Morgunblaðið - 13.04.1967, Blaðsíða 32
Pierpont-úr
Hermann
Jónsson
úrsmiður
Lækjargötu 2.
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Úvíst að Fí
fái leyfið
Bonn, 12. apríl.
Einkaskeyti frá AP
SKÝRT var frá því í vestur-
þýzka flutningamálaráðinu í
Bonn í dag, að ekki væri búizt
við að Fiugfélag íslands fengi
lendingarleyfi í Frankfurt.
Talsmaður ráðuneytisins sagði,
að vart væri unnt að anna af-
greiðslu véla þeirra flugfélaga,
sem hafa lendingarleyfi í Frank-
furt, hvað þá að fjölga lendingar-
leyfum. Bætti talsmaðurinn því
við að flugfélögin í þeim lönd-
um, sem vestur-þýzka flugfélag-
ið Lufthansa heldur uppi flug-
ferðum til, ættu að hafa for-
gangsrétt að nýjum lendingar-
leyfum, ef þau yrðu veitt. Luft-
hansa hefur lendingarleyfi á fs-
landi, en heldur ekki uppi flug-
ferðum þangað.
Talsmaður ráðuneytisins tók
það fram, að Flugfélagið hefði
allt frá árinu 1959 haft lending-
arleyfi í Hamborg og Dussel-
dorf, og væru þau leyfi enn i
gildi.
Sjávarútvegsmálaráðherra Sovét ríkjanna, A. Ishkov, heimsótti Bj arna Benediktsson, forsætisráðh erra, í gærmorgun og var mynd-
in tekin á fundi þeirra. Talið frá vinstri: Nosov, sovézki fiskimál astjórinn, Komissarov, sendifull trúi, Ishkov, Bjarni Benedikts-
son, og Nikolai Vazhnov, sendiherra. (Ljósm. Öl. K. M.)
Skoðar fiskiðjuver, fer á sjóinn og ferðast
l
Boeing FÍ befur
fiug í júlí
I FRÉ j'T Mbl. í gær um Boeiog
þotu Flugfélags Islands var
sagt að þotan myndi hefja
áætlunarflug í júni. Þetta er
ekki rétt, því að eins og kunn-
ugt er af fréttum seinkaði af-
hendingunni um einn mánuð og
tekur Flugfélagið við þotunni
25. júní, en hún á að hefja áætl-
unarflug 1. júlí. F. I. tók aðra
þotu á leigu hjá Boeing til að
þjálfa flugliðana og verður
þeirri þjálfun, sem nú stendur
yfir,lokið er þotan verðuv af-
hent.
Sovézki sjávarútvegsmálaráðherrann
A. Ishkov kominn í 10 daga heimsókn
ISHKOV, sjáviarútvegsmálaráð-
herra Sovétríkjanna, kom til
Reykjavíkur kl. 22.40 í fyrra-
kvöld í boði Eggerts G. Þorst-
einssonar, sjávarútvegsmálaráð-
herra, sem tók á móti honum og
fylgdarmönnum hans, Nosov,
fiskimálastjóra, og Fileppov,
deildarstjóra. Rússarnir dvelja
hér í 10 daga.
Ishkov var boðið til íslands til
að endurgjalda heimboð Emils
Jónssonar, þáverandi sjávarút-
vegamálaráðherra, til Sovétríkj-
anna 1965.
Hinir rússnesku gestir gengu á
fund Eggerts G. Þorsteinssonar
sjávarútvegsmálaráðherra, kl.
9.30 í gærmorgun, og þeir hittu
einnig að máli Bjarna Benedikts
son, forsætisráðherra, Emil Jóns-
son, utanríkisráðherra og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóra. Um
hádegi var snætt að Hótel Sögu í
boði sjávarútvegsmálaráðherra.
Síðdegis skoðuðu gestirnir
Reykjavík í boði borgarstjóra og
kl. 19.30 var kvöldverðarboð í
Ráðherrabústaðnum í boði utan-
ríkisráðherra.
Kl. 10 árdegis £ dag hitta gest-
imir viðskiptamálaráðherra,
Gylfa Þ. Gíslason, og heimsækja
síðar fiskiðjuver. Hádegisverður
er snæddur í boði Alþýðusam-
bands fslands og Sjómanna-
sambandsins, rannsóknarstofnan
ir sjávarútvegsinss verða og
heimsóttar og kvöldverður snædd
ur í boði Síldarútvegsnefndar.
Framlhald á blaðsíðu 31.
Emil Jónsson utanríkisráðherra á Alþingi í gœr:
Eðlilegt að styðja hinar
nýju tillögur U Thanfs
— um lausn Viefnam deilunnar
EMIL Jónsson utanríkisráfT-
herra ræddi á Alþingi í gær um
i. / v ssjfcvss" rsssv,
Tiko 1. siglir inn um hafnarmynnið í gærdag. (Ljósm.: Sv. Þorm).
tillögur l) Thants tii lausnar
styrjöldinni í Vietnam. Benti
ráðherra á það, að fyrri tillögur
U Thants hefðu fyrst og fremst
beinzt gegn Bandaríkjamönnum
og hefðu þar engin bein tilmæli
beinzt til stjórnar Norður Viet-
nam. Benti ráðherra á, að ekki
væri óeðlilegt, að Aiþingi taki
upp, er það gerði ályktun um
mál þetta, tilmæli til stjórnar
Norður Vietnam um að það
dragi einnig úr sínum hernað-
araðgerðum. Væri það eðlilegt,
að deiluaðilar gæfu báðir nokk-
uð eftir.
Nú hefði það hins vegar skeð,
sagði utanríkisráðherra, að U
Thant hefði borið fram nýjar
Framhald á bls. 30.
Maður slasast í
hörðum árekstri
MAÐUR slasaðist nokkuð í hörð
um árekstri, sem varð ofarlega
á Laugaveginum í gærdag.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, að Fordstation-bifreið var
Togaranefndin skoðaði nýjan skuttogara
— sem kom til Reykjavíkur í gær frá Bremerhaven
TIKO I, vestur-þýzkur verk-
smiðjutogari frá Bremerhav-
en, sigldi í gær inn á Reykja-
víkurhöfn, en togarinn er í
reynsluferð, á leið til Græn-
lands. Tiko I., sem er skamm
stöfun fyrir „tiefkúhl kost“
er skuttogari, fljótandi frysti
hús og fiskmjölsverksmiðja,
1840 brúttólestir að stærð.
L„
Hin nýskipaða togaranefnd,
sem sett var á stoín vegna
ákvörðunar ríkisstjórnari.m-
ar um að beita sér fyrir. að
keyptii skuli fjórir nýir skjt
togarar af mismunandi stærð
um, sjávarútvegsmálaráð-
herra og ýmsir togarasjó-
menn skoðuuð togarann í
gær.
Tikc mun atlhyglisverður
fyrir íslendinga vegna
tveggja nýjunga, sem um
borð eru. f fyrsta lagi er skip
ið útbúið sama tækjaútbún-
aði og hið nýja hafrannsókn-
arskip, sem smíða á fyrir
fslendinga, Bjarni Sæmunds-
son, og í öðru lagi er stýris-
útbúnaður skipsins útbúirn
með sérstökum afriðli, sem
breytir riðstraum í jafr.-
straum þannig að unnt er að
stjórna skipinu á hvaða hraða
sem er
Útbúnaðurinn, sem er sams
konar og áætlað er að setja
í Bjarpa Sæmundsson, hefur
fyrst og fremst þann k :s: að
Framhald á bls. 2.
ekið út af bifreiðastæðunum,
sem eru framan við Laugaveg
176—8, og beygði hún til austurs.
Á sama tíma voru tvær vöru-
bifreiðair á leið vestur Lauga-
veginn, en fram með þeim kom
önnur Fordfólksbifreið, og skall
hún á hægri hlið stationbifreið-
arinnar. Við höggið snerist
stadionbifreiðin í hálfhring, og
snerti um leið litillega strætis-
vagn, sem hafði stöðvazt þar til
að taka upp farþega.
Ökumaður stationbifreiðar-
innar mun hafa kastazt til í sæti
sínu við áreksturinn, og skollið
með höfuðið á framrúðuna
hægra megin, svo að hún brotn-
aði. Hlaut maðurinn, sem heitir
Ingólfur Isebarn, til heimilis
Drápuhlíð 46, talsverða áverka
á höfði, en þó ekki mjög alvar-
lega.
Bifreiðarnar báðar skemmd-
ust mjög mikið við áreksturinn,
en Ford station bifreiðin þó
sýnu meir.