Morgunblaðið - 20.07.1967, Page 2
MORGWBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1967
Pólýfónkórinn tekur
í stærsta söngmóti hei
IMirenfisf 10 ára starfsafmælis
síns á þessu ári
ST/ERSTA söngmót heims —
Europa Cantat eða „Evrópa
syngur“ — verður halðið í belg
ísku borginni Namur dagana 29.
júlí til 6. ágúst. Meðal þátttöku-
kóra í þessu móti verður Plý-
fónkórinn, en mót þetta sækja
flestir beztu blandaðir kórar
álfunnar og víðar að úr heim-
iUlharður órekst-
ur á Miklabraut
ALLHARÐUR árekstur varð á
gatnamótum Miklubrautar og
Háaleitisbrautar klukkan rúm-
lega 21 í gær. Slasaðist kona,
sem var farþegi í annarri bif-
reiðinni og er Mbl. fór í prentun
var hún til rannsóknar í Slysa-
varðstofunni.
Tildrög slyssins voru þau, að
srtórri bandarískri bifreið var ek-
ið austur Miklubraut á hægri ak
rein, en lítilli evrópskri bifreið
norður Háaleitisbraut. Skipti
engum togum að litlu bifreiðinni
Framhald á bls. 23
inum. Þetta er tíunda starfsár
Pólýfónkórsins og er stjómandi
hans frá upphafi Ingólfur Guð-
brandsson.
„Evrópa syngur“ er mesti
viðburður á sviði kórsöngs í
heiminum nú. Mót þetta er hald
ið að tilstuðlan Sambands Kóra
Ungs fólks í Evrópu og er mót
ið í ár hið þriðja í röðinni.
Fyrsta mótið var haldið í Pass-
au í Þýzkalandi árið 1961 og
árið 1964 var mótið haldið öðru
sinni í Nevers í Frakklandd. Ev-
rópa syngur" er ekki keppnis-
mót, heldur vinna þátttökukór-
arnir saman að lausn listrænna
viðfangsefna undir merki tón-
listarinnar.
Þetta verður önnur söngför
Pólýfónkórsins til útlanda en
árið 1961 fór kórinn í tónleika-
för til Bretlands. Vakti kórinn
þá mikla athygli og söng hann
bæði í sjónvarpi og útvarpi, auk
þess sem hann tók þátt f al-
þjóðlegu söngmóti í Wales. Með
al dómenda þar voru nokkrir af
forstöðumönnum „Evrópa syng
ur“ og buðu þeir Pólýfónkórn-
um að taka þátt í næsta söng-
móti, sem nú stendur fyrir dyr-
um.
Ekki munu nærri allir þátt-
tökúkórarnir í „Evrópa syng-
ur“ halda sjálfstæða tónleika á
mótinu, en þó mun Pólýfónkór-
inn koma tvisvar sinnum sjálf-
stætt fram að þessu sinni. Fyrst
verður það við opnun mótsins
29. júlí og seinna á sjálfstæðum
tónleikum hinn 4. ágúst. Stjórn
andi verður Ingólfur Guðbrands
son. Auk þess mun kórinn flytja
ásamt öðrum þátttökukórum
motettu fyrir sex radda kór eft-
ir Orlando di Lasso undir stjóm
Gottfried Wolters og á lokatón-
leikunum tekur kórinn þátt í
flutningi verksins Conserva me,
Domine eftir Blanchard, en það
verk er samið fyrir 3 sex radda
kóra og hljómsveit. Stjórnandi
þess verks verður César Geoff-
rey frá Lyon.
Söngfólk í þessari söngför
Pólýfónkórsins er alls 45 manns.
Núverandi formaður kórsinsL er
Rúnar iEnarsson.
Pólýfónkórinn heldur hina ár-
legu tónleika fyrir styrktarfé-
laga sína í Austurbæjarbíói n.k.
miðvikudag, og flytur þá sömu
efnisskrá og á hljómleikum sín-
um í Belgíu. Hefjast tónleik-
arnir klukkan 9.15.
Karlar — hugsi við Tjómina í Reykjavík.
(Ljósm.: ÓI. K. M.)
Um fimmleytið á mánudaginn vildi það slys til, að Landrover-
jeppi og vélhjól rákust saman á gatnamótum Sundlaugavegar
og Laugarásvegar. Jeppinn kom upp Sundlaugaveg og ætlaði
ökumaður að beygja til hægri, inn á Laugarásveg. Vélhjólið
kom niður Brúnaveg, sem er beint frambhald af Sundlauga-
vegi, og lenti á vinstri hlið jeppans. Ökumaður vélhjólsins
virtist lítt eða ekki meiddur, og má það eflaust þakka þvi, að
hann hafði hjálm á höfði. Jeppinn skemmdist nokkuð. Á með-
an lögregluþjónarnir unnu að mælingum á slysstað, kom lítil
Opelbifreið upp Sundlaugaveg og stefndi upp Brúnaveg, en
lenti aftan á kyrrstæðri, mannlausri bifreið, sem stóð við gang-
stéttina. Freistandi er að álíta, að ökumaður bifreiðarinnar
hafi haft hugann meira við það, sem var að gerast á gatna-
mótunum en aksturinn. Báðar bifreiðirnar skemmdust lítillega,
Opelbifreiðin þó meira. (Ljósxn.: Þorgrímur Gestsson)
RitskoBun aflétt
í S-Viefnam
Saigon og Washington 19. júlí
AP-NTB.
ST.TÓRNIN í Saigon skýrði frá
því í dag, að ákveðið hefði verið
að aflétta ritskoðun fréttaskeyta
frá landinu frá og með fimmtu-
deginum 20. júli (í dag). Það var
Ky forsetisráðherra S-Vietnam
sem skýrði frá þessu. Ky sagði,
að þó myndu á þessu gerðar
undantekningar, ef um væri að
ræða fréttir sem snertu öryggi
landsins.
Bandarísfcar sprengijutfluigvélar
gerðu í dag harðar árásir á olíu-
birgðarstöðivar og eldtflautgapal'la
sikaimimt frá Haiphong og steig
reykurinn 2 km í lotft upp, að
sögn sjónarvotta. Ol'íugeymtar
-T
Fundið Atlantis á eyju norðan Krítar?
Boston, Massachusetts,
18. júlí, AP.
f DAG var í Boston skýrt
frá niðurstöðum rann-
sókna, sem þykja benda til
þess að bráðlega kunni að
siannast frásagnir Platons
af eylandinu týnda, Atl-
antis.
Tæpum 100 kílómetr-
um norðan Krítar, á eynni
Thera í Eyjahafi, hafa
fundizt rústir mínóískrar
borgar, sem haft hefur um
30.000 íbúa og eru níu til
fimmtán metrar eldfjalla-
ösku og gjalls ofan á rúst-
unum.
Frá fundi þessum skýrði
Dr. James W. Mayor, jr., frá
Woods Hole haffræðistofmm-
inni, og frú Emily Vermeule,
sem fengið hefur styrk til
rannsókna frá Boston Muse-
um of Fine Arts. Tóku þau
bæði þátt í leiðangri, sem
gerður var út af Bandaríkja-
mönnum og Grikkjum sam-
eiginlega með það fyrir aug-
um, að kanna hvort satt
væri að áhrifa minóískrar
menningar gætti í ríkara
mæli en áður hefði verið tal-
ið á eynni Thera, sem er eins
og áður sagði 100 kílómetrum
norðan við Krít, miðstöð minó
ískrar menningar forðum
daga.
Sögðu þau, Dr. Mayor og
frú Vermeulen, að leiðangur-
inn hefði fundið á eynni
rústir borgar þeirrar sem áð-
ur sagði frá. Grafin hafa ver-
ið upp nokkur hús á svæði
þvi er kannað var og eru
þau að sögn betur varðveitt
en hús þau er grafin hafa ver
ið úr jörðu í Knossos á Krít.
Þá borg fann Sir Artlhur Ev-
ans, hinn kunni brezki forn-
leifafræðingur, og stóð fyrir
uppgreftri hennar á árunum
1901 til 1936. Frú Vermeulen
gat þess ennfremur, að
meðal muna þeirra er fund-
izt hefðu við uppgröftinn á
Thera nú, væru veggmyndir,
leirker og olíukrukkur.
Dr. Mayor setti fram þá til-
gátu árið 1965, að eylandið
týnda, Atlantis, sem gríski
heimspekingurinn Platon seg-
ir frá, hafi verið þjóðsagna-
ken,nd frásögn af einhverjum
útverði minóískrar mennirpg-
ar, sem bar hæst um 1500 f.
Kr., einmitt um sama leyti og
mikil eldgos urðu á Thera og
annarsstaðar í Eyjahafi.
Sýnishorn tekin atf leiðang-
ursmönnum er komu til eyj-
arinnar með haffræðirann-
sóknaskipi Woods Hole stofn-
unarinnar bera vitni miklum
eldgosum á eynni. Engar leif-
ar voru þar þó manna og ekk
ert gull og þykir benda til
þess að íbúarnir hafi haft ráð
rúm til að taka saman föggur
sínar og flest verðmæta og
flýja eyna áður en hamfar-
irnar hófust. Kvikfé sitt urðu
þeir þó að skilja eftiir.
Alls grófu leiðangursmenn,
Bandaríkjamenn og Grikkir,
undir leiðsögn gríska prófess-
orsms Spyridons Marinatos
frá háskólanum í Aþenu, níu
skurði um rannsóknasvæðið
þvert og endilangt og komu
þar upp farnminjar sem voru
fullkomnar klyfjar á 35 asna.
Flestir eru gripirriir geymdir
í safninu í Thera.
þessir voru aSeins um 16 km
frá miðborginni í Haipong.
Flugvélarnar fóru alls 133 árás-
arferðir. Að því er fregnir
herma var lítið um átök á landi
í dag. Ein bandarísk flugvél var
skotin niður að sögn Bandaríkja
manna, en útvaxpið í Hianoi
sagði að 4 flugvélar hefðu verið
skotnar niður.
Stjórnarhermenn í Saigon lok
uðu í dag Tan son nhut flug-
vellinum við Saigon í dag fyrir
allri umferð. Herstjórn Banda-
ríkjamanna í Saigon, sagði að
henni hefði ekki verið tilkynnt
um lokun flugvallarins né ástæS
urnar fyrir henni, en mörg þús-
und Bandaríkjamenn búa á
flugvallarsvæðinu. Flugvellinum
hefur áður verið lokað og þá
yfirleitt vegna ósamkomulags
innan herforingjastjórnarinnar
í Saigon. Ekki er vitað hvort
ástæðan er hin sama nú, en það
var almennt álit manna, að eng
ar deilur væru nú innan stjórn-
arinnar eftir að Ky forsætisráð-
herra féllst á að bjóða sig fram
sem varaforseta með Van Thieu,
sem býður sig fram í embætti
íorseta.
Norrænt
póstþing
í Reykjavík ’68
í SAMBANDI við frétt þá, sem
birtist í blaðinu 19 júlí sl., varð-
andi verðlaunaafhendingu fyrir
þáttöfcu í frimierkjasýninigiunni
NORDEN 67, vill póst- og síma-
miálastjórnin taka fram, aS það
er á misskilriingi byggt, að hald-
ið verði „norrænt póstþing** í
Reyfcjarvík 1970. Slítot þing eða
ráðstetfna verður atftur á móti
haldið á íslandi á næsta ári, 1968,
og væntanlega atftur fimm árum
síðar, 1973.