Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1%7
í'—£■
f
Rússajeppi árg. 1959, með vönduðu húsi og mjög vel útlítandi til sölu strax. Uppl. í síma 16056 milli kl. 12-1 og 6-8.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLA STILLING H.F. Súðavogi 14 - Sími 30135.
Hreingerningar Gerum hreint með vélum, íbúðir, stofnanir, skrifstof- ur. Fljót og örugg þjónusta, vanir menn. Ræsting sf. — Símar 13032 og 14096.
Ódýr og falieg jólagjöf Sokkahlífar í mörgum lit- um, stærðir 22—39. Úrval af dönskum töfflum. Gull- og silfur-sprautun. — Skó- vinnustofan við Laugalæk, sími 30155.
Jólasokkar barna á gamla verðinu, en birgðir mjög takmarkaðar. HOF, Hafnarstræti 7.
Handunnir (fíleraðir) dúkar í fallegu úrvali, en aðeins fáeinir dúkar í hverri gerð. HOF, Hafnarstræti 7.
Rya-teppi mottur og púðar. Allt á gamla verðinu meðan tak- markaðar birgðir okkar endast. HOF, Hafnarstræti 7.
Prjónagam Nærri allt á giamla verðinu en ýmsar tegundir og litir senn á þrotum. HOF, Hafnrastræti 7.
Gólfteppahreinsun húsgagnahreinsun og vél- hreingerningar, fljót og góð þjónusta. Sími 37434.
Útvarpstæki í gleraugum Hentug sem sjónvarpsgler- augu og þægileg fyrlr sjúkl inga. Battery endist í 100 tíma. Útvarpsvirki Laugar- ness, Hrísateigi 47, sími 36125.
Hestamenn Get tekið nokkra hesta i fóðrun í vetur, einnig nokkra í útigang með gjöf. Uppl. í srma 13537 í dag kl. 5—8.
Píanó Nokkux píanó fyrirliggj- andi. Helgl Hallgrímsson, Ránargötu 8, sími 11671.
Lán óskast 100—150 þús. krónur ósk- ast gegn góðri tryggingu og vöxtum til 1—2ja ár. Tilboð merkt: ,,Einkamál“ sendist til afgr. blaðsins.
Barngóð kona helzt ofarlega í Árbæjar- hverfi óskast til að taka lít- inn dreng í fóstur frá kl. 9—5. UppL í síma 82634 eftir kl. 8 á kvöldin.
Sambyggð trésmíðavél Steinberg, minni gerðin, óskast. Sími 82295.
Kertasníkir í Neskaupsstað
og nú berast okkur jólasveinar frá öllum landshornum og úr
Austfjarðaþokunni í Neskaupstað hefur Sævar Lárus Asgeirsson
8 ára snáði, sent okkur mynd af Kertasniki, sem sjálfsagt er þarna
á IeiSinni niður af Oddsskarði.
Einu megum við til með að koma á framfæri við blessuð böm-
in, sem senda okkur jólasveinamyndir, og það er að merkja um-
slögin kyrfilega Dagbók Morgunblaðsins, annars er hætta á að
myndirnar taki á rás til hinna og þessara, sem hafa ekkert gaman
af jólasveinamyndum.
Sýning Sóiveigar í Morgunblaðsglugga
Um þessar mundir sýnir í glugga Morgunblaðsins vatnslitamyndir,
frú Sólveig Eggerz Fétursdóttir listmálari.
Vatnslitamyndir þessar eru allar nýjar, og allar eru þær mál-
aðar í Reykjavík og næsta nágrenni. Sýna þær ýmiss falleg
„motiv“ af húsum og bátum, og mættu margar þessara mynda
kallast heimildarmyndir, eins og t. d. myndin af húsi séra Bjarna
og gamla Iðnskólanum.
Allar myndirnar eru vetrarmyndir, svo að þetta er einskonar
jólasýning um leið. Allar myndirnar eru til sölu.
Sagði listakonan okkur á mánudag, þegar hún var a3 koma
myndunum fyrir í glugganum, að eiginlega væru myndimar kjör-
in jólagjöf til eiginmanna frá eiginkonum þeirra, sem oft vissu
ekki, hvað gefa skyldi húsbóndanum á heimilinu í jólagjöf, — en
þess ber auðvitað að geta, bætti hún við, að nokkuð oft kemur
það fyrir, að eiginmennirnir eru sjálfir látnir greiða jólagjöfina!
Sama verð er á öllum myndunum, og kosta þær kr. 3000,00
hver, og tekur auglýsingadeild Mbl. við pöntunum. Af fyrri reynslu
af myndum Sólveigar í glugganum, er betra að hafa fyrra fallið
á með pantanir, því að þær hafa sjaldnast staðið lengi við. Sýn-
ingin stendur fram í næstu viku. — Fr. S.
FRÉTTIR
Kvenstúdentafélag íslands.
Jólafundurinn verður haldinn 1
Þjóðleikhúskjallaranum fimmtud.
14. des. kl. 8.30. Seld verða jóla-
kort Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna. Nýstúdentar M.R. siá
um dagskrána.
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma kl. 8 í kvöld
að Hörgshlíð 12.
Kristniboðssambandið.
Fómarsamkoma I kvöld kl. 8,30
í Betaníu. Gunnar Sigurjónsson
cand. theol. talar. Allir velkomn-
ir. —
Féiag austfirzkra kvenna.
Jólafundur verður haldinn
Jesús sagði: Allt sem faðirinn
gefur mér, mun koma til mín, og
þann sem til mín kemur muh ég
alls ekki burtu reka. (Jóh. 6, 37).
f dag er miðvikudagur 13. des.
og er það 347. dagur ársiins 1967.
Eftir lifa 18 dagar. Magnússmessa
Eyjajarls hin síðari. Luciumcssa.
Árdegisháflæði ki. 3.09. Síðdegis-
háfiæði kl. 15.26.
Uppiýsingar um læknaþjónustu i
borginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
stöðinni. Opin ailan sólarhringinn
— aðeins móttaka siasaðra —
sími: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
alla heigidaga. — Simi 2-12-30.
Neyðarvaktin itrarsr aðeins &
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5,
Kími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Kvöldvarzla í iyfjabúðum
í Reykjavík
vikuna 2. des. til 9. des. er í
Reykjavíkurapóteki og Vesturbæj-
arapóteki.
Næturvakt sjúkrabúss Keflavík-
ur:
12. og 13. des. Guðjón Klemenzs.
Næturlæknir í Hafnarfirði að-
faranótt 14. des. er Jósef Ólafsson,
sími 52820.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á mótl
þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—1 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
Skolphreinsun hjá borginni. —
Kvöid- og næturvakt, símar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: f fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
□ GIMLI & MÍMIR 596712176 —
Jólaf.
Athugið breyttan fundartíma og
fundardag.
RMR-13-12-20-VS-JóIam.-HV.
IOOF 9=14912138%= Jólav.
IOOF 7=14912138%= J. V.
0 HeigafeU 596712137 IV/V. 2.
„Veskú, nœsti"
Ég hitti rakarann minn á
förnum vegi í gær, og hann
sagði sínar farir ekki sléttar.
Ég: „Nú, hvurnin þá?“
Rakarinn minn: „Þannig, að
við rakararnir komumst ekki til
að klippa allan þenna mikla
fjölda borgarbúa, ef allur þorr-
inn lýkur sér ekki af 1 þessari
viku.
Þettta er ekkkert gamanmál,
lagsi, því að um næstu helgi
hætta unglingarnir í skólunum,
og þá kemur þetta eins og
skriða yfir þessar örfáu rakara-
stofur í borgiinni. Þá verða all-
ir að bíða, og komast svo máski
alls ekki að, því að ógerningur
er að klippa allan þennan fjölda
á einni viku.“
Ég: „Og hvað er þá til ráða?“
Rakarinn minn: „Ekki til
nema eitt ráð, að skora á mann
skapinn að mæta til leiks sem
mest í þessari viku, og það fer
svo sannarlega hver að verða
síðastur.“
Með það var rakarinn minn
rokinn inn á sína stofu, mund-
aði skærin og klippumar sam-
tímis um leið og hánn klæddl
sig I sloppinn og sagði: „Veskú,
næsti.“ — Fr. S.
sá NÆST bezti
Símon Dalaskáld kom eitt sinn sem oftar að bæ þeim í Árnes-
sýslu er Stóra-Borg heitir. Honum var vísað til baðstofu sem siður
var í þá tíð og til sætis á einu rúmanna. Köttur lá þar við fóta-
gafl, stór og mikill. Símon hugðist gæla við köttinn en hann brást
illa við og sýndi bæði klær og vígtennur. Þá kvað Símon eftir-
farandi vísu.
„Ó, að þú ert ekki mær,
— efnið mitt er sorgar —
með útþaninn kjaft og klær
kötturinn Stóru-Borgar!“
fimmtudaginn 14. des. að Hverfis-
götu 21 kl. 8.30 stundvíslega. —
Spiluð veröur félagsvist
Félag gæzlusystra,
heldur jólafund miðvikudaginn
13. des. kl. 8.30 í Skipholti 70. —
Gæzlunemum er boðið á fundinn.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur jólafund miðvikudaginn
13. des. kl. 9 stundvíslega úti í
Sveit.
Kennt verður tauþrykk.
Systrafélag Keflavíkurkirkju
Jólafundurinn verður haldinn 1
Tjarnarlundi fimmtudaginn 14.
des. kl. 8,30. Eiginmenn félags-
kvenna velkomnir.
Jóiafundur
Kvenfélags Hallgrimskirkju verð
ur haldinn í Iðnskólanum fimmtu
daginn 14. des. kl. 8.30 e.h. — Dr.
Jakob Jónsson flytur jólahugleið-
ingu. — Inga María Eyjólfsdóttir
söngkona syngur við undirleik
Sigurðar Stefánssonar. Ævar Kvar
an leikari flytur erindi. Kaffi-
drykkja. Félagskonnur fjölmenni
og taki með sér gesti.
Stjórnin.
Haligrímskirkja
Aðalsafnaðarfundur Hallgrims-
safnaðar í Reykjavík verður hald-
Inn í Hallgrímskirkju á Skóla-
vörðuhæð sunnudaginn 17. des.
nk. kl. 17.00. Venjuleg aðalfundar-
störf. — Sóknarnefndin.
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
er tekin til starfa. Umsóknum
veitt móttaka til 16. des. hjá Slg-
urborgu Oddsdóttur, Álfaskeiði 54,
sími 50597. — Nefndin.
Hjálpræðisherinn
Úthlutum fatnaði daglega til
22. des., frá kl. 13,00 til 19,00.
Ekknasjóður Reykjavikur
Styrkur til ekkna látinna félags-
manna verður greiddur í skrif-
stofu Kveldúlfs hf., Vesturgötu 3,
alla virka daga nema laugardaga.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Munið jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar á Njálsgötu 3,
sími 14349, opið virka daga frá
kl. 10—6 og I fötunum frá kl.
2—6. Styrkið bágstaddar mæður,
sjúklinga og gamalmenni.
Vetrarhjálpin í Reykjavík,
Laufásveg 41 (Farfuglaheimili)
sími 10785. Skrifstofan er opin
frá kl. 10—12 og 13—17 fyrst um
sinn. Styðjið og styrkið vetrar-
hjálpina.
Geðverndarfélag íslands.
Ráðgjafa- og upplýsingaþjonusta
að Veltusundi 3 alla mánudaga kL
4—6 siðdegis. Þjónustan er jafnt
fyrir sjúklinga, sem aðstandendur
þeirra, — ókeypis og öllum heimiL
Jólagjafir blindra.
Eins og að undanförnu tökum
við á móti jólagjöfum til blindra,
sem við munum koma til hinna
blindu fyrir jólin.
Blindravinafélag íslands,
Ingólfsstræti 16.