Morgunblaðið - 18.08.1967, Page 12

Morgunblaðið - 18.08.1967, Page 12
12 MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18, AGUST 1967 Áttrœður: Jón Jónsson fyrrv. Seleyjarformaður VINUR minn Jón Jónsson, fyrr- Iverandi Seleyjarformaður, er átt træður í dag. Aldurinn ber hann Vel svo sem honum er von og vísa, hefir enn spaugsyrði á reið um höndum og alltaf til að ræða um gamla og góða daga. Hann er vistmaður á Elliheimilinu þessa stundina, en þarf oft að skreppa niður að höfn til þess að anda að sér sjávarilminum og láta sig dreyma aftur í árin þegar hann stútaði hákarlinum tog fleiri sjávardýrum í Seley, isællar minningar. Annars er Jón hornfirzkur í ættir. Þar ólst hann upp og komst fljótt í kynni við sæinn, sem var lengi vagga hans og starfsvöllur. Flutti á góð um aldri til Eskifjarðar, þar sem hann stundaði sjóinn meðan nokkur von var til úthalds trillubáta og hákarlafleytna. Svo fór lúinn að gera vart við sig og það var ekkert um annað að gera en Leggjr upp árar, fá sér í nefið og venda sínu kvæði í kross. Fyrir mörgum árum varð Jón fyr ir því slysi að önnur hönd hans varð allt að því óvirk. Hann var ásamt öðrum sunnanmegin Reyðarfjarðar að reka niður staura fyrir botnnót er fiska skyldi síld handa flotanum á Eskifirði. Vildi það óhapp til að I lóðið sem negldi staurana niður j lenti á hendi Jóns í stað þess að vera eins og almennilegum mönn um sæmir að hitta á réttan stað. Við þetta marðist hönd hans svo að þess hefir hann aldrei borið bætur. Þrátt fyrir það hef- ir þetta lítil áhrif á lífsgleði hans. Hann hélt þrátt fyrir þetta áfram að segja brandara, sótti saimkomur og stóð í fremstu fylkingu í dansinum, þrátt fyr- ir það þótt hann í æsku hafi annað lært en að dansa og var merkilegt hvað hann komst oft Sophia Loren vill reyna leiksviðið.... Marino, íítalíu. (Associated Press). SOPHIA LOREN er 32 ára gömul og hefur náð rrueiri frægð á kvikmyndaitjaldimu en nokkur önnur ítölsk leik- kona. En nú vill hún reyna fyrir sér á leibsviði. Það verður ekiki í sígildum leiklhúsverkum, ekki einu sinni ítölskum. Hún segir, að amerískt nútíimaLeikhús sé miklu þýðingarmeira en nokkuð, sem verið er að fást við á Íltalíu. Fyrir hana, sem leikkonu, sé Tennessee Willi- ans bezti höfundurinn. „Það er vegna þess að hann skriifar alvöruhlutverk fyrir konur,“ segir hún. „í leikritum hans eru konur háþróaðar og mikil vægar persónur.“ „Ég er mjög hrifin af Ed- ward Albee líka, bætir hún við. „Ég sá „Hver er hrædd- ur við Virginíu Woölf“ í New York. Það er stórkosfleigt leiik rit. En það hlutverk er svo amerískt, að ég gæti ekki leikið það, — ekki frarnur en Eliaatoeitlh Taylor gæti leikið húsmóður í Napoli." „Ég hef aldrei hitt Tenn- essee Williams, og hann veit sennilega ekfci, hvaða álít ég hef á verkum hans. En ef ég reyni leikisviðið, vildi ég helzt, að það yrði í hlutverki, sem hann hefur skrifað.“ 'Sophia Loren segist þó ekki vera orðin þreýtt á að leika í kviikmyndum. Hún hefur haft þetta starf síðan hún var 15 ára gömul og tojó í fátækra- hverfi í Napoli, er hiún fékk aukahlutverk vegna fallegs útlits síns. Hún segi-st ‘vona, að hún eigi eftir að leika í kvikmyndum um ófyrinsjáan- lega framtíð. Vinna hennar og hjónaband ið við kvi'kmynöafraimleið- andann CarLo Poniti, sem hief- ur leiðbeint h,enni og stutt hana á brautinni til alþjóð- legrar frægðar sem leikkonu, fyllir líf Sophiu. Þótt hún sé geysilega auðuig, lifir hún ein földu lífi. Ponti hjónin búa í glæsilegu einbýlishúisi í Mar- ino, rétt fyrir utan Róm, í nágrenni við sumarhöll páf- ans, Castel Gandiolfo. Hjónin umgangast annað fólk lítið, bjóða sjaldan heim gestum oig fara enn sjaldnar út að slkemmta sér. Þau eru búin að selja íbúð sína í Róm. Soplhia f.er aldrei neitt burtu, netna til að vinna í kvikmynduim eða fyl'gja mánni sínum á viðsfciptaferða lögum. ,4 París förum við stöku sinnum á næturklúto.ba," seg- ir Sophia, ,,en aldrei í Róm. Carlo er frá MiLanó oig Lætur sér mjög annt um vinnu sína. Þannig er ég líka. Við vinn- um, oig þegar við eigum frí, eyðum við því heima hjá okkur.“ „Mér hefur líkað vel að vinna með mörgum leikurum, 'heldur hún áfram. „Gary Grant, Feter Sellers og fleir- um. Én ég hef allitaf tekið Marcello Mastroianni fram yfir alla aðra. Kannski er það líka vegna þess að við urðum næstum samferða til skjótrar frægðar. Við skiljum hvort annað eins og systkin. Þegar við leikum sam.an í kvik- mynd þunfum við aldrei að útskýra n.eitt hvort fyrir öðru. Að leika þannig er einfald- asta og bezta leiðin. Mér líð- ur allitaf stórkostlega vel að vel að leika á móti honum.“ Sophia Loren gerði sér grein fyrir því frá byrjun, að ströng vinna og þróun sannrar leikgetu væru undir- staða þess leikferils, sem hún hafði í huga. „Éig viidi ekki vera aðeins kynbomba. Ég fann strax með því að fylgj- ast með öðr-um stúlkum, sem voru á sama báti og ég, að ég gat gert meira en það. Ég vildi verða raunveruleg leik- kona, og ég er það. Með aldr- inum get ég Leikið eldri per- són.ur á þann eðtilega hát't, sem leikkona þroskast. Þetta er ekfci hægt, ef maður er bara kymboimba.“ Mesta eyðan í lífi hennar er bamleysi þeirra hjónanna. En hún segir, að þótt hún haifi látið fóstur hvað eftir annað, Ihaldi Læknar því fram, að það sé al'ls ekki ómögU'legt, að hún geti eignazt barn. „Eins lsngi og þeir segja, að ég geti eignazt toarn, mun ég vonast eftir að það takist. Sagt hefur verið í blöðusm, að ég sé að hiugsa urn að taka barn til ættleiðín'gar. En það er efcki rétt. Eins lengi og von er til þesis að ég geti sjáLf eignast barn, kemur ekkert slíkt til greina.“ í takt. Stjórnaði hann þá stund- um samkvæminu svo sem bát sínum og fundu kunnugir brátt að þar var skipstjóri kominn og datt ekki annað í hug en að hlýða. Fuku þá brandararnir á hverja hlið og væri það gott efni fyrir þann „næst bezta“ í Morg- unbiaðinu að hafa upp á þeim, enda var aliltaf létt í kringum Jón. Hann var lengi á mínu heira ili á Eskifirði, var þar í kosti og því sátum við oft andspænis hvor öðrum og 'hafði ég þá oft góðan tíma til að veita athygli sögum og bröndurum Jóns og oft komu þær stundir sem ég riifja þessa samveru okkar upp, mér til ánægju og gagns. Jón j sigldi oft einn á báti bæði frá * Vattarnesi og svo heiman frá | Eskifirði, æðrulaus jafnan og ■ kippti sér ekki við þótt ein- j staka ,,feilpúst“ kæmi úr „rokkn j um“ og allar bensínstíflur blés hann úr á svipstundu, hvar sem þær voru og hvaðan sem þær j komu. Um lífssæinn hefir hann I einnig siglt einn síns liðs, ekk- ert púkkað upp á að hafa neitt! í eftirdragi. Hefir þar um að sjálfs er höndin hollust og mað- ur þarf þá ekki að semja við neinn nema sjálfan sig. En ekki þar fyrir að hann hefir kunn- að vel við sig meðal blómarósa og víst er og að þeim hefir held- ur ekki leiðst í návist hans og þótt danssporið hafi kannski ekki verið eftir nýjustu tízku eða af dansskóla, þá held ég að fáar hafi þær verið sem ekki fannst það ómaksins vert að stíga við hann dans um sali Bsfcifj arðarsamkoimustaðina og þótt hnn stigi jafnan svo sem hann væri að fylgja öldunni á úthafinu, þá var það svo að takt urinn bilaði ekki hvað sem í skarst. Og nú er Nonni orðinn áttræð ur. Þrátt fyrir hörð og óvægin átök, er hann ennþá léttur á sér og væri til í eina Seleyjar- ferð eins og í gamla daga, þótt elcki árennileg sé, eftir að þar hefir enginn verið í yfir 40 ár. Ég veit að honum er við- brigði að skipta á Elliheimilinu og hinu iðandi fiskimannalífi, en aðbúnaðurinn á Elliheimilinu og viðmót allt bætir honum upp rnestu viðbrigðin. Ég held að í betri heimkynni hér á landi hefði hann vart getað komist. Ég vil svo kæri vinur, þakka þér góða og ánægjuríka samleið sem ég vona að ég eigi enn lengi eftir að vara, þótt fjar- lægt sé í milli. Þá ósk á ég bezta þér til handa að þú til loka héldir þinni léttu lund og barnslegu gleði og faðir alls lífs megi við hlið þína standa áfram eins og hingað til. A. H. Guðmundur Pétursson hrh: Viðey - athugasemd Þessi mynd var tekin fyrir skömmu af Sophiu Loren, sem nú er 32 ára, heimsfræg og auðug, ásamt eiginmanni sín- um, ítalska kvikmyndaframleiðandanum Carlo Ponti, á flugvellinum í Róm. ÞEGAR ég nýlega kom úr sum- arleyfi, sá ég grein í Morgunblað inu 16. júlí sl., sem Loftur Bjarnason hafði skrifað um m>at á hluta úr Viðey. Grein þessi, sem ber fyrirsögnina: „Varhuga- verður málflutningur — leið- rétting", gefur mér tilefni til eftirfarandi at.hugasemda: Fyrirsögn greinarinnar og raunar greinin sjálf verður tæp- lega skilin á annan hátt, en þann, að ég hafi hallað réttu máli í samanburði mínum á landi Við- eyjar og- landi Stóra-Lambhaga (eign Löfts Bjarnasona). Það er tvennt, sem Loftur Bjarnason telur að beri að leið- rétta í málflutninigi imínum fyr- ir matsdómendum Viðeyjar: Að land hans í Stóra-Lamfo- haga sé 6,8 ha., en ekki 2 ha. eins og ég hafi haldið fram. Að ' landið ,^§é ekki „hruna- hraun á útskaganesi“ eins og ég vilji vera láta. Hann getur þess, að landið sé af sér tekið í því skyni „að reisa þar hin stórkostlegustu mannvirki, þar á meðal hafnar- gerð 'fyrir miklu stærri skip en áður hafa lagzt við bryggju eða bólverk á landi hér“. Við sunnanvert Viðeyj.arsund er verið að byggja framtíðar- höfn Reykjavíkur. Þess verður ekki langt að bíða, að Viðey verði tengd við land með granda, og koma þá að sjálf- sögðu bólverk og bryggjur þeim megin. Strandilengja Viðeyjar er því á sama hátt og strandlengja Stóra-Lam'bhaga mjög verðmæt beinlínis vegna hafnarmögu- leika. Var það og er það því skoðun mín, og ég hefi í mál- flutningi fulla heimild til að lýsa skoðunum mínum, að eng- inn samanburðargrundvöllur sé til á þessum tveimur löndum, annar en á „fastalöndunum“, þ.e. að fjörustærðit eða ifjöru- réttindi skipti ekki máili. Jafn- vel þótt fjaran í Straumsvík sé stærri en fjaran í Viðey, en fjar an þár var ekki mæld út að að stórstraumsfjöruborði, svo sem gert var í Straumsvík, þá e.r það mín skoðun, að aðstaðan til hafn argerðar sé svo mun hagstæðari í Viðey að hún jafngildi þeim mismun. Ég segi líka orðrétt í greinargerð minni: „Jafnvel þótt um langan ald ur dragist að gera hafnar- mannvirki í Viðey, sem þó hlýtur óhjákvæmilega að verða gert þegar stundir líða, þá er eyjan þannig staðsett þar æm hún liggur móti eða raunverulega í framtíðarhöfn Reykjavíkur, að verðmæti hvers ferm. er sízt of hátt reiknað í kröfugerð minni“. 'Samkvæmt mælingum Ágúst- ar Böðvarssonar var landið í Stóra Lambhaga mælt þannig: 1. Land að meðalstórstraum.s- flóðborði — 2,24 ha. 2. Tjörn — 0,19 ha. 3. Fjara frá meðalstórstraums- flóðfoorði að meðalsjávarmáii — 1,50 ha. 4. Fjara frá meðalsjávarmáli að meðalstórstraumsfjöruborði — 2,15 ha. Samtals 6,08 ha. Sést hér, að „fastailandið“ er 2,24 ha. og þótt Lofti Bjarna- syni sé ókunugt um það, er ég að gera isamanburð á „fasta- löndum“ beggja staðanna, sbr. ofanritaðl 'Hitt atriðið, „brunahraun á út skaganesi“, læt ég mér í léttu rúmi liggja. Bæði matsdómaram ir og málflutningsmaður ríkis- ins þekkja vel til staðhátta og staðsetningar Stóra-Lambhaga. Náttúrufegurð st.aðarins hefi ég aldrei dregið í efa, þótt ég per- sónulega telji fegurð Viðeyjar. mun meiri, en fegurðarsjónar- mið mun á hvorugum staðnum hafa haft áhrif á matsfjárhæð- irnar. I niðurlagi greinar sinnar get- ur Loftur þess, að hann hafi ekki boðið Stóra-Lambhaga til sölu. Sama gildir um Stephan Stephansen hvað Viðey snertir. Ég neita því afdráttarlaust að málflutningur minn í Viðheyjar mati hafi á nokkurn hátt verið varhugaverður. Skal þess sér- staklega getið að fyrir nokkru var ég boðaður á fund .hjá mats- nefnd Viðeyjar, einmitt vegna greinar Lofts Bjarnasonar. Þar var bókað: „Nefndarmenn eru sa.nmála um það að framkomin blaða- skrif og athugasemdir rnats- aðila vegna svonefndis Straums víkurmats bneyti engu um matsniðurstöðu nefndarinnar, sem hvíldi á öðrum forsend-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.