Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. AGTTST ITTOT
Alan Williams:
PLATSKEGGUR
var sá, að hann var utan borgar
markanna þar sem Leyniherinn
var allsráðandi og einnig utan
svæðisins þar sem Arabaherinn
var á ferðinni með skæruliða
sína. Hvor sendinefnd skyldi
hafa sex manna varnarlið, sem
ekki hefðu önnur vopn en vél-
skammbyssur, og Neil varð að
skila því til Le Hir og Boussid,
að ef um brigðmælgi yrði að
ræða af hálfu annars aðila,
mundi hinn grípa til vopna, taf-
arlaust.
Að þeim tima undanteknum,
sem Neil var bak við CRS- vega
tálmanirnar, var hann undir stöð
ugu eftirliti af mönnum Le Hirs,
og öll símtöl hans við Pol voru
hleruð af Le Hir sjálfum. f þess
um símtölum minntist Pol aldrei
á viðræðurnar við Boussid. Sam-
töl þeirra voru stutt og héldu
sér við efnið, og snerust aðeins
um mennina, sem áttu að aka
Neil til Gabash. Samkvæmt skip
un Le Hirs, spurði Neil Pol einu
sinni, hvort franski herinn ætti
nokkurn hlut að þessum ráða-
gerðum. Pol svaraði: — Ég skal
lofa þér því, að hvorki herinn
né öryggissveitirnar hafa_ neitt
með þetta mál að gera. Ég gef
þér mitt æruorð upp á það.
Le Hir varð bilt við þetta.
Hann hafði, sem fyrrverandi
starfsmaður öryggisþjónustunn-
ar vanizt því, að hún og njósna-
ráðuneytið væri í náinni sam-
vinnu. Hans hernaðarlega upp-
eldi viðuxkenndi enga sjálf-
stæða njósnara. í hans augum
var Charles Pol ekki annað en
venjulegur feitur, ofborgaður
stjórnarstarfsmaður. En Neil
mundi, að Pol hafði verið beggja
handa njósnari í styrjöldinni, og
fyrrverandi stjórnleysingi. Eins
og hann hafði lagt mesta áherzl-
una á í Aþenu, var hann ekki
lögreglumaður, sem framkvæmdi
skipanir ein'hverra yfirmanna.
Pol var hugsjónamaður og með
byltingarkenndar skoðanir á því,
hvernig heiminum skyldi stjórn
að. Sú hugmynd, að hann gæti
verið að starfa alveg óháður
frönsku stjórninni, fannst Neil
ekkert sérlega langt sótt. Le Hir
datt það líka í hug, en gaf það
frá sér með axlayppingu. f
hans auguni voru nugsjónamenn
ekki til nema í Leynihernum.
Alla dagana meðan á þessu
stóð var sífellt í huga Neils
möguleikinn á svikum af beggja
hálfu. Hann lá oft aftur á bak
í rúminu í herberginu ,sem Le
Hir hafði lánað honum af ibúð
sinni, og var að vega og meta
líkurnar fyrir þessu. En hann lét
alltaf sanfærast af sömu rök-
semdunum: I>að væri í allra
þágu jafnt — Leynihersins,
Arabahersins og Frakklands-
stjórnar — að stöðva þessi handa
hófsmorð. Auk þess fannst hon
um, að menn eins og Broussard,
Le Hir, Boussid og Ali La Jo-
conde væru alltof útfarnir í
hermdarverkum og vörnum gegn
þeim, til þess að láta veiða sig
í venjulegt net.
í fyrstunni var aðaláhyggju-
efni hans það að geta ekki haft
samband við skrifstofuna sína í
London. Það var eitt af skilyrð
um Broussards, að ekki skyldi
neinar fréttir um friðarsamn-
inga síast út til blaðanna. Neil
hafði aðeins verið leyft að
senda St. Leger skeyti til Mira-
marhótelsins til að segja honum,
að hann færi í skemmtiferð til
Bled í nokkra daga. Hann hafði
misst af eindaganum á blaðinu
fyrir laugardaginn og ekki get-
að sent Foster neitt yfirlit yfir
ástandið eins og það^var í viku-
lokin.
Lífið í borginm var orðið
ískyggilega staðnað. Á föstudags
kvöld hafði beitiskip siglt inn
í höfnina og lagzt þar. Næsta
morgun komu svo tveir tundur-
spillar í viðbót og nú bár.ust út
fregnir um hafnbann. Landa-
mæri og flugvellir voru lokaðir
alla helgina og liðsauki frá
36
franska hernámssvæðinu í Þýzka
landi hafði drifið að, allt fram
á sunnudagskvöld. Síðdegis á
sunnudag höfðu þyrlur farið
drynjandi yfir götuvirkin, og
kastað út fregnmiðum' þar sem
uppreisnarmenn voru hvattir til
að gefast upp með góð.u, en hlýða
ekki „sviksömum frönskum her-
foringjum, sem væru þjóð og
landi til skammiar“
í þessa fjóra daga var Neil
raunverulega í stofufangelsi.
Hann fékk ágætis mat, sem
Nadia bjó til, en fékk ekki að
fara út nema í áðurnefndar
sendiferðir til Cabash. Um-
gengni þeirra Le Hirs var form-
föst og þurrleg. Þeir hittust ekki
nema rétt til að tala um gang
samninganna við Boussid. íbúð-
in var notuð sem fastar aðal-
stöðvar starfsemi Le Hirs í höf-
uðborginni og stöðugur straum-
ur gesta — aðallega fyrr-
verandi herforingja og lið-
hlaupa úr Útlendingahersveit-
inni — fylltu stóra salinn, stund
um klukutímunum saman.
Aldrei var minnzt á nærveru
Neils þarna í íbúðinni, og held-
ur ekki fékk hann leyfi til að
tala við gesti Le Hirs.
Anne-Marie hafði komið í heim
sókn til hans fyrsta kvöldið og
þau höfðu borðað saman í her-
bergi hans. Hún hafði verið fálát
og fámálug og vildi ekki neitt
tala um nærveru sína hjá Brouss
ard ofursta sama dag, og svo
hafði hún farið snemma, kysst
hann snöggt á munninn og lof-
að að koma aftur einhvern tíma
næsta dag. Hann hafði staðizt
Iðnaðar-
eða geymsluhúsnæði
Til leigu við vesturhöfnina húsnæði fyrir
iðnað eða vörugeymslur.
Tilboð merkt: „Vesturhöfn — 2511“ legg-
ist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins.
GEGN
STAÐGREIÐSLU
AÐEINS 3 DAGAR EFTIR.
TÆKIFÆRI ÁR8II\I8
Dúna springdýnur 75x190 cm. kr. 2.200
H- 20%:
kr. 7.760.OO
4ra sæta sófasett kr. 20.500 -r- 20%:
kr. 16.480.oo
Svefnbekkir kr. 5.400 20%:
kr. 4.220.OO
og ótal fleiri kostaboð.
NÝTT OG STÆRRA SÝNINGARSVÆÐI —
KOMIÐ OG SKOÐIÐ.
OPIÐ TIL KL. 10 f KVÖLD OG NÆSTU
, KVÖLD.
dúnah<
AUÐBREKKU 59
HÚSGAGNAVERZLUN
KÖPAVOGI SiMI 41699
— Súpan köld? — Ekki finnst mér það.
freistinguna að biðja hana um
að vera hjá sér um nóttina, þar
eð hann sá af allri framkomu
hennar, að slíkt mundi þýðingar
laust.
Hléin milli heimsókna hennar
og ferða hans til Cabash tóku að
orka illa á hann og gera hann
taugaóstyrkan og uppstökkan.
Hann hafði of mikinn tíma til að
brjóta heilann um allar hætturn
ar, og alla möguleikana, sem
starf hans hafði í för með sér.
Verstu stundirnar voru þegar
hann kom til Cabash eða fór það
an og þurfti að ganga gegn um
dimmu sundin með dökku hús-
veggjunum til beggja handa, því
að þá minntist hann alltaf föia
mannsins í bílnum með gapandi
sárið á hálsinum. Le Hir lofaði
honum, að enginn úr Leynihern
um skyldi gera honum mein og
Boussid útvegaði honum reglu-
lega fylgd út úr hverfinu. En
jafnan var sá möguleiki fyrir
hendi, að einhver evrópskur ung
lingur með skotástríðu eða þá
æstur múhameðsofsamaður gæti
fundið upp á því að skjóta á
hann úr einhverjum dimma
króknum. Hann kom aftur úr
ferðinni, slituppgefínn og kitl-
aði aftan á hálsinu af einhverj-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Austurbrún 2, hér í borg,
þingl. eign Eyjólfs Ólafssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunr.ar í Reykjavík, á eigninni sjálfri,
mánudaginn 21. ágúst 1967, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Baldursgötu 6A, hér í borg,
þingl. eign Guðrúnar ísleifsdóttur, fer fram eftir
kröfu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis og
Hauks Davíðssonar hdl., á eigninni sjálfri, mánu-
daginn 21. ágúst 1967, kl. 2.30 síðdegis.
Borgarfógetaemkættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Langholtsvegi 41, hér í borg,
þingl. eign Sigurðar Jónssonar, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 23. ágúst 1967, kl. 3.30 síð-
degis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Kennarar
Ein kennarastaða laus við Barnaskóla Borgarness.
Umsóknarfrestur til 30. ágúst næstkomandi. Upp-
lýsingar gefur skólastjórinn, Sigurþór Halldórs-
son, í síma 93-7197.
Skólanefnd Borgarness.
Hótel Borgarnes auglýsir
Viljum ráða matreiðslumann frá næstu mánaðar-
mótum. Góð laun. Upplýsingar hjá hótelstjóri.
Hótel Borgarnes.