Morgunblaðið - 18.08.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGUST 1967
5
„Völkerfreundschaft" fariö með
fjölmennasta hóp íslend-
inga í skemmtiferð
og gufubaðstofa og hárgreiðslu-
stofa, svo eitthvað sé nefnt. Þá
mun vera sjö barir í skipinu.
VÖLKERFREUNDSCHAFT, I
austur-þýzka skemmtiferðaskip-
ið fór frá Reykjavík á miðnætti [
í fyrrakvöld. Var skipið með
um 500 íslenzka skemmtiferða-
menn innanborðs. Þetta er fjöl-
mennasta hópferð, sem farin
hefur verið frá ísiandi, að því
er bezt er vitað.
Farkosturinn er 12.442 smá-
lestir að særð, og er 250 manna
áhöfn á skipinu. Það hét áður
Stockholm og var flaggskip
sænsku Ameríku-línunnar. Þetta
skip var mikið í fréttum heims-
pressunnar, er það lenti í
árekstrinum við Andrea Doria
með þeim afleiðingum, að hið
síðarnefnda sökk. Hefur skipið
komið hingað til lands tvívegis
áður með erlent skemmtiferða-
fólk.
Ferð Völkerfreundschaft er
heitið um nyrðri hluta Vestur-
Evrópu og helztu áfangastaðir
eru: Bergen, Osló, Kaupmanna-
höfn, Amsterdam og London.
Ferðin tekur rúmlega hálfan
mánuð, og geta farþegar notið
allra lífsins þæginda um borð,
ef svo má komast að orði, því
að öll fullkomnustu þægindi eru
um borð.
íslendingunum um borð ætti
að veitast auðvelt að skemmta
sér í skipinu, því að ekki eru
færri en sex íslenzkir skemmti-
kraftar um borð, þar á meðal
Gunnar Eyjólfsson og Bessi
Bjarnason, Emelía Jónasdóttir,
Karl Einarsson, Alli Rúts og Jón
Gunnlaugsson. Þeir Gunnar,
Bessi og Jón eru allir í hópi
fararstjóranna, en alls eru 14
fararstjórar í þessari ferð, og er
Gunnar Eyjólfsson aðalfarar-
stjórinn.
Fleira mætti nefna, t. d. eru
tvær sund-laugar um borð, kvik
myndasalur, þar sem kvik-
myndasýningar verða daglega,
danssalur, þar sem dans verður
stiginn að kvöldlagi, aðstaða til
borðtennis o. m. fl. Dagblað
verður gefið út um borð og rit-
stýra því Þorbjörn Guðmunds-
son og Tómas Karlsson, rit-
stjórnarfulltrúar.
Blaðamenn ræddu lítillega við
skipstjórann og Guðna Þórðar-
son, forstjóra Sunnu, um borð
i skipinu skömmu fyrir brott-
farartímann. Guðni tjáði okkur
meðal annars, að um % hluti
farþeganna í þessari ferð væri
Björnsson. Verður þar miðlað fcólk. um °§ eldra;
bæði léttu efni og ýmsum fróð- fegja mættl’ að ^t a y.ærl 1
íyrsta smn, sem Islendingum
gæfist kostur á að sigla héðan
leik varðandi viðkomustaði
siglingarleið skipsins.
| með svo glæsilegum farkosti,
Sjúkrahús, með læknum og þar sem öll þægindi eru um
Ennfremur verður rekin um hjúkrunarkonum, er í skipinu, borð, og yrði þetta vonandi ekki
og í þar sem hægt er að framkvæma i síðasta skipti, því að eftir
allar minni háttar aðgerðir, svo | Framihald á bls. 27.
borð íslenzk útvarpsstöð,
stjórnandi hennar er Andrés
Völkerfreundschaft úti á ytri höfn stundarkorni fyrir brotlför baðað íslenzri miðnætursól.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Ásvallagötu 48, hér í borg,
þingl. eign Þráins Hafsteins Kristjánssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á
eigninni sjálfri, mánudaginn 21. ágúst 1967, kl. 11
árdegis.
Borgarfógctaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Fellsmúla 9, hér í borg,
þingl. eign Hallgríms Magnússonar fer fram eftir
kröfu Gjadheimtunnar í Reykjavík á eigninni
sjálfri, þriðjudaginn 22. ágúst 1967, kl. 3.30 síð-
degis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Tempó Tempó
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 41. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1967 á hluta í Hátúni 4, hér í borg, þingl.
eign Hermanns Haraldssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á eigninni sjálfri,
miðvikudaginn 23. ágúst 1967, kl. 10.30 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Hinir sívinsœlu
leika í Búðinni í kvöld klukkan 9-1
Það verður stanzlaust fjör
TEMPÓ BIJÐIIM TEMPÓ
EIMSKIF
Á næstunni ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
4NTWERPEN:
Marietje Böihmer 26. ágúst
Seeadler 5. sept. **
Marietje Böhmer 15. sept.
Seeadler 26. sept. **
HAMBURG:
Goðafoss 19. ágúst **
Reykjafoss 22. ágúst
Skógafoss 30. ágúst
Skip um 6. september.
Reykjafoss 12. sept.
Goðafoss 14. sept. **
Skógafoss 22. sept.
ROTTERDAM:
Reykjafoss 18. ágúst
Skógafoss 28. ágúst
Reykjafoss 8. sept.
Goðafoss 11. september.
Skógafoss 19. sept.
LEITH:
Gullfoss 21. ágúst
Gullfoss 4. sept.
Gullfoss 22. sept.
LONDON:
Seeadler 18. ágúst **
Marietje Böhmer 28. ágúst
Seeadler 8. sept. **
HULL:
Seeadler 21. ágúst **
Marietje Böhmer 31. ágúst
Seeadler 11. sept. **
NEW YORK:
Selfoss 31. ágúst
Brúarfoss 15. sept.
Fjallfoss 29. sept. *
GAUTABORG:
Dettifoss 22. ágúst
Tungufoss 28. ágúst **
K AUPMANNAHÖFN:
Gullfoss 19. ágúst
Tungufoss 29. ágúst **
Gullfoss 2. september
Skip 4. sept.
KRISTIANSAND:
Tungufoss 26. ágúst **
BERGEN:
Tungufoss 31. ágúst **
KOTKA:
Rannö 9. sept.
Dettifoss 20. sept.
VENTSPILS:
Rannö 11. sept.
GDYNIA:
Mánafoss 2. sept.
* Skipið losar á öllum að-
alhöfnum Reykjavík,
ísafirði, Akureyri og
Reyðarfirði.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum, auk þess í
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
Í8
1
j!
EIMSKIP