Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1967
Siglingum ísl. togara fækkar
— vegna markaðstakmarkana í Sretlandi
og tollahœkkana í Þýzkalandi
SVO sem getið var í Mbl. í gær
hafa tollar á ísfiski hækkað
mjög í Þýzkalandfi, úr 2,2%,
sem þeir voru í fyrra í 9% nú.
Einnig hefur komið í ljós, að
takmarkanir hafa verið settar á
landanir erlendra fiskiskipa í
Bretlandi. Verður farmur skips
að vera að einum þriðja hluta
eða minna þorskur til 21. ágúst,
en eftir þann tíma skal þorskur
verða helmingur aflans í mesta
lagi.
Mbl. hafði í gær tal af Ingimar
Jerúsalem, 16. ágúst.
Einkaskeyti frá AP.
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
gerði jafntefli við Bronde, Arg-
entínu, í síðustu umferðinni í
undanrásum á IX. heimsmeist-
aramóti unglinga í ísrael. Guð-
mundur varð 4. í A-riðli, en þar
sem þrír efstu piltanna tefla í úr-
slitaflokki um titilinn heims-
meistari unglinga í skák, teflir
Guðmundur í B-flokki.
Úrslit síðustu uimferðar (A-
riðill): Woodhams, Ástralíu,
vann Skalkotas, Grikklandi; Day,
Kanada, og Keene, Englandi,
gerðu jafntefli. Úrslit biðskáka
urðu þau að Bronde gerði jafn-
tefli við Keene, en tapaði fyrir
Woodhams og Ásplund, Svíþjóð.
Lokastaðan í A-riðli:
1. Day 4 vinninga, 2.-3. Keene
og Asplund 3Vz vinning hvor,
4.—5. Guðmundur Sigurjónsson
og Woodhams 3 vinninga hvor,
6. Bronde 2 Yz vinning og Skal-
kotas 1% vinning.
Lokastaðan í B-riðli:
Einarssyni ihjá Landsssambandi
íslenzkra útvegsmanna og sagði
hann, að þessar takmarkanir
væru mjög alvarlegar fyrir ís-
lenzka togaraeigendur og bjóst
hann við, að íslenzkir togarar
lönduðu síður í þessum löndum
— t.d. myndu þeir frekar landa
karfa hér á heimamarkaði.
í Bretlandi hafa ýmsir erfið-
leikar verið háðir löndun þar að
undanförnu. Er það m.a. vegna
óvænts framboðs frá Dönum og
einnig hafa brezk frystihús ekki
1. Huebner, V-Þýzkalandi, 4
vinninga; 2. Balshan, fsrael, 314
vinninig; 3. Timman, Hollandi, 3
vinninga; 4. Pils, Austurríki, 2%
vinning; 5.—6. Lombard, Sviss,
og Tompuri, Finnlandi, 1 vinn-
ing hvor.
Lokastaðan í C-riðli:
1. Kaplan, Puerto Rico, 4%
vinning; 2.—3 .Ghizdavu, Rúm-
eníu, og Wibe, Noregi, 4 vinn-
inga hvor; 4.—5. Neumann,
ísrael, og Jensen, Danmörku, 3
vinninga hvor; 6. Matera, Banda-
ríkjunum, 2 vinninga og 7. Cabe-
zudo, Uruguay, Vz vinning.
Til úrslita tefla eftirtaldir pilt-
ar (A-flokkur);
Day, Keene, Asplund, Huebn-
er, Balshan, Timman, Kaplan,
Ghizdavu og Wibe.
Hinir 11 tefla í B-flokki, en
þeir eru:
Guðm. Sigurjónsson, Wood-
hams, Bronde, Skalkotas, Pils,
Limbard, Tompuri, Neumann,
Jensen, Matera og Cabezudo.
annað öður en frystingu bauna-
og grænmetisuppskeru þar. Hef-
ur gætt mikillar óánægju meðal
fiskkaupmanna í Bretlandi vegna
þessara ráðstafana, en hingað til
hefur markaður þar verið frjáls
og framboð og eftírspurn verið
látin ráða.
Þorsteinn Arnalds, fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, sagði í viðtall við
Mbl. í gær, en fyrirtæki hans er
stærsti útgerðaraðili togara hér-
lendis, að ekkert hefði að und-
anförnu verið siglt til Þýzka-
lands. Hann kvað ekki á útgerð-
arkostnað bætandi, hvað þá, er
tollurinn í Þýzkalandi hefði náð
13%, eins og hann á að verða
um næstu áramót.
Þorsteinn taldi, að þetta myndi
draga stórlega út siglingum og
taldi hann þá þróun mjög ó-
heppilega. Málið væri orðið
mjög alvarlegs eðlis, er alLt að
fjórði hver fiskur gengi til
Framhald á bls. 27
Dönsku gest-
irnir á Akureyri
Akureyri, 17. ágúst.
Borgarstjórnarfulltrúarnir frá
Kaupmannahöfn sem eru hér á
landi í boði Reykjavíkurborgar
ferðuðust norður í land í dag í
fylgd með nokkrum horgarfull-
trúum Reykjavíkur og embættis
mönnum.
Flogið var beint til flugvall-
arins í Aðaldalshrauni en ekið
þaðan til Mývatns og snæddur
hádegisverður í Hótel Reykja-
hlíð.
Síðan var haldið í Námaskarð
að Grjótagjá og í Dimmuborgir
en ekið þaðan til Akureyrar
með viðkomu við Goðafoss.
í kvöld óku dönsku gestirnir
um Akureyri og skoðuðu hana
en snæddu að því búnu kvöld-
verð í Sjálfstæðishúsinu. Héðan
var flogið til Reykjavíkur í
kvöld. Fulltrúarnir fengu bezta
veður, sólskin og hlýindi í allan
dag.
Guðmundur varð
f • r r J| •líl®
fjorði i A-riðla
Vietnam:
15.000 Bandaríkja-
menn hafa fallið
Nær 30 manns grafast lifandi
er 3-hæða hús hrynur í Karachi
Karachi, Pakistan, 15. ágúst,
AP. — Að minnsta kosti 28
manns og þar á meðal bæði
konur og börn, grófust lifandi
og 23 aðrir særðust hættulega
er þriggja hæða hús hér í borg
hrundi allt í einu í morgun.
Herma fregnir að allt í einu
hafi tekið að bresta og braka
í húsinu og það síðan hrunið
áður en nokkur fengi rönd við
reist eða íbúarnir flúið það.
Washington, Saigon,
17. ágúst, AP.
MANNFALL í liði Bandaríkja-
hers í Víetnam á sl. sex árum er
nú komið yfir 15.000, að því er
opinberar heimildir í Saigon
herma. 1 bardögum hafa fallið
12.487 Bandaríkjamenn á þess-
um tíma og 2.521 hafa látizt í
slysum, sjúkdómum og af öðr-
um ástæðum. — f síðustu viku
féllu 82 hermenn Bandaríkja-
hers í Víetnam, en það er
minnsta mannfall á einni viku í
sjö mánuði. Þess ber að geta, að
Bandaríkjamenn hafa ekki átt í
meiriháttar bardögum á jörðu
niðri í sl. viku.
Varautam'íkisráðherra Banda-
ríkjanna, Nicholas Katzenbatíh,
sagði í dag, að loftárásir Banda-
ríkjamanna á skotmörk við
landamæri Kínverska, alþýðulýð-
veldisins gæfu á engan hátt í
skyn ógnun við Pekingstjórnina
og hefðu því enga hættu í för
með sér fyrir Bandaríkin úr
þeirri átt. Sagði Katzenbach, að
Johnson forseti hefði vendilega
lagt niður fyrir sér áhættuna af
loftárásum við kíraversku landa-
mærin.
í barminum var áfengi
ÞÓRSKAFFI er skemmtistað-
ur hér í borginni fjölsóttur
og vinsæll. Þar eru þó ekki
leyfðar áfengisveitingar og
vinsældir hans byggjast á
fólkir.u sjálfu, sem hann sæk-
ir. En margir eru þeir sem
reyna að smygla áfengi þar
inn og stundum tekst það,
það sanna mörg dæmi. Oftur
mun það þó, að þær smygl-
tilraunir misheppnast.
Konur jafnt sem karlar
hafa verið staðin að smygl-
tilraunum og oft hefur verið
erfitt að fást við smyglarana
einkum þegar kvenþjóðin á
í hlut, að sögn lögregluþjóns,
sem þar er stundum á vakt.
í fyrrakvöld var kominn inni
í anddyri Þórskaffis hópur
prúðbúins fólks. í hópnum
var ung kona, sem nærstödd-
um varð starsýnt á, því að
svo glæsileg var hún. Lög-
reglumönnum, er þar voru
við störf varð starsýnt á
barrn hinnar ungu konu. Það
kom svo í hlut annars lög-
reglumannsins, að hann varð
í nafni síns embættis að
ganga til ungu konunnar og
þrýsta barm hennar.
En barmurinn var þá svo
stinnur viðkomu, að með
engu móti fékk staðist, að
hann væri svo af guði gerður.
Er ekki að orðlengja það, að
dregnar voru tvær flöskur
af áfengi af brjóstum kon-
unnar, — þriggja pela viský-
flaska af öðr brjóstinu en
pottflaska af sjenever af
hinu.
Var stúlkan flutt til yfir-
heyrslu í lögreglustöðina.
Þar gaf unga glæsilega konan
þá skýringu, að hún hefði
tekið að sér að reyna að
koma þessu áfengi ihn fyrir
herrana, sem í hópnum voru.
Lögreglan leyfði stúlkunni
að fara á dansleikinn, — en
áfengið var geymt fyrir eig-
endurna.
Yfirmannaskipti urðu í gær í flotadeild varnarliðsins við
Keflavík. Emile E. Pierre lét af störfum eftir tveggja ára
dvöl hér á landi, en Ralph W. Hart tók við. Á myndinni eru
Ralph W. Hart og kona hans að framan, en Emile E. Pierre
ofar.
Neöanjarðarhreyfing-
ar aðstoða við liðhlaup
— bandarískra hermanna að sögn the Times
Washington, 17. ágúst, AP.
BREZKA stórblaðið The Times
skýrði frá því í frétt í dag, að
neðanjarðarhreyfing evrópskra
friðarsinna aðstoði bandaríska
hermenn við að flýja frá her-
stöðvum sínum í Þýzkalandi í
þeim tilgangi, að losna undan
herþjónustu í Vietnam. Varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
Robert S. McNmara, sagði við
fréttamenn skömmu eftir að
blaðið kom út, að fréttin væri
„einskær uppspuni",
í frétt stórblaðsins sagði m.a.,
að tala bandarískrá liðhlaupa í
Þýzkalandi, það sem af væri
þessu ári, væri um þúsund, þar
af hefðu um þrír fjörðu gerst lið
hlaupar af ótta við að þurfa að
gegna herþjónustU í Vietnam.
Blaðið segir, að neðanjarðar-
hreyfingar hinna evrópsku frið-
arsinna starfi í Bretlandi, Frakk
landi, Hollandi, Þýzkaladi og
Svíþjóð, og noti þær oft og tíð-
um áþekka tækni og andspyrnu-
hreyfingar á stríðstímum.
í yfirlýsingu, sem bandaríska
varnarmálaráðuneytið gaf út,
sagði, að yfirmenn bandaríska
hersins hefðu orðið áskynja um
sögusagnir varðandi hópa
manna, sem aðstoðuðu banda-
ríska hermenn við að gerast lið-
hlaupar, en þessar sögur væru
„stórlega ýktar“.
Hefstoðvar Bandaríkjmanna í
Evrópu hafa á skrá, sem stend-
ur, 338 menn, sem fjarverandi
hafa verið um langan tíma.
Bandaríski herinn í Þýzkalandi
telur 225.000 hermenn.
Ráðuheytið bendir á, að það
sem af væri árinu hefðu 10.500
hermenn í Evrópu fríviljugir lát
ið skrá sig til herþjónustu í
Vietnam. Á síðasta ári létu
14.000 hermenn skrá sig í sama
skyni.
ittc -
tece
votc
1
jm
I0ÍP
VINDUR var hægur um allt
land í gær og ágætt veður.
Mjög víða var sólskin, en þó
sums staðar skýjað, einkum
við v-ströndina. Hitinn var
víðast 1 til 14 stig um nón-
bilið.
Lægðin, sem sést á kortinu
yfir vesturströnd Grænlands,
er á hreyfingu austur á bóg-
inn og mun sennilega valda
norðlægri átt og einhverri
vætu í nót óg á morgun.