Morgunblaðið - 02.06.1967, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1S67.
7
Til Hákonar Bjarnason-
ar, skógræktarstjóra
Kæri Hákon!
Ég veit'. satt aS segja ekki
hvernig ég á að hefja þetta bréf
Svar þitt er með eindæmum og
ábyrgðarleysið svo ótrúlegt að
nærri liggur að mér faili allur
ketill í eld. Sá grunur minn,
að nokkur hætta væri á ferð-
um í sambandi við stjórn skóg-
ræktarmála, varð að vissu við
lestur svars þíns og hjálpi oss
alilír heilagir ef Skógrækt ríkis-
ins verður um langa framtíð
rekin með það hugarfar að leið-
arljósi sem ríkir í svarinu. Við
skulum sundurliða þetta svar-
bréf þitt í einstökum Jiðum, það
er að segja, þá liði þess sem
málið varða, hitt skulum við
láta liggja mlili hluta.
í>ú segir að rásahöggið í
Skriðufellsskógi sé ekfki reglu-
gerðarbrot þegar plantað sé í
rásirnar og að samkvæmt lög-
um eigið þið að planta skógi.
Gott og vei. Þá vitum við að
um lögverndaða eyðileggingu
Skriðufellsskógar er að ræða og
að orð mín um ábyrgð Skóg-
ræktarstjóra standa óhrakin.
Þú segix. „Til þess að ungvið-
ið fái nóg ljós, er okkur nauð-
ugur einn kostur að grisja kjarr
—“. Já, einmitt. Er nú birki-
skógurinn við Skriðufell orðinn
kjarr sem nauðsynlegt er að
höggva niður til þess að litlu
innrásarplönturnax fái sólarljós?
Mér er spurn, er ekki iengur
nóg landrými á íslandi til þess
að skógræktin geti komið nið-
ur plöntum án þess að eyði-
leggja þann skóg sem fyrir er?
Er það í raun og veru álit þitt
að þá birkiskóga sem til eru í
landinu beri að nota sem skjól
til uppeldistilrauna á „nytja-
skógi“, sama hátt og Skriðu-
fellsskóginn? Við þessum spurn
ingum óska ég eftir óíkveðnu
svari.
í>ú segir að vegir og skurðir
skuli hafðir sem beinastir og þar
af leiðandi sé alls ekki óviðeig-
andi að höggva skóg í beinar
raðir. Ég er sammála að vegir
og skurðir ættu að vera sem
beinastir en hvernig litist þér á
að taka mestu hlykkina af t.d.
Laxá í Aðaldal eða Víðidalsá og
athuga hvort þær færu ekki bet-
ur í landslaginu þannig, heldur
en að hlykkjast svona afkára-
lega milli grasi- og víðivaxinna
bakka fagurra sveita? Það er
nærtækari og réttlátari viðmiðun
við skógana hettíur en skurðir
og vegir gerðir af mannahönd-
um. Ég vona að sem flestir átti
síg á, við lestur svars þíns, hver
virðing fyrir langsiagi og nátt-
úíufegurð býr að baki og hvern
ig sú virðing samiýmist stöðu
Skógræktarstjóra rikisins.
Þá er komið að þessari fuJl-
yrðingu þinni. „ — fari svo að
ungviðið þrífist ekki, eða deyr,
þá kemur birkið aftur upp í rás
wium, svo að þær hverfa meft
öiiu á skömmum tíma.“ Eg ætla
að ieyfa mér að véfengja sans-
ieiksgildi þessa spádóms en dá-
ist um leið að bjartsýni þinni.
t.g held að skógu> inn beri þess-
arar meðferðar aldrei bætur, en
fróðlegt væri að vita hvað þú
kallar skamman tíma. Þótt mér,
og fleirum, finnist rásahöggið
mesta eyðilegging skógarins, má
ekki gleymast að hitt er ekki
síður skaði ef barrtré færu að
stinga upp kollinum og vinna
hægt og hægt að útrýmingu
bjarkarinnar.
Og svo eru það mín „óvönu
augu.“ Sennilega átt þú kollgát-
una að augu mín séu óvön því
að sjá hvítt þar sem svart er,
að það sé þess vegna sem ég
kem ekki auga á neinn skyn-
samlegan tilgang með þessari
stóreyðileggingu Skriðufellsskóg
ar. Ég hefi horft á skóginn í
sumarskrúða og að vetrarlagi,
þegar snjóföl á jörðu ætti að
gefa góðan bakgrunn fyrir littu
grænu, bústnu hnoðrana þína,
en ekki komið auga á þá.
Það var gaman að sjá mynd-
ina af rauðgreninu í Selhöfð-
um og það er ástæða til að sam-
gleðjast þér, starfs þín vegna, að
meðalhæð þessara trjáa skuli
vera 3 metrar eftir 19 ár. Gam-
an væri að fá vitneskju um
kostnað á teningsfet af borðviði
sem ætla má að vinna megi úr
þessum skógL Þú segir rásahögg
ið ódýrustu aðferð við grisjun
á „kjarri* eins og Skriðufells-
skógi. Ég fullyrði að landsmenn
kjósi frekar dýrari aðferð við
eyðilegginguna, ef hún verður
ekki eins augljós við það, sé það
á annað borð ætlun þin að halda
henni áfram.
Hvað viðrvíkur „fyndninni“ i
síðustu mál-sgreininni hjá þér,
vil ég benda þér á, að það eru
alls ekki mínar kenningar sem
þú ert að hæðast að og að vís-
indamenn hafa þegar hlotið
frægð fyrir þær.
Með von um að þú endurskoð-
ir þau ummæli þín að vilja
ekki ræða málið frekar, og ljúk
ir við að svara fyrra bréfi mínu
um leið og þessu, flyt ég þér
kveðjur mínar að sinni.
Garðahreppi, 8. maí 1967.
Ásgeir Long.
G. ÞORSTEiNSSQN 8 JOHNSON H.F.
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
;,i Simi 2-42-50
Borvélc?
5/16”, %”, y2”, %” og 1”.
HEIMSÞEKKT GÆÐI.
VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA.
EINKAUMBOÐSMENN:
©
Suður um höfin...
Glæsilegasta ferð sumarsfns er án efa 27 daga sjóferð til
Miðjarðarhafsins með Regina Maris, hinu stórglæsilega
vesturþýzka skemmtiferðaskipi. Ailt kapp hefur verið lagt
á að gera þessa ferð sem ógleymanlegasta fyrir þátttak-
endur. Þótt lítið hafi verið gert af því að auglýsa ferðina,
eru þegar komnir hátt á annað hundrað þátttakendur, en
skipið tekur 280 farþega.
Lagt verður af stað frá Reykjavík 23. sept. og komið heim
aftur 19. okt. Aðalviðkomustaðirnir eru La coruna — Tangier
— Aþena — Beirut — Napoli — Cadis — Lissabon —
Reykjavík. Lægsta fargjald er kr. 28.730, en hæsta 37.800
og er fullt fæði innifalið í verðinu. Allir ferðast á sama fár-
rými, f 1. 2. eða 3. manna kiefum.
íslenzkur læknir og hjúkrunarkona verða um borð, og sex
reyndir fararstjórar.
Gefinn hefur verið út sérstakur, litprentaður bækHngur um
þessa ferð, en á næstu síðu verður rakið í stórum dráttum
hvernig dögunum um borð og í Iandi verður varið.
Pantið far sem fyrst
Regina Maris, sem er nú í Reykjavíkurhöfn, er til sýnis almenningi frá kl. 2 í dag
LÖND & LEIÐIR, Aðaistræti 8,simi 2 4313