Morgunblaðið - 17.08.1967, Qupperneq 28
Suður um höfin..
með REG/NA MARIS
23 sep t. — 14. okt. ^0jp-
LÖIMD&LEIÐIR H
Aöalstræti 8,simi 24313
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA • SKRIFSTOFA
SÍMI 10*10Q
FIMMTUDAGUR 17. AGUST 1967
Þurrkarinn kominn
á leiðarenda
Húsavík, 16. ágúst.
Þurrkarinn , sem settur var í
land á Húsavík á laugardag er
nú kominn á leiðarenda inn á
svæði kísiliðjunnar við Mývatn.
Mbl. átti í gærkvöldi tal við
Gunnar Guðmundsson frá Rvík,
en flutningafyrirtæki hans tók
að sér þennan erfiða flutning og
stjórnaði Gunnar sjálfur ferð-
inni. Hann sagði, a'ð þuoginn
hefði ekki verið eini vandinn,
líka olli erfiðleikum lengdin á
Bifreið ónýttist
við veltu
Bifreið valt á sunnudagskvöld-
ið rétt norðan við Sauðanes í
Ólafsfjarðarmúla, að því er lög-
reglan á Dalvík tjáði Mbl. í gær.
Gjörónýttist bifreiðin, en þrennt,
sem í henni var slapp að mestu
ómeitt.
Orsök óhappsins var sú, að
hægri hjólbarði að aftan mun
hafa sprungi'ð. Hentist bifreiðin
út af veginum, fimm metra nið-
ur. Bifreiðin er, eins og aður
var sagt, ónýt.
stykkinu, sem er um 20 n'ctrar,
svo að aðskilja varð drátLarbíl-
inn og aftanívagninn og iáta að-
eins endana á þurrkaranum hvíla
með löngu millibili á vagninum
og bílnum.
Vegarbeygjurnar urðu því víða
allerfiðar, þótt þær hafi verið
breikkaðar fyrir þessa ferð.
Margir töldu að beygjan við
Másvatn yrði okkur erfiðust, en
svo reyndist ekki, heldur beygj-
an við Grænalæk. Þar þurftum
við að stýra bæði dráttarbílnum
og aftanívagninum, en venjulega
á aftanívagninn að fylgja stjórn
dráttarbílsins. En þetta gekk nú
allt vel, sagði Gunnar að lokum,
þrátt fyrir, að með sanni megi
segja, að íslenzkir vegir séu ekki
byggðir fyrir slíka þungaflutn-
inga.
Þetta 44ra tonna stykki er ekki
nema hluti af þurrkaranum, því
að eftir er að koma í hann ann-
áð jafn stórt stykki, en það mun
væntanlegt með næstu ferð Brú-
arfoss frá Ameríku. Brúarfoss
er búinn sterkustu vindu í hér-
lendu skipi til þess að lyfta slíkri
þungavöru.
Fréttaritari.
TOLLAR AF fSFISKI STÓR-
HÆKKAI ÞÝZKALANDI
Þjóðverlum neitað að kvóta fyrir lönd utan EBE
TOLLAR á ísfiski hafa stór-
lega hækkað í Þýzkalandi. Þeir
eru nú á þorski og ufsa 9% að
viðbættu 2% verðjöfnunargjaldi,
sem lagt er á allan ísfisk. í fyrra
var þessi tollur aðeins 2.2%, auk
verðjöfnunargjaldsins, svo að
hér er um mikla hækkun að
ræða.
Þjóðverjar hafa farið fram á,
að leyfður yrði innflutningur á
14.000 lestum af tollfrjáslum ís-
fiski frá löndum utan Efnahags-
bandalagsins, en stjórn banda-
lagsins hefur synjað þeirri beiðni,
þrátt fyrir mótmæli Þjóðverja,
að því er Ernst Stabel, ræðis-
maður íslands í Cuxhaven, tjáði
Mbl.
Stabel sagði, að stjórn banda-
lagsins hefði fallizt á innflutn-
ing á 3000 tonnum af grálúðu,
sem aðallega kæmu frá Noregi
og 5000 tonnum af karfa og ýsu
með 4.5% tolli.
Þjóðverjar hafa mótmælt
synjun Efnahagsbandalagsins, en
svar við þeim mótmælum hefur
ekki borizt, og bjóst Stabel ekki
við neinum stórbreytingum, er
það bærist. Tollur þessi mun
gilda frá 1. ágúst til 31. desem-
ber, en þá mun hann hækka
upp í 13%. í framtíðinni mun
ætlunin að hækka tollinn, unz
hann nær 15%.
Mbl. er kunnugt um, að sendi-
ráð íslands hjá Efnahagsbanda-
laginu vinnur nú að því að fá
toll þennan lækkaðan.
Fyrsta sumar-
síldin til Breið-
dalsvíkur
Breiðd'al'svík, 16. ágúst.
í GÆRKVÖLDI landaði Hafdís,
SU 24, 167 tonnum hér á Breið-
dialsvík. Er það fyrsta síldin,
sem hin.gað berst á sumrinu. —
Langt er á miðin. Veiðiförin tók
eina viku. — Fréttaritari.
Coloradobjöllunum
var steypt í sjóinn
KARTÖFLUNUM, sem sýktar
voru af Colorado-bjöllu, var í
fyrrinótt steypt í hafið utan við
landhelgi íslands út af Faxa-
[ Maöur leitar á telpu á aí-
mannafæri um miöjan dag
UM klukkan hálf þrjú í gær
var kona á gangi upp Lauga-
veg, neðarlega á móts við
Lífstykkjabúðina. Konan
veltti athygli telpu, um það
bil 10 ára að aldri í bláum
stuttbuxum. Telpan ýtti á
undan sér barnakerru. Við
hlið hennar gekk maður, er
var undir áhrifum áfengis.
Hún hélt að maðurinn væri
áhangandi telpunni, en allt í
einu sér konan, að maðurinn
beygir sig niður og fer með
höndina upp með annarri
buxnaskálm telpunnar og
alveg upp í nára.
Um leið tók hann í vagn-
inn og ætlaði að fara með
telpuna inn undir undirgang,
sem þarna er. Telpan fór að
hágráta og gaf konan sig þá
á tal við hana og sagði telpan
þá, að hún hræddist manninn
og hún þekkti hann ekki neitt.
Maðurinn forðaði sér á braut,
en konan vildi ekki láta hann
sleppa við svo • búið, veitti
honum þvi eftirför upp á
Grettisgötu, þar sem hún
komst í sima og hringdi á lög-
regluna.
Á meðan missti hún sjónar
á manninum, en þegar lög-
reglan kom var svipazt um
eftir manninum og fannsi
hann neðst á Skólavörðustíg.
Maðurinn var lítils háttar
undir áhrifum áfengis. Hann
viðurkenndi að hafa gengið
með telpunni, enda þekkti
konan hann aftur.
Telpan hélt Ieiðar sinnar og
vissi konan ekki hver hún
var Það eru tilmæli Rann-
sóknarlögreglunnar að telpan
gefi sig fram, svo og sjónar-
vottar í síma 21107.
flóa. Leiguskip Eimskipafélags
íslands lét úr Reykjavíkurhöfn
í fyrrinótt kl. 04, fyrrgreindra
erinda og kom aftur um miðjan
dag í gær.
Friðrik Sigurbjörnsson, for-
stjóri fslenzk-erlenda, er umboð
Framlhald á bls. 27
Færeyingar
kaupa beitu-
síld á Akranesi
Akranesi, 15. ágúst.
LÍNUVEIÐARINN Strandingur
frá Færeyjum kom hér við á leið
sinni til Grænlands og tók um
100 tunnur af beitusíld hjá Har-
aldi Böðvarssyni og Co.
Hann er að leggja út í aðra
veiðiferð sína á þessu sumri. í
fyrri ferðinni fiskaði hann ágæt-
lega og var þorskurinn saltaður.
Aflinn reyndist vera 200 lestir
og seldisf fyrir um 4 milljónir ís-
lenzkra króna. Verðið var upp í
2.70 krónur danskar, eftir stærð.
Skipsböfnin var skipuð ung-
um mönnum bæði frá Færeyjium
og Grænlandi, kokfeurinn er öldr
uð kona frá Grænlandi. — HJÞ.
\ HARALDUR, ríkisarfi Norð-
manna, átti því láni að fagna
í gær, að ferðast um fagrar
sveitir Suðurlands í hinu
ákjósanlegasta veðri. Það gat
ekki verið fegurra við Gull-
!foss er ríkisarfinn kom þang-
að, eftir að hafa hlýtt á helgi
stund í Skálholtskirkju.
Biskup landsins talaði í kirkj
unni. Þar var nokkur hópur
kirkjugesta, meðal annarra
drengir úr sumarbúðum þjóð
kirkjunnar. Síðan lá leiðin að
Geysi, sem ekki gaus nú frek
ar en endranær. Loks var svo
ekið til Þingvalla. Var komið
kvöld er komið var að Lög-
bergi, en ríkisarfinn gekk til
Lögbergs og þar sagði Bjarni
Guðmundsson, blaðafulltrúi,
honum stuttlega frá sögu stað
arins. Var svo snæddur kvöld
verður í Valhöll. Árdegis í
dag er ráðgert að ríkisarfinn
bregði sér á hestbak á góðum
gæðingi. Síðdegis mun hann
verða á heimili norska sendi-
herrans og taka þar á móti
Norðmönnum, búsettum hér,
og norsk-íslenzkum fjölskyld
um. í kvöld verður svo
kveðjuhóf hins tigna gests.
Klæðast þá veizlugestir sín-
um fínustu sparifötum og
sknlu gestir bera orður sínar.
Myndin hér að ofan er af
Haraldi ríkisarfa á Lögbergi,
en hann hlýðir þar á frásögn
Bjarna blaðafulltrúa.
(Ljósm. Mbl. Ól. K.M.)
Utanríkisráð-
herrafundur
IMorðurlanda
í Helsingfors
í FRÉTTASKEYTI frá NTB
fréttastofunni segir, að utanrík-
isráðherrar Norðurlanda muni
ræða um samræmingu á sjónar-
miðum og afstöðu þjóðanna tdl
kosninga og mála, sem koana
fyrir Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna. Er þetta árlegur siður
utanríkisráðherranna fyrir opn-
Framhald á bls. 27