Morgunblaðið - 09.04.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1967.
31
Eyjabátar með
góðan afla
Vestmannaeyjum, 10. apríl.
AFLADAGURINN í Vestmanna-
eyjum í gær var með betri dög-
eyjum í gær var með betri dög-
um á vertíðinni, og fengu neta-
bátarnir frá 12 og upp í lið-
lega 20 tonn. Tveir bátar fengu
eitthvað meira. Var afli annars
bátsins austan úr Meðallands-
bugt, og tveggja nátta.
Annar hefur afli netabáta
héðan úr Eyjum verið sáratreg-
ur fram að þessu, og það litla
sem fengizt hefur undanfarna
daga er á mjög takmörkuðu
svæði. Bátar sem stunda neta-
veiðar héðan eru, um 20 skip.
Afli nótabáta hefur verið nær
enginn, og svo aumur að dæmi
eru til þess að bátar hafi að-
eins fengið þrjá fiska í kasti.
Hjá botnvörpubátunum hefur
aflinn verið ákaflega misjafn en
einstaka bátur hefur gert sæmi-
legar veiðiferðir.
Nokkra fyrstu dagana í apríl
lönduðu nokkur skip hér sam-
tals 740 tonnum af loðnu, og er
þar með gert ráð fyrir, að loðnu
vertíðinni sé lokið. — B. Guðm.
ísland - Svíþjóð í kvðld
Frambjóðendafandir Heimdallar
NÆSTKOMANDI mánudag
efnir Heimdallur til rabbfundar
með Pétri Sigurðssyni, sjó-
manni, sem skipar 5. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins við Aiþing-
iskosningarnar í vor.
Heimdallur hyggst efna til
rabbfunda með nokkrum af efstu
mönnum listans í Reykjavik og
verður fundurinn með Pétri
Sigurðssyni sá fyrst.
Fundurinn hefst í ValhöII
kl. 20.30 á mánudagskvöld
- CHRISTRUP
Framh. af blss. 1.
að þær njóti í raun og veru
engrar verndar dómstóla, vegna
þess, að þær þjóni hagsmunum
almennings og sækist ekki eftir
fjárhagsleg.um vinningi.
Með tilliti til þessa getur það
ekki ráðið úrslitum, að stofn-
unin skuli ekki hafa aflað tekna
af safni sínu, né hafa leyfi til
að selja verulegan hluta þess.
Það hlýtur að vera hægt að
krefjast skaðabóta fyrir verð-
mæti þeirra handrita og skjala,
sem stofnuninni er gert að láta
af hend'i. Fyrir það fé, sem
þannig fengizt, gæti stofnunin
bætt sér skaðanm með kaupum
é öðrum handritum bókum og
skjölum og jafnframt gætu bæt
urnar, að einhverju leyti, staðið
undir útgjöldum af starfsemi
safnsins.
Málið fyrir hæstarétti I fyrra
snerist um það, hvort afhend-
ingarlögitn brytu í bága við
stjórnarskránia. Það vakti því
mikla athygli, að hæstiréttur tók
við dómsuppkvaðningu afstöðu
til skaðabótamálsins, með því
að segja, að dómurinn gæfi ekki
tilefni til skaðabótakröfu.
Um þetta segir Christrup: „Að
því bezt er vitað, mun þetta
í fyrsta skipti frá því einveldi var
afnumið, að hæstiréttur setur
fram í dómsorðum athugasemd-
ir um atriði, sem ©kki hefur
verið fjallað um í réttarhöldun-
um sjálfum".
Næsta atriði máls þessa verð-
ur svar Paules Smiths.
— Rytgaard.
ÍSLENDINGAR leika landsleik
gegn Svíum í Laugardalshöll-
inni í kvöld, og hefst leikurinn
kl. 20.30. Þetta er fimmti lands-
leikurinn. þar sem þessi lönd
eigast við. Svíar sigruðu i þrem-
ur fyrstu leikjunum, en í sið-
asta landsleik þessara liða á
heimsmeistarakeppninni i Brati-
lava sigruðu Islendingar með
12:10, eins og flestum mun í
fersku minni.
Heyrzt hefur að Svíar hafi nú
mikinn áhuga á því að hefna
ófarana frá síðasta leik, en ís-
lenzku leikmennirnir eru stað-
ráðnir í að gefa hvergi eftir. Má
því búast við skemmtilegum
leik, og að fjölmenni verði í
Höllinni. Verða landarnir von-
andi hvattir vel .
Hjá báðum þjóðunum er sá
háttur hafður á, að einn maður
sér um val landsliðsins — Kurt
Mikil ölvun
MIKIL ölvun var í Reykjavík í
fyrrinótt og fylltust fangageymsl
ur við Síðumúla. Voru fangarnir
hinir rólegustu þó hafðir fleiri
en einn saman í klefa, en klef
arnir enu 18. Þurfti að nota
gamla kjallarann í Lögreglustöð
inni við Pósthússtræti um tíma.
Fjölgun göfuvita
biður hægri aksturs
GÍSLI Halldórsson, borgarfull-
trúi, uppiýsti á borgarstjórnar-
fundi sl. fimmtudag, að ákveðið
hefði verið að fjölga ekki götu-
vitum í borginni fyrr en hægri
akstur gengi í gildi. Ástæðuna
sagði hann vera þá ,að uppsetn-
ing götuvitanna væri mjög dýr
og fljótlega þyrfti að færa þá til
aftur vegna vinstri-hægri breyt-
Ekið á stúlku
í Lækjargötu
í FYRRAKVÖLD var ekið á
stúlku í Lækjargötu. Lögreglu-
menn sem voru á vakt í hverfinu
komu á staðinn, en stúlkan taldi
sig ekki hafa meiðst og hafnaði
því að sér yrði ekið í Slysa-
verðstofuna.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var svipaður atburður
í Lækjargötu ekki alls fyrir
löngu. Var þá ekið á konu, sem
brást við með svipuðum hætti
sem áður en nefnd.
Lögreglan tók þó númer og nafn
bifreiðastjórans og nafn konunn-
ar og kom það sér vel, því að
hálfum mánuði síðar leitaði kon
an til löðreglunnar þar eð kom-
ið hafði í ljós að konan var lær
brotin. Kom skýrsla lögreglunn-
ar því konunni vel.
ingarinnar. Gísli sagði, að upp
setning götuvitanna gæti hafizt
í haust, og eins og fyrr er sagt,
eru þeir ætlaðir hægri akstri.
Umræður um umferðarmál
spruttu af fyrirspurn Kristjáns
Benediktssonar, en hann spurði
m.a. hvenær bætt yrði við götu-
vitum á horni Laugavegs og
Nóatúns.
Wadmark fyrir Svíþjóð og Sig-1 hólmganga milii þeirra, og báð-
urður Jónsson fyrir ísland. Verð ir tefia þeir fram sínum beztu
ur þetta um leið nokkurskonar | leikmönnum.
Islendingar stóðu sig
vel á dönsku sundmóti
- SAMVINNA
Framh. af bls. 32.
að ræðismannaskrifstofur Norð-
urlandanna veittu Norðurlanda-
búum aðstoð, án tillits til þess,
hvort þeir væru frá viðkomandi
landi. Þannig gætu íslendingar
vonast eftir aðstoð frá ræðis-
mannaskrifstofum hinna Norð-
urlandanna á þeim stöðum, þar
sem Island ætti enga ræðismenn.
Eldur í bílskúr
ELDUR kom up í bílskúr við
Langagerði 4 í gær. Töluverðar
skemmdir urðu á skúrnum, af
eldi og vatni en bifreið, sem í
honum var bjargaðist út
óskmmd. Eldurinn kviknaði út
frá ohuofni.
GUÐMUNDUR Gíslason og Guð
mundur Harðarson urðu í öðru
og þriðja sæti í 100 metra flug-
sundi á alþjóðlegu móti í Kaup-
mannahöfn s.l. þriðjudag. Mót
þetta var haldið í tilefni af 60
ára afmæli danska sundsam-
bandsins.
Sigurvegari í þessari grein
varð Danmerkurmeistarinn John
Bertelsen á nýju dönsku meti
1.03.0 og sló þar með 14 ána
gamalt met. Sem fyrr segir varð
Guðmundur annar og fékk tím-
ann 1.03.1 og nafni hans Harð-
arson þriðji á 1.05.5. Gerd Wie-
land frá Austurríki varð fjórði
og fékk 1.06.3. Bertelsen hafði
forustuna allan tímann, og þrátt
fyrir góðan endasprett tókst
Guðmundi Gíslasyni ekki að ná
honum.
Daginn áður varð Guðmund-
ur Gíslason annar í 100 m.
frjálsri aðferð og hlaut tímann
57.3 Austurríkismaðurinn sigr-
aði í þeirri grein á 56.5 og Ber-
telsen varð þriðji með 57.5. Hann
sigraði á hinn bóginn í 200 m.
frjálsri aðferð með 2.07.5 (jafnt
ísl. metinu) en þar varð Guð-
mundur Gíslason annar á 2.08.0
og Guðmundur Harðarson þriðji
á 2.08.0.
HÆG SV-átt ríkti á landinu
í gærmorgun og þíðviðri um
allt land, hiti 2—7 stig. Ný
lægð var við Hvarf og átti að
herða á vindinum í gærkveldi
með rigningu sunnan lands og
vestan.
- KJOSENDUR
Framhald af bls. 16
Kjördæmi við alþingiskosningar
Nú 1963
Reykjavík 46.159 42.251
Reykj anes-
kjördæmi 17.096 13.754
Vesturlands-
kjördæmi 7.086 6.630
Vestfjarða-
kj.ördæmi 5.579 5.540
Norðurlandskjör-
dæmi vestra 5.731 5.769
Norðurlandskjör-
dæmi eystra 11.945 11.202
Austurlands-
kjördæmi 6.168 5.793
Suðurlands-
kjördæmi 9.546 8.853
Svipmyndir
frá París
í DAG kl. 3.30 flytur frú Irma
Weile-Jónsson erindi í útvarpið,
sem hún nefnir: Svipmyndir
frá París.
Bregður frú Irma þar upp
skemmtilegum myndum af
frægum listamönnum, m. a.
heyrum við þar Elizabeth
Schvarzkofp syngja, heyrum
messu í Notre Dame kirkjunni,
þar sem heimsfrægur orgelleik-
ari leikur á orgelið og margt,
margt fleira kemur fram í er-
indinu.
Frú Irma hélt á sínum yngri
árum nokkrar söngskemmtanir
í París, og naut þar tilstyrks
m. a. Maurice Ravel.
Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
heldur fund mánudaginn 10.
apríl í Sjálfstæðishúsinu í
Kópavogi kl. 8,30 stundvíslega.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á
fund Landssamb. Sjálfstæðis-
kvenna, 19. apríl.
Á fundinum mætir einn af
frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi,
frú Jóhanna Sigurðardóttir. Sér
fræðingur í andlitssnyrtingu hef
ur sýnikennslu í snyrtingu og
fleiru. Þá verður tízkusýning,
vortízkan 1967. Fundurinn er
aðeins fyrir félagskonur.
Spilakvöld
á Akureyri
SPILAKVÖLD verður í Sjálf-
stæðishúsinu á Akureyri í kvöld,
sunnudagskvöld, 9. apríl, og
hefst kl. 20.30. Spiluð verður fé-
lagsvist. Stjórnandi Sigurbjörn
Bjarnason, skrifstofustjóri.
Ávarp flytur Ingibjörg Magn-
úsdóttir, forstöðukona. Dansað
verður til kl. 1. Hljómsveit Ingi
mars Eydals, Þorvaldur og
Helena skemmta.
Forsala aðgöngumiða verður 1
dag í skrifstofu Sjálfstæðis-
fiokksins, Hafnarstræti 101, kl.
14—15. Aðgöngumiðasala húss-
ins opnuð kl. 19
Innbrot hjá „Ramparts"
San Fransisco, 7. apríl (AP)
Brotizt hefur verið inn í
ritstjórnarskrifstofur banda-
ríska tímaritsins „Ramparts"
um, m. a. bankareikningi síð-
og stolið þaðan ýmsum skjöl
ustu 10 ára. Tímarit þetta
komst í heimsfréttirnar fyrir
nokkru þegar það kom upp
um greiðslur bandarisku
leyniþjónustunnar CIA til
stúdentasamtaka og stéttar-
félaga.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Allt landið 109.310 99.798
BLADBURDARFOLK
ÓSKAST
I EFTIRTALIN
HVERFI:
Snorrabraut Framnesvegur Tjarnargata
Aðalstræti Lambastaðahverfi Miðbær
Talið við afgreiðsluna sími 22480
PlurigimM&frltí