Morgunblaðið - 09.08.1967, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1967
»^*^,»^»^,»^«^»^» *'/*■•*■•*
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
iRitstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn og afgreiðsla:
Auglýsingar:
í lausasölu:
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 2:2-4-80.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
ERFIÐLEIKARNIR
ll/fjög er nú að vonum rætt
um erfiðleika þá, sem að
okkur íslendingum steðja
vegna aflabrests og verðfalls
á útflutningsafurðum, og
vissulega er nauðsynlegt að
menn geri sér sem réttasta
og gleggsta grein fyrir þess-
um erfiðleikum.
Verðmæti fiskaflans á vetr-
arvertíð varð um 500 millj.
króna minna en áður, og fram
að þessu hafa síldveiðar
gengið mjög erfiðlega og
miklu minna aflast en í fyrra,
þótt mun meiru hafi verið
til kostað vegna fjarlægðar
síldarinnar og langrar sigl-
ingar. Síldarflutningar hafa
þó bjargað talsverðu og sann-
að, að síldarflutningaskipin
hafa mikla þýðingu, því að
þau flytja ekki einungis afla
síldveiðiskipanna í land,
heldur byrgja þau veiðiskip-
in líka að vistum og sjá þeim
fyrir olíu.
Vissulega vona menn að úr
rætist með síldveiðarnar, og
oft hefur veiðin verið bezt á
haustmánuðunum, svo að enn
getur orðið sæmileg síldar-
vertíð; og á mestu ríður að
sjálfsögðu að geta aflað síld-
ar til söltunar upp í gerða
samninga.
Hins vegar eru litlar vonir
til þess að verðlag á lýsi og
mjöli hækki verulega á næstu
mánuðum, en það er nú mjög
lágt eins og menn vita. Fer
því varla hjá því, að tekjur
íslendinga af útflutningi
verði nú í ár miklum mun
minni en undanfarin ár, og
segir sig sjálft, að sú tekju-
rýrnun hlýtur einhversstaðar
að koma niður, því að til
langframa lifir þjóðin ekki á
öðru en því, sem hún aflar.
En við erum svo heppnir að
eiga nú verulega gjaldeyris-
varasjóði, sem einmitt er ætl-
að að tryggja verzlunarfrelsi
á erfiðleikaárum eins og því,
sem íslenzka þjóðin á nú við
að búa. Þar að auki eru nú
hafnar stórframkvæmdir við
Búrfell og byggingu ál-
bræðslu í Straumsvík, sem
mjög auðveldar okkur að
mæta aðsteðjandi vanda,
enda verða miklar gjaldeyr-
istekjur af álbræðslunni, sem
kunnugt er.
Ljóst er samt sem áður, að
sjávarútvegurinn á við mikla
erfiðleika að etja og nauðsyn-
legt verður í haust að gera
viðeigandi ráðstafanir til að
tryggja íslenzkt athafnalíf.
Að rannsókn þessara mála er
nú kappsamlega unnið af
stjórnmálamönnum og efna-
hagssérfræðingum, en ekki er
tímabært að taka ákvarðan-
ir fyrr en séð verður, hvernig
síldveiðin muni ganga nú á
næstu vikum.
AÐ SKAPA
ERFIÐLEIKA
ILfenn brosa að vonum að
-^”þeim fullyrðingum stjórn-
arandstæðinga, að erfiðleikar
okkar íslendinga í ár séu rík-
isstjórninni að kenna. Hins
vegar er ekki hægt að brosa
að því uppátæki Tímans að
taka undir róg Ólafs Gunn-
arssonar um ísland á erlend-
um vettvangi og verja fram-
ferði hans. Þessi maður fékk
í Politiken birta grein, þar
sem segir, að kreppuástand
sé á íslandi, laun manna hafi
lækkað stórlega og allt að því
um helming, íbúðarbygging-
ar séu að stöðvast og svo
framvegis.
Þessi grein gat verið til
þess eins fallin að rýra traust
viðsemjenda okkar í ná-
grannalöndunum á íslenzku
efnahagslífi og gjaldmiðli
okkar; það skilja allir menn,
ekki síður þeir sem rita í
Tímann en aðrir.
Ef ósannindavaðli Ólafs
Gunnarssonar væri trúað er-
lendis mundi það vissulega
geta skapað okkur íslending-
um mikla erfiðleika og gert
þann vanda, sem nú er við
að glíma miklu torleystari en
ella, og því miður verður ekki
hjá því komist að álykta sem
svo, að það sé einmitt þetta,
sem gleðji þá, sem halda uppi
vörnum í Tímanum fyrir
þennan mann.
Stjórnarandstaða í lýðræð-
isríki hefur ekki síður mikil-
vægu hlutverki að gegna en
þeir, sem með stjórn fara
hverju sinni. Stjórnarandstað
an á að halda uppi heilbrigðri
gagnrýni og benda á leiðir til
úrbóta, en hún á ekki síður
en þeir, sem í stjórn sitja, að
hafa hagsmuni þjóðarheild-
arinnar efst í huga.
Samt sem áður leyfir blað
annars stærsta stjórnmála-
flokks íslands sér að verja
níðskrif um ísland á erlend-
um vettvangi og taka undir
með þeim, sem um þau gerist
sekur. Svo vanþroska er ís-
lenzka stjórnarandstaðan, að
hún ver vísvitandi aðgerðir,
sem til þess eru lagðar að
skaða land og þjóð. Eftir því
hefur verið tekið og því mun
ekki gleymt, að Framsóknar-
foringjarnir gerðu þessa til-
raun til þess að skaða ís-
lenzka hagsmuni.
Formaður brezku kolanámanna:
Tekur á sig alla ábyrgð á
Aberfan-slysinu sl. haust
— og býðst til að segja af sér
London, 8. ágúst AP—NTB
ROBENS lávarður, stjórnarfor-
maður brezku kolanámanna, hef
ur lýst því yfir, að hann sé reiðu
búinn að taka á sig áhyrgð á
Aberfan-slysinu sl. haust og
Robens lávarður.
segja af sér stöðu sinni. Ráð-
herra sá, Richard March, sem
fjallar um orkumál, hefur ósk-
að eftir að hann gegni störfum
áfram, a.m.k. meðan unnið sé að
því að kanna, hvernig unnt sé
að koma í veg fyrir að slík slys
geti orðið á öðrum stöðum í
landinu.
Röbens skrifaði March \ bréf,
þar sem hann ræddi nið.urstöður
Saigon, 8. ágúst (AP-NTB).
Nguyen Van Thieu, forseti
Suður-Vietnam, lýsti því yfir í
dag að verði hann kjörinn forseti
landsins í kosningunum 3. næsta
mánaðar, muni það verða hans
fyrsta verk að setja sig í sam-
band við yfirvöldin í Norður-
Vietnam og kanna hvort unnt
væri að koma á viðræðum um
frið.
Jafnframt tók Thieu það skýrt
fram að hann hyggðist ekki ræða
við fulltrúa Viet Cong.
rannsóknarnefndarinnar, sem I
sl. viku úrskurðaði í skýrslu
sinni, að uinnt hefði verið með
betri stjórn að koma í veg fyr-
ir slyisið í Aberfan, sem varð 21.
októiber sl. — en þá fórust 144
manns, þar af 128 börn. f bréfi
sínu segir lávarðurinn, að hann
hafi aldrei síðan getað losið sig
við hugsunina um þetta hörmu-
lega slys og hann sé reiðubúinn
að taka á sig persónulega á-
byrgð. í svari Mareh segir m.a.,
að hann hafi lagt fyrir stjórn
kolanámanna að kanna ítarlegia,
hvernig unnt sé að koma í veg
fyrir, að slík slys komi fyrir aft-
ur og því verkk muni að sínu
áliti seinka verulega fari Ro-
bens frá störfum. I>ví fer Mardh
þess á leit við Robens að stjórna
þessari könnun — því að hún
skipti höfuðmáli.
Ef honum lízt þannig á sem
það gæti tryggt árangur af frið-
arviðræðum kvaðst Thieu vera
fús til að fara þess á leit við
Bandaríkjamenn að þeir hættu
um skeið loftárásum á Norður-
Viatnam.
Ummæli þessi komu fram á
fundi, sem þeir Thieu og Nguyen
Cao Ky forsætisrá'ðherra áttu
með fréttamönnum í dag. Lýstu
þeir því þar einnig yfir að Banda
ríkin þyrftu að senda fjölmenn-
Framíhald á bls. 18
Thieu forseti S-Vietnam:
Boðar friðarvið-
ræður við Hanoi
Áð að Reykholti.
Anægjuleg skemmtiferð
norrænu gestnnnn
ÞÁTTTAKENDUR í Norræna
æskulýðsmótinu fóru í skemmti-
ferð um landið síðastliðinn
Forsætisráðherra Rúmeníu
til V-Þýzkalands
Búkarest, 5. ágúist, AP — Ion
Gheorghe Maurer, forsætisráð-
herra Rúmeníu. hiefur þekkst
boð kanzlara V-Þýzkalands,
Kurts Kiesingers, um að heim-
sækja V-Þýzkaland á næistunni-
Það var WiHy Brandt, utanríkis-
ráðherra V-Þýzkalancte, sem
koim boðinu á framfæri er hann
hitti Maurer að máli í Búlkarest
í gærdag. Sátu þeir á tali saman
fjórar klukkustundir og ræddu
fram og aftur um heknismálin,
eihkum þó um Viletnam og um
ástandið í Austurlöndum nær.
sunnudag. Lagt var upp að
morgni, í sjö langferðabifreiðum
og ekið af Reykholti, þar sem
prófessor Þórir Kr. Þórðarson,
flutti erindi um ísland og Norð-
urlönd fyrr og nú.
Þá var haldið áfram upp í
Borgarfjörð og komið við á mót-
inu í Húsafellsskógi. Þar sýndi
danskur fimlelkaflokkur listir
sínar, en þessi flokkur var með
í förinni. Var sýningu þe'irra frá
bærlega vel tekið. Frá Húsafells
skógi var svo haldið til Reykja-
víkur um Kaldadal, og komið
þangað um kvöldið. Veður var
gott í all-ri ferðinni, nema hvað
Kaldidalur bar nafn með rentu
þann daginn. Ferðafólkið var um
300 talsins og hafði með sér nest
ispakka til ferðarinnar. Það
skemmti sér allt konunglega og
var ámægt með ferðina.
Prófessor Þórir Kr. Þórðarson,
flytur erindi að Reykholti.