Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
54. árg. 284. tbl.
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1967.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
NAT O-fundir
í Briissel
Brezka hafskipiS „Queen Mary“ er nú hætt siglingum. Skipið kom til Long Beach í Kaliforníu
s.l. laugardag þar sem því verður breytt í fljótandi sjódýrasafn og samkomuhús. — Myndin er
tekin við komu skipsins til I.ong Beach þar seim því var vel fagn :ð eins og sjá má.
Jean Rey forseti stjórnarnefndar EBE:
HRÆÐILEG OSANNGIRNI
— ef umsóknir Brefiands, Danmerkur,
Noregs og Irlands verða virtar að vettugi
Briissel, 12. des. NTB-AP.
JEAN REY, forseti stjórnar-
nefndar Efnahagsbandalagsins,
lýsti því yfir á ráðherrafundi
Þingkosningar
í Danmörku
23. janúar?
Kaupmannahöfn, 12. des.
— NTB —
ÓVISSA ríkti enn í morgun
um þingmeirihluta dönsku
stjórnarinnar og fleiri og
fleiri þingmenn gera nú ráð
fyrir þeim möguleika, að kosn
ingar verði látnar fara fram
til þjó'ðþingsins í byrjun
næsta árs og er 23. janúar
talinn sennilegastur kjördag-
ur.
Það er gengisfelling dönsku
krónunnar, sem skapað hefur
þetta ástand. Tillögur stjórn-
arinnar um, hvernig skipta
beri þeim byrðum, sem gengis
fellingin kemur til með að
hafa í för með sér, verða tekn
ar til síðustu umræðu á föstu
daginn kemur í þjóðþinginu
og stjórninni hefur enn ekki
tekizt að tryggja sér meiri
hluta fyrir tillögum sínum.
Borgaraflokkarnir eru andvíg
ir tillögum hennar, og SF-
flokkurinn, sem stutt hefur
stjórnina, er klofinn í af-
stöðu sinni til tillagnanna.
Stjórnin getur reiknað með
stúðningi hægri arms flokks-
ins, en það mun ekki nægja
til þess að tryggja meiri hluta
fyrir tillögunum í þjóðþing-
inu.
bandalagsins í Briissel í dag, að
alvarlegar deilur myndu koma
upp bæði innan og utan þess, ef
umsóknir Bretlands, Noregs,
Danmerkur og frlands um inn-
göngu í bandalagið yrðu virtar
að vettugi. Kallaði Rey það
„hræðilega pólitiska ósanngirni“,
er slíkt ætti sér stað nú, einmitt
á þeim tíma, þegar Evrópa hefði
meiri þörf fyrir einingu en
nokkru sinni fyrr.
Jeán Rey bar fram tilboð
stjórnarnefndarinnar um að
miðla málum varðandi stækkun
Efnahagsbandalagsins.
— Ég vil benda meðlimaríkj-
unum á, að ef slík málamiðlun
á sér ekki stað, mun koma upp
mjög alvarlegt ástand, sagði
hann. Rey bætti því við, að það
væri enn álit stjórnarnefndar-
innar, að vandamálin ætti að
ræða í skipulegum viðræðum við
þau lönd, sem hefðu sótt um
inngöngu. .
Enn fremur flutti Rey ráð-
herranefndinni aðvaranir frá
brezku stjórninni. Hann sagði,
að á meðan hann dvaldi í
London fyrir skömmu, hefði
brezka stjórnin lagt áherzlu á
fjögur atriði:
1. Stjórnin vænti svars við
umsókn sinni frá ráðherranefnd
Efnahagsbandalagsins.
2. 'Stjórnin eygir enga mögu-
leika á því, að framkvæma hug-
myndina um aukaaðild. Erfitt
yrði, að ákveða grundvöllinn
fyrir aukaaðild og samningavið-
ræður um hana myndu verða
jafnerfiðar og viðræðurnar um
fulla aðild.
3. Stjórnin hefði yfirleitt
engan áhuga á takmörkuðum
lausnum vartdamálanna.
4. Stjórnin fengi ekki séð,
hvernig hún gæti haldið áfram
að eiga sameiginlegra hagsmuna
að gæta með löndum Efnahags-
bandalagsins, ef leiðinni til
fullrar aðildar verður lokað.
*
Bretland á vegamótum
Rey skýrði svo frá, að Harold
Wilson, forsætisráðherra, hefði
lýst því yfir frammi fyrir sér,
að Bretland stæði nú á vegamót-
um, og George Brown, utanríkis-
ráðherra, hefði sagt, að tíminn
væri naumur og nauðsyn væri á
skjótri lausn.
Frakkinn Raymond Barre,
varaforseti nefndarinnar, sem er
talsmaður hennar í efnahags- og
fjárhagsmálefnum, og sem brezk
blöð hafa sakað um að vera and-
vígan umsókn Breta, gerði grein
fyrir áliti nefndarinnar á efna-
Framihald á bls. 31
Brussel, 12. des. (AP-NTB)
VARNARMALANEFND Atlants-
hafsbandalagsins og varnarmála-
ráðherrar 12 aðildarríkja þess,
komu saman til fundar í Bruss-
el í dag, en fundir utanrikisráð-
herra NATO hefjast þar á morg-
un.
f Varnarmálanefndinni eiga
sæti fulitrúar 12 af 15 aðildar-
ríkjum, eða frá öllum ríkjum
bandalagsins nema fslandi, Lux-
embourg og Frakklandi.
Á fundinum í dag var sam-
þykkt að koma upp sameigin-
legum tundurspillaflota aðildar-
ríkjanna til eftirlits á Atlants-
hafi, og að miða varnir á landi
við það, að hafa takmarkaðan
fastaher, sem auðvelt er að flytja
fyrirvaralítið til þeirra lands-
svæða, þar sem hugsanlegt er að
til árekstra kunni áð koma.
Undanfarin þrjú ár hafa flota-
deildir aðildarríkjanna haft lang
varandi sameiginlegar flotaæfing
ar á Atlantshafi, og hafa sam-
eiginlegar æfingar með þátttöku
tundurspiila staðið í allt að hálft
ár.
Innan varnarmálanefndarinnar
starfar kjarnorkuráð skipað full-
trúum þeirra 12 sömu ríkja og
nefndin. Kom kjarnorkuráðið
saman í dag til að ræða sérstak-
lega ýms atriði sameiginlegra
kjarnorkuvárna.
Strokuhermaður
kærður fyrir smygl
Bandaríkjamaður handtekinn í Sovét-
ríkjunum með 7 kíló af hashish
Moskvu, 12. des. (NTB)
TILKYNNT var í Moskvu í dag,
að fyrir skömmu hafi verið hand
tekinn Bandaríkjamaður nokkur
í Tashkent, Steven Zipper að
nafni, og sakaður um tilraun til
að smygla eiturlyfjum til Sovét-
ríkjanna. Fundust sjö kíló af
hashish í vösum hans og í ieyni-
hólfi í tösku hans.
Við komuna til Tashkent
kenndi Zipper lasleika og var
fluttur í sjúkrahús. Eftir nokkra
iegu þar tilkynntu sovézk yfir-
völd, að þau hefðu fallið frá á-
kæru á hendur honum, meðal
annars vegna þess, að hann hafði
strokið úr herþjónustu í Víet-
nam.
I Sovétríkjunum er litið mjög
alvarlegum augum á eiturlyfja-
smygl, og er það í lögum flokk-
að með vopna- og sprengiefna-
smygli, sem refsa ber með allt
að tiu ára fangelsisdómi.
Steven Zipper var á heimleið
frá Indlandi og kom við í Tash-
kent. Þar á flugvellinum var leit-
að í farangri hans og fundust þá
fimm kíló af hashish í plastpok-
um vandlega földum ; leynihólfi
í töskunni. Auk þess var Zipper
með tvö kíló af eiturlyfinu í vös-
um sínum. Sjálfur virtist hann
undir áhrifum eiturlyfja og var
lagður í sjúkrahús.
Við nánari rannsókn kom ýmis
legt það í ljós — segir blaðið
Komsomolskaya Pravda, mál-
gagn æskulýðsfylkingarinnar
sovézku — sem leiddi til þess,
að ákveðið var að falla frá á-
kæru. Zipper var snauður stærð-
fræðistúdent, sem neytti eitur-
lyfja í þeim tilgangi að komast
undan efasemdum sínum varð-
andi bandaríska þjóðfélagið í
heild og undarr taugaspennu nú-
tímans. Það var Zipper mikið á-
Framhald á bls. 31
Dr. Banda styður Bandaríkin
Stendur með Israelsmönnum og vill samvinnu við S.-Afríku
Zomba, Malawi, 12. des.
(NTB)
DR. Hastings Banda, for-
seti Malawi, lýsti því yfir í
þingsetningarræðu í höfuð
borginni Zomba í dag, að
bann væri eindregið fylgj-
andi stefnu Bandaríkjanna
í Vietnam, stæði einhuga
með ísraelsmönnum í deilu
þeirra við Araba, og að
hann hyggðist halda áfram
að vinna að nánari sam-
vinnu við Suður-Afríku.
Forsetinn sagði í ræðu
sinni, að hver sá sem for-
dæmdi styrjaldarrekstur
Bandaríkjanna í Vietnam,
ekki um hvað hann
vissi
væri að tala. Hann sagði,
að NorðurVietnam og
Kína væru árásaraðilarnir,
og að ef Bandaríkin köll-
uðu hersveitir sínar heim
frá Suður-Vietnam, væru
Ástralíu, Nýja-Sjálandi og
Afríku steypt í voða.
Varðandi deilurnar fyrir
botni Miðjarðarhafsins,
sagði dr. Banda, að Araba-
ríkin yrðu að sætta sig við
þá staðreynd, að ísraels-
ríki væri þarna til fram-
búðar, og að þau hefðu
ekki um nema tvennt að
velja: annað hvort að við-
Framlhald á bls. 31
Dr. Hastings Banda