Morgunblaðið - 09.08.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1967
*
BÍLALEIGAN
■ FERD-
Daggjald kr 350,-
og pr km lir- 3,20.
SÍ MI 3 4406
SE N DU M
MAGfMÚSAR
ÍKIPHOITI 21 slMAS 21190 '
- eftir loKun sími ""
s‘«'H4-44
mum
Hverfisgötu 103.
Sími eftlr toknn 31160-
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti II.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifaliö • leigugjaldl
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Súnl 35135.
Eftir lokun 34936 «g 36217
RAUOARARSTIG 31 SlMI 22022
Flest til raílagna:
Rafmagnsvörui
Heimilstæki
tltvarps- og sjónvarpstæki
fiafmagnsvorubiíðin sf
Suðuriandsbrauf 12.
Sími 81670 ;næg bílastæði)
KVLiFUR
BOLTAR
og fleira.
P. Eyíeld
Laugavegi 65.
•jt Óréttmæt ásökun
„Kjósaudi" skrifar:
t nýútkomnu blaði stufðn-
ingsmanna Hannibals í kosning-
unum í júní er alvarleg ásökun
á utanríkisþjónustuna í sam-
bandi við framkvæmd utan-
kjörstaðakosninga. Ásökun
þessi er svo endurtekin í viku-
blaði einu, sem hendir á lofti
fuliyrðingu Hannibalsblaðsins
um að ,,fuli ástæða væri fyrir
ógíldingu“ kosninganna.
Samkv. frásögn blaða þess-
ara eiga stórfelld mistök að
hafa átt sér stað í Edinborg og
víðar ru. a. varðandi auglýs-
ingar um listabókstafi, og síðan
segir svo: „I Kaupmannahöfn
var sömu sögu að segja“. (Let-
breyting mín>.
Vfð þessu get ég ekki þagað.
Mér er svo gjðrkunnugt, að
í Kaupmannahöfn voru fyrir
hendi nákvæmar upplýsingar
um allt sem kosningarnar
snerti og leyfilegt er að veita
á kjörstað. Upplýsingar þessar
voru til staðar við upphaf kosn-
inganna, en urðu nokkuð fyllri
er á þær leið. Er mér nær að
halda, að þær hafi jafnvel
verið ýtaxlegri en á kjarstað
hjá borgarfógetaembættinu I
Reykjavík, a. m. k., ef miðeið
er við fyrsta dag utankjörstaða-
kosninganna þar. Þætti mér
gaman að vrta, hvort nokkur
hreppstjóri á íslandi hefur haft
jafn-nákvæmar upplýsingar um
kosningarnar og sendiráðíð í
Kaupmannahöfn.
Þá má bæta því við, að ég
sá í dönsku dagblöðunum til-
kynningar frá sendiráðínu um
kosningarnar, og auk þess mun
sendiráðið hafa veitt margvis-
lega aðra fyrirgreiðslu, svo sem
að hafa opið utan venjulegs
vinnutima og á frídögum.
Um aðra staði en Kaup-
mannáhöfn veit ég ekki, en
hlýt að taka frásagnir áður
nefndra bláða um það með all-
miklum fyrirvara.
Kjósandi".
'A Framsóknarmenn
hafa tekjur af HaB-
ormsstaðaskógi
Vegfarandi" skrifar:
„Seyðisfirði, 30. júlí 1967.
Heiðraðí Velvakandi!
Ég vil taka undir ummæli
ferðamanns 29. júlí í dáikum-
Velvakanda, að skemmtana-
svæði þau verði girt, sem not-
uð eru til skemmtanahalds úti
um byggðir landsins, en þjóð-
vegum ekki lokað, eins og kom-
ið hefur fyrir vfðar á landinu.
Það væri unnt að hugsa sér,
að skógræktarmenn gætu gert
girðingar, sem féllu í landslag-
iðv úr viðum þeim, sem böggva
þarf við grisjun.
Síðastliðið sumar, á árinu
1966, voru rukkarar við hlið
Hallormsstaðaskógar að austan-
ver'ðu, þegar héraðsmót Fram-
sóknarmanna var haldið í júli
byrjun, og þar naest um verzl-
unarmannahelgina 30. júlí—1.
ágúst, og var þá skemmtun í
Atlavík á vegum Ungmenna-
og íþróttasambands Austur-
lands.
Ég tek það fram, að ég hef
ekkert á móti héraðsmótum
stjámmálaflokka eða ung-
mennafélaga, og sæki þau, er
sækja vilja, en að þjóðvegum
sé lokað í marga daga og mönn-
um haldist það uppi tel ég mjög
ámælisvert og slæmt fordæmi.
í sumar héit Framsóknar-
ftokkurinn mót í júli að venju,
og eftir því, sem ég bef heyrt
af vegfarendum, voru rukkarar
við hiið skógarins og innheimtu
fé, svo að ekki hefur verið
látið af þessari iöju.
Þessu til frekari skýringar
ætla ég að geta þess, að ég
ætlaði að skoða Hallormsstað
og Hallormsstaðaskóg um
verzlunarmannahelgina á síð-
astliðnu ári og aka þjóðveginn
upp Fljótsdal og niður með
Jökulsá að norðanverðu, en
varð að láta af því eftir að hafa
komizt f kynni við ftokk rukk-
ara og brennivínsleitarmanna
við hlið Hallormsstaðaskógar
að austanverðu laugardaginn
30. júli 1966.
Rukkarar kröfðust 150 kr. á
mann, eila yrðí ekki lengra
haldið, og sögðu þeir, áð lög-
regiumenn, sem voru í eftirliti
og brennivínsleit, styddu þá í
þessum aðgerðum. Þar sem ég
hugðí þetta ólögmæta inn-
heimtu á þ jóðvegi, hafði ég tal
af þáverandi sýslumanni Sunn-
mýlinga, Axeli Tuliniusi, og
taldi hann þetta mjög hæpnar
aðgerðir sinna manna, er stóðu
að baki rukkurum, að styðja
þá við innheimtu, en vegna
legu Atlavíkur væri vart unnt
að koma ö’ðrum aðferðum við.
Vegfarandi“.
Ferðamenn eru helzt á ferð
um helgar að sumri til og vilja
þá gjarnan skoða fagra og
merka staði, eins og t d. Hall-
ormsstaðaskóg, Atlavik og
Vaglaskóg. Þá er vrtalega al-
veg ótækt, að einhver og ein-
hver félagasamtök geti einokað
staðina og krafizt gjalds af
ferðafólki, þótt það ætli alls
ekki að taka þátt í hátíðahöld-
um félaganna. Verst er þó, þeg-
ar löglegri alfaraleið, þjó’ðveg-
um, er Iokað af innheimtu-
mönnum viðkomandi félaga,
eins og fyrir hefur komið a. m.
k. fyrir norðan og austan. Vel-
vakanda hafa borizt bréf frá
fólki, sem hefur orðið frá að
hverfa og býst ekki við að
eiga afturkvæmt. Sýslumenn
verða að gæta þess vel, þegar
Ieyfi eru veitt til skemmtana-
halds, að einungis sé innheimt
gjald af fólki, sem fer inn á
ákveðið og fyrirfram afmark-
a'ð skemmtisvæði, en ekki þeim,
sem. nota þurfa þjóðvegi eða
ætla sér að dveljast í nágrenni
skemmtistaðarins. Eitt versta
dæmið var um fólkið, sem
dvalizt hafði nokkra daga í
Vaglaskógi, skrapp til Akur-
eyrar í matarkaupaferð og varð
að borga himinhátt gjald fyrir
að komast aftur að tjöldum sín-
um! Hitt er líka hneyksli og al-
ger lögleysa að banna mönnum
um þjóðvegL Hér þarf að vera
vel á veiði gegn ágirnd og yfir-
gangi, — hvort sem skógrækt-
armenn, bindindismenn, iþrótta
menn eða Framsóknarmenn
eiga í hlut.
'A í kiingum Hall-
veigarstaði
„Vesturbæingur" skrifar:
Þá eru nú Hallveigarstað-
ir komnir í gagnið, og vona ég,
að blessuðu kvenfólkmu nýtist
vel af bessari myndarlegu bygg
ingu sinni á homi Túngötu og
Garðastrætis.
En, ágætu konur, eitt er eft-
ir: Er ekki nokkur Ieið að laga
til í kringum húsið, og það
frekar fyrr en seinna? Þetta
eru ekki nema fáeinir fermetr-
ar, og getur hvoxki verið dýrt
né mikið verk að snyrta þar tiL
Húsið stendur við svo f jölfarn-
ar götur og í svo fallegu bæjar-
hverfi, áð frágangurinn um-
hverfis húsið verkar á mig eins
og Ijótt sár í hjarta Vesturbæj-
arins.
Með beztu kveðjum til kven-
fólksins,
ykkar Vesturbæingur".
Ráðskona
Ráðskona óskast að stórum heimavistarskóla n.k.
skóiaár. Góð kjör fyrir hæfa manneskju. Uppl. í
síma 12513 naestu daga.
H. BENEDIKTSSON, H F.
Suðurlandsbraut 4
H. BENEDIKTSSON, H F.
Suðurlandsbraut 4 Sími 38300
F r amtíðarat vinna
Ungur maður er lokið hefur prófi í Englandi ósk-
ar eftir góðu framtíðarstarfi. Tilboð merkt: „5585“
sendist MbL fyrir 18. ágúst.
Atvinna - íbúð
hjón, vélvirki og gagnfræðaskólakennari, óska
eftir atvinnu, þar sem góð íbúð er fyrir hendi. Upp-
lýsingar í síma 343, Neskaupsstað.
Skrifstofuhúsnæði
í Hafnarfirði
á 2. hæð í byggingu Sparisjóðs Hafnarfjarðar eru
til leigu frá 1. október næstkomandi, nokkur skrif-
stofuherbergi Upplýsingar hjá sparisjóðsstjóra.
Sparisjóður Hafnarfjarðar.