Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 31

Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DES. 1»67 31 Þannig voru vörurnar skoröað ar í þotuna. (Ljósm.: Heimir Stígsson) Dælur flugleiðis til Hitaveitunnar Keflavíkurflugvelli, 12. des. í MORGUN kom til Keflavíkur- flugvallar vöruflutningaflugvél frá Pan American World Air- ways með rúmlega 8 tonn af vörum til íslenzkra aðila. Stærsta sendingin var til Hita- veitunnar og Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, eða samtals 7.162 kg, en hér mun um hafa verið að ræða dælur og annað efni til Hitaveitunnar. Stefán Guðjohnsen, fulltrúi hjá Pan American á Keflavíkur- flugvelli, tjáði fréttamanni Mbl. að þetta mundi vera stærsta vörusending til íslenzkra aðila í einni ferð hjá Pan Am. Hinsveg- ar taldi Stefán bað mjög færast í vöxt að íslenzkir innflytjendur fengju vörur sendar með flug- vélum og væri það í samræmi við þá þróun, sem á undanförnu ári hefði orðið hjá öðrum þjóð- um. Vöruflutningar í lofti hafa vaxið hraðar heldur en fólks- flutningar, sagði Stefán, og benti á að Pan American flug- félagið eitt hefir 12 áætlunar- flug hvora leið yfir Atlantshafið á viku hverri. Við þessa vöru- flutninga notar félagið þotur af gerðinni Boeing 707, sem geta borið 35 til 37 tonn af flutningi, en þá vegur flugvélin fullhlaðin rúmlega 150 smálestir. B-707 flugvélin, sem kom með flutninginn til Hitaveitunnar, kom frá Kennedy-flugvelli við New York og tók flugið þaðan 5 klst. og 20 mín. Eftir að af- hleðslu var lokið á Keflavíkur- flugvelli hélt flugvélin áfram til London, en þangað flutti hún rúmlega 23 smálestir af ýmiss- konar flutningi — BÞ. — Strokuhermaður Framhald af bl>. 1 fall þegar hann var kvaddur til herþjónustu í Víetnam fyrir rúmu ári. Varð það til þess, að hann flýði til Indlands um Mexí- kó og Panama. Á Indlandi leit- aði hann uppörvunar í marihu- ana og táli trúarinnar, segir blaðið, og þar seldu prestarnir honum eiturlyf á vægu verði. Zipper var nú á leið heim til Bandaríkjanna vegna þess, að móðir hans var veik, segir Kom- somolskaya Pravda að lokum, og ákvað hann að taka með sér nægar birgðir af hashish, en birgðirnar fundust þegar hann kom við í Tashkent, sem fyrr segir. - EBE Framhald af bls. 1 hagsástandi Bretlands. — Hann sagði, að nefndin teldi gengis- fellingu pundsins hafa verið já- kvætt spor — þó að því til- skildu, að aðrar efnahagsaðgerð- ir til endurbóta yrðu fram- kvæmdar. Enn fremur upplýsti hann, að brezka stjórnin vænti þess, að greiðslujöfnuður lands- ins á næsta ári myndi batna um 500 millj punda. Barre kvaðst álíta aðgerðirnar varðandi efnahagsvandræðin full nægjandi, en hann bætti því við, að framvegis ættu að eiga sér stað viðræður við Bretland um þróunina og lagði áherzlu á, að framleiðsla Bretlands yrði að aukast. Engar umræður áttu sér stað, eftir að þeir Rey og Barre höfðu gert grein fyrir máli sínu, en umræður þær, sem úrslitum ráða varðandi umsóknirnar, munu eiga sér stað í Brússel 18. og 19. desember nr. Heimdellingar ALLIR Heimdellingar, sem feng ið hafa senda happdrættismiða flokksins heim, og eru enn ekki búnir að gera skil, eru beðnir um að gera það sem allra fyrst í skrifstofu happdrættisins í S j ál'fs tæð ishúsinu. 1 Volvobifreiöin var þannig útleikin, eftir aö hafa fallið niður skröuna hjá Búrfelli. Ljósm. Tómas. j BifreiMéll 70 m í Sámstaðamúla — Minnstu munaði að stórslys yrði, er vegakantur brast GRJÓTBÍLL, 10 lesta af Volvo- gerö steypti stömpum í Sáms- staðamúla, þar sem verið er að grafa jarögöng, vegna virkjun- arframkvæmdanna viö Búrfell, í gærmorgun laust fyrir kl. 09. Féll bifreiðin 70 m. vegalengd niður bratta grjótskriðu, um 50 m. fallhæð. Bifreiðastjórinn, Ámi Tómas- son, frá Akureyri, marðist á höfði, höndum og fótum, en er að öðru leyti ómeiddur. Hann telur, að það hafi bjargað lífi sínu, að hann hélt sér við stýri bílsins, svo að hann féll ekki út úr honum. Liggur hann á sjúkrahúsinu á Selfossi. Slys þetta varð með þeim hætti, að bifreiðin var að koma út úr hliðargöngum, sem notuð hafa verið til þess að aka grjót- mulningi út úr göngunum. Ætl- aði bitfreiðastjórinn að losa hlass af bíl sínum og bakkaði fram að skriðunni, sem smám saman hafði myndazt fyrir neðan ganga opið, er undirstaða bifreiðarinn ar brast og féll bifreiðin með skriðunni nður, 70 m. vegalengd, 50 m. fallhæð. Bifreiðin mun ekki hatfa farið tæpar fram á brúnina, en vana- legt er. Voru 1.5 til 2 m. að brúninni. Sjónarvottar segja að bitfreiðin hafi fyrst sbeypt stömp um tvisvar sinnum, runnið síð- an drjúgan spöl á hliðinni unz hún tók að velta af svo mikum hraða, að hún fór 5 til 6 veltur í lotftinu án þess að snerta jörðu. Á þessum stað er mikil og stór- grýtt urð, mulningur úr göngun- UT^ Almennur umræðuiúndúr úm íslond og murkuðsbundulögin - DR. BANDA Fram'hald af bls. 1 urkenna þetta, eða hefja bardaga á ný. Dr. Banda vísaði á bug þeim fullyrðingum komm- únista, að Malawi stæði í skugga nýrrar nýlendu- stefnu Breta: „Ég óttast ekki Elisabetu drottningu“, sagði forset- inn. „Hún er meinlaus, mjög snjöll og mjög geð- felld kona. En ég óttast Gengis khanana og Kublai klianana í Peking“, sagði dr. Hastings Banda. ★ Áður en Malawi hlaut sjálf stæði í júlí 1964, hét landið Nyasaland og var brezkt yerndarsvæði. Dr. Hastings Banda var þá leiðtogi þjóð- arnissinna í mörg ár og barð- ist lengi fyrir sjálfstæði lands síns. Hlaut hann a'ð launum frá Bretum bæði fangelsun og útlegð, sat meðal annars í fangelsi í Suður-Rhodesíu í rúmt ár frá 1959 til 1960. Með an á þeirri fangelsisvist hans stóð komu til íslands fulltrú- ar þjóðernissinnahreyfingar- innar í Nyasalandi til að fá stuðning Islendinga við að fá dr. Banda leystan úr haldi. Þegar Malawi hlaut sjálf- stæði 4. júlí 1964, var dr. Banda kjörinn forsætisráð- herra landsins, en forseti lýð- Veldisins var hann kjörinn í júlí í fyrra. *®*AÐ TILHLUTAN Stúdentafélags Hásikóla íslands verður efnt til almenns umræðufundar um efn ið „ísland og markaðsbandalög- in í Evrópiu.“ Fundurinn verður haldinn í Súlnasal, Hótel Sögu, að kvöldi miðvikudagsins 13. desember og hefst kl. 20.30. Framsögumenn verða: Dr. Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamála ráðherra, og Eysrteinn Jónsson alþingismaður. Að framsöguræðum loknuxn hefjast frjálsar umræður. Öllum er heimill aðgangur og eru áhugamenn um þessi efni hvaittir til að mæta og taka þátt í uimræðum. (Frá S.F.H.Í.). Myndin sýnir skriöuna við Búrfell, þar sem Volvobifreiðin féll niður, eftir að vegkantur. inn brast. Efri krossinn sýnir, hvar bíllinn stóð, og hinn neðri, hvar hann stöðvaðist. Ljósm. Tómas. Miklar skemmdir hafa orðiS á vegakerfinu — MJÖG mikið tjón hefur orðið á vegakerfinu, en heildartölur þar um, verða ekki kunnar fyrr en að tveimur til þremur dögum liðnum, sagði Hjörleifur Ólafs- son hjá Vegaeftirlitinu í gær, er Mbl. ræddi við hann. Ástandið er þó mikið að skána, enda lítið rignt á Suðurlandi síðastliðinn sólarhring. Unnið hefur verið sleitulaust að lagfæringum og 'víðast hvar er orðið akfært, þótt færð sé ekki alls staðar góð. Aðalskemmdirnar í Árnes- sýslu urðu við brúna á Stóru- Laxá. Þar var óakfært í fyrra- kvöld, en í gær höfðu nokkrir bílar farið þar um er sjatnað hafði í flóðunum. f Rangárvallasýslu urðu víða skemmdir. Þykkvabæjarvegur lokaðist, en var orðinn fær í gær og Fljótshlíðarvegur var einnig orðinn akfær, þótt viðgerð hafi ekki verið lokið. Að öðru leyti var þjóðvegurinn um Suðurland orðinn allsæmilegur, enda var hann heflaður í gær. Landeyjavegur syðri var enn lokaður í gær, en á honum gróf vatn, undan 12 m brú, sem þó hangir uppi. Hellisheiði var í gær orðin fær, en mikil hálka var þá í Kömbum. Vesturlandsvegur var bærileg- ur um Hvalfjörð og allt upp í Borgarfjörð, en margir vegir í Borgarfjarðarsýslu voru illa farnir, sérstaklega uppi til dal- anna, en þar höfðu orðið tölu- verð brögð að því að græfist úr ræsum. Þá eyðilagðist nokkuð stór brú á Dragavegi við Svína- dal. Vegurinn upp Norðurárdal var allsæmilegur og færð góð um Snæfellsnes og Dali. Mikil hálka var þó á fjallvegum, en víðast hvar gott færi innan fjarða á Vestfjörðum. Færð um Norðurland var all- góð, nema í Skagafirði, en þar urðu mikil flóð. Vegurinn yfir Vallhólminn var enn lokaður í gær, en hann eyðilagðist allmik- ið, einkum hjá ræsi við Sólvelli. Er reynt að hraða viðgerð á veg- inum. Unnt er að fara ytri leiðina um Skagafjörð, um Sauðárkrók og Hegranes. Þó óttuðust menn að flóðið næði brátt þangað, því að farið var að renna þar í gær- kvöldi. Vegurinn hjá Svartá var í gær kominn í lag, en þar rann mikið vatri í fyrradag. Voru bæirnir þar ekki lengur umflotnir vatni. Að öðru leyti var færð góð um landið, en nokkur hálka var á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.