Morgunblaðið - 13.04.1967, Síða 3

Morgunblaðið - 13.04.1967, Síða 3
MÖRGÚNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967. SJÖTTA fiskiskipinu, sem Stálvík hf. í Arnarvogi smíð- ar, var hleypt af stokkunum i fyrrakvöld.Hlaut skipið nafn Ið Hafdís SU-24, og er það um 200 lestir að stærð, eign Braga hf. í Breiðdalsvík. Skip ið teiknaði Ágúst Sigurðsson tæknifræðingur, sem er ann- ar af framkvæmdastjómum 'Stálvíkur hf. Skipstjóri á Haf dísi verður Svanur Sigurðs- Son frá Breiðdalsvík, og ræddi hlaðamaður Mbl. lítillega við hann í gær. Myndin var tekin fyrir skömmu eftir að Hafdís hafði verið h leypt af stokkunum. T. v. Garð ar Sigurðsson yfirverkstjóri, Ágúst Sigurðsson, framkvæm dastjóri Stálvíkur, Jenny, dótt- ir Ágústar. Breiðdælingar fá fiskiskip sem Stálvík hf. smíðaði Stutt samtal við skipstjórann, Svan Sigurðsson — Hafdís verður annar bát ur, en fyrir er v.b. Sigurður urinn, sem gerður verður út Jónsson, sem smíðaðaux var frá Breiðdalsvík, segir Svan- 1963, en hann er svipaðrar Hafdis SXJ, er hún var sjósett í fyrrakvöld. stærðar. Við sömdum við Stál Vík um smíði bátsins 1965, og hófst smíði hans skömmu síð- ar. Hefur hann því verið um eitt ár í smíðum. — V.b. Hafdís er búin öll- um algengustu siglingar- og fiskileitartækjum til línu- og síldveiða. Aðalvél bátsins er af gerðinni Mannheim, og er 555 hestöfl. Þilfarsvinda er smíðuð af vélaverkstæði Sig- urðar Sveinbjörnssonar, knúin snigildælum, sem er nýjung á þessu sviði, og koma í stað spaðadælna. Ég vil taka sér- staklega fram, að ég er mjög ánægður með allan frágang é skipinu, sem er mjög vand aður, og að því er mér sýn- ist, jafnvel vandaðri en hjá Norðmönnum, sem ég hef haft inokkur kynni af. — Báturinn verður væntan lega tilbúin til veiða um inæstu helgi, og að sjálfsögðu verður hann mikil búbót fyrir Breiðdalsvík í hráefnisöflun Ifyrir síldarverksmiðjuma og Ifrystihúsið þar. Þessir tveir bátar ættu að vera alveg nægi leg atvinnutæki fyrir okkur næstu árin. Nú vendum við okkar kvæði í kross, og spyrjum Svan Ifrétta úr Breiðdalsvík. — Á undanförnum árum, segir hann, hafa orðið tals- verðar breytingar í Breiðdals vík og mikill uppgangur. Við sjávarsiðuna hefur myndazt þéttbýiskjarni eða þorp, sem itelur nú um 140 manns, og á sl. þremur árum hafa þar Iverið byggð 14 ný íbúðarhús, 6em verður að teljast mikið á ekki stærri stað. Þorpið Biggur lika ágætlega við, sem útgerðarstaður — fremur stutt að fara bæði á sildarmiðin og í suðausturmiðin til þorsk- veiða. Nægur fiskur er á þess um slóðum og get ég nefnt jþví til sönnunar, að skip okk- ar Sigurður Jónsson hefur nú á röskum mánuði aflað um 1400 tonn, og f dag landaði Ihann 90 tonnum. Breiðdalsvik liggur einnig allvel við hum- arveiðum, og einnig álít ég að kanna þyrfti hvort rækju fer ekki að finna þar eystra. — Aðstaða til löndunar á Breiðdalsvík er ágæt, en á hin bóginn þarf að bæta hafn arskilyrðin, ég álít að þar eetti að vera fremur auðvelt. 1 þorpinu er söltunarstöð, sild arverksmiðja og frysti'hús, isem nú er unnið að endur- bótum á. Við Breiðdælingar teljum okkur líka hafa nokk uð að segja fyrir þjóðarhag- dnn, þar sem beinn útflutn- ingur frá þessu byggðarlagi befur komizt upp í að verða á milli 30 og 40 millj. kr. — Við eigum við nokkra samgönguerfiðeika að stríða. A sumrin eru samgöngur á landi allsæmilegar, en ákaf- lega erfiðar á vetrum, og verð um við þá algjörlega að itreysta á Rikisskip. Þó hafa eamgöngurnar batnað mikið Vegna vegarins til Stöðvar- tfjarðar í gegnum Kambaskrið ur. Á Breiðdalsvik er nú að- eins sjúkraflugvöllur, en þar fer mjög góð aðstaða til flug- vallargerðar. STAKSTEIMAR Ekkert trúnaðar- brot framið KOMMÚNISTABLAÐIÐ spyr I forsíðu sinni í gær, hvort Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, hafl framið trúnaðarbrot á borgar- stjórnarfundi í síðustu viku, þar sem hann las upp í heild fundar- gerð frá fundi 9. marz sl. um vöggustofu Thorvaldsensfélags- *■ ins að Hiíðarenda. Sjálfsagt er að svara þessari fyrirspurn kommúnistablaðsins og er svar- ið neitandi, ekkert trúnaðarbrot var framið af hálfu borgar- stjóra af eftirgreindum ástæð- um: — í fyrsta lagi var ekk- ert trúnaðarmál í fundargerð- inni, sem lesin var upp, þótt ýmsar skýrslur sem lagðar voru fram á þessum fundi hefðu ver- ið trúnaðarmál, því að efni þeirra kom ekki fram f fyrrnefndri fundargerð. f öðru lagi gaf Sigurjón Björns- son tilefni til þess sjálfur, að fundargerð þessi væri les- in upp, þar sem hann vitn- aði tii þess sem gerðist á fundl ** þessum á borgarstjórnarfundin- um. Ennfremur er ástæða til þesa að benda á, að borgarstjóm samþykkti að fela barnaverndar- ráði athugun á þessu máll, einmitt til þess að tryggja hlub- lausa rannsókn þess. Viðuxkenndi ósannindin En þar sem Sigurjón Björrtv- son hefur sjálfur gefið tilefni tfl þess, að skýrt hefur verið opin- berlega frá því, sem gerðist á fundi þessum hinn 9. marz, er ástæða til að vekja athygli á þvi, að þá viðurkenndi hann sjálfur, að hann hefði farið með hrein ósannindi í hinni alræmdu ræðn er hann flutti um vöggustofn Thorvaldsensfélagsins, og önnur barnaheimili borgarinnar á borg arstjórnarfundi fyrir nokkram vikum. Þegar borgarstjóri spurði Sigurjón Björnsson að því á - borgarstjórnarfundinum, hvort hann hefði skýrt réttum aðilum frá hinum alvarlegu ásökunum sínum, að barnaheimili borgar- innar væru „gróðrarstía anð- legrar veiklunar", kvaðst hann ekki hafa skrifað þessum aðil- um skýrslu um málið, en hins vegar kvaðst hann hafa rætt það oftsinnis bæði við borgar- iækni og fræðslustjóra. Á fuml- inum 9. marz voru bæði borgar- læknir og fræðslustjóri við- staddir og voru þeir spurðir að því, hvort Sigurjón Björnsson hefði haft samband við þá nm þetta mál. Báðir svöruðu þvi neitandi. Sigurjón kvaðst ekU gera athugasemd við ummæll borgarlæknis, þessa efnis, en taidi sig hins vegar hafa rætt ^ málið við fræðslustjóra einn sinni, en hann ítrekaði að hann kannaðist ekki við það. Af þessu er ljóst, að Sigur- jón Björnsson hefur visvit- andi farið með hrein ósannindi á borgarstjómarfundi og hefur síðan viðurkennt þau ósannindi í votta viðurvist. Málflutningi slíkra manna er erfitt að treysta, Sigarjón og vöggustofan Þá vekur það einnig athygli, að þótt Sigurjón Björnsson teldi vöggustofu Thorvaldsensfélags- ins á Illiðarenda skaðsamlega andlegri heilsu barna, sem þar dveljast, óskaði hann aldrei npp- * lýsinga frá vöggustofunni um þau börn, sem hann taldi sig fá til meðferðar og beðið hefðu tjón vegna dvalarinnar þar. Þá er það ennfremur upplýst, að Sigurjón Björnsson hefur neitað að gefa nema mjög dular- fullar upplýsingar um það, hvort hann hafi nokkurn tíma komið irr ■ dyr vöggustof- unnar eða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.