Morgunblaðið - 20.07.1967, Blaðsíða 3
MGRGUINTBLAÐIÐ, ffíHMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1967
3
r
FJÁRSJÓÐSLEITIR færasl
nú í aukana. Skemmst er að
minnast fundar spænska gull-
skipsins undan Flórídaströnd
fyrir nokkrum árum. Nú hafa
nokkrir framtakssamin frosk-
menn úr brezka flotanum, að
öllum líkindum fundið skip
eitt undan Scillyeyjum við S-
vestur strönd Engiand-* sem
talið er að hafi haft innait-
borðs gull að verðmæti 2
milljónir sterlingspunda.
I>að voru 17 þrautþjálfaðir
froskmenn, sem ákváðij að
nota .sumarleyfi sitt til fjár-
sjóðsleitar. Þeir hófu leitina
með því að rannsaka gömul
skjöl brezka flotamálaráðu-
neytisins um skipsskaða fyrr
á öldum. Fyrir valinu urðu
þrjú herskip, sem heimildir
sögðu hafa Tárizt árið 1707.
Skip þessi voru ásamt 19 öðr
um í brezkri flotadeild á heim
leið eftir að hafa gjöreyði-
lagt mestan hluta franska
flotans í höfninni í Toulon.
Flotadeildin, sem var undir
stjórn Sir Clowdisley Shovell
aðmíráls, hafði hreppt þoku
og óveður í tvo dagá sam-
fleytt. Gerði það að verkum,
að ókleift var að taka rétta
stefnu.
{
Samtímamálverk af strandi HMS Assocation. Eru tvær mill jónir sterlingspunda í gulli í
lestum þess í hafsbotni.?
Þegar komið var undir vest
anverðar Schillyeyjar rak
f jögur skipanna, þar á með •
al foryst'uskipið HMS Associ-
ation undir stjórn Sir Clowd-
isley, upp á grynningar. Björg
un var óhugsandi í hafrótinu
inn um rif og grynningar.
Fórust þar áhafnirnar af hin-
um fjórum alls um 2000
mans. Lik Sir Clowdisley og
eiginkonu hans rak á fjöru í
grenndinni.
Gamlar sagnir á eyjunum
segja hins vegar, að kona
nokkur öldruð; hafi á bana-
beði játað að hafa myrt Sir
Clowdisley, þegar hann rak
á land. Ástæðan til morðsins
hafi verið að komast yfir dýr
an smaragðshring sem hann
bar á hendi.
Eins og áður greinir var
flotadeildin að koma frá or-
ustu við franska flotann. Á
heimleið var komið við í
Lissabon og Association
fermt gulli, bæði stöngum og
plötum. Áætlað verðmæti er
2 milljónir sterlmgspunda.
Aldir líða og skipsflökin
liggja á hafsbotni. Sumir
fræðimenn segja að Schilly-
eyingar, sem þekktir eru fyr-
ir dugnað sinn við að bjarga
strandgóssi, hafi fyrir löngu
náð gullinu úr skipinu. Aðrir
benda á að fátt hafi það gerzt
á Schillyeyjum markverh
sem ekki hafi verið fært í
bundið mál. Engin ljóð á eyj-
unum gefa slíkan fund til
kynna.
Erfiðlega gekk leitarmönn-
um að staðsetja flökin. Það
var aðeins vitað með vissu,
að skipin lægju á rifjum við
vestan verðar eyjarnar. En
þolinmóð leit og rannsóknir
bera oft góðan árangur. Gam
alt kort kom í leitirnar þar
sem klettur einn á þessum
slóðum var nefndur Shoveil
klettur. Erfiði þeirra hafði
borið ávöxt, nafn hins drukkn
aða aðmíráls hafði vísað þeim
leiðina.
Nú var að kanna staðinn,
og það var þrautin þyngri.
Botninn á þessu svæði er
mjög klettóttur, og þakinn
torfærum sjávargróðri. Sterk
ir og breytilegir hafstarum-
ar leika um og allra veðra
er þar von. Selir sem mik-
ið er um á þessu svæði hafa
oft gert sig heimakomna
við leitarmenn.
Ekki höfðu þá froskmenn-
irnir kafað lengi í nágrenni
Shovell kletts þar til þeir
fundu flök af þremur segl-
skipum á 20 faðma dýpi. En
þetta var þó engin sönnun
þess að hér væri um rétt skip
að ræða. Svæðið er sannkall
aður skipakirkjugarður, og
erfitt að greiha einn skips-
skrokkinn frá öðrum.
Fullnaðarsönnun fékkst
ekki fyrr en froskmönnun-
um hafði tekizt að koma
tölu á fallbyssur eins skips-
ins. Þær voru 90, og
þar með var vitað, að
þetta var eina skip
brezka flotans, sem um þetta
leyti var búið svo mörgum
fallbyssum. Köfun var nú
haldið áfram, að fullum
— ii —i i
krafti og kom ýmislegt
merkilegt í leitirnar þótt
ekki fyndist fjársjóðurinn í
fyrstu atrennum. En nú
kom bobbi í bátinn sumar-
frí froskmannanna rann út,
og þeir urðu að hverfa aft-
ur til skyldustarfa sinna.
Það sem hingað til hafði
fundizt úr góðmálmum:
Nokkrir litlir porúgalskir
gullpeningar með ártalinu
1704, voru afhentir umboðs
manni drottningar. En hún
er löglegur eigandi hinna
sokknu skipa.
Leiðtogi froskmannanna
Jack Gayton sjóliðsforingi
var spurður við heimkomu
til Englands, hvort honum
fyndist ekki súrt í broti að
hætta leitinni við svo búið.
Hann svaraði: „Við erum
ekki hið minnsta óánægðir
með að þurfa að hætta við
leiðangurinn nú. Við upp-
götvuðum meira en við
höfðum nokkru sinn getað
vonast til.“
Heimsmót stúdenta í skák:
Bandaríkin unnu
ísland 2'A - VA
íslendingar í B-riðli í úrslitakeppninni
ÞRIÐJA og síðasta umferð í for
keppni á heimsmóti stúdenta í
skák í Harrachov í Tékkósló-
vakíu, var tefld í fyrradag. ís-
lendingar tefldu þá við Banda-
ríkjanjenn og hluta VA v. gegn
iy2. Trausti Bjórnsson gerði
jafntefli við Zuckerman, Guð-
mundur Sigurjónsson tapaði fyr
ir Gilden, Bragi Kristjánsson
vann Kaufman og Jón Hálfdán-
arson tapaði fyrir Soltis.
í annarri umferð tefldu fslend
ingarnir við Rúmena og fengu
hálfan vinning. Trausti, Guð-
mundur og Jón Þór töpuðu
sínum skákum, en Bragi gerði
jafntefli.
Úrslitin i þriðju umferð urðu
þessi:
í A-riðli fengu Sovétríkin 1
vinning gegn Hollandi, en 3 skák
ir fóru í bið. Austur-Þýzkaland
fékk 214 v. gegn 14 v. írlands, en
einni skák varð ekki lokið.
í B-riðli fengu Tékkóslóvakía
og Finnland sinn vinninginn
hvort, en 2 skákir fóru í bið.
Búlgaría vann Belgíu 4—0.
í C-riðli fengu Svíþjóð og Ung
verjaland sinn vinninginn hvort,
en tveimur skákum lauk' ekki.
Júgóslavía sat hjá.
í D-riðli hlaut Danmörk 1% v.
gegn 14 v. Skotlands, en tvær
skákir fóru í bið. Austurríki og
England skildu jöfn, 2—2.
f E-riðli vann Rúmenía Kúbu
með 2% v. gegn 1% og Banda-
ríkin unnu ísland með sama hlut
falli.
Úrslitin í annarri umferð urðu
þessi:
f A-riðli unnu Sovétríkin A-
Þýzkaland 3—1 og Hollar.d vann
írland 3—1.
í B-riðli vann Tékkóslóvakía
Belgíu 4—0 og Bjúlgaría vann
Finnland 3%—14.
í C-riðli sigraði Júgóslavia
Svíþjóð 2%—iy2, en Ungverja-
England jöfn, 2—2, en Austur-
land sat hjá.
í D-riðli skildu Danmörk og
ríki vann Skotland 3—1.
í E-riðli vann Rúmenía ís-
land 3%—Vi og Bandaríkin
unnu Kúbu 3Vz—14.
Staðan í riðlunum, þegar að-
eins er eftir að ljúka biðskák-
um síðustu umferðar, er þá
þessi (í svigum er fjöldi bið-
skáka):
A-riðill:
SovétríkLn 8 v. (3).
A-Þýzkaland 6V2 v. (1).
Holland 4 v. (3).
írland 1% v. (1).
B-riðill:
Búlgaría 9 v.
Tékkóslóvakía 7% v. (2).
Finnland 3 v. (2).
Belgía 2Vi v.
C-riðill:
Júgóslavía 6 v.
Svíþjóð 2% V. (2).
Ungverjaland 114 v. (2).
D-riðil*:
Danmörk 6V2 v. (2).
England 614 v.
Austurriki 6 v.
Skotland 3 v. (2).
Framhald á bls. 22
STAKSTEIIVAR
Rétt
Alþýðublaðið ritar í gær for-
ystugrein um eirlent fjármagn
og þar segir m.a.:
„Svo til aillar þjóðir, einnig
austan járntjaids, leita nú eftir
erlendu fjármagni, sérþekkingu
og tæknihjálp á einhverjum
sviðum eða í eiinhverju formi.
Það væri fásinma af fslending-
um að notfæra sér ekki þessa
leiið til fraimfara. í þeim efnum
eigum við að koma fram sem
frjálsir og framsýnir menn, em
liafna minnimáttarkennd og
einangrunarstefnu.“
Undir þessi orð Alþýðublaðs-
ins tekur Morgunblaðið. Það er
nrniðsynlegt á 20. öldinni að
fylgjast vel með tækninýjung-
um, og engin þjóð getur sótt
fram til batnandi lífskjara neima
hún fylgist með frámvindu mála
annars staðar og hafi samvSnmiu
á sviði tæknikunnáttu og verk-
menningar við aðra.
Erlent einkafjór-
magn eða ldnsfé
Kommúnistar og Framsóknar-
menn segjast vera andvígir því,
a® erlent einkafjármagn megi
byggja atvinnurekstur hér á
laindii og börðust hatrammlega
gegn byggingu álbræðslunnar.
Þeir segja, að við eigum, íslend-
ingar, að taka stórlán eirlendis
og framkvæma sjálfir þá iðn-
væðingu, sem þeir þó þykjast
vera meðmæltir. Auðvitað er
það rótt, að við eigum að hag-
nýta það f jármagn, sem við höf-
um undir höndum og þá tækni-
kunnáttu, sem við getum kom-
izt yfir af eigin rammleik, og
vissulega er réttmætt að taka
nokkur erlend lán til stórfram-
kvæmda. Hinu er þó ekki að
leyna, að þegar lán eru tekin
til að reisa iðjuveir, þá tökum
við alla áhættuna af stairfræksl-
uroni, en þegar erlendum aðil-
um er heimilað að reisa verk-
smið.iur eins og álbræðsluna, þá
er öll áhættan á þeirra hendi,
en við njótum samningsbundins
hagnaðar, hvernig sem rekstur-
inn gengur.
Bil beggja
Hin heilbrigða og skynsam-
lega stefna í þessum málum er
sú, að leita eftir erlandu einka-
fjármagni til að leysa ákveðin
verkefni og heimila erlenda
fjárfestingú, þar sem við njót-
um ótvíræðra hagsmuna af því
og vel og rækilega er um hnút-
ana búið. Slíkt er rétt að ait-
huga í hverju einstöku tilfelli,
eins og gert var við álsamning-
ana. Jafnframt er svo sjálfsagt
að Við reynum að komast yfir
eins mikla tæknikunnáttu sjálf-
ir og við getum og tökum er-
lend lán til þess að byggja fyrix-
tæki í eigu fslendinga eiinna. —
Samvinn.a á borð við þá, sem er
Við kísilgúrverksmiðjuna við
Mývatn er líka sjálfsögð í viss-
um tilfellum, þar sem íslend-
ingar og erlendir aðilar eiga
fyrirtækin saman. Stundum
kann líka að haga þannig til að
unnt sé að semja við erlenda
aðila um það að þeir eigi hlut
í fyrirtækjum um ákveðið skeið,
en þau verði síðan alíslenzk.
Þannig mundum við öðlast
tæknikunnáttu og geta tryggt
okkur markaði í samvinnu við
erlenda aðila, en jafnframt geng
ið þannig frá málum að innan
tiltölulega skamms tíma yrðu
viðkomandi fyrirtæki í eigu fs-
lendinga einna. Slíkt er auðvit-
að hin allra æskilegasta leið.
Meginatriði málsins er, að engir
fordómar eða einstrengingshátt-
ur getur gilt í þessum málum.
Þau verður að skoða hverju
sinni og velja og hafna eftir því
sem aðstæður bjóða.