Morgunblaðið - 18.08.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1967
BÍLALEICAN
- FERÐ-
Daggjald ki. 350,-
og pr km kr. 3,20.
SÍ M I 34406
SENDU M
IVfAGNÚSAR
iSKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190.
•éfrirlolturrslrm 40381'
»-S>SIM11-44-44
m/iiFm
Hverfisgöto 103.
Sími eftir lokun 31100.
LBTLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11
Hagstætt leigugjald
Bensín innifalið • leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Si.mi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217
4 / ^BtUkintrJU!
RAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
tJtvarps- og sjónvarpstæki
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 (næg bílastæði)
Knútur Bruun hdl.
★ Upphaf Þjóðhátíð-
ar í Eyjum
H. G. skrifar:
„f frásögn Mbl. af þjóðhátíð
í Vestm.eyjum segir m.a., að
um aldamótin síðustu hafi íbú-
ar í Eyjum verið 270 en nú
5 þús. Um fyrri töluna skakk-
ar allmiklu. íbúar í Vestmanna
eyjum árið 1900 voru 566
manns samkv. manntals-
skýrslum, en hins vegar voru
þá í kauptúninu 275. íbúum
fjölgaði hægt en öruggt fyrstu
ár aldarinnar, en með vélbáta-
útgerðinni eykst tala innkom-
inna mjög, sem sjá má af því,
að þegar árið 1908 erú íbúarn-
ir orðnir 1110.
Þjóðhátíðarárið 1874 voru
íbúar Vestmannaeyja samkv.
sömu skýrslum 544 manns.
Stundum hefur því verið hald
ið fram, að Eyjamenn hafi
ætlað að fara margir saman til
lands þetta sumar og ha'da
hátíð með Rangæingum og þá
væntanlega Landeyingum, því
að þangað var skemmst að
fara. Þetta hafi þó farið á ann-
an veg, vegna þess að land-
leiði hafi farið af.
Harla ólíklegt er, áð slíkt
ferðalag hafi verið ráðgert.
Það hefði verið allmikið og
vafasamt tiltæki að flytja fjöl
menni e.t.v. 2—300 manns til
lands á árabátum. Þess var
heldur engin þörf því að fá
Fundarlaim
Sl. föstudag milli kl. 3 og 5 tapaðist kvittanahefti
frá Morgunbiaðinu: merkt: Sjafnargata. Einnig
töpuðust peningar. Skilist á skrifstofu blaðsins
gegn fundarlaunum.
6 herbergja hæð
Til sölu nýtízku efri hæð á góðum stað á Seltjarn-
arnesi. Stór stofa, edhús, baðherbergi, 4 svefnher-
bergi, þvottahús, geymsla, og snyrtiherb. sér. Allt
á hæðinni. Ennfremur fylgir eitt herbergi með
snyrtiherb. sér í kjallara. Sérinng. Sérhiti. Vand-
aðar harðviðarinnréttingar, mosaik á baði og eld-
húsi. Gott útsýni. Allar nánari upplýsingar gefur
EIGNASALAN, Reykjavík,
ÞÓRÐUR G. HALLDÓRSSON, símar 19540 og
19191, Ingólfsstræti 9. Kvöldsími 51566.
Til Jeigu óskast
í einn mánuð gamall jeppi eða Dodge Weapon í
góðu ástandi, fyrir kr. 10.000,— Full ábyrgð. Til-
boð merkt: „Kvikmyndun 5699“ sendist Mbl. fyr-
ir laugardag.
Karlmannaskór
Vinnuskór
SELJAST MJÖG ÓDÝRT.
víkurflugvelli sl. tvö ár og ráð
eða engin byggðalög hafa betri
útisámkomustað en Vestmanna
eyingar — Herjólfsdal.
Heimildir bera með sér, að
hátíðahöld Eyjamanna í Herj-
ólfsdal 1874 hafa farið fram
með myndarbrag. 400 manns
sóttu fagnaðinn og þar var
mikil matarveizla. Slík hátíð
hlýtur að hafa haft nokkurn
aðdraganda. í riti Brynleifs
Tobíasson „Þjóðhátíðin 1874“
segir m.a. um hátíðarhaldið í
Eyjum: „Almenningur gaf til
hátíðarhalds þessa og hafði
kosið nefnd manna til þess að
annast undirbúning og veiting-
ar.“
Vart hafa Eyjamenn kosið
nefnd til að annast „undirbún-
ing og veitingar“ uppi á landi.
í Herjólfsdal skyldi þeirra
hátíð haldin.
H. G.“
Þotan og Reykja-
víkurflugvöllur
Gunnar Sigurðsson skrif
ar:
„Velvakandi góður!
f dálkum þínum að undan-
förnu hefir nokkuð verið rætt
um þotu Flugfélagsins og
ástæður til þess að hún væri
ekki „gerð út“ af Reykjavík-
urflugvelli. Að gefnu tilefni
þykir því rétt að eftirfarandi
komi fram:
1. Flugbrautir Reykjavíkur-
flugvallar eru nægilega langar
í öllum tilvikum fyrir Boeing
727, með fulla hleðslu á lengstu
flugleiðum féiagsins.
2. Burðarhæfni flugvallarins
er nægileg fyrir flugvélar af
þessari gerð.
3. Hávaði frá þessari gerð
flugvéla er ekki óþægiiegri
heldur en af skrúfuþotum
eins og Viscount, eða DC-6B
vélum, sem notað hatfa flugvöll
inn sl. 8—10 ár.
4. Flugfélag íslands valdi
Boeing 727 úr sex gerðum af
þotum m.a. vegna þess að hún
hentaði sérstaklega aðstæðum
á Reykjavíkurflugvelli.
5. Endurbætur, er fram-
kvæmdar hafa verið á Reykja-
gert er að haldi áfram eftir
því sem efni standa til, hafa
ekki og verða ekki gerðar sér-
staklega fyrir þotur, heldur
vegna almennarar umferðar
um flugvöllinn og þá fyrst og
fremst fyrir skrúfuvélar. Því
er ekki um nein útgjöld að
ræða í þessu sambandi „bara
vegna þotunnar.“
6. Reykjavíkurflugvöllur er
nú sem stendur varaflugvöll-
ur Boeing 727, og sem slíkur
eða sem „aðalflugvöllur", upp-
fyllir hann þau flugtæknilegu
skilyrði, sem þotan krefst.
Hitt er svo annað mál, að
ríkisábyrgð vegna kaupa á
Boeing 727, var veitt með því
skilyrði, að þotan yrði „gerð
út“ af Keflavíkurflugvelli.
Reyxiavíkurflugvelli, 11. ágúst
1967. Virðingarfyllst
Gunnar Sigurðsson.“
-jfc- Sauðfé í Árbæjar-
hverfi
Kona úr Árbæjarhverfi
hafði samband við blaðið fyr-
ir skömmu. Var tilefnið grein,
sem birtist um hverfið í einu
Reykjavíkurblaðanna.
Sagði frúin, að hún teldi
hana að ýmsu réttláta, hvað
aðfinnslur snerti, en eitt hefði
skort á. í nágrenni við heim-
ili sitt væri sú plága allra
plágna verst, að sauðfé gengi
þar um ljósum logum og gerði
hin verstu spellvirki. Nýgræð-
ingar blóm og grænmeti virt-
ist uppáhaldsfæða þessa sauð-
fjár.
Þætti sér lítt hægt að fara
fram á lóðafegrun húseigenda,
eins og gert væri í nefndri
grein, fyrr en áti þessu linnti.
Oft hefði borgaryfirvöldum
verið gert aðvart og margar
tilraunir verið gerðar til að
stökkva þessum óvelkomnu
gestum á braut. Allt hefði
hingað til komið fyrir ekki.
Borgar-smalar gerðu þá
skyssu að fara langt í burtu
frá húsunum í leit að kindum,
og síðast í gær hefðu þær gert
sig heimakomnar í húsagarðin-
um. Væri nú svo komið, að
girða hefði þurft lóðina með
vírneti, sem flestu fólki væri
all-leitt tilsýndar. Bað hún
borgaryfirvöldin nú að taka
hraustlega í taumana og finna
kindur í þeirri fjöru, þar sem
þeirra væri að leita, þ.e. milli
húsanna í hverfinu og þar í
kring.
Prófessor Stefán Einarsson
Kirkjuteigi 25, tekur við bókum frá öllum nýjum
höfundum og ævisögum þeirra frá árinu 1960, og
ef þeir gömlu ætla að vera með í bókmenntasög-
unni sem er skrifuð fyrir American Scandinavian
Conditition þá er þeim betra að senda sínar bækur
líka.
Lögmannsskrifstofa
Grettisgölu 8 II. h.
Sími 24940.
TJALDID í
SALTVIK
U\GA FOLKIÐ
VERÐUR I
SALTVÍK
Skókjallarinn
AUSTURSTRÆTJ.
Austurstræti 6.