Morgunblaðið - 20.08.1967, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST
Alan Williams:
PLATSKEGGUR
Það var alger undantekning —
það var eftir sprengjuárásina og
ég var ein, og þurfti einhvers
með. Sama hver það væri. Ég
var dálítið brjáluð þetta kvöld.
Hún beindi dökku augunum að
honum. — Mér þykir það leitt,
en allt breytist. Það er svo margt
.... sem er að gerast hér nú og
ég get ekki sagt þér frá. Vertu
saell. Hún kyssti hann ekki, en
sneri sér snöggt við og gekk
burt og hann horfði á eftir henni
með þrá og særðu stolti. Að baki
honum hló Le Hir dátt, og virt-
ist ekki kenna neitt vanlíðarinn-
ar, sem þjáði Neil. Á morgun er
aftur dag.ur, hugsaði Neil. Hann
var með höfuðverk og nú gekk
hann yfir til Nadiu til þess að
fá í glasið aftur.
6. kafli.
Dögunin kom og úti á sjónum
var guli liturinn ríkjandi, en
inni í borginni var skuggalegt
af hitabeltisrigningu. Nadia vakti
Neil klukkan hálf sex með svörtu
kaffi og hálfmánum og ferskum
appelsínusafa.
Hann rakaði sig vandlega, rétt
eins og leikari fyrir frumsýn-
ingu. Þetta skyldi verða sigur-
dagur hans. Inni í salnum var
Le Hir þegar farinn að bíða
eftir honum, íklæddur kakíregn
frakka með belti, og hélt á skjala
tösku. Hann átti að vera fyrir
vopnaða sex manna hópnum,
sem skyldi bera ábyrgð á ör-
yggi Guérins hershörfðingja.
Hann kinkaði kolli til Neils. —
Vildirðu fá þér eitt glas af
ákavíti áður en við förum.
Neil þá það og þeir
skáluðu hvor við annan í sterK-
um veigum, sem hann gleypti
í einum sopa.
Klukkan fimm minútur fyrir
sex komu þýzkararnir tveir.
Þeir drukku lika glas af ákavíti
og klukkan sex gengu allix fjór-
ir niður eftir götunni.
Þeir komust út úr götuvirkja-
hringnum gegn um bakdyrnar á
húsinu, sem Neil og Anne-Marie
höfðu notað þennan fyrsta morg
un fyrir fimm dögum. Gatan
handan við virkin var næstum
manntóm, og með gráum fitu-
gljáa í morgunskímunni. Hreyf-
anleg fallbyssa stóð við gang-
stéttina og tveir fallhlífarher-
menn í dulbúnum regnslögum
sátu reykjandi inni í fallbyssu-
skýlinu.
Svarti Peugeot-bíllinn beið
úti fyrir og ekillinn var sami
stóri maðurinn í nankinsskyrt-
unni, sem þau höfðu haft fyrs+a
morguninn. Þrátt fyrir rigning-
H & R Johnson Ltd.
NEFNIÐ
HAEMONY
OG ÞÉR FÁIÐ ÞAÐ FALLEGASTA
Harmony, einlitu og æðóttu postulínsflísarnar frá
H&R Johnson, þykja sérstaklega smekklegar.
Sannfærizt sjálf með því að skoða í byggingar-
vöruverzlunum litprentaða bæklinga, þar sem sýnd-
ir eru allir helztu möguleikar í litasamsetningum.
Biðjið verzlunarmanninn að sýna yður HARMONY
flísarnar og HARMONY bæklinginn — og hann er
með á nótunum.
HARMONY flísarnar fáið þér hjá eftirtöldum bygg-
ingavöruverzlunum:
:jg: Byggingavöruverzlun Kópavogs
™ Kársnesbraut 2, Kópavogi, slmi 41010.
H. Benediktsson hf.
™ Suðurlandsbraut 4, stmi 38300.
■j Járnvörubúð KRON
™ Hverfisgötu 52, sími 15345.
Isleifur Jónsson hf., byggingavöruverziun,
™ Bolholti 4, simi 36920.
KEA byggingavörudeild,
™ Akureyri, sími 21400.
■yin Byggingavöruverzlun Akureyrar
™ Glerárgötu 20, stmi 11538.
f.-i Sveinn R. Eiðsson
™ Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði.
Einkaumboð:
John Lindsay hf.
AÐALSTRÆTI 8, SÍMAR 15789 OG 10960
una, var hann enn með sólgler
augun sín.
Klukan var 6.11 er þeir óku
af stað. Nú reið á miklu að vera
stundvís. Neil hafði reiknað út
stundatöfluna uppá rnínútu, og
gerði sér ljóst, að ef annar að-
ilinn yrði ekki nákvæmlega
stundvís, mundi öll fyrirætlun
fara út um þúfur. Nú fékk hann
að reyna þessa óþolandi spennu,
sem kvikmyndastjóri fær að
reyna, eftir að hafa þrælað tím-
unum saman og sér nú verk sitt
koma smámsaman í ljós, hvert
smáatriðið eftir annað. Þetta
veitti horium tvöfalda fullnæg-
ingu: að sjá menn eins og Le Hir
vinna samkvæmt því, sem voru
raunverulega hans eigin fyrir-
skipanir, þetta hressti sjálfs-
traust hans, sem Caroline hafði
gert sitt il að eyðileggja, en svo
var hann jafnframt stoltur af
því að vera raunverulega að
verða öllu mannkyninu að gagni.
Ekillinn ók þeim eftir leið, sem
Le Hir hafði ákveðið af mikilli
nákvæmni, í návist Neils, til
þess að forðast að lenda innan
um hreyfanlegu verðina og CRS
38
menn inni í borginm. Þeir óku í
sautján mínútur, sneru svo inn
í skuggalega götu með hálfvisn-
um pálmum til beggja hliða og
stönzuðu loks við krá eina, þar
sem nokkrir járnstólar stóðu úti
í rigningunni.
Enginn í bílnum sagði orð.
Klukkan var 6.28. Stundvíslega
klukkan 6.30 komu tveir Citroen
bílar á svo mikilli ferð, að hvein
í öllum hjólbörðum, og stönz-
uðu sinn hvorum megin við
Peugeot-bílinn. Neil varð hrif-
inn af þessari stundvísi. Hann
kinkaði kolli til Le Hir: — Ég
vona, að Arabaherinn sé svona
stundvís.
Le Hir svaraði þessu engu.
Þýzkararnir opnuðu dyrnar og
þeir stigu út í rigninguna. Það
var aðeins einn ekill í hvorum
Citroen-bílnum. Ásamt Le Hir og
þýzkurunum tveimur voru þarna
komnir fimm af sex manna líf-
verðinum. Neil og Le Hir stigu
upp í annan Citroen-bílinn, en
þýzkararnir inn í hinn. Á gólf-
inu lágu tvær vélbyssur og tvær
nýjar númeraplötur. Hurðirnar
skelltust aftur og bílarnir tveir
óku af stað samsíða, en skildu
Peugotbílinn eftir úti fyrir
kránni.
Neil sá hraðamælinn stíga upp
fyrir 100 kílómetra. Hann tók eft
ir því, að aftan á hálsinum á
eklinum voru ílöng ör.
Þarna var lítil umferð. Einu
sinni mættu þeir lest af herbíl-
um sem óku inn í borgina í
fylgd vélhjólamanna, síðan
beygðu þeir inn á vagnbraut,
sem hlykkjaðist út í þokuna, og
svo hvarf útborgin en við tóku
bændabýli, dreifð um flata
tóbaksakra. Þarna voru engar
vegatálmanir.
Neil hallaði sér aftur í mjúkt
sætið og sagði til þess að segja
eitthvað: — Veðrið virðist ætla
að fara að verða eins og í Eng-
landi.
Le Hir starði þegjandi fram
fyrir sig, og hélt dauðahaldi um
skjalatöskuna. — Veðrið er eins
gott og það getur verið, sagði
hann.
Neil þagði. Hann var bersýni-
lega ekki í neinu skrafskapi.
Vísirinn á hraðamælinum var
nú kring um 180 og þautv í bíln-
um af hraðanum og Neil beið
órólegur eftir því, að einhver
Arabi með asnakerru, tefði för
þeirra. En vegurinn var alauð-
ur og kom þjótandi út úr þok-
unni líkast kjaftinum í mjóum
jarðgöngum, og þeir óku nú
með meira en hundrað mílna
nraða, og héldu þannig áætlun-
mni, áem Neil hafði reiknað út
svo vandlega.
Eftir að hafa ekið fimmtán
kílómetra eftir tvöfalda akveg-
ium, beygðu bílarnir út af hægri
brautinni og inn á afleggjarann,
sem lá upp til fjallsins. Neil
hafði athugað vandlega stað
bóndabæjarins eftir kortum.
Þetta var sléttlendi en þó ofur-
lítið á fótinn, en þokan fór vax-
andi og huldi næstum alveg fjails
hlíðina fram undan. Hann minní
ist þess, að staðurinn var val-
inn á opnu svæði, þar sem ekki
varð launsátri við komið. En nú
tók hann að velta því fyrir sér,
hversu mikil áhrif veðrið gæti
haft á þessar öryggisráðstafan-
ir. Hann leit á Le Hir ,sem sat
þegjandi og með hörkusvip á
andlitinu. Neil sagði: — Mér
er illa við þessa þoku. Hún get-
ur gert okur erfiðara fyrir, er
það ekki?
— Þokan gerir okkur ekkert til
sagði Le Hir, sem starði enn
fram fyrir sig. — Þetta gengur
allt sinn gang. Þú verður vernd-
aður.
Um leið og hann sagði þetta
beygði Citroen-bíllinn út af veg-
inum og inn á stíg. Fram undan
þeim stóð brúnleitur Jaguar
Mk 10.
Citroen-bílinn stanzaði við
hliðina á honum. Ekillinn hljóp
út og hélt hurðinni opinni, og
Neil og Le Hir stigu út. Hinn
Citroen-bílinn með þýzkurunum
í, hafði stanzað bak við Jaguar-
inn.
Neil hafði heyrt getið um þenn
an bíl. Gul rimlatjöld voru dreg-
in niður fyrir hliðarnar og aft-
ari gluggana, sem voru með
skotheldu gleri. Vagninn hafði
allur verið styrktur með stál-
plötum og barðarnir voru sjálf-
lokandi. Bíllinn hafði verið
smíðaður sérstaklega fyrir Gué-
rin, meðan hann var yfirhers-
höfðingi Verndarríkisins, til
tryggingar gegn morðtilraunum
hermdarverkamanna Araba-hers
ins. Það var eitt hégómaatriði
hershöfðingjans, að hann þorði
enn að nota bílinn til einkaþarfa
enda þótt öryggissveitirnar
þekktu hann mætavel í sjón.
Le Hir opnaði afturdyrnar á
Jaguarnum, heilsaði og talaði
svo við einhvern, sem sat afturí,
en veik síðan til hliðar. Neil laut
fram og bograðist síðan inn í
myrkrið í bílnum, þar sem hann
fann ofurlítinn grenilim. Ekill-
inn hafði snúið sér til að líta á
hann, hann sat innan við milli-
gerð úr gleri og hélt á vélbyssu
í kjöltu sér. Þá var sjötti varð-
liðinn kominn.
Neil leit yfir leðursætið og á
manninn, sem sat úti í borninu.
Hann leit út ellilegri og minni,
en ráða mátti af myndum. Hár-
ið var þunnt og eins og gagnsætt
með silfurgljáa, greitt beint upp
af háu enninu, svo að hann sýndi
ist næstum sköllóttur. Hann
hafði sterkan munnsvip og góð-
an vangasvip, en pokar voru
undir augunum gulir eins og
kjúklingaskinn og hann var með
einhvern gulusvip manns, sem
sefur efcki vel. Hann sat með ann
an olnbogann á mjúku bríkinni
milli þeirra, og pírði á Neil i
röndóttri birtunni, sem kom inn
um rimlatjaldið. — Svo að þér
eruð hr. Ingleby? sagði hann
loks, hægt og vingjarnlega.
GEGN
STAÐGREIÐSLU
Síðasti dagur
til að gera
kostakaup
Opið til kl. 10
í kvöld,
komið og skoðið
unahf
AUÐBREKKU 59
HÚSGAGNAVERZLUN
KÖPAVOGI SiMI 41699