Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 16

Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 16
16 MORGUNB'LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967 IHaigtmMafrife trtgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík, Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Jphannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Rifstjóm og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. EÐLILEG MÓTMÆLI ¥ gær voru ákveðnar nýjar verðlagningarreglur til bráðabirgða, eins og skýrt er frá á öðrum stað í blaðinu, þar sem jafnframt er getið harðorðra mótmæla fulltrúa hinna ýmsu greina verzlun- arinnar. Þessi mótmæli eru eðlileg, því að augljóst er að þessi bráðabirgða verðlags- ákvæði eru hrakaleg gagn- vart verzluninni og væru ‘óviðunandi ef þau ættu ekki aðeins að gilda í fáar vikur. En skýringin á því að verzl unin tekur nú á sig þungar bvrðar um nokkurt skeið, þyngri en aðrir, er að sjálf- sögðu hið mikla áfall, sem ís- lenzka þjóðin hefur orðið fyr- ir og svo hin brýna nauð- syn, sem á því er að komið verði í veg fyrir skyndilegar og miklar verðhækkanir í kjölfar gengislækkunarnnar, sem þá mundi ekki ná til- ætluðum árangri. Vafalaust hefur einmitt. þetta sjónarmið ráðið miklu um það, að oddamaður í verð- lagsnefnd úrskurðaði að þessu sinni með fulltrúum launþega. Þótt þessar ákvarðanir í -verðlagsmálum væru of harkalegar, ef við þær ætti að búa til frambúðar, en ekki væri nú um hreinar bráða- birgðaráðstafanir að ræða, er hitt þó aðalatriðið fyrir lands menn alla, að jafnvægi hald- ist í þjóðarbúskapnum til frambúðar og þess vegna mega ekki skyndiráðstafanir þegar í kjölfar gengislækkun- arinnar gera slíka þróun úti- lokaða fyrirfram. Það skilja verzlunarmenn og þess vegna axla þeir þessar byrðar. . NÝ STÓRIÐJA Jón Árnason, formaður fjár- veitinganefndar gat þess í ræðu á Alþingi í fyrradag, að sérstök fjárveitíng væri ætluð til að rannsaka, hvort hagkvæmt kynni að reynast að koma upp sjóefnavinnslu hér á landi, mikilli verk- smiðju, sem ynni ýmiskonar efni úr sjó og notaði orku, sem við eigum í hverum, fall- vötnum og jafnvel jöklum landsins. Frumrannsóknir þær, sem framkvæmdar hafa verið á þessu sviði af Baldri Líndal, benda ótvírætt til þess að slík vinnsla efna úr sjó gæti orJð- ið arðvænleg atvinnugrein hér á landi. Þessa skoðun hef ur sérfræðingur, sem kom hingað til lands í júlímánuði sl. á vegum Sameinuðu þjóð- anna, staðfest og leggur þessi erlendi sérfræðingur til að gerð verði ítarleg rannsókn á sjóefnavinnslu, og er kostn- aður við slíka rannsókn áætl- aður um 25—30 millj. króna, eða sem svarar til andvirðis eins fiskiskips. Fjárveiting sú, sem nú er fyrirhuguð, er aðeins til und- irbúnings ýtarlegri rann- sókna. Má e.t.v. segja að hún ætti að vera ríflegri en hálf milljón króna. En meginat- riðið er, að rannsóknum verði haldið áfram og væntanlega hraðað eftir því sem föng verða á. SAMIR VIÐ SIG TTér í blaðinu í gær birtist yfirlýsing frá Vöku, fé- lagi lýðræðissinnaðra stú- denta, Sambandi ungra Jafn- aðarmanna og Stúdentafélagi Jafnaðarmanna, þar sem tek- ið er fram, að þessi félög hafi mótmælt þeim fundarhöld- um, sem hin svokallaða Viet- nam-nefnd virtist beita sér fyrir á Mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna þann 10. des. Lýsa þessi félög því yfir að ástæðan til þess, að þau hafi ekki viljað standa að þessum aðgerðum hafi verið sú, hvern ig að öllum undirbúningi og málsmeðferð var staðið, jafnframt því óæskilega yfir- bragði, sem fundarhöld þessi, ásamt öðrum aðgerðum þeim tengd, óneitanlega höfðu. Þá er því lýst yfir, að komið hafi verið í veg fyrir það, að tilkynningar um að nefndin stæði ekki að þessum aðgerð- um fengjust birtar í nafni nefndarinnar. Misnotkun kommúnista á þessum samtökum furðar eng an, sem þekkir starfsaðferðir þeirra. Hitt má segja að sé furðulegt, að þeir aðilar, sem að þessari yfirlýsingu standa, skyldu ekki fyrirfram gera sér grein fyrir því, að komm- únistar mundu reyna að mis- nota nöfn þeirra á þann veg, sem þeir nú hafa gert. Með kommúnistum, um- boðsmönnum erlends kúgun- arvalds, er ekki hægt að starfa í samtökum eins og „Hinni íslenzku Víetnam- nefnd“, einfaldlega vegna þess, að markmið kommún- ista eru allt önnur en lýð- ræðissinnaðra manna. Þeirra markmið eiga ekkert skylt við mannúð eða réttlæti, held ur miða þau að því einu að styrkja mátt heimskommún- ismans til þess að hann geti kúgað og undirokað sem flest- ar þjóðir. Vonandi verður þessi at- burður til þess að opna augu þeirra manna, sem talið hafa Réttarhöldum frestað í Moskvu Moskvu, 11. des. (NTB) í MORGUN áttu að hefjast rétt- arhöld yfir fjórum ungum sov- ézkum menntamönnum, sem sakaðir er um óhróður og áróður gegn Sovétríkjunum. Hafa fjór- menningarnir verið í haldi í ellefu mánuði. Þegar réttarhöldin áttu að hefjast hafði fjöldi ættingja hinna ákærðu safnazt saman við réttarsalinn, en eftir nokkra bið þar var þeim tilkynnt, að eng- in réttarhöld færu fram í málinu í dag. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Moskvu, að réttar- höldin hefjist í fyrsta lagi eftir vikiu, en ekki er vitað af hverju þessi dráttur stafar. Einn dómaranna í málinu sagði aðspurður í morgun, að Ihann þekkti ekki til neins máls varð- andi áróður gegn Sovétríkjun- um. Ákærðir eru þrír karlmenn og Róm, 11. des. NTB. ÍTALSKA stjómin á nú yfir höfði sér pólitískan storm vegna staðhæfinga, sem fram hafa komið um, að þjóðin hafi í júlí- mánuði 1964 sloppið með naum- indum við byltingn hersins — er hafi átt að gera með sama hætti og byltingin var gerð í Grikklandi. Mál þetta tók nýja og alvar- legri stefnu á laugardag, er for- ingi í ríkislögreglunni upplýsi við vitnaleiðslu í málaferlum, að hann hefði fengið í hendur svart an lista með nöfnum 44 manna, sem hafi átt að handtaka rétt áður en byltingin hæfist. Lögregluforinginn. Cosirao Zinza, skýrði frá þessu í mála- ferlum gegn blaðamanni og rit- stjóra ítalska vikublaðsins „L’Es presso", en Giovanni De Lor- enzo, hershöfðingi, fyrrverandi yfirmaður ítalska herforingja- ráðsins höfðaði mál á hendur þeim fyrir að skrifa í blaðinu, að hann hafi ráðgert byltinguna. Málgagn kommúnista „L’Un- ila, hefur krafist þess, að Aldo Moro, forsætisráðherra, og aðrir forystumenn í stjórnmálum lands ins gefi fullgilda skýringu í mál- inu, ella muni svo litið á sem þeir séu meðsekir. Sósialist- ar, sem eiga aðild að samstevpu- stjórn Aldo Moros, hafa einnig krafizt reikningsskila. De Lorenzo, herslhöfðingja, var vikið úr embætti í apríl án nokk urra skýringa, en þá hafði kom- ið upp hneykslismál í leyni- ein kona, þau Alexander Gins- burg, Juri Galanskov, Alexei Dolborvolsky og Vera Lashkova. Mennirnir þrír eru sakaðir um að hafa efnt til mótmælaaðgerða í Sovétríkjunum vegna réttar- haldanna yfir rithöfiundunum Andrei D. Sinyavsky og Yuli M. Daniel í fyrra og staðið að út- gáfu „Hvítrar bókar“ um réttar- höldin yfir rithöfundunum tveimur. í bó'k þessari er frásögn af réttarhöldunum, sem áttu að vera leynileg, og þar eru birt mótmœlabréf sovézkra og er- lendra mienntamanna. Sagt er að þeir Ginsburg og Galanskov hafi átt frumkvæðið að hvítu bókinni og Doiborvolsky hafi aðstoðað þá, en Vera Lash- kova vélritað handritið. Líklegt var talið í Moskvu, að Ginsburg og Galanskov játuðu á sig sök- ina, en bæru það fyrir réttin- um, að bókin væri ekki fjand- þjónustu hersins, sem hann stjórnaði á árunum 1956—62. Opinber rannsókn leiddi í ljós, að leyniþjónustan hafði njósnað um ítalska stjórnmálamenn, fram ámenn í iðnaðinum, biskupa og aðra kunna menn í þjóðfélaginu og komið sér upp upplýsinga- safni um persónulegt líf þeirra, m.a. kynlíf þeirra og börn, sem viðkomendur áttu utan hjóna- bands. L’Espresso staðhæfir, að her«»- höfðinginn hafi lagt á áðin jt byltinguna ásamt Segni, forset anum fyrrverandi, meðan á stóh stjórnarkreppu árið 1964. Her* höfðinginn neitar þessu staðhæ’1 ingum afdráttarlaust, en vitnúi burður Zinzas varð sem olíft A eld. Hann sagði, að svarta list- ann hefði hann fengið í hendur 4 leynifundum með hægrisinnuð- um herforingjum, í júnílok með an á stóð hinni langvarandi stjórnarkreppu áður en Aldo Moro kom á samvinnu við vinstri flokkiana. Samkvæmt hon um hefði hann átt að handtaka þá, sem tilgreindir voru á list- anum og flytja þá á ákveðinn flugvöll, en skipunin hefði aldrei verið gefin svo að til þess hefði ekki komið. Stjórnin hefur vísað á bug öll- um staðhæfingum um, að hún hafi á nokkurn hátt verið við hugsanlegan byltingarundirbún- ing riðin, — en hefur til þessa neitað að láta fara fram opinbera rannsókn á þeirri forsendu, að málið varði hernaðarleg leyndar mál, sem ekki mega ljóstra upp. — ■ - M - samleg Sovétríkjunum. Þeir báðir og Vera Lashkova höfðu ráðið sér verjendur, en Doibor- volsfey ekki, og hefur verið lát- ið að því liggja, að Dofoorvolsky ætlaði að vitna gegn félögum sínum, þótt ekki hafa það feng- izt staðfest. Frestunin í dag kom mjög á óvart, og höfðu sumir ættingjar og vinir hinna ákærðu beðið í klutkkustund í snjónum fyrir utan réttarsalinn, áður en þeim var tilkynnt, að engin réttar- höld færu fram. Yfirvöldunum hafa borizt margar áskoranir frá vísinda- mönnum, prófessorum, sagn- fræðingum og ritíhöfundum um að vægja fjórmenningunum. í okbóber s.l. skrifuðu 100 andans ménn undir áskorun þessa efnis, sem send var ríkissaksóknaran- um, og í byrjun þessa mánaðar barst ríkissaksóknaranum sams- konar áskorun með 44 nöfnum undir. Þessum áskorunum hef- ur ekki verið sinnt. Ósomhljóðo iregnir fró Jemen Kairo, Beirut, 11. des. AP-NTB. EKKI er gott að henda reiffur á ástandinu í Jemen, — fregnir, sem borizt hafa til Beirut og Kairo um helgina eru mjög ósamhljóða, herma sumar, að konungssinnar sitji enn um höf- uðborgina, Sanaa, þeir hafi tek- ið herskildi herflugvöllinn fyrir utan borgina og gert fallbyssu- árásir á borgina sjálfa, — aðrar herma, að sókn konungssinna hafi verið stöðvuð og áhlaup þeirra á borgina mistekizt. Talsmaður lýðveldis'stjórnar- innar sagði í Kairo á laugardag, að það væri ekki rétt, að Sanaa væri umkring af her konungs- sinna —en aðrar heimildir, með- al annars útlendingar, sem hafa feomizt frá Jemen um helgina, herma, að konungssinnar hafi gengið hart fram í hermdar- verfcum og sprengjuárásir þeirra, jafnvel inni í sjálfri borg inni, verið tíðar. Utvarpsstöð feonungssinna sagði ura heigina, að um 160 lýð- veldissinnar hefðu fallið í bar- dögum síðustu dagana á ýmsum stöðum í landinu. Sagði þar ennfremur, að feonungssinnar hefðu hert sófen sína eftir að 60.000 egypzkir hermenn fóru brott frá Jemen í síðustu viku. Egyptar hafa barizt við hlið lýð- veldissinna frá því borgara- styrjöldin hófst í Jemen árið 1901, en hafa kallað herlið sitt heim smám saman síðustu mán- uði, eða eftir að samfcomulag náðist millli Egypta og Saudi Arabí'U um að bæði ríkin drægju úr stuðningi við hin stríðandi öfl í landinu. --------------------— ■ - - 't Róðgerðu ítalskir herioringjur byltingu sumurið 1964? að unnt væri að starfa með kommúnistum fyrir því, að slíkt er fráleitt. Og gjarnan mættu menn hugleiða, hver orðið hafa örlög annarra, sem til náins samstarfs við þá hafa gengið, t.d. Héðins Valdi marssonar á sínum tíma og nú hina svokölluðu Alþýðu- bandalagsmanna, sem haldið hafa áfram samstarfi við kommúnista þar til svo var komið, að þeir höfðu náð und irtökum í Alþýðubandalaginu og hyggjast nú í eitt skipti fyrir öll gera út af við sam- starfsmenn sína, vegna þess að lengur geti þeir ekki haft gagn af þeim. Dæmin um samstarf við kommúnista eru nægilega mörg hér á landi, til þess að menn ættu að forðast það, og þó eru dæmin enn hryggi- legri annars staðar frá, eins og t.d. í leppríkjum, þar sem lýðræðissinnar ætluðu að starfa einlæglega með full- trúum kommúnista, en niður- staðan varð sú, að þeir auð- velduðu ofbeldismönnunum að hrifsa völdin og undiroka þjóðirnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.