Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.08.1967, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1967 27 Þessi Volkswagenbifreið fór út af veginum í Fossvogi síðast- liðinn þriðjudag, án þess að þ eir sem í henni voru meiddust. Ökumaðurinn mun hafa misst stjórn á bifreiðinni, með þess- um afleiðingum. Ekki er ósk að rannsóknar í málinu. (Mynd: Ólafur Baldursson). Allt á huldu um ár- angurinn af för Títós Sambandsherinn í sókn Alexandríu, 17. ágúst, AP-NTB. T í T Ó , Júgóslavíuforseti, lauk í dag heimsókn sinni til Arabaríkjanna, og ræddi í klukkustund við Nasser, Eg- yptalandsforseta, áður en hann liélt heimleiðis á snekkju sinni frá Alexandríu. Skömmu áður en hann fór gaf hann út stutta yfirlýs- ingu, þar sem sagði, að hann væri eftir viðræður sínar við leiðtoga Araba, vongóður um að unnt væri að leysa deil- una fyrir botni Miðjarðar- hafs á friðsamlegan hátt. — Júgóslavneska fréttastofan Tanjug sagði í frétt í dag, að Nasser og Tító hefðu komizt að fullu samkomulagi um hvernig leysa skyldi deiluna, í dreifðum óeirðum í háskóla- og iðnaðarhorginni Syracuse í New York fylki á miðviku- dagskvöld. Þeir héldu áfram iðju sinni í dag og hefur borgarstjórinn lýst yfir neyð- arástandi. Lítil brögð voru að spellvirjum í borginni í morgun, og kvaðst -borgar- stjórinn William Walsh, hafa gert þessar ráðstaf anir í varúðarskyni. — Lög- reglan í Syracuse hefur aðal- lega átt í höggi við blökku- menn á vélhjólum, sem hafa valdið miklum spellvirkjum sópa um þær. Um 30 blökku- á verzlunum og látið greipar RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 10*100 og hvernig eyða skyldi „af- leiðingunum af árás ísraels- manna“. Tító neitaði því hinsvegar í dag, að hann hefði haft með- ferðis til Kaíró tillöigu til lausn- ar á deiliunni. í viðtali við hið egyp^aka dagblað, Al Ahram, sagði hann, að hann hefði komið til Kaíró og ferðast til Damaskus og Bagdad til þess að skiptast á skoðunum við arabíska leiðtoga, en engin leynd hefði hvílt yfir þessum viðræðum. Á miðvikudag sendi Tító Ind- iru Gandlhi, forsætisráð'herra Ind lands, sikeyti, sem á'litið er að fjalli um árangurinn af heim- sókn hans til Arabaríkjanna. — Hefur indverska stjórnin neitað að skýra frá efni skeytisins. Er Tító kemur aftur til Júgó- slavíu mun hann, að sögn AP- fréttastofunnar, senda forsetum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna skeyti varðandi árangurinn af þessari för sinni. kvöldi og voru mestar í blökkumannahverfi horgar- innar í grennd við háskólann. í Detroit, þar sem blökku- mannaóeirðirnar urðu hvað mest ar fyrir nokkru, hefur ákæru- valdið höfðað opinbert mál á hendur cfðrum þeirra tveggja lögreglumanna, sem ákærðir voru fyrir að hafa skotið þrjá blökkumenn til bana á hóteli einu í Detroit 26. júlí. Yfirdóm- ari sakamálaréttarins í Detroit, Robert Demascio, höfðaði málið á hendur lögreglumanninum Ro- nald August, sem ákærður er fyrir morðið á Aubrey Pollard, 19 ára gömlum. Hinn lögreglu- maðurinn, Robert Paille, hefur verið leystur úr haldi, en hann var sakaður um morðið á Fred ^ Temple, 18 ára gömlum. Morð- ið á Carl Cooper, 17 ára göml- um, er enn í rannsókn. De- mascio tjáði fréttamönnum í dag, áð verið gæti að nýjar ákærur kæmu fram í þessum morðmál- um á hendur Paille, en á þessu stigi málsins benti ekkert til að hann hefði átt þátt í morðunum. UM hundrað hermenn stjórnar- innar í Biafra hafa verið felldir í bardögum við her sambands- stjórnarinnar í Nígeríu. Segja talsmenn sambandsstjórnarinnar, að hermenn sínir hefðu þurrkað út af yfirborði jarðar herfylk- ingu frá Biafra, sem var á leið til Ibadan, höfuðborgarinnar í Austur-Nígeríu. Bardaginn átti sér stað um 192 km vestur af Ibadan. Samlbandsstjórnin segir, að her menn sínir séu nú á leið til Ben- in, höfuðborgar miðvesturríkis- ins, en hafi tafizt sökum þess, að hermenn Biafra hafa sprengt upp nokkrar brýr á leiðinni. - GAGNRÝNIR Framihald af bls. 1 ekki til að undirbúa Frakkland fyrir framtíðina. D’estaing er for maður Repúblíkanaflokksins, sem De Gaulle hefur hinigað til aðallega treyst á í franska þing- inu. Repúblíkanar hafa stutt De Gaulle, en eru annars sjálfstæð- ur flokkur. Þeir hafa 44 þing- sæti, en Gaullistar um 200, af 487 sætum. Vestmanna- eyingar prófa svifskipið SVIFSKIPIÐ fór í tvær ferðir milli lands og Eyja í gær, með Vestmannaeyinga, sem langaði til að prófa farkostinn. Aðsókn var gífurleg og komust miklu færri en vildu. Það voru ekki einungis unglingar, sem vildu komast í smáferð, heldu einnig fullorðnir sjómenn, jafnvel aldr- aðir, sem skemmtu sér konung- lega. Bezta veður var í Vest- mannaeyjum og skilyrði góð til að sigla svifskipinu. Það verð- ur væntanlega í Vestmannaeyj- um fram yfir helgi en kemur svo til Reykjavíkur og verður í ferð um til og frá Akranesi í tíu daga. VaEur Guðmunds son iMorðdafil iátinn Einkaskeyti frá Kaupmanna- höfn, 17. ágúst. LISTMÁLARINN og málverka- salinn Valur Guðmundsson Norðdahl er látinn, 51 árs aS aldri. Iralur, sem bjó í Ry á Jót- landi var íslendingur og hélt íslenzkum ríkisborgararéttind- um til dauðadags. Valur rak stóra listmunaverzlun í Ry frá árinu 1953, en fékkst samtímis sjálfur við listmálun og voru fyrirmyndi'r hans einkum sótt- ar til íslenzkrar náttúru. — Rytgaard. - SIGLINGUM Framihald af bls. 2 þýzkra aðila í umboðslaun og tolla. Um ráðstafanir í Bretlandi, sagði hann, að mun erfiðara yrði að veiða fyrir brezkan markað og taldi hann miklar likur á því, að sé um sæmilegan karfaafla hér við land að ræða, myndu togaraeigendur frekar landa afl- anum hér til vinnslu, þar sem góð veiði lækkar yfirleitt mark- aðshoirfur í Þýzkalandi. Einnig taldi hann að afkastageta togar- anna nýttist betur, þegar land- að væri hér heima og ekki er siigit með aflann. Kvað hann ís- lenzk yfirvöld vart geta setið hjá meðan þessu færi fram. Eins og sagði í Mbl. í gær, þá er því kunnugt um, að sendiráð íslands hjá Efnahagsbandalag- inu vinnur nú að því að fá toll árua í Þýzkalandi lækkaða. í Lagos herma staðlfesitar beim ildir, að sambandsstjórnin hafi nú fengið auknar vopnabirgðir og fleiri flugvélar. Sögðu heim- ildirnar, að þær hefðu komið mieð sikipinu Krokow frá Stettin í Póllandi. Krokow er ekki á skrá hjá skipafélaginu Lloyd’s. Sökk — náðist npp nítur ÞILFARSBÁTURINN Gunn- laugur Friðfinnsson sökk eftir að hafa rekist á skipsflak í Ólafsfirði, s.l. mánudag. Eigandi bátsins, Sigmar Ágústsson, var einn um borð og bjargaðist í gúmmibát. Sigmar var að koma úr róðri, í svarta þoku, og lagði að landi vestarlega við Ós- brekkusand, sem er rétt fyrir norðvestan höfnina. Skammt undan landi þar er gamalt skips flak, sem kemur uppúr að nokkru leyti á fjöru. Bátur Sig- mars rakst á þetta flak og kom á hann svo stórt gat að Sigmar hafði ekki við að dæla. Hann bjargaði sér þvi í gúmbátinn. Sjórinn er ekki mjög djúpur þarna og í gær var búið að ná Gunnlaugi Friðfinnssyni upp á yfirborðið og lá hann í höfn- inni. Báturinn er fimm tonn að stærð. - SKEMMTIFERÐ Framihald af bls. 5. andirtektum að dæma væri mikill grundvöllur fyrir slíkum ferðum. Skipstjórinn gat þess með auðheyrilegu stolti, að félagi Ulbricht hefði þrívegis siglt með skipinu frá því að það var keypt íil A-Þýzkalands 1965. Þar af hefðu þeir einu sinni ræðzt við um borð, hann og Nasser, Egyptalandsforseti. Lýsti hann yfir ánægju sinni, að fá nú tækifæri til þessað stýra skipi sínu með hóp íslendinga um borð og vonaði að það yrði ekki í síðasta skipti. - VIUA Frarmihald af bls. 1 talsverðum tíma af tveggja daga viðræðum sínum við Jóhnson til að skýtá þá’ ákvörburi sína, að bæta samband V-Þýzkalands við Frakkland, en þessi ákvörðun hefur valdið nokkrum misskiln- ingi milli stjórnanna í Bonn og Washingtoh, Þá á Kiesinger að hafa tjáð Bandaríkjaforsieta, að samvinna Þýzkalands og Frakk- lands mundi aldrei verða til þess að Þjóðverjar féllust á sjónarmið de Gaulles varðandi NATO eða hlutdeild Breta í EBE. Utanríkisráðherra V-Þýzka- lands, Willy Brandt, sagði í Bonn í dag, að væringar milli stjórna Bandaríkjanna og Frakk iands gerðu utantíkisstefnu V-Þýzkalands mjög erfitt fyrir. Brandt sagði, að væringar þessara tveggja stjórna hefðu aukizt verulega undanfarið og hefði það sín áhrif á utanríkis- stafnu V-Þýzkalands, en v- stjórnin vildi gott samstarf við báða aðila. Brandt sagði þetta á blaða- mannafundi, er hann hélt við komuna til Bonn frá Washing- ton, en þangað fylgdi hann Kiesinger kanzlara V-Þýzka- lands til viðræðna hans við Johnson Bandaríkjaforseta. Brandt lét einnig svo uimmælt, að v-þýzku leiðtogarnir hefðu tjáð kollegum sínum 1 Banda- ríkjunum, að þeir væru ekki sammála afstöðu frönsku stjórn- arinnar til N-Atlantshafsbanda- lagsins og þátttöku Breta í Efna hagsbandalagi Evrópu. - BISKUPINN Framhald af bls. 28 kristni nærri, Mormóna, Votta Jehóva, Christian Science og Unitara, sem þær kirikj'ur yrðiu í vandræöum gagnivart, sem létu miklu fjarskyldari trúflokka, greinar af meiði annairrar trúar, fá inni í vígðum húsum sínum. „Ég álít, að æðistu menn kirkj u, leikmenn og prestar, hefðu átt að fjailla um þetta mál, hafa um það ráðstefniu, áður en leyfi var veitt til þessarar athafnar“. í viðtali við Mbl. um þetta máil fóirusit biskupi íslands, Sig- urbirni Einarssyni, m.a. orð á þessa leið: — Hér á landi ríkir trúfrelsi og ég mundi telja það skyldu mína að stuðla að því, að minni hlutahópair hefðu alla aðsföðu og fullt frelsi til að lifa sínu tniar- lífi samikvæmt sinni skoðu n ,)g Siannfæringu. Hitt er mér f-ull- kunmugt, að Bahaitrúflokkurinn er etoki kristinn trúflokikur Jg það fólk, sem í þennan flokik gengur, hefur ek'ki aðeins sagt sikil'ið við þjóðkirkjuna í skipu- lagislegu til'Hti, h-eld'ur sagt skil- ið við kristna trú. Það hefur fu'lilbomið freilsi til þess að sjáif- sögðu, en gerir sér væntanlega grein fyrir, hvað það er að gera. Varðandi fréttir af brúðkaupi Bahaimanna í Árbæjarkirkju. var ég undrandi er ég heyrði um þetta. í fyrsta lagi varð ég undr- andi yfir því, hvað þessi bjóna- vígsla var gerð að miklum tíð- induim og í öðru lagi varð ég undrandi yfir því, að þessi at- höfn skyldi vera framkvæmd í kristinni kirkju. Ef ég hefði vit- að um að slíkt stæði til, þá hefði ég beðizt undan þvi að það væri gert, ekki af neinni mieinbægni við Bahaimenn eða óvinsemd í þeirra garð, heiduí' af því, að ég tel að þeiir eigi að taika sín eigin trúarbrögð það alívarlega, að þeir leiti ekki í kristna helgidóma með sínar hel'giathafnir. Kirkja, sean er Kristi vígð, verður ekki léð tijL athafna á vegum trúarbragða, sem ekiki viðurkenna Krist eins og kristiii kirkja játar hann og boðar. Bahaimienn hafa f-ullt frelsi hér á landi til þess að hafa sína eigin hel'gidóma og fram- kvæma sínar helgiathafnir sam- kvæmt sínum siðum. Slíkt frelsi þeim til handa er sjálfsiagt, en hitt tel ég jafnsjálfsagt, að þeir noti ekki ki-rkjur landsins til sinna atbafn-a. Varðandi ummæli, sem hö.fð vor-u eftir forstöðumanni safnað arins vil ég taka það fram, að þagar þess var farið á Jeit, að Bahaimenn . fengju löggildinigu sem sérstaku-r söfnuður, en í því feiist m.a. það, að löggiltur íor- stöðumaðuf trúfélagsins gítur framikvasmt lögmætar hjóna- ví-gsl'ur, þá þótti mér skyit ,’ð miaela með því, að þetta yrði heimilað. Bréf mitt til ráð-uneyt- isins um þ-etta mál var á þessa leið: 12. september 1966. Varðandi u-misókn Baha'i- manna í Reykjavík um að fá staðfestingu ráðherra á kosn- ingu forstöðumanns (sbr. bréf hins háa ráðuneytis dags. 20. júni þ.á.) vil ég taka fram, sð ég sé ekkert því til fyrirstöðu að staðfesting þessi verði látin í té. Biskup íslanðs Sigurbjörn Einarsson. Sóknarprestur Árbæjarsóknar var ekki staddur á landiau í gær og var því ekki hægt að leita hans umsagnar eð'a álits um þetta mál. 2 bátar teknir í landhelgi VARÐSKIP tók tvo báta aff meintum ólöglegum togveiðum síðdegis í gaer. Elías Steinsson, VE-129 var út af Skarðsfjöra og Bragi SU 210 út af Hjör- leifshöfða. Mál skipstjóranna verða tekin fyrir í heimahöfn- um. Neyðarástand í Syra- cuse vegna óeirða — Mál höfðaðá hendur lögreglumanni í Detroit fyrir morð á blökkumönnum Syracuse, 17. ágúst, AP. menn hafa verið handteknir. Hópar ungra blökkumanna Óeirðirnar hófust seint í gær- fóru um ruplandi og rænandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.