Morgunblaðið - 13.04.1967, Síða 1
32 shkjr
54. árg. — 83. tbl.
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Myndin sýnir rannsóknar-
nefndina, sem skipuð var til
að kanna orsakir Appoltoslyss
ins 27. janúar s.I. að störfum.
Nefndarmenn eru að skoða
hlut úr geimfarinu.
Kosiö í London í dag
íhaldsmönnum spáð sigri eftir 33 ára
stjórn Verkamannaflokks
BÆJA- og sveitastjórnarkosn
ingar fara fram víða í Bret-
landi um þessar mundir, og
í dag, fimmtudag, verður kos
in borgarstjórn í London. Er
úrslitanna beðið með mikilli
eftirvæntingu, því talið er lík
legt að Jhaldsflokkurinn
hljóti nú meirihluta atkvæða,
en Verkamannaflokkurinn
hefur farið með stjórn borg-
arinnar í 33 ár samfleytt.
Yfirráðasvæði borgarstjóm
ar London nær yfir rúmlega
1.600 ferkílómetra, og innan
þess búa um átta milljónir
manna. Þótt borgarstjórnin
sé ekki oft nefnd í heimsfréít
unum, eru áhrif hennar mik-
il, og yrði það Verkamama-
flokknum mikið áfall ef
íhaldsflokkurinn færi með
sigur af hólmi.
Þótt mikið sé í húfi, er ekki
búizt við mikilli kosninga-
þátttöku. Við síðustu kosning
ar í apríl 1964, neyttu aðeins
um 44% kjósenda atkvæðis-
réttar síns. Hlaut Verka-
mannaflokkurinn þá 1.095.351
atkvæði og 64 menn kjörna,
en íhaldsflokkurinn 976.276
atk'væði og 36 menn kjörna.
Frjálslyndir hlutu 255.575 at-
kvæði og kommúnistar 92.323.
Powell
endurkjöriiui
New York 12. apríl. NTB-AP
BLOKKUMAÐURINN Adam
Clayton Powell Var í gær endur
kjörinn þingmaður fyrir Harlem
hverfið í New York, með mikl-
Framhald á bls. 31.
IMJOSIMIR IIMOREGI
— Þrír Norðmenn handfeknlr — Sovézk senditæki
fundust hfá einum þeirra
Osló 12. apríl (NTB)
NORSKA lögreglan hefur hand-
tekið þrjá menn, sem sakaðir
eru um njósnir fyrir erlent ríki.
Sitja þremenningarnir nú í fang-
telsi, og hafa tveir þeirra viður-
kennt sum ákæruatriðin. Þriðji
Imaðurinn var handtekinn í Sví-
Götubardagarí Aþenu
— Verkfallsmenn krefjast nýrra kosninga
Aþenu, 12. apríl (AP-NTB)
1 DAG kom til götubardaga í
Aþenu miili byggingaverka-
manna og lögreglu, og særðust
að minnsta kosti 44 manns,
þeirra á meðal 24 lögreglumenn.
TJm 15 verkamenn voru hand-
teknir.
Meðal hinna særðu er lög-
reglustjórinn í Aþenu, Kanstant
In Tassijorgos.
Fulltrúar byggingaverka-
manna í Aþenu og Pireus komu
saman til fundar í dag til að
ræða kröfur sínar um bætt
vinnuskilyrði, en í morgun hófu
þeir sólarhrings verkfall til
stuðnings þessum kröfum. Einn-
ig krefjast þeir þess, að hægri-
stjórn Panayiotis Canellopoulos,
forsætisráðherra, sem skipuð
var hinn 3. þessa mánaðar, segði
af sér, og að boðað verði til
nýrra kosninga í landinu.
35 fúust í
flugslysi
Algeirsborg 12. apríl
NTB-AP.
Farþegaflugvél að gerðinni DC
4 fórst í suðurhluta Alsír í dag
og með henni 35 farþegar. 4
komust lífs af. Flugvélin var í
áætlunarflugi frá Algeirsborg og
Tamanrasset og fórst vélin
skömmu áður en hún átti að
lenda í Tamanrasset. Meðal
þeirra, sem fórust voru 16 sviss-
neskir ferðamenn. Ekki er vit-
að hvað slysinu olli, en rann-
sókn var þegar hafin.
Ætluðu bygggingaverkamenn
að fara kröfúgöngu um götur
höfuðborgarinnar í dag, en .ög-
reglan meinaði þeim það. Hófu
verkamenn þá grjótkast að lög-
reglumönnunum, og féllu nokkr
ir þeirra á götuna undan grjót-
hríðinni. Þegar hér var komið
réðst lögreglan gegn verkamönn
unum og dreifði þeim.
þjóff og sendur þaffan til Nor-
legs.
Mennirnir þrír eru allir frá
Bakfjord sem er nyrzt í Nor-
egi, um 60 km. frá Hammer-
fest. Eru þetta bræðurnir Selm-
er Ingebrit Nilsen, 36 ára, og
Edmund Nilsen, 51 árs og mág-
ur þeirra, Harold Lindvall, sem
er um fimmtugt. Það var Ed-
mund Nilson, sem handtekinn
var í Kristinehamn í Svíþjóð og
'sendur þaðan í dag til Osló.
Blaðið Aftenposten í Osló
skýrir frá því, að heima hjá
Selmer Nilsen hafi fundizt tæki,
fil að nota við sendingar upp-
lýsinga. Ekki eru gefnar frek-
'ari skýringar á því hverskonar
tæki þetta eru, en sagt að það
sé mjög nýlegt og smiðað í Sov-
etríkjunum.
Rannsóknarlögreglunni norsku
hefur verið það lengi ljóst að
njósnahringur hefur verið starf-
andi í Norður-Noregi. Er talið
að þremenningarnir, sem nú hafa
verið handteknir hafi stundað
njósnir frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar. í þeirri styrjöld
flýði mikill fjöldi Norðmanna
land sitt, og nokkrir þeirra hlutu
kennslu í meðferð loftskeyta-
tækja meðan þeir dvöldu erlend-
is. Virðast þremenningarnir vera
1 þeim hópi. Eftir að þeir komu
•heim, að styrjöldinni lokinni,
hafa þeir notað sér kunnáttuna
Framhald á bls. 31.
U Thant
heiðroðui
Nýju Delhi, 12. apríl
(AP-NTB)
YFIRVÖLDIN í Indlandi hafa
sæmt U Thant, framkvæmda-
stjóra Sameinuffu þjóffanna, heiff-
ursverfflaunum, sem kennd eru
viff Jawaharlal Nehru, hinn látna
leiðtoga Indver ja. Er þeta í fyrsta
skipti sem verfflaununum er
úthlutað, og hlýtur U Thant þau
fyrir framlag sitt til alþjóffa-
mála. Nema verfflaunin 100.000
rúpíum (um 330 þúsund ísl. kr.)
Framhald á bls. 31.
AtTenauer
þungt
haldinn
Bonn, 22. apríl (NTB-AP)
KONRAD Adenauer, fyrrum
kanzlari Vestur-Þýzkalands,
liggur nú þungt haldinn af
lungnakvefi (bronkitis) á
heimili sínu í Rhöndorf við
Rín. Er óttast um líf hans,
Framhald á bls. 31.
Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra á Alþingi í gœr:
480 millj. til vegamála á þessu ári
— Eleíja verður undlrbúning að varanlegri
vegagerð. — Framkvæmdir hefjist 1969
INGÓLFUR Jónsson, sam-
göngumálaráðherra, gerði AI-
þingi í gær grein fyrir vega-
áætluninni fyrir árin 1967 og
/968 sem lögð var fram fyrr
í vikunni.
1 ræðu Ingólfs Jónssonar
kom fram að á þessu ári verða
til ráðstöfunar til vegamála
480 milljónir króna. Af þeirri
upphæð munu 42 milljónir
fara í vaxta- og afborgana-
greiðslur þannig að raunveru
legt framkvæmdafé verður
um 440 milljónir. Til vega-
viðhalds verður varið á þessu
ári tæpum 140 milljónum kr.
og 1968 145 milljónum.
Samgöngumálaráðherra
sagði í ræðu sinni að nauð-
synlegt væri að hefja af full-
um krafti undirhúning að
lagningu vega með varanlegu
slitlagi til þess að hægt yrði
að hefja framkvæmdir fyrir
alvöru sumarið 1969. Til þess
að vinna að því þyrfti að gera
almenna samgönguáætlun
fyrir landið í heild, hef ja verk
fræðilegan undirbúning og
stefna að því að útboðslýs-
ingar geti legið fyrir haustið
1968.
Ræða Ingólfs Jónssonar,
samgöngumálaráðherra, fer
hér á eftir:
Frá þvi að vegaáætlun fyrir
árin 1965—1968 var samþykkt,
hefur ráðstöfunarfé vegasjóðs
verið aukið með breytingu á
vegal. Af þessu, svo og af því að
Framhald á bls. 19.