Morgunblaðið - 15.07.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. TUIX 1957
BILALEIGAN
-FERÐ-
Daggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SE N DU M
magimusar
SKIPHOIT! 21 5IMAR 21190
eftfr lokun sJmi 40381 _ '
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
BÍLALEIGAN
lngólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifalið • leigngjaidi
Sími 14970
BÍLALEIGAINl
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Síml 35135.
Eftir lokun .14936 og 36217.
mm TiMA
FYRIRROFN
RAUPARÁRSTlG 31 SllVII 22022
Flest til raflagna:
Rafm agnsvörur
Heimilstæki
Útvarps- og sjónvarpstæki
Haf (nagnsviirubiíáin sf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði)
Goli
KYLFUR
BOLTAR
og fleira.
P. Eyíeld
Laugaveigi 65.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. 1 la.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
'A Hestavísur
Gamall kuningi Velvak-
anda sendir honum þessar lín-
ur:
„Nú er mjög í tízku hér í
Reykjavík a.m.k. að eignast
hross og ríða út á sunnudögum
í fínum selskap. Sem gamail
sveitamaður og Ihrossavinur
fagna ég þessu. En hvernig er
það, eru menn hættir að yrkja
hestavísur? Mér finnst vera
langt síðan ég hef heyrt nýja
vísu um hest eða ihesta. Ég er
að gera mér vonir uim, að sam-
fara þessari nýju hestamanna-
tízku fylgi endurvakning hesta
vísna. Þær er.u margar glettilega
fallegar, jafnvel þótt við leit-
um til minni skálda en Pá’s
Ólafssonar. Einnig urðu oft til
fallegar samlíkingar í vísum
út af hrossum eða reið-
mennsku. Tökum til dæmis
þessa, sem mig minnir, að
Valdimar Benónýsson hafi ort
eftir látinn vin:
Andi þinn á annað land
er nú farinn burt frá mér.
Bandað hef eg bleikan gand,
ber hann mig á eftir þér.
Eða tökum til dæmis þessa:
Betra er að vera klakaklár
og krafsa snjó til heiða,
en vera mýldur öll sín ár
undir hnakk og reiða.
Og þessa:
Við skulum brokka, Blakkur
minn,
báðir skamma ævi,
eg held varla að vekurðin
veröldinni hæfi.
Allt eru þetta fallegar vísur
að mínum dómi, og hver þeirra
um sig í rauninni listaverk.
Hvernig væri nú, að menn
létu sér ekki bara nægja að
komast á ihestbak um helgar,
og hressa með því líkamann,
heldur líka að hressa upp á and
ann og fara að yrkja hestavís-
ur? Hesturinn ef göfugasta og
fallegasta skepna, sem maður-
inn hefur tamið sér til brúks.
Hann á það margfaldlega skil-
ið, að um hann sé fallega ort“.
— Velvakandi þakkar bréfið
og mundi fúslega birta nýjar
og velkveðnar hestavísur, ef
einhver yrði til þess að senda
þær.
^ Götukvennaskór?
„Grjótfúll" skrifar:
* „Kæri Velvakandi!
Við lesum og heyrum aug-
lýst: Karmannaherraskór (því
ekki karimanafrúaskór?), ferm
ingarbarnakvenföt, unglinga-
kvennastrigaskóasandalar,
drengj aunglingapoplinsky rtur,
drengjaleðurgötuskór, thai-
silkihálfstúlknablússur og
vöggubarnapæysur. Sl. mánu-
dag voru kvennagötuskór aug-
lýstir í útvarpinu. Hvenær fá-
um við götukvennaskó?
— Grjótfúll".
— Kvennagötuskór Ihljóta að
vera skór, sem gengið er í göt
una heim til kvenna — og vildi
Velvakandi gjarnan eignast
nokkur pör af slíkum skóm.
Þetta er bæði
list og iðn
„Vesturfari" skrifar:
„Virti Velvakandi!
Ég ‘hef dvalizt mikinn hluta
ævi minnar vestur í Bandaríkj
unum og er nú kominn hingað
til nokkurra mánaða dvalar. Ég
hef kappkostað að týna efcki
niður tungu feðra minna, og
hef ég satt að segja haldið mér
við á skáldskap. Með því að
eiga og lesa sífellt ljóðabækur
okkar yndislegu skálda hef ég
getað hugsað á íslenzku, þegar
mér býður svo við að horfa,
þótt ég sé annars yfirleitt fyr-
ir löngu farinn að hugsa dags
daglega á ensku; og talað þyk-
ist ég geta íslenzku og skrifað.
Ég les enskan og bandarísk-
an skáldskap mér til nautnar
og ánægju. Svo vel vill til í
Bandaríkjunum, að þar er allt
fullt af skáldum og þeim ekki
af lakara taginu. Fólk- hér í
Evrópu heldur, að Bandaríkja-
menn skari einungis fram úr í
sjónleikjagerð og smásöguskrif
um. Þietta er ekki rétt. Þótt
engin þjóð muni komast fram
úr Bandaríkjamönnum á vor-
um dögum um gerð leikrita og
smásagna, þá eiga þeir ekki
síður snjöll ljóðskáld, sem eru
því miður a-llt of lítið þekkt í
Evrópu (a.m.k. í Englandi og
hér á íslandi, en á þessum
tveimur stöðum þekki ég nokk
uð til í 'þesBum efnum). Stór-
sagnagerðarmenn eigið þér einn
ig marga, suma allgóða, en litt
geðjast mér þó að flestum þess
ara fimmhundruðblaðsíðnastór-
sagnagerðarmönnum.
Nú byrjaði ég á því við hing-
aðkomuna að birgja mig upp
af Ijóðabókum ungra höfunda.
Ef til vill eru hæfileikar heil-
ans og hjartans til þess að hríf
ast af nýjum skáldskap orðnir
gráir eins og hárin á böfðinu.
En því er ekki að neita, að ég
gat ekki hrifizt af þessum nýja
„fcveðskap“ nema að afar tak-
mörkuðu ÍSyti. Ekki vantar
drengina gáfurnar. Þeir eru
fróðir í ljóðum sínum, kalla
fram hughrif og hugrenninga-
tengsl. Ég skil, hvert þeir eru
að fara; oftast, en þó ekki allt-
af. En þetta er meiri skynsemi
en skáldskapur. Eða er ég bara
svona gamaldags? Nokkur ung
skáldin undanskil ég þó, en yf-
irhöfuð þá kann ég ekki að
meta kveðskapinn. Það getur
verið gaman og „stímúlerandi“
að lesa ljóðstafalínur hinna
ungu, íslenzku skálda, en þær
„snerta“ mann ekki á sama
hátt og kvæði gömlu skáld-
anna. Þetta ertir en snertir
ekki. Ertir e.t.v. nokkra heila-
taugaanga, en fær mann ekki
til þess að skjálfa af nautn hið
innra með sér. Ég vona, að
ljóðaunnendur Skilji, hvað ég á
við, þótt sumum finnist ég
kannske komast skrítilega að
orðL
Nei, drengir góðir, orðin
kvæði, ljóð og skáldskapur
gera vissar kröfur um hljóð-
fall, samræmi, rím og stuðla.
Vanti eitthvað eða allt af þessu
er ekki lengur um kveðskap að
ræða. Það getur samt verið
gott, en það verður að kalla það
öðru nafni.
írar áttu gott skáld, þar sem
Yeats var. Gleymið ekki ráð-
leggingum hans til írskra ung
skálda:
Irish poets, learn your trade,
Sing wihatever is well made,
Sing the peasantry and then
Hardriding country gentle-
men...
— Vesturfari".
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu eru 240 ferm. á jarðhæð. Tilboð sendist
blaðinu merkt: „5675“.
Skipstjóri óskast
Skipstjóri vanur togveiðum og handfæraveiðum
á 75 lesta togbát, sem gerður er út við suðurland,
óskast. Tilboð sendist Morgunbaðinu fyrir 20/7 ’67
merkt: „Skipstjóri — 5559“.
International Scout
T I L SÖLU
3ja gíra, klæddur með tveimur benzíntönkum, fram-
drifslokum og læst mismunadrif framan og aftan
Ekinn 2400 km. Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
ÖXULL H.F., Suðurlandsbraut 32, sími 38597.
N auðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer fram
nauðungaruppboð að Vesturgötu 6—8, hér í borg,
þriðjudaginn 25. júlí 1967, kl. 2% sídegis og verður
þar seldur flygill, talinn eign Nausts.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.