Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 1W7
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar;
ítitstjórnarfulltrúi:
Fréttastjóri:
Auglýsingar:
Ritstjórn og afgreiðsla:
Auglýsingar:
í lausasölu:
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Áryakur, R’eykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðaistræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Símf 22-4-80.
Kr. 7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
SKIPASMÍÐAR Á
NÝJU STIGI
Deilur um efnahags-
ráöstafanir í Danmörku
Kaupmannahöfn, 19. des.,
einkaskeyti til Mbl.
ÞAÐ hefur vakið undrun í
Danmörku og erlendis, að ráð
stafanir stjórnarinnar vegna
gengisfellingarinnar — fryst-
ing dýrtíðaruppbótar í eitt ár
— sem bitna harðast á verka-
lýðnum, voru gerðar sam-
kvæmt tillögum Sambands
fagfélaganna með stuðningi
sósíaldemókrata, en stjórnar-
andstaðan, borgaraflokkarnir,
og Atvinnuveitendasambandið
lögðust á móti þeim.
Menn hefðu haldið, að
þessu ætti að vera öfugt farið.
Hvérjar ástæður liggja þessu
til grundvallar? Það eru að
sjálfsögðu margar og margvís
legar ástæður fyrir afstöðu
flokkanna til hægri aflanna.
Ðanska Atvinnuveitenda-
sambandið segir, að ástæðan
fyrir andúð sinni á ráðstöfun-
um þessum sé sú, að það trúi
ekki á raunhæft gildi þeirra.
Menn, óttast launalækkun í
þeim faghópum, þar sem enn
vantar starfskraft, sem svarar
til hinnar frystu dýrtíðarupp-
bótar. Þess utan benda menn
á hina erfiðu samkomulagsað-
stöðu, þar sem spurningin um
dýrtíðartemprunina lá ein-
mitt fyrst fyrir. Hið torfengna
samkomulagsuppkast var sam
þykkt með naumum meiri-
hluta verkamanna. Nú óttast
menn, að löggjöf um íhlutun
í 'dýrtíðartemprun vinnumark
aðsins muni skapa óró og ó-
ánægju. Og bent er á klofn-
inginn, sem þetta vandamál
hefur valdið innan verka-
mannaflokkanna, og það hef-
ur sprengt Sósíalíska þjóðar-
flokkinn.
Þá horfast atvinnuveitend-
ur vitanlega í augu við auka-
skatt þann, sem fylgir þessum
ráðstöfunum og lagður er á
þá, sem ekki eru launþegar —
þá sem reka sjálfstæð fyrir-
tæki.
Borgaraflokkarnir eru mjög
mótsnúnir afskiptum af dýr-
tíðartemprun launþegans. —
fhaldssami Þjóðarflokkurinn
var reyndar, að sögn leiðtoga
hans, mótfallinn gengisfell-
ingunni sjálfri. Vinstri flokk-
urinn, sem er landbúnaðar-
flokkur, varð að sætta sig við
gengisfellinguna (vegna bún-
aðarafurðaverzlunarinnar við
England), en hann heldur
því fram, að aukaskatturinn
sé ósanngjörn byrði sem bæt-
ist við verðhækkanirnar, sem
komu í kjölfar gengislækkun-
arinnar og bitnuðu á ýmsum
greinum iðnaðarins — sér-
staklega þeim, sem annast inn
flutning frá löndum, sem ekki
lækkuðu gengið. Róttæki
vinstriflokkurinn er sama
sinnis hvað aukaskattinum
viðkemur og Frjálslyndi mið-
flokkurinn álítur, að afskiptin
séu ekki nægileg og launþeg-
ar verði að gefa frá sér von-
ina um tvær dýrtíðaruppbæt-
ur næsta ár.
Inn í allt þetta er ofið póli-
tískum herbrögðum í stórum
stíl. Fyrst í stað var allur SF
á móti afskiptunum af laun-
þegunum, en hægriarmur
flokksins undir forystu Aksel
Larsens sætti sig við rök
stjórnarinnar og þær horfur,
að sá meirihluti verkamanna-
flokkanna, sem fékkst við
kosningarnar 22. nóv. í fyrra,
í fyrsta sinn í sögu Danmerk-
ur, mundi aftur hverfa. En í
vinstriarmi SF var lítill þver-
móðskulegur hópur manna,
nægilega stór til að fella
stjórnina, ef allir borgara-
flokkarnir greiddu atkvæði á
móti. Þessi litli hópur vildi
ekki samþykkja íhlutun í rétt
indi launþeganna.
Horfurnar á, að á þennan
hátt væri hægt að fella stjórn
ina og fá nýjar kosningar,
hafa mikla þýðingu fyrir
borgaraflokkana. Víst er, að
þeir beita stjórnmálabrellum
oftar og með meiri árangri en
áður. Þeir hafa einnig misst
áhugann á samningaviðræð-
um og gildir það einnig um
flokka, þar sem ýmiskonar
samningar hafa verið hefð-
bundnir: Róttæka vinstri-
flokkinn og Frjálslynda mið-
flokkinn.
Rytgaard.
t’ins og Morgunblaðið skýrði
^ frá í gær benda nú allar
líkur til þess, að annað
eða bæði hinna nýju strand-
ferðaskipa Skipaútgerðar rík-
isins verði byggð í Slippstöð-
inni á Akureyri, en þessi
'verkefná voru boðin út, bæði
innanlands og utan. Fari svo,
sem líklegt er, að þessi verk-
efni verði falin skipasmíða-
stöðinni á Akureyri, er hér
um að ræða stærsta verk-
efni, sem íslenzkri skipa-
smíðastöð hefur verið falið
til þessa, en hvort þessara
nýju strandferðaskipa er um
1000 tonn að stærð og er gert
ráð fyrir, að byggingarkostn-
aður skipanna hvors um sig
verði um 60 millj. króna.
Þessi verkefni munu mjög
verða til þess að efla at-
vinnulífið á Akureyri og
áhrifa þeirra mun ekki ein-
ungis gæta með auknum um-
svifum skipasmíðastöðvar-
innar þar, heldur einnig hjá
, fjölmörgum öðrum fyrir-
tækjum í þessum höfuðstað
Norðurlands og e.t.v. einnig
í nágrannabyggðarlögum.
Ríkisstjórnin og Seðlabanki
íslands vinna nú að athugun
á fjáröflun til þessara fram-
kvæmda og má búast við, að
endanlegar ákvarðanir liggi
fyrir innan tíðar.
íslenzkur skipasmíðaiðnað-
ur hefur vaxið upp á tiltölu-
lega stuttum tíma í harðri
samkeppni við erlendar skipa
smíðastöðvar, og að undan-
förnu hefur nokkuð borið á
verkefnaskorti hjá skipa-
smíðastöðvunum, en ríkis-
stjórnin undir forustu iðn-
aðarmálaráðherra, Jóhanns
Hafsteins, hefur haft til at-
hugunar með hverjum hætti
útvega megi skipasmíða-
stöðvunum ný verkefni. Sú
viðleitni er nú greinilega að
bera umtalsverðan árangur,
að því er skipasmíðastöðina
á Akureyri varðar.
Það sem m. a. stuðlar að
því, að þessi miklu verkefni
verða væntanlega falin inn-
lendri skipasmíðastöð er
gengisbreytingin, sem hefur
bætt mjög samkeppnisað-
stöðu íslenzkra skipasmíða-
stöðva og mun hún vafalaust
stuðla að því, að smíði nýrra
fiskiskipa fari fremur fram
innanlands en utan, og er þá
einnig á það að líta, að lána-
kjör Fiskveiðasjóðs íslands
eru hagstæðari sé skipið
smíðað hér á landi. Þá fást
lán er nema 75% af kostn-
aðarverði, en aðeins 67%, ef
skipið er smíðað erlendis.
Þegar harðnar í ári hjá
sjávarútveginum, eins og gert
hefur nú um nokkurt skeið,
hlýtur það að koma fram í
minnkandi verkefnum hjá
skipasmíðastöðvunum og er
þá eðlilegt, að ríkisvaldið
grípi inn í til þess að tryggja
þeim nokkur verkefni og
brúa þannig bilið, þar til
betur árar. En auðvitað ber
að leggja á það höfuðáherzlu,
að skipasmíðastöðvarnar geti
starfað sjálfstætt og óháðar
hvers kyns íhlutun ríkis-
valdsins í framtíðinni.
Með smíði strandferðaskip-
anna tveggja, eða annars
þeirra, innanlands, verða
gagnmerk tímamót í íslenzk-
um skipasmíðaiðnaði og ekki
ólíklegt, að hann verði áður
en langt um líður stolt hins
unga íslenzka iðnaðar.
BÓKHLAÐA
ITm nokkurt skeið hafa farið
^ fram umræður um sam-
einingu Landsbókasafns og
Háskólabókasafns í eitt mynd
arlegt og stórt vísindalegt
þjóðbókasafn. Um þetta hef-
ur m.a. verið gerð ályktun
á Alþingi, og Bandalag há-
skólamanna hefur sent þing-
inu áskorun um þetta efni,
en fram til þessa hefur Al-
þingi ekki samþykkt fjár-
veitingar til þessara fram-
kvæmda.
Við afgreiðslu fjárlaga
fyrir árið 1968 var hins vegar
samþykkt tillaga frá fjár-
veitinganefnd þingsins um
að veita 1,5 millj. króna til
byggingar nýrrar bókhlöðu
fyrir sameinað Landsbóka-
og Háskólabókasafn. Ástæða
er til að fagna þesgum tíð-
indum og ber væntanlega að
líta á þessa fjárveitingu, sem
fyrsta skrefið til sameining-
ar hinna tveggja bókasafna.
Þýðing stórs og fullkom-
ins bókasafns fyrir rannsókn-
ar- og vísindastarfsemi í land-
inu er augljós og jafnframt
má benda á þá hagkvæmni,
sem skapast í bókakaupum
við sameiningu tveggja
helztu bókasafna landsins, en
með núverandi skipulagi
þessara mála hefur óhjá-
kvæmilega verið um að ræða
talsverð kaup á sömu bókum
af hálfu þessara aðila.
—ERLENT YFIRLIT
Framihald af bls. 17.
tryggir til dæmis það að atvinnu
mögulei'kar þeirra verði ekki
verri en annarra lands.manna. í
frumivarpinu hefur verið tekið
tillit til allra hugsanlegra mót-
bára, en hvað svo sem stjórnin
gierði í miálinu hlaut að komia til
mótmiælaaðgerða. Ef hún hefði
reynt að flýta fyrir því að
hindí verði eina tungumálið
hefði svo getað farið að ítoúar
Suður-Indlands hefðu sameinazt
gegn öðrum landsmönnum. And-
stæðingar Kongressflokksins
hafa nú þegar tögl og hagldir í
ýmsum fylkjum Suðux-Indlands.
Ofstækisfullir stuðningsmenn
hindís efndu til ofsafenginna
mótmælaaðgerða gegn frum-
FJARVEITINGAR
TIL SKÓLA-
BYGGINGA OG
HAFNAFRAM-
KVÆMDA
fFvennt vekur sérstaka at-
hygli í sambandi við af-
greiðslu fjárlaga nú, annars
vegar stórhækkun á fjárveit-
ingum til nýbygginga skóla
og hins vegar mikil hækkun
á fjárframlögum til hafna-
framkvæmda.
Fjárveitingar til nýbygg-
inga skóla hækka um 35,2
millj. króna frá yfirstandandi
ári, og nema þá heildarfjár-
varpinu og bar mest á sbúdent-
um, sem finnst auðveldara að
læra á móðurmáli sínu en ensku.
En þótt látið væri í veðri vaka
að mótmælaaðgerðirnar beind-
ust gegn ensku beindist andstaða
þeirra, sem stóðu að aðgerðun-
um, aðalLega gegn stjórn Kon-
gressflokksins. Lítill hópur
vinstri sósíalista, sem hefur gert
andstöðu gegn ensku að aðaltoar-
áttum'áli sínu, gekk harðast fram
í mótmælaaðgerðunum, en hinn
hægrisinnaði Jan Sanglh-flokkur,
sem er mjög voldugur, styður
hindí af alefli og nýtur aðallega
fylgis á Norður-Indlandi, virtist
hika við að ganga of langt í bar-
áttunni gegn stjórninni.
Innan Kongressflokksins hef-
ur einnig ríkt töluverð óánægja
með frumvarpið, en Ohaivan
veitingar til stofnkostnaðar
skóla samtals um 187 millj.
króna. í þessum fjárveiting-
um er m.a. gert ráð fyrir
stórauknum framlögum til
skólabygginga í Reykjavík
og mun áætlað til þeirra á
næsta ári um 28 millj. króna,
en var á fjárlögum yfirstand-
andi árs um 21 millj. króna,
og frá þeirri upphæð drógust
10% vegna almenns niður-
skurðar á framkvæmdum.
Einnig er gert ráð fyrir
hækkun á fjárveitingum til
menntaskóla á ísafirði og á
Austurlandi og nemur hækk-
unin rúmlega 1 millj. á hvorn
skóla en hér er um að ræða
hið mikilsverðasta hagsmuna-
mál fyrir dreifbýlið og sér-
staklega byggðarlögin á Vest
innanríkLsráðherra tókst að
koma á S'amkomulagi með þyí
að taka allar hugsanlegar mót-
bárur til greina. Fruimvarpið er
fullkomlega í anda þeirra
Nehrus og S'hastris, sem lofuðu
þeim landsmönnum sem ekki
tala hind'í að þeir yrðu ekki
heittir miisrétti og gerðu sér
grein fyrir því að ofsbækisfullar
tungumiáladeilur gætu sundrað
þjóðinni. Þjóðareining Indverja
hvílir á hugsjóninni uiia sam-
bandsríki og þeir landsmenn
sem ekki tala *hindí segja að
hindímælandi Indverjar verði
einhverju að fórna til þess að
tryggja þjóðareiningu. Þessi af-
staða virðist eiga skilningi að
fagna og þess vegna er von til
þess að tungumáiadeilan sundri
ekki þjóðinni.
fjörðum og Austurlandi.
Á síðasta Alþingi voru
samþykkt ný hafnalög og í
kjölfar þeirra hefur nú verið
ákveðið að hækka fjárfram-
lög til hafnaframkvæmda
um 28,3 millj. króna frá fjár-
veitingum yfirstandandi árs,
og er hér tvímælalaust um
þýðingarmikil hagsmunamál
dreifbýlisins að ræða. For-
maður Fjárveitingarnefndar,
Jón Árnason, sagði í ræðu á
Alþingi, að þessar fjárveit-
ingar væru byggðar á raun-
verulegri framkvæmdaáætl-
un fyrir árið 1968 og að hin
nýju hafnalög mundu tryggja
að uppbygging framkvæmda
yrði skipulegri og öflun
nauðsynlegs fjármagns trygg
ari.