Morgunblaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUK 9. APKIL, 1967.
7
-fc
Ágúst sýnir ■ Morgunblaðsglugga
íbúð óskast
Þessi mynd beitir Hamarinn og er eftir Ágúst Petersen listmalara, en eins og áður hefur veri8
frá skýrt, stendur yfir sýning á nokkrum málverkum hans í glugga Morgunblaðsins.
Margir hafa staldrað við gluggann, undanfarna daga, og nú hefur Ágúst að nokkru skipt um
málverk Sýningin er sölusýning, og geta menn fengið upplysingar um verð hjá auglýsingadeild
Morgunblaðsins. Sýningin tsendur fram á næsta fimmtudag.
f dag verða gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni af
séra Ólafi Skúlasyni ungfrú Lilja
Dóra Óskarsdóttir, og Sigurður
Sigurðsson, Efstadal, Laugardal,
Árnessýslu.
Nýiega opiniberuðu trúlofun
BÍna ungtfrú Gunnlaug Jóhannes-
dóttir, Vesturgötu 57 a, og Gunn-
ar Snorrason Ásvallagötu 26.
Á Páskadag opinberuðu trú-
lofun sína Jóna Reimarsdóttir
og Guðmundur Helgi Guðmunds
son frá Blómsturvöllum, Stokks-
eyri.
FRÉTTIR
Fíladelfía, Reykjavík
Almenn samkoma sunnudag-
inn 9. þm. kl. 8. e.h. Ásgrímur
Stefánsson og Hallgrímur Guð-
mansson tala.
Froskmannafélagið Syndaselir.
Aðalfundur verður haldinn hjá
Gunnari Ásgeirssyni, sunnudag-
inn 16. þessa mánaðar, kl. 3.
Stjórnarkjör og margvíslegar
umræður.
Afmælisfundur Kvennadeildar
Slysavarnafélagsins í Reykjavík
verður að Hótel Sögu mánudag-
inn 10. apríl og hefst kl. 8.30. Til
skemmtunar: Sýndir verða þjóð
dansar, Ómar Ragnarsson, upp-
lestur og fleira. Stjórn kvenna-
deildarinnar Hraunprýði í Hafn-
arfirði verður gestur á fundinum.
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum Mjóuhlíð 16
sunnudagskvöldið 9. apríl kl. 8.
Sunnudagskólin kl. 10.30. Verið
hjartanlega velkomin.
Hringkonur, Hafnarfirði. Aðal-
fundur félagsins verður haldinn
í Alþýðuhúsinu þriðjudaginn 11.
apríl kl. 8.30. Rædd verða fé-
lagsmál.
Kvenfélag Grensássóknar held-
ur fund í Breiðagerðisskóla
mánudaginn 10. apríl kl. 8:30.
Jón H. Björnsson, skrúðgarða-
arkitekt talar um garða. Sýndir
verða gamlir dansar. Stjórnin.
Systrafélag Keflavíkur
Fundur verður í Æskulýðs-
heimilinu þriðjudaginn 11. apríl.
kl. 8:30. Rætt verður um árs-
hátíðina. Stjórnin.
Kvenfélagið Hrund, Hafnar-
firði
Fundur verður mánudaginn
10. apríl. Skemmtiatriði, kaffi,
Stjórnin.
Aðalfundur. Bræðrafélag Fri-
kirkjusafnaðarins verður hald-
inn sunnudaginn 9. apríl í Tjarn-
arbúð, uppi kl. 15:30. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
minnist 25 ára afmælis síns
með hófi í Domus Medica
(Læknahúsinu við Egilsgötu)
miðvikudaginn 12 apríl kl. 8:15
Á skemmtiskránnni verða
Magnús Jónsson óperusöngvari
og Ómar Ragnarsson. Ennfrem-
ur upplestur og ræðuhöld. Gert
er ráð fyrir, að félagskonur
bjóði mönnum sínum með. Nauð
synlegt, að konur tilkynni þátt-
töku sína sem fyrst og vitji að-
göngumiða til eftirtalinna
kvenna: Sigríður Guðjónsdóttir,
Barónsstíg 24, sími 14659, Sig-
ríður Guðmundsdóttir, Mímis-
vegi 6, sími 12501, Sigrid Karls-
dóttir, Mávahlíð 4, sími 17638.
Stjórnin.
Geðverndarfélag Islands. Ráð
gjafa- og upplýsingaþjónusta að
Veltusundi 3 alla mánudaga
kl. 4-6 e.h., sími 12139. Almenn
skrifstofa fél. á s.st. opin kl.
2-3 daglega, nema laugardaga,
— og eftir samkomulagi
Spakmœli dagsins
Það ætti enginn að skammast
sin fyrir að játa, að hann hafi
haft rangt fyrir sér. I»að er ekki
annað en að segja — með öðrum
orðum að hann sé vitrari í dag,
en hann var í gær. — Pope.
Sunnudagaskólar
BÖRN!
Munið, að sunnudagaskólar
K.F.U.M. og K., Kristniboðssam-
bandsins og Fíladelfíu hef jast kl.
10:30.
VÍSUKORN
Lækur hlær og leikur sér
létt með skæru hljóði,
andar blær í eyra mér
ennþá kæru hljóði.
Jón Jónsson.
LÆKNAR
FJARVERANDI
Bjarni Jónsson fjv. frá 3. aprfl til
22. apríl. Stg: Björn Önundarson.
Kristinn Björnsson fjv .um óákveð-
inn tíma. Stg. I>orgeir Jónsson, Domus
Medica.
Stelpur í Silfurtúni
dalssöfnunina, og inn Komu kr. 1.435,00 að Faxatúni 19 í Silfur-
túni. Nöfn þessara yngismeyia eru talið frá vinstri: Steinunn 9
ára, Ingibjörg 9 ára, Fjóla 12 ára, Auður 11 ára og Margrét 10 ára.
3 til 5- herbergja vönduð íbúð óskast til leigu.
Tvennt í heimili. Upplýsingar í síma 22524.
íbúð óskasf
strax uppl. í síma 31783
Umboðsmenn óskast
Heildsöluverzlun í Reykjavík, sem flytur inn aðeins
nýjungar í byggingarvörum óskar eftir fjárhalds-
lega traustum umboðsmönnum utan Reykjavíkur,
sem hafa aðgang eða reka byggingavöruverzlun og
hafa áhuga á nýjungum í byggingariðnaði. Lyst-
hafendur leggi nöfn sín og upplýsingar á afgr.
blaðsins merkt: „Nýjungar 2178“ fyrir 18. þessa
mánaðar. Umsóknir verður farið með sem trúnað-
armál.
Lax- og
silungsseiði
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði hefur til
sölu laxaseiði af göngustærð svo og kvið-
pokaseiði til afgreiðslu í maí og júní. Enn-
fremur eru til sölu silungsseiði af ýmsum
stærðum. Þá mun laxeldisstöðin hafa
laxahrogn til sölu í haust. Pantanir á
seiðum og hrognum óskast sendar Veiði-
málastofnuninni, Tjarnargötu 10, Reykja
vík, hið allra fyrsta.
Laxeldisstöð ríkisins.
k.
Einkaumboð fyrir:
HVERFISGÖTU « A REYKJAVÍK A SÍMI 1 8111