppi til sölu. Selst milliliðalaust. Hagstætt verð. Uppýsingar í síma 21803 í dag og næstu daga. Söluinaður - verzlunarstjóri Maður með 20 ára reynslu sem sölumaður og verzl- unarstjóri óskar eftir atvinnu. Upplýsingar sem farið verður með sem trúnaðarmál sendist af- greiðslu blaðsins fyrir 20. apríl merkt: „Verzlun- arstörf 2248.“ íbúð óskast 5—6 herb. íbúð óskast til kaups. Skipti á minni íbúð koma til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „íbúð 2199.“ Fatadeildin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.