Morgunblaðið - 02.09.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. SEPT. 1967
BÍLALEIGAN
■ FEHD-
Daggjald kr. 35«,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
IKIPHOi.u2l SiMAR21190
eftirlokun simi 40381 ”
»íS3>SÍM' 1-44-44
\mimiR
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokon 3110«.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 1L
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið < leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundiangaveg 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
4-7==’B/lAir/GA/t
RAUOARARSTÍG 31 SfMI 22022
SNUUI
FYBIRHOFN
Hest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
(Jtvarps- og sjónvarpstæki
Kafmagnsvörubúðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670 (næg bílastæði).
Goli
KYLFUR
BOLTAR
og fleira.
P. Eyfeld
Laugavegi 65.
Ms. Esja
£er austur um land í hring-
ferð 6. þ. m. Vörumóttaka á
föstudag og mánudag til
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Vopnafjarðar, Raufarhafnar,
Húsavíkur, Akureyrar og
Siglufjarðar.
Farseðlar seldir á mánudag.
Vkr Sjónvarpið rétt
einu sinni enn
G. J. skrifar:
„í>að er mikið talað og skrif-
að um sjónvarp hér á landi, en
flestir virðast á einu máli um
það, að ekki beri að fjölgá út-
sendingardögum ísl. sjónvarps
ins. Rök fyrir því hafa verdð
sett fram, svo ég ræðd þau ekki
nánar. Þrátt fyrir mótmæli
flestria, virðist sjónvarpsráð eða
hverjir svo sem með þessi mál
fara samt ætla að fjölga sjón-
varpsdögum. Hv-ar annars stað
ar á byggðu bóli ætli það þekk
ist, að verið sé að troða upp á
fólk ókeypis varningi. í þessu
tilifelli skemmtdefni o. fl., gegn
mótmælum þess? Sem sé. Sjón
varpið ætlar sér að leggja í
gifurlegan kostnað að nauð-
synjalausu til að gefa fólki
hluti, sem það kærir sig ekki
um. Ég segi gefa, því að ekki
er hægt að reikna með að ár-
gjaldið hækki, vegna fjölgunar
sjónvarpsdaga. Sé sú raunin á
samt sem áður, kemur að sjálf
sögðu ekki til greina að fjölga
dögunum. Þá er beinlínis ver-
ið að inn/heimta hjá fólki fé
fyrir það, sem fólk óskar ekki
eftir.
Sá hins vegar reiknað með,
að í þessu 2400 króna gjaldi
sé miðað við 6 daga sjónvarp,
væri okkur sjónvarpsnotend-
um miklu kærkomnara, að
gjaldið yrði lækkað, eða þá
mismunurinn notaður til þess
að gera 4 daga dagskrá vand-
aðri. Einhvers staðar hefur
sézt á prenti, að nauðsynlegt
s að fjölga dögunum til þess
að hægt sé að loka fyrir Kefla
víkurstöðina. Þetta eru skrít-
in rök. Því í ósköpunum er
ekki hægt að loka fyrir banda-
ríska sjónvarpið, þótt hið ísl.
sé opið í 4 daga í stað 6. Sem
sé, ef nauðsynlegt er að loka
Keflavíkursjónvarpinu, er eng
in þörf að fjölga útsendingar-
dögunum þess vegna.
Hitt er svo annað mál, að ég
get ekki séð hver nauðsyn er
í því að loka því bandarísika.
Ég hef ekki átt sjónvarp lengi
en skal viðurkenna, að fyrst
eftir að ég fékk tækið horfði
ég mikið á Keflavíkursjónvarp
ið, og er það víst svo um flesta
á meðan nýja brumið er á.
Núna, aftur á móti, er ég far-
inn að velja og hafna. Horfi
ekki nema á einstaka þætti og
þær kvikmyndir, sem mér
falla í geð. Opna ekki fyrir
það, sem ég hef ekki áhuiga
fyrir.
Annars get ég ómögulega séð
hið siðspillandi og forheimsk-
andi efni, sem andstæðingar
Keflavíkursjónv. eru alltaf að
tönnlast á. Sé um eitthvað slikt
áð ræða, má nákvæmlega það
sama segja um ísl. sjónvarpið.
Við skulum taka nokkur
dæmi: Glæpamyndir, eru þær
ekki ein aðaluppistaðan í ísl.
sjónvarpinu, og hvað vinsæl-
astar. Kúrekamyndir, slíkt sýn
ir hið íslenzka jafnvel í barna
tímum. Nei, í bandaríska sjón-
varpinu er sýnt margt efni,
sem að fróðleik og vandvirkni
ber af því, sem hið íslenzka
mun nokkru sinni getað sýnt.
Sem ekki er að furða, þar sem
efnið er sótt til sjónvarpsst.
stórveldis. Auðvitað er margt
lélegt innan um, en hefur ekki
sést slíkt einnig í því íslenzka?
Það má kannski segja, að ýms
ar stríðsfréttamyndir séu nokk
uð hroðalegar, en slíkt sést
einnig stundum í því íslenzka,
enda vart hjá slíku komizt. Ég
vona, að enginn taki þessi orð
mín svo, að ég sé að deila á
íslenzka sjónvarpið fyrir lélega
frammistöðu. Alis ekki. ís-
lenzka sjónvarpið hefur staðið
sig með mikilli prýði. Vildi að-
eins benda á staðreyndir. Ég
minntist á glæpamyndir áðan.
Ég er viss um að sakamála-
þættir og myndir hvetji menn
ekki til afbrota, eins og einn
skrifar Velvakanda Mbl. ný-
lega álítur. Ég held fremur,
að slíkt efni hafi örug áhrif.
Sporni við því að menn fremji
afbrot. Slíkir þættir eru þann-
ig gerðir, að skálkurinn hlýt-
ur oftast, ef ekki alltaf, sín
makleg málagjöld.
Og það má segja Keflavík-
ursjónvarpinu til verðugs hróss
að þar sést aldrei né heyrist
klám — hvorki í kvikmyndum,
sem það velur né öðrum þátt-
um. Er vonandi, að íslenzka
sjónvarpið verði þar á verði.
Ég veit ekki hvers konar efni
er sýnt í sjónvarpi hinna Norð
urlandanna, en sé það eitthvað
í líkingu við flestar þær kvik-
myndir, sem þaðan berast, eink
um þó sænskra, þá hjálpi Guð
börnunum þar.
í stuttu máli: Mín tillaga er
þessi. Alls ekki að fjölga sjón-
varpsdögum úr 4. Tel ekki
nauðsynlegt að loka Keflavík-
ursjónvarpinu, en eigi að loka
því hvort sem er, þá má eins
loka því, þótt hið ísl. fjölgi
ekki dögum.
Varatillaga: Séu ráðamenn
þrátt fyrir allt ákveðnir í að
fjölga dögum um 2, því ekki
að sýna þá á eftirmiðdögum
þessa daga, t.d. kl. 4—6 eða
5—7. Það yrði þá nokkure kon
ar sjóiwarp fyrir þá ,sem heima
sitja“. Með því yrðu þá eftir
sem áður 2 ,fríkvöld“ hjá fólki.
Nú, og ekki yrði það verra
fyrir starfsmennina, sem vinna
að útsendingu. En, kannski að
það hafi alltaf verið ætlunin.
G. J.‘
★ Svifreiðin „Sleipn-
ir“
„Þegar ég heyrði í út-
varpinu tillögu um nafnið
„Gandreið" á hinu nýja farar-
tæki (svifnökkvanum), sem
kominn er hingað til reynslu,
kom mér í hug, hvort ekki
hentaði vel nafnið „Sleipnir",
nafnið, sem hinn fornfrægi
hestur Óðins átti að hafa bor-
ið. Mér sýnist svo, að báðir
eigi þeir það sameiginlegt að
geta farið jafnt yfir láð og
lög. Skilar þessum farkosti svo
vel áfram, að mér finnst vel
til fundið, að það beri þetta
forna og fallega nafn.
Með þökk fyrir birtinguna..
K. Guðl.“
Velvakanda datt í hug „svif-
reið“ (sbr. bifreið) eða „renni-
skeið“, en skeið er fornt skips
heiti. Það orð er þó líka til í
merkingunni hlemmiskeið.
Sleipnir væri hins vegar ágætt
sem sérheiti á farkostinum,
Gandreið er della í þessu sam-
bandi. Velvakandi hlýddi á tal
tveggja manna, sem voru að
skemmta sér við að búa til orð
yfir gripinn, og man úr því
hjali löglíðandi og nýinói.
Athugasemd við
sjónvarpsþátt
„Ein óánægð" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Það er vegna þáttarins í sjón
varpinu 16. ágúst um Tómas
Guðmundsson skáld, sem ég
skrifa. Það var gaman að við-
talinu og kvæðin gullfalleg, en
tónlistin var hreint morð.
Lagið: „Við Vatnsmýr-
ina“ — ein af perlum
Sigfúsar Halldórssonar var
mitt uppáhaldslag. Mér fyrir
mitt leyti finnst, að úr því að
þátturinn var endurfluttur,
hefðu þeir ágætu sjónvarps-
menn getað breytt tónlistar-
flutningnum, t.d. með því að
Sigfús hefði sungið lögin og
spilað undir. Svo hefði mátt
sýna myndir úr Reykjavík,
meðan spilað var, það eru hæg
heimatökin að ná góðum mynd
um úr Reykjavík; mér fannst
þær of fáar.
Vertu blessaður.
Ein óánægð."
Mikið úrval
af GOOD YEAR gólfflísum og NEODON og DLW
góifteppum. — Gott verð.
LITAVER S.F., Símar 3«280, 32262.
Trésmiðir
Vantar nokkra vana trésmiði
helzt vana innréttingum. Upplýsingar í
síma 36710 eða 19407 á kvöldin.
237 austurrísk frimerki úkeypis
Um fjögurra vikna skeið hlýtur nú sérhver lesan’di
ókeypis 237 hinna fegurstu Austurríkis-frímerkja,
sérmerki og betri tegundir eftirstríðsgilda, af-
greidd um leið og hann kaupir stóra „lúxus“-
böggulinn sem inniheldur 3150 dýrleg mismunandi
safnarafrimerki, mynda-merki (andvirði sam-
kvæmt verðlista yfir 450 Michel-mörk) fyrir gjaf-
verðið: aðeins 500 krónur gegn póstkröfu, fullur
réttur til skipta.
Engin áhætta! Allir verða stórhrifnir!
Sendið í skyndi póstkort og biðjið um „lúxus“-
böggul nr. 2, aðeins hjá MARKENKÖNIG, Bra-
endströmgasse 4, Mozartstadt SALZBURG, Öster-
reich.
BLADBURÐARFOLK
OSKAST
í eftirtalin hverfi
Laugaveg, neðri — Hávallagötu — Aðalstræti —
Kjartansgat — Bergstaðastræti.
Ta/ið við afgreiðsluna i sima 10100