Morgunblaðið - 09.08.1967, Side 14

Morgunblaðið - 09.08.1967, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÖST 1987 Steinar Björnsson apótekari Neskaup stað — Minning Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað. Vinur aitansólar sértu. Sonur morgunroðans vertu. Þetta fagra erindi Klettafjalla skáldsins, Stephans G. Stephans S'Onar, kom mér í hug, er ég frétti lát góðs vinar og skóla- bróður, Steinars Björnssonar, apótekara í Neskaupstað, en hann lézt á heimili sínu í Nes- kaupstað þann 6. júlí sl. Steinar var fæddur 17. septem ber 1926 í Neskaupstað og var því aðeins 40 ára gamall er hann lézt. Hann var yngstur barna, hjóinanna Málfríðar Katrínar Arngrímsdóttur, er ætt uð var af Fljótsdalshéraði og lát in er fyrir nokkrum árum og Björns Björnssonar, kaupmanns og ljósmyndara í Neskaupstað, er ættaður er úr Dölum vestur. Kynni okkar Steinars hófust í Menntaskólanum á Akureyri, en síðar áttu leiðir eftir að liggja saman, er hann varð apó- tekari hér í Neskaupstað árið t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðlaugur Guðmundsson, fyrrverandi bryti, Öldugötu 7, lézt þann 5. þessa mánaðar. Jónas Guðlaugsson, Óskar Guðlaugsson, Dýrleif Tryggvadóttir, og barnabörn. t Eiginmaður minn, Einar Ástráðsson, læknir, lézt í Landsispítalanum 6. ágúst sL Guðrún Guðmundsdóttir. t Móðursystir mín, Sigurlaug Ólafsdóttir, andaðist í Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund 6. þ. m. Jarðanförin fer fraim frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. þ. m. kl. 3. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Þ. Guðmundsson. t Jarðarför mannsins míns, föður ofckar, tengdaföður og afa, Egils Sveinbjörnssonar, fer fram frá FossvogBkirkju miðvikudaginn 9. ágúsit kl. 13.30 eftir hádegi Blóm vin- samlegast afbeðin. Þeim sem vildiu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Svava Sölvadóttir, börn, tengdabörn og bamabörn. 1963, en æskustöðvar hans héi eystra munu miklu hafa valdið, að leið hans skyldi liggja hingað til starfa. Steinar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík ár ið 1948, en ári síðar hóf hann nám í lyfjafræði við Háskóla ís- lands og lauk þaðan fyrri hluta prófi 1952. Síðan sigldi hann til fram- haldsnáms og nam við Kaup- mannahafnar háskóla og lauk þaðan kandidatsprófi haustið 1954. Sama ár fíuttist hann heim og vann um eins árs skeið við lyfjafræðistörf hjá Ingólfsapó- teki. Síðan réðst hsnn sem lyf- sölustjóri til Stefáns Thoraren- sen h.f. í Reykjavik og vann þar í níu ár. Hefi ég fyrir satt, að hapn hafi þegar í því starfi öðl- ast vináttu allra, er kynntust honum og viðs'kipti höfðu við hann og óskorað traust húsbónda síns, fyrir dugnað og árvekni í starfi. Árið 1950 gekk Steinar að eiga Vigdísi Sigurðardóttur frá Litlu- Giljá í Húnaþingi, hina ágæt- ustu konu og eignuðust þau 5 börn. Eins og áður er sagt réðist Steinar apótekari hingað á æsku slóðir í Neskaupstað og var vel- virkur og vinsæll i starfi sínu, þótti jafnan samvizkusamur og t Þökkium innilega samúð og vinarhug við fráfall og jarð- arför Jóns B. Signrðssonar, Broddadalsá. Læknum og hjúkrunarliði þökkum við kærleiksrika um- önnun. Guð blessi ykikur ÖU. Aðstandendur. t Kveðjuatíhöfn um fóstru mína og frænsiku, Þórdísi Jónasdóttur frá Straumfirði, fer fram frá Fossvogiskirkju föstudaginn 11. ágúsit kl. 3 síð- degis. Jarðað verður frá Bong- arneskirkju lauigardaginn 12. ágúst kl. 2 síðdiegis. Fyrir hönd vandamanna, Herdís Lyngdal. t Stjúpfaðir okkar, Sigurður Einarsson, verður jarð'sunginn frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 10. ágúst M. 10:30 f. h. Júliana Mathiesen, Sólon Lárusson. t Faðir minn, Sigurður Maríasson, verður jarðsuniginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 10. ágúst kl. 1,30 eftir Ihádegi. Geir Sigurðsson. nákvæmur hvað öll störf hans snerti. Steinar var mikið náttúrubarn og varði flestum frístundum sín um til útiveru. Hann var vel kunnugur landinu og dýralífi þess, enda átti hann ekki langt að sækja þann áhuga, var löng- um á ferðalögum í æsku með föður sínum hinum kunna ljós- myndara og náttúruskoðara, Birni Bjömssyni, kaupmanni. Einnig hafði hann mikið yndi af því að vera í návist barna og unglinga og skýrði þá margt fyr ir þeim, er fyrir augu bar í ríki náttúrunnar af þekkingu áhuga- mannsins. Steinar heitinn unni mjög æðri tónlist og var músíkalskur sjálfur. Hann var jafnan dulur maður og fáskiptinn, en þeir, sem eign- uðust vináttu hans, áttu þar traustan og góðan vin. Við skólasystkini Steinars í M.A., minnumst hans jafnan sem góðs og glaðværs félaga, og svo veit ég að einnig sé farið með starfsfélaga hans víðsvegar um landið er kynntust honum er út í starfið var komdð. Og nú er hann fallinn frá fyr- ir aldur fram; söknum við vinir hans hér í Neskaupstað góðs vinar og þökkurta margar skemmtilegar stundir á heimili þeirra hjóna, þar sem gestrisn- in og glaðværðin sátu jafnan í öndvegi. Ég flyt eiginkonu hans og börnum og öðrum ættingjum, dýpstu samúð við íráfall hans. Útför Steinars heitins fór fram frá Fossvogskirkju þann 13. júlí sl. _ Á bjartfi sumartíð, er aftan- sólar nýtur sem bezt og morgun- roðinn er sem fegurstur, kveðj- um við vinir hans hann með þakklátum huga fyrir vináttu og tryggð á liðnum árum. Minning Steinars heitins mun lifa í hjörtum þeirra er kynnt- ust honum vel. En björtust lifir mynd hans í hugum þeirra að- standenda, er misst 'hafa kær- leiksrí'kan ástvin. Guð blessi minningu hans. Árni Sigurðsson. Frá hópreið hestamannafélag a um mótssvæðið. Margt fólk á hestamanna- móti aö Skógarhólum UM Verzlunarmannahelgina var allmargt fólk á Þingvöllum, en við Skógarhóla gengust hesta- mannafélögin á Suðurlandi, Fák ur, Hörður, Sörli, Andvari, Trausti og Ljúfur fyrir sameig- inlegu hestamannamóti. Slík hestamannamót hafa verið hald in í Skógarhólum nm verzlun- armannahelgina tvö undanfar- inna ára, en að þessu sinni kom þangað færra aðkomufólk en venja hefur verið. Fór mótið t Þökkum innilega auösýnda samúð við andlát ag jaröamför eiginmanns míns, Eiríks Vigfússonar frá Sjávarhorg. Fyrir mína hönd og ann- arra vandamanna. Þóranna Einarsdóttir. t Innilega þökkum við a.uð- sýnda saimúð og vináttu við andlát og jarðarför Ásgeirs Auðunssonar. Sérstaklega þöikfcum við starfsliðd því, sem annaðdst hann á Landakotsspítala, fyr- ir hlýhug þess og góða hjúkr- un. Jónína G. Jónsdóttir, Gunnar A. Ásgeirsson, Karen E. Ásgeirsson og barnaböra. sérstaklega vel fram að þessu sinni. Á laugardag fóru fram und- anrásir í keppnisgreinum, en kl. 2 á sunnudag hófst aðalmót- ið með hópreið hestamannafé- laga um mótssvæðið. Því næst setti Pétur Hjálmsson í Mark- holti mótið, og síðan hófst helgi stund. Prestur var séra Eiríkur Eiríksson á Þingvöllum. Þá fór fram góðhestasýning og voru sýndir fjórir hestar frá hverju hestamannafélagi. Að sýning- unni lokinni var keppt til úrslita á kappreiðunum, en síðan fór fram naglaboðreið og verðlauna afhending. Þá var ennfremur sýning á því hvernig hey er bundið í bakka og reitt á klakk. Sýningu þá annaðst Sigurður Gunnarsson á Bjarnarstöðum í Grímsnesi og vakti hún mikla athygli, einkum hjá ungu kyn- sióðinni. Framhald á bls. 17 Sett á klakk. Hugheilar þaikikir sendi ég ykkur ölknm seim glödduð mig á fimmtugsafmælin.u. Tryggvi Þorfinnssom. Hjartans þakkir fiyt ég þeim fjöimörgu konum og körluim, siem á nýafstöðnu sjö- tugisiafmæli mínu sóttu miig heim, færðu mér gjafir, sendu mér kveðj'ur eða sýndu mér vin.semd og æerad á annan hátt. Öllum þeim bið ég um leið biessunar æðri valda. Jón Skagan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.