Morgunblaðið - 13.12.1967, Qupperneq 12
- <
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967
Fjárlagafrumvarpið afgreitt
til 3. umræðu
ANNARRI umræðu fjárlaga var
fram haldið á fundi Sameinaðs
Alþingis i fyrrakvöld, og lauk
henni um miðnætti.. í gær fór
svo fram atkvæðagreiðsla og var
frumvarpinu vísað til þriðju um
ræðu.
f fyrrakvöld tóku til máls
Gils Guðmundsson, Magnús
Kjartansson, Magnús Jónsson,
fjármálaráðherra, Karl Guðjóns-
son, Halldór E. Sigurðsson,
Skúli Guðmundsson, Lúðvík Jós-
efsson og Jónas Árnason. Mæltu
þingmennirnir fyrir breytingar-
tillögum er þeir flytja.
Gils Guðmundsson flutti
- breytingartillögur um aukið
framlag til Landsbókasafnsins,
Listasafns ríkisins, til lista-
mannalauna, til listkynninga um
landið og til byggingasjóðs ríkis-
ins. Lögðu þeir til að fjárveit-
ingar til þessara aðila yrðu
hækkaðar um 11—12 millj. kr.
Karl Guðjónsson flutti tillög-
ur um 2 millj. kr. hækkun á
framlagi tií Iðnskóla, 30 þús. kr.
hækkun til myndlistarskóla i
Vestmannaeyjum, um 600 þús.
kr. framlag ríkissjóðs til orlofs-
heimilis BSRB, um 50 þús. kr.
hækkun á framlagi til barna-
heimilisins í Kumbaravogi og
200 þús. kr. hækkun til sjó-
mannaskólans í Vestmannaeyj-
um. Karl dró síðan þessar til-
lögur til baka til þriðju um-
ræðu.
Magnús Kjartansson og Eð-
\ - ALÞINGI
Framhald af bls. 32
skipum frádráttar vegna hlífðar-
fatakostnaðar 500 kr. á mánuði.
Þá njóta sjómenn á íslenzkum
fiskiskipum, þar með töldum sel-
og hvalveiðiskipum, sérstaks frá
dráttar, 3000,00 kr. á mánuði,
enda hafi þeir verið skipverjar
é nefndum skipum ekki skemur
en sex mánuði af skattárinu.
' Lagt er til, að frádráttarheim-
ild þessi verði látin ná til allra
sjómanna á íslenzkum skipum.
Verður eigi séð, að slíkur að-
stöðumunur sé með sjómönnum
á fiskiskipum og öðrum sjómönn
um, að ástæða sé til mismunar
. að þessu leyti.
I Um margföldun fasteignamats
segir svo í greinargerðinni:
| Greinin er sama efnis og 25.
grein frumvarps til laga um
" efnahagsaðgerðir, sem lagt hefur
; verið fyrir Alþingi, með þeirri
breytingu, að níföldun fasteigna-
máts kemur í stað tólfföldunar
og margföldun með 4,5 í sveit-
um kemur í stað sexföldunar.
í frumvarpinu um efnahagsað-
gerðir miðuðust þessi ákvæði við
tekjuauka hjá ríkissjóði, sem
nam um 60 millj. kr. Við gengis-
j breytingu íslenzku krónunnar
i hafa flestar forsendur áður-
greinds frumvarps breytzt, þótt
j ekki sé talið rétt að falla frá
; nokkurri hækkun á mati fast-
I eigna til skatts. Á hinn bóginn
, er ljóst, að gengisbreytingin
( veldur útgjaldahækkunum hjá
sveitarfélögum og þykir því rétt
að ákveða, að hækkun sú á virð-
| ingu fasteigna til eignarskatts,
f sem grein þessi gerir ráð fyrir,
gildi einnig við álagningu eigna-
útsvara. Verður sérstakt frum-
varp um það efni lagt fyrir Al-
þingi.
Einnig eru í frumvarpinu á-
kvæði samhljóða og í efnahags-
aðgerðarfrumvarpinu um tvö-
földun skattfrjálsrar eignar og
ékvæði er kveða nánar á um
starfsskyldu embættismanna í
sveitarfélögum sem umboðs-
menn skattstjóra.
varð Sigurðsson fluttu tillögu
um 10 millj. kr. hækkun á fram-
lagi ríkissjóðs til Borgarsjúkra-
hússins.
Jónas Árnason flutti tillögur
um aukin fjárframlög til leik-
listarstarfsemi og til Æskulýðs-
nefndar Mýrar- og Borgarfjarð-
arsýslu. Jónas dró tillögurnar til
baka til þriðju umræðu.
Lúðvík Jósefsson og Jón Árna-
son fluttu breytingartillögu um
1 millj. kr. framlag til bygging-
ar sjómannaheimila.
Við atkvæðagreiðslu í gær'
voru tillögur meirihluta fjárveit-
inganefndar allar samþykktar,
svo og breytingartillaga er Sig-
urður Bjarnason flutti og gerði
ráð fyrir að varið verði 90 þús.
kr. til þess að reisa skýli í Vatns-
firði á Barðaströnd yfir einær-
inginn Egil í Hvallátrum.
Þær tillögur stjórnarandstæð-
inga er ekki voru dregnar til
baka til 3. umræðu voru felldar.
Við breytingartillögu Magnús-
ar Kjartanssonar og Eðvarðs Sig
BRÁTT líður að mesta umferðar-
túna ársins í Reykjavík — jóla-
umferðinni, — og að venju mun
lögreglan verða að gera ýmsar
ráðstafanir til að greiða úr mestu
umferðinni i miðhluta borgarinn.
ar og á Laugaveginum, svo að
ekki skapist algert umferðaröng-
þveiti.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur auglýst nokkrar takmark-
anir á umferð 12.—23. des. og
hefur hún einkum í för með sér,
að einstefnuakstur er settur á
fjórar götur, hægri beygja er
bönnuð úr þremur götum og bif-
reiðastöður eru bannaðax eða
takmarkaðar á allmörgum stöð-
um. Loks er bifreiðaumferð bönn
uð um Austurstræti, Aðalstræti
og Hafnarstræti, laugardaginn 16
des. frá -Jd. 20—22 og laugardag-
inn 23. des. frá kl. 20—24. Svo
og verða sams konar umferðar-
takmarkanir á Laugavegi frá
Snorrabraut og í Ba-nkastræti á
sama tíma ef ástæða þykir til.
Á fundi með blaðamönnum í
gær, gerðu þeir Óskar Ólason,
yfirlögregluþjónn, Pétur Svein-
bjarnarson, umferðarfulltrúi borg
arinnar, og Sverrir Guðmunds-
son, aðstoðaryfirlögregluiþjónn,
frekari grein fyrir þessum ráð-
stöfunum. Kváðu þeir umferðar-
yfirvöld borgarinnar reyna af
fremsta megni að takm'arka eða
banna umferð sem minnst. Væru
allar bráðabirgðaráðstafanir núna
hinar sömu og fyrir síðustu jól,
en þá gekk hún mjög vel fyrir
sig. Beinast aðgerðirnar einkum
að því, að greiða úr umferðinni
þar sem hún er mest í miðborg-
inni, og ekki síður að því að
auðvelda gangandi vegfarendum
að komast leiðar sinnar.
Lögreglan vill biðja ökumenn
að bafa einkum þrjú atriði í huga
vegna hinnar miklu jólaumferð-
urðssonar um 10 millj. kr. aukið
framlag til Borgarsjúkrahússins,
gerði Geir Hallgrímsson svo-
hljóðandi grein fyrir ðatkvæði
sínu:
Ég met mikils nývakinn áhuga
tillögumanna á fjárveitingum til
Borgarspítalans og ekki síður, ef
sá áhugi stafar e.t.v. af .þingsetu
borgarstjóra, þegar fjárlagaaf-
greiðslan fer fram. En með til-
vísun til þess, að með samkomu-
lagi við heilbrigðis- og félags-
málaráðherra fékkst 100% hækk
un á fjárveitingu til Borgarspít-
alans í fjárlagafrumvarpinu fyr-
ir árið 1968, og með milligöngu
þeirra fékkst einnig lánsfé er
svarar nú til þeirra 42 millj. kr.
af skuld ríkissjóðs við borgar-
sjóð og í trausti þess, að áherzla
verði lögð á, að Ijúka greiðslum
ríkissjóðs sem fyrst og að öðru
leyti með skírskotun til sam-
stöðu stuðningsmanna stjórnar-
innar um afgreiðslu fjárlaga,
segi ég nei“.
Fjárlagafrumvarpið mun svo
koma til 3. umræðu snemma í
næstu viku, þar sem afgreiða
verður það áður en jólahlé þings
ins byrjar.
air. í fyrsta lagi, að þeir ökumenn
sem staddir eru í austurhluta
bæjairins og ætla vestur i bæ, eða
í miðborgina, aki ekki niður
Laugaveg, heldur fari í þess stað
niður Skúlagötu eða Hringbraut.
Ef umferðiartafir myndast á
Laugaveginum verður lögreglan
e, t. v. að grípa til þess ráðs að
beina alLri bifreiðaumferð af göt-
unjii. Bendir lögreglan ökumönn-
um á það til fróðleiks, að það
getur sparað þeim, sem ætla nið-
ur íMiðborgina 20 mínútur að aka
um Hringbrautina eða Skúlagötu
í stað þess að fara niður Lauga-
veg.
í öðru lagi er skorað á fólk
að fara ekki á bifreiðum sínum
milli verzlana, heldur reyna að
finna bifreiðastæði og leggja bif-
reiðunum þar, og fara fótgang-
andl á milli verzlana. Er þeim
sem koma niður Skúlagötu bent
á bifreiðastæði í Sölfhólsgötu,
Hverfisgötu og Smiðjustíg.. Þeim,
sem koma akandi um Hringbrau t
er bent á að leita fyrst að stæði
við Tjarnargötu, Vonarstræti eða
Suðurgötu, og þeim sem koma
akandi vestan úr bæ er bent á
að leita fyrst að bifreiðastæði við
Garðastræti eða Vesturgötu. Á
þremur af þessum stæðum er
staða bifreiða takmörkuð við
eina klukkustund og starfa þar
gæzlumenn, sem sjá um að öku-
menn leggi bifreiðum sínum
skipulega.
í þriðja lagi er bent á, að gjald
skylda er við stöðumæla jafn-
lengi og verzlanir eru almennt
opnar þ. e. til kl. 22 laugardag-
inn 16. og til kl. 24 á Þorláks-
messu. Mjög mikilvægt er, að
ökumenn leggi bifreiðum sínum
skipulega inn í stöðureitina og
gæti þess, að bifreiðin trufli ekki,
eða tefji umferð. Ef svo er ekki,
getur ökumaður átt á hættu, að
Xý mál
f GÆR var lögð fram á Alþingi
fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar
um framkvæmd laga um skóla-
kostnað. Fyrirspyrjandi er Karl
Guðjónsson og er fyrirspurnin í
tveimur eftirfarandi liðum: Hve-
nær eiga ákvæði laga um skóla-
kostnað frá sl. vori að koma til
framkvæmda: a) að því er varð-
ar stofnkostnað skólamann-
virkja? b) að því er tekur til
rekstrarkostnaðar skólanna?
Þá var ennfremur lögð fram
fyrirspurn til félagsmálaráðherra
um lánveitingar úr Byggingar-
sjóði ríkisins. Fyrirspyrjendur
eru Einar Ágústsson, Ingvar
Gíslason og Vilhjálmur Hjálmars
son. Fyrirspurnin er í 8 liðum
og m.a. spurt um hvað séu marg-
ar umsóknir, sem bárust fyrir 15.
marz 1967, óafgreiddar hjá hús-
næðismálastjórn, og hversu
margar umsóknir hafa borizt
síðan og hvort áformað sé að
fella burt vísitöluálag á vexti og
afborganir húsnæðislána.
Lögð var fram þingsályktunar-
tillaga sem Jón Skaftason og 9
aðrir þingmenn Framsóknar-
flokksins flytja um undirbúning
heildarlöggjafar um hagnýtingu
fiskimiðanna umhverfis landið.
Þingmól í gœr
STUTTIR fundir voru í báðum
deildum Alþingis í gær, að af-
loknum fundi í Sameinuðu þingi.
í neðri deild mælti Matthías Á.
Mathiesen fyrir áliti fjárhags-
nefndar deildarinnar á stjórnar-
lögreglan fjarlægi bifreiðina.
Til þess að umierðin megi
ganga ®em bezt fyrir sig jafnt
fyrir gangandi sem akandi, munu
lögreglumenn flestir vinna tvö-
falda vinnu. í miðborginni og
vesturbæ eru 40—50 lögreglu-
menn á föstum varðsvæðum, og í
austurbænum verða milli 15—20
lögreglumenn á varðsvæðum, auk
þess sem lögregluþjónar á bif-
hjólum og bifreiðum munu fylgj-
ast með umferð í úthverfum. Það
hefur verið reynsla undanfarina
ára, að í desembermánuði verða
jafnan fæst slys. Tii dæmis var
tala slasaðra í fyrra 19, og þar
af aðeins eitt abrn, en árið áður
23, og þar af fimm börn. Upplýsti
Óskiar Ólason þarna á fundinum,
að ekki hefði barn látist af völd-
um umferðarslyss í desember
undianfarin þrjú ár.
Talsmenn umferðaryfirvald.
anna á þessum blaðamanmafundi
sögðu, að endingu, að'nú leitaði
lögreglan samstarfs við almenn-
ing að leysa vandamál umferð-
arinnar, og að þann samstarfs-
vilja sýndu vegfarendur bezt með
því að taka tillit til annarra,
meta rétt umferðaraðstæður og
sýna burteisi í umferðinni.
frumvarpinu imi innheimtu ým-
issa gjalda með viðauka. Var
nefndin sammála um að mæla
með samþykki frumvarpsins. Gat
Matthías þess, að nefndinni hefði
borizt erindi frá L.l.Ú., sem yrði
nánar kannað milli 2. og 3. um-
ræðu. Frumvarpsgreinarnar voru
samþykktar og frumvarpið af-
greitt til 3. umræðu.
I efri deild mælti Jón Þor-
steinsson fyrir breytingartillög-
um er heilbrigðis- og félagsmála
nefnd deildarinnar flytur við
frumvarpið um almannatrygging
ar. Hefur áður verið ítarlega
sagt frá þeim breytingum í Morg
unblaðinu, en þær kveða m.a. á
um, að 5 manna nefnd skuli nú
ákvarða upphæð daggjalda á.
sjúkrahúsum, og að varasjóður
trygginganna greiði halla þann
sem Tryggingastofnunin varð
fyrir vegna verðstöðvunarlag-
anna á sl. ári. Til máls tóku einn
ig Páll Þorsteinsson, Magnús
Jónsson og Jón Ámason, en frum
varpið var sfðan samþykkt sam-
hljóða og afgreitt til neðri deild-
ar.
... *
Stórbruni
í Osló
Osló, 12. des. — NTB
FRASCATI, eitt stærsta og þekkt
asta veitingahús Oslóborgar, gjör
eyðilagðist af eldi í morgun. Er
tjónið af eldinum talið nema
mörgum milljónum norskra
króna.
Eldsins varð fyrst vart um kl.
5.15 í morgun að sta'ðartíma. Sá
þá leigubifreiðarstjóri bjarma
inni í veitingahúsinu, sem er á
annarri hæð í húsi Hægri flokks-
ins að Stortingsgate 20. Rétt á
eftir sprungu rúður í gluggum
veitingahússins og salarkynnin
urðu eitt eldhaf. Slökkvilið kom
fljótlega á vettvang og tókst að
slökkva eldinn á rúmri klukku
stund. Þá voru veitingasalnirnir
á annarri hæð gjörónýtir og
efri hæðir hússins gegnsýrðar af
reyk. Miklar skemmdir urðu
einnig á neðstu hæðinni, en þar
voru til húsa banki, brauðgerð-
arhús, matstofa og skrifstofur.
Osló, 8. des. NTB.
SÍÐUSTU daga hafa miklif
kuldar verið í Noregi og náðu há-
marki í gær, með 33 stiga frosti
á Tynset, 31 stigi frosti á Röros
en víðast annars staðar á land-
inu milli tíu og tuttugu stig.
í borgunum við ströndina var
hlýjast 5-10 stig.
- NÝ BÚÐ
Framhald af bls. 2
var sýnd blaðamönnum, sagði
hann m.a.:
•,Við væntum þess, að hér
verði mikið verzlað. Hér nær-
liggjandi eru þéttbyggð íbúða-
hverfi, umferðaræðar eru í «11-
ar áttir og hér eru góð bílastæði,
við verzlunina munu því fyrst í
stað starfa 15 manns. Verzlunar-
stjóri er Guðjón Guðjónsson.
Hann er enn ungur að árum, en
hefur þó þegar starfað í verzl-
unum S.S. í 20 ár. Af reynslu
af störfum hans svo langan tíma,
teljum við hinni nýju verzlun
vel borgið undir hans stjórn með
því ágæta starfsliði, sem hér er,
og vonum við að hér muni
margir ánægðir viðskiptamenn
fá góða þjónustu".
Kjörbúð S. S.
ÝMSAR RADSTAFANIR
VEGNA JÓLAUMFERDAR
Einstefnuakstur tekinn upp á nokkrum
götum — bifreiðastöður bannaðar eða
takmarkaðar allvíða — hœgri beygja
bönnuð úr þremur götum o.fl.