Morgunblaðið - 18.08.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1967
3
$i«t« nárémsmn sjmkcm v«ít <t*
% fmhjol »»
S «M«fe»> »07
JÓHAKhíES
ö»t»gs lAK&m
m>w*m ¥mm
JOHAN jOMANNfssew
AND6RS KNUTSEN
THeðöoR RrtreRSCR
JíCNS. NILSKN
OANtCt JOHANStN
nm Moimm
SIOWRÖ ST6NCRSÉN
8£«N«AR0 í;j*«S£N
JðH JiOHAN SSN
EOViR #ORTeNS£.N
H£NRW ANORÍÁSSEN
rari. eemRsgN
ANTÖN ttNOðytST
JAROB JAR08SEN
Komnir
föilnum
DAGURINN 5. október árið
1907 varð íbúum Troms0
þungur í skauti. Þann dag
f'ist selveiðiskipið Fiithjof
frá Tromstí við íslandsstrend
ur og með því 17 menn. Einn
komst af. Alls rak fimmtán
lík á land og voru þau öll
jarðsett í kirkjugaiðinum að
Sauðanesi á Langanesi en tvö
lík i'undust aldrei. Síðan þetta
skeði eru nú liðin rétt sextíu
ár. Þessa dagana eru staddir
hér á landi átta Norðmenn,
lang
Direktör Hagerup
sem hingað eru komnir til að
reisa minnismerki á gröf
landa sinna, sem hvíla í
kirkjugarðinum að Sauða-
nesi.
September 1907
Mikil deyfð hvílir yfir
Troms0. Selveiðiskipið Laura
frá Tromsþ hefur verið að
veiðum við Grænland en
ekkert frá því frétzt. Áætl-
aður heimkomutími Lauru er
lönigu liðinn og áhyggjur
sækja að fólkinu heima fyr-
ir út af örlögum skipsins. Út-
gerðarmaðurinn Magnus K.
Giæver ákveður að senda
Frithjof í leitarleiðangur og
26. september lætur Frithjof
úr höfn með einvalalið inn-
anborðs.
Hinn 6. október siglir
Laura in á höfnina í Troms0
án þess að hafa ”ekizt á Frith
jof. Hafði Lau. i setið föst í
ísnum við Grænland í langan
tíma og heimkomu hennar
því seinkað.
til að reisa
bautastein
Frithjof siglir sem leið
liggur til Grænlands að leita
Lauru, laskast í ísnum o.g
kemur leki að skipinu. Skip-
verjar taka þá ákvörðun um
að leiía hafnar og taka stefnu
á Seyðisfjörð. Að kvöldi hins
5. október eru þeir kommr
langleiðina á ákvörðumar-
stað. Veður er slæmt, norð
austan stormur og hríð. Hvað
skeð hefur um borð þetta ör-
lagakvöld er ekki víst en skip
ið hrekur af rét.tri leið og
siglir beint á Langanes,
miðja vegu milli Skoruvíkur
og Fonts, sem er yzti tangi
nessins.
Einn maður, Elias Samuei-
Að kvöldi hins 10. október
fá íbúar Tromstí þá tilkynn-
ingu frá Sayðisfirði, að Fritli-
jof hafi farizt við Langanes
með 17 manns. Almenn sorg
greip um sig í þessum litla
bæ, s;m þarna hafði misst
marga af sinurn beztu sjó-
mönnum. Fánar blöktu alls
staðar í hálfa stöng o.g fólk
minníist þess-ara hraustu
manna, sem höfðu lagt upp í
hæt-tulega för til hjálpar öðr-
um en komu svo aldrei aft-
ur.
Minningin lifir
Núna eru staddir hérlendis
átta Tromsþbúar, sem hingað
Bautasteinninn, sem afh júpaður verður á laugardag.
sen, kemst af og eftir að hafa
velkzt í brimrótinu, klifur
hann upp bjargið og kem-st
lieim að Skálum.
Frithjof frá Tromsp.
eru komnir til a'ð afhjúpa
minnisvarða á leiði þeirra,
sem fórust með Frithjof fyrir
sextíu árum. Fyrirliði þeirra
er Direktör Hagerup og leit-
uðum við til hans í gær.
— Það hafa oft komið fram I
raddir um að reisa einhvers !
konar minnismerki á gröf j
þeirra, sem fórust með Fri- j
thjof, sagði Direktör Hagerup. i
Einhvern veginn hafa þær
þó alltaf hjaðnað niður aft- j
ur. En fyrir tveimur árum ]
skrifaði íslendingurinn Árni j
G. Eylands grein í Troms0 ]
um slysið og varpaði þar fram ;
þeirri spurningu, hvort ekki
væri mögulegt að reisa minn-
ismerki á gröfina í Sauðanes- !
kirkjugarði. Grein Árna vakti ;
mikla athygli og kom nýrri j
hreyfingu á málið. Tvö fyrir- j
tæki í Tromsþ: Arktisk For-
ening og Troms0 Skipperfor- !
ening beittu sér fyrir al- !
mennri fjársöfnun og nú !
komst málið í örugga höfn. j
Norski mynuhöggvarinn Sjo j
lin var fenginn til að gera
steininn, sem er úr graníti i
frá Tromsþ. Steinninn er rúm-
ir tveir metrar á hæð og í
hann fest koparplata með
nöfnum hinna látnu. Fyrir
ofan plötuna er svo höggvin
mynd af Frithjof.
En þá var eftir að koma
steininum til íslands. EinaiA>-
Þorkelsson, útgerðarmaður í
Hafnarfirði, leysti þennan
vanda okkar og flutti steininn
til íslands með nýjum bát,
sem hann var að fá frá Nor-
egi. Árni G. Eylands sá svo
um að flytja steininn til
Sauðaness og að steypa und-
irstöður. Einnig sá hann um
uppsetningu steinsins. A'ðstoð
hans í þessu máli er okkur
ómetanlega mikils virði.
Og á laugardaginn förum
við til Sauðaness og afhjúp-
um minnisvarðann. Með okk-
ur í förinni er ung kona, sem
missti báða afa sína með Fri-
thjof og mun hún afhjúpa
steininn.
Með þessu framtaki okkar
og hjálp þeirra Islendinga,
sem við sögu hafa komið er
það tryggt, að hinzta hvíla
þessara hraustu sjómanna
fellur ekki í gleymsku, heldur
geymist eins og minningin,
sem ávallt mun lifa.
8TAKSTEIIVAR
ÍHALD - RAUNSÆI
MORGUNBLAÐIÐ hefur með tveim ritstjórnarr
greinum tekið að sér forustu í baráttu gegn íslenzka
sjónvarplnu, baráttu til að hefta eðlilega þróun þess,
hinda hendur þess og minnka þá þjónustu, sem það
getur veitt sjónvarpsnotendum. Þessa stefnu kallar
Morgunblaðið „íhald-raunsæi.“
Hingao til hefur Morgunblaðið þótzt' berjast fyrir
frelsi einstaklinga og gegn hvers konar opiriberri for-
sjá þeim til handa. Nú vill blaðið, að ríkisvaldið hefti
eina af stofnunum sínum til að draga úr valfrelsi
fólksins. Af hverju mega landsmenn ekki sjálfir velja
um, hvcrt þeir vilja horfa á sjónvarp, fara á Varðar-
fund eða í Tónabíó?
.Vonandi beitir aðalmálgagn Sjálfstæðisflokksins
hinni nýfundnu „íhalds-raunsæi“ á fleiri sviðum.
Spyrja mætti, hvortþjóðin hafi ráð á Morgunblaðinu,
*em er álíka fyrirtæki og sjónvarpið í dag. Væri ekki
xétt, að Morgunblaðið kæmi aðeins út 4 daga í viku?
Og hvað um kvikmyndahúsin? Er ekki óþarfi, að
Jýau sýni hinar menningaraukandi myndir sínar sjö
daga í viku? Væri ekki nóg að þau væru opin 4 daga
f viku?
Hvernig stendur á því, að Morgunblaðið hefur í
meiria en áratug ekki séð ástæðu til að berjast fyrir
styttingu ameríska sjónvarpsins en hefur nú upp
raust sína til að hefta og takmarka íslenzka sjónvarp-
ið?
Morgunblaðið heldur því hvað eftir annað fram, að
SÚ dagskrá, sem í mörg ár hefur verið undirbúin,
dragi úr dreifingu sjónvarpsins um landið. Þetta er
fjarstæða, eins og margoft hefur verið bent á. Aðflutn
ingsgjöld af sjónvarpstækjum, stærsti tekjustofn sjón
varpsins, renna öll til dreifingar þess um landið. Dag-
skráin fær ekki eyri af því fé.
Það þarf ?álíka stóra áhöfn til að fljúga flugvél,
Iivort sem vélin er hálf eða full af farþegum. Það
hefði þurft að bæta við starfsliði til að geta annað
fjögurra dagá d'agskrá á eðlilegan hátt til frambúðar,
en þetta starfslið á að geta afkastað sex daga dagskrá,
eins og hún er fyrirhuguð.
íslenzkt sjónvarp hefur frá upphafi átt marga and-
stæðinga og úrtölumenn í landinu. Eftir að séð var,
hve vel fólk tók sjónvarpinu, virðast þessir aðilar nú
ætla að magnast á nýjan leik til að reyna að hefta
stárfsemi sjónvarpsins og halda því niðri. Þetta er í-
haldsmennska, en hún er ekki raunsæ.
Breytingin í hægriakstur mun örugglega kosta meira
fé en þegar hefur verið varið til íslenzks sjónvarps.
Það þykir Morgunblaðinu sjálfsagt á sömu síðu og það
vill hefta sjónvarpið. Þar er ekki ástæða til að beita
,,íhalds-raunsæi“!
. ö > i .ilþýö.ibl ðsin í gær.