Morgunblaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.06.1967, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1967. Skipasmíðastöðin — Hvenser var þetta fyrir- tæki stofnað? — J>etta fyrirtæki er orðið til úr tveimur. Dráttar'braut Akraness, er var stofnað 1938 og Vélsmiðja Þorgeirs og Ellerts er var stofnað 1928. Við höfum smíðað nokkur tré skip hérna og erum núna að smíða fyrsta stálskipið. — Hvað getið þið smáðað Skipalyftarinn, sem lyftir skipunum úr sjó. Stdrbætt aöstaða skipasmíðinnar - segir Þorgeir Jósefsson á Akranesi, en hjá honum - fer að hefjast smíði á 400 tonna stáfs kipi EF þjóðin metur það sem gert hefur verið þarf ekki að vera að vellta vöngum yfir úrslitum í komandi kosning- um, sagði Þorgeir Jósefsson forstjóri og eigandi Skipa- smíðastöðvarinnar á Akranesi þegar við ræddum við hann. Framfarir og uppbygging við reisnarstjórnarinnar blasir hvarvetna við og ég hef þá trú að slíkt verði metið. Hitt er svo annað mál, að mörgum hættir til að gleyma því ástandi er var hér áður en þessi stjórn tók við völdum. Langar mig þvi að segja frá reynslu minni með örfáum dæmum: Árið áður en „blessuð" vinstri stjórnin fauk var ég að byggja hús héma fyrir vél- smiðjuna. Eftir að hafa sótt um Ieyfi til rikisyfirvalda í tvö ár, fékk ég leyfi til að byggja helminginn. Nú hefur það löngum verið talið óhent- ugt að byggja helming húss, svo að ég tók það til bragðs að steypa upp allan grunninn. Þegar ég kom svo árið eftir og ætlaði að fá leyfi fyrir áfram haldandi framkvæmdum var mér tjáð, að ákaflega vafa- samt væri að ég gæti fengið það, þar sem ég hefði vogað mér að gera meira en ég hafði leyfi fyrir. Og annað dæmi af persónulegri reynslu. Á þess- um árum brotnaði garður hérna í Dráttarbrautinni og þurfti 10-12 poka af sementi til að hægt væri að gera við hann. Það kostaði ferð til Reykjavíkur og bið eftir að ná viðtali við viðkomandi menn að ná út þessu sementi. Allir hljóta að sjá að slíkt fyrir- komulag sem þetta er fárán- legt og það kýs enginn að fá aftur nema þá helzt forystu- menn Framsóknarflokksins, sem boðað hafa að þeir muni „halda áfram að stjórna eins og þeir hafi alltaf gert“. stór skip hérna? — Stærð skipanna verður að fara eftir stærð hússins og möguleikum á niðursetndngu þeirra, til sjávar, en 'eins og er er húsið 47 metra langt og 14 metra breitt og hæðin undir loft er um 14 metrar. Við get- um lengt húsið verulega og því tekið í framtíðinni stærri skip í smíði. Möguleikar til framsetningar til sjávar eru náttúrlega fyrst og fremst komnir undir dýpinu, en hjá okkur er aðstaðan með öðrum hætti heldur en annarsstaðar tíðkast. Við erum hér með lyftu sem lyftir skipinu beint upp úr sjónum og er það því ekki dregið neitt. Lyftan er nú bundin við stærð hússins, en jafnir mögu leikar eru á að stækka hana líka. — Hvað er það stórt skip sem þið eruð með núna? — Það er ekki nema 110 smá lesir og er vinnu við það að mestu að ljúka. Stálvinnan er búin og eftir er aðeins að setja niður vélar og innrétt- ingu í það. Þegar við erum búnir með þetta skip, liggur fyrir annað verkefni: Smíði á 400 smálesta skipi. — Og er sæmileg aðstaða til stálskipasmíði? — Það gaf okkur mikinn kjark til að fara út í þetta, Þorgeir Jósefssou Akranesi þegar þáverandi iðnaðarmála ráðherra dr. Bjarni Benedikts son hélt hér ræðu og lýsti því yfir að hann væri reiðuibúinn að gera átak til þess að stál- skipasmíði gæti hafizt á ís- landi, en ég hef ekki reynt þann mann að því að segja meira heldur en 'hann er reiðu búinn að standa við. Síðan hefur dr. Bjarni haft aðstöðu til þess að styrkja þessa iðn grein og hefur hann líka gert það drengilega. Við vitum að það er alltaf erfitt þegar fjár festingarféð hefur runnið í sama farveg ár eftir ár að beina því inn á aðrar brautir. Framhald á bls. 22. Frá hinni glæsilegu skipasmíðastöð á Akranesi. Víti til varnaöar - segir Sigurður Magnússon hreppstjóri itjórn hreppsmála í Stykkishólmi um SIGURÐUR Magnússon er búinn að vera hreppstjóri i Stykkishólmi í nærfellt 20 ár og gjörþekkir því þarfir stað- arins og þær framfarir er orð ið hafa þar á liðnum árum. Við spyrjum hann um fram- farir sem orðið hafa í hrepp- stjóratíð hans. — Það hafa auðvitað orðið miklar breytingar til hins betra hér, sagði Sigurður. — Sérstaklega nú á síðustu ár- um og þá_ einkum í byggingar málum. Á sl. ári er ég gaf skýrslu til skattstofunnar voru hér 40 hús í bygigingu, þar af flest íbúðarhús. Það er nokkuð mikið á ekki stærri stað en þessum, og sýnir stór hug manna hér og velmegun. Þá var búið að búa eina götu hér undir malbik eða steinsteypu en ekkert hefur orðið úr þeirri framkvæmd enn. Við síðustu hreppsnefndar- kosningar komust Framsókn- armenn og kommúnistar til valda hér í hreppnum og þar i með stöðvuðust nær allar j framkvæmdir. Þetta urðu hreppsbúum mikil vonbrigði j og verður þeim örugglega I víti til varnaðar í komandi kosningum til Alþingis. — Ég heiti á alla að vinna ötullega að sigri stjórnarinn- ar í komandi kosningum. Sá sigur ætti að verða allra vilji ef dæmt verður eftir verkum hennar. Við höfum heyrt fögur loforð frá stjórn- arandstæðingum, en við Stykkishólmsbúar, höfum að undanförnu kynnzt því glögg lega hversu haldgóð þau eru. Sigurður Magnússon Mikil gróska í félags- og menntamálum Rœtt við Vilhjálm Einarsson, skóla- stjóra Héraðsskólans í Reykholti og formann Ungmennasambands Borgarfjarðar VIÐ hittum að máli Vilhjálm Einarsson, skólastjóra Héraðs- skólans í Reykholti og fonmann Ungmennasambands Borgarfjarð ar, og spurðumst fyrir um það Ihelzta, sem væri að gerast í fé- lags- og menntamálum héraðs- ins. Jú, það er ýmislegt að gerast í þessum málum hér, sagði Vil- hjálmur. Svo við snúum okkur þá að félagsmálunum ber þar ihæst nýtilkomið samstanf milli Æskulýðsnefndar Mýra- og Borg arfjarðarsýslu og Ungtmenna- sambands Borgarfjarðar. Fyrir nokkmrn árum beitti Ásgeir Pétursson, sýsluimaður, sér fyrir því, að komið yrði á fót hér æskulýðsnefnd, sem svo seinna hlaut nafnið Æskulýðsnefnd Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Þessi æskulýðsnefnd hefur starf- að nokkuð sjálfstætt undanfarin ár og beitt sér fyrir ýmsum menningarmálum, svo sem bættu samkomuhaldi og sumarsam- komum fyrir unglinga. Nú í vor varð það svo að samkomulagi að þessi æskulýðsnefnd og Ungmennasamband Borgarfjarð- ar tækju upp setm mest sam- starf sin í milli. Hefur verið ráðinn sameiginlegur fram- kvæmdastjóri, sem mun starfa fyrir báða aðila. Höfum við mikinn áhuga á að efla sem bezt allt félags- og íþróttastarf í héraðinu, auka hagnýtingu og tfjölbreytni í notkun félagsheim- dla og bæta alla aðstöðu til rnargs konar tómstundastanf- 'semi. Einnig er ætlunin að halda um verzlunarmannahelgina mik- ið fjórðungsmót í Húsafellsskógi. Á það að vera bindindismót með sem fjölbreyttastri dagskrá: í- þróttum og skemmtiefni, og höf- um við hugsað okkur að spara ekkert til að þetta mót verði sem menningarlegast á allan hátt. Þá stefnum við og að því, að geta tekið sem myndarleg- astan þátt í Landsmóti ung- mennafélaga, sem fram fer næsta sumar austur á Eiðum. Slíkt samstarf, sem þetta, má telja til nýmœla á þessu sviði •og áliít ég, að það ætti að geta órðið gott fordæmi og sýnt um leið, að slíkt samstarf er mjög ■æskilegt og gagnlegt fyrir báða aðila. Vilhjálmur Einarsson, skólastjórí Nú, í menntamálum er margt að gerast líka. Stefna yfirvald- anna er sú, að skólar ein» og Héraðsskólinn í Reykholti eigi áð breytast í það, að verða líkari Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.