Morgunblaðið - 07.01.1968, Síða 2

Morgunblaðið - 07.01.1968, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR Mörg verkefni fram- undan í jaröborunum MÖRG verkefni eru framundan hjá jarðborunardeild ríkisins í ár samkvæmt upplýsingum ís- leifs Jónssonar. verkfræðings deildarinnar. í fyrsta lagi verður borað með gufubornum fyrir Hitaveituna í Reykjavík. Er ætlunin að bora bæði í bæjarlandinu, þar sem þegar er byrjað á nokkrum hol- um, og jafnframt hjá Reykjum í Mosfellssveit. >á hefur komið til taís að bora á Nesjavöllum — einnig fyrir hitaveituna. Kópa- vogskaupstaður hefur einnig mikinn áhuga að láta bora í landi sínu, skammt þar frá sem borholan í Blesugróf er, enda sagði ísleifur líklegt að þar gæti fengizt árangur. Svo farið sé út á landsibyggð- ina. þá sagði ísleifur, að til mála kæmi að bora frekar á Akra- nesi. Borholan þar er orðin 1400 metrar að dýpt og hiti við botn inn er 180 gráður, sem er mun meiri hiti en í borholunum í Reykjavík. Væri ástæða til að ætla að vatn lægi þar neðar, Vangaveltur eru um það, að bora í Námaskarði til gufuvirkj unar, en það er þó allt óráð- ið enn. Ennfremur kemur til greina að bora fyrir Kísiliðjuna, því að áhöld eru um það hvort þéssi eina hola sem fyrir er nægi henni. Þá er byrjað að bora í Hveragerði fyrir hitaveituna þar, og líkur eru á að borað verði í nánd við Keflavík. Til- raunaborhola var gerð á heið- inni hjá Njarðvíkum, og farið niður á 500 metra. Fæst þar hiti við botninn, en ennþá hefur ekki verið mælt hve mikill hann er. Kvað ísleifur árangurinn af þeirri holu gefa ástæðu til að leita frekar fyrir sér þarna í grennd við Keflavík. . H-umferðar- merki skemmt A SL. hausti lét Framkvæmda- nefnd hægri umferðar setja npp um 1300 staura við vegi landsins, en á þessa staura verða sett áminningarmerki fyrir hægri umferðina á næsta voW. Nú er svo komið, að búið er að saga og brjóta niður flesta þess- ara staura, á einni fjölförnustu leið landsins, Reykjavík — Sel- foss, og er þar greinilega um skipulagða skemmdarverkastarf- semi að ræða. Alls voru settir niður 24 staur ar á þessari leið, en síðast þegar til fréttist munu aðeins 2 'eða 3 stauranna hafa verið uppistand- andi. Hefur verið unnið að því í allan vetur og sérstaklega núna upp á síðkastið, að saga og brjóta staurana. Ekki hafa þeir sem þarna voru að verki þó haft áhuga á að hirða staurana — heldur aðeins að saga þá niður, — og er því greinilega um skipu lagða sketnmdarverkastarfsemi að ræða. Áminningarmerkið sem sett verður á staurana í fyrstu vik- unni eftir umferðarbreytinguna er sexhyrnt og á því er hallandi H,gert með endurskinsefni. Merk ið á að minna vegfarendur á, að hægri urwferð hafi verið tekin upp, og gegnir það því miklu öryggishlutverki. Er þvi enn furðulegra að menn skuli hafa gert sér að leik, að eyðileggja staurana — og lagt á sig þá fyr- irhöfn að hafa með sér sög, og saga þá og brjóta. Auk staur- anna sem eyðilagðir hafa verið á leiðinni Reykjavík Selfoss, mun töluvert hafa borið á því að staur amir, seim voru upp við veginn frá Selfossi og inn í Búrfell, hafi hlotið sömu örlög. Skemmidarstarfsemi þessi hef- ur nú verið kærð, og eru þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið í þessu máli beðnir að snúa sér til lögregluyfirvalda. Vestmannaeyingar gera sér dagamun á þrettándanum og efna til mikillar brennu, að göml- tun sið. Síðasti jálasveinninn farinn Og jólaskrautið tekið niður ÞRETTÁNDINN var í gær. Með honum er jólahaldi lokið í áu, að venju. Sá siður að gera sér dagamun á þrettánd anum er ævagamall, enda var hann helgur fram að 1770 og þrettándanótt- haldin helg fram undir miðja 19. öld, að því er Jónas á Hrafnagili seg ir í Þjóðháttum sínum. Sú trú helzt líka lengi að þeir draumar væru merkastir og þýðingarmestir, sem menn dreymdi á þrettándanótt, því þá átti Austurvegsvitringa að hafa dreymt fyrir fæðingu Krists. Áður fyrr var venja að breyta til með mat og skammta vel á þrettándanum og hét það „að rota jólin“. Þá voru og oft haldnar skemmti- samkomur. Nú eru skemmtisamkomurn ar það helzta, sem eftir er af þrettándasiðum. Víða úti um land er efnt til þrettánda- brenna, þar sem álfar og tröll koma og fleiri þjóðsagnaper sónur. í Reykjavik hafa brenn urnar færzt yfir á gamlárs- kvöld og álfarnir að mestu fyr ir bý. Það sem helzt minnir á Þrettándann í höfuðborginni, er það helzt að nálalaus jóla- tré birtast á svölum húsanna og við öskutumnurnar. Trén eru rúin glrtrandi skrauiti sínu, sem pakkað er ofan í kassa. Og mjplitu ljósaperurn ar hverfa af húsunum. Jólin eru búin. Á þrettándanum hverfur líka síðasti jólasveinninn. Jólasveinarnir þrettán, sem byrjuðu að koma 13 dögum fyrir jóL, einn í senn, taka að tínast aftur ht#m til sín eft- ir jólin, sá síðasti á þnettánd- anum. Farmiöaskattur í Bandaríkjunum FORMÆLENDUR fiugfélaga, ferðaskrifstofa og hótela víða um lönd hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirrar stefnu Johnson Bandaríkjaforseta að takmarka straum bandarískra ferðamanna til annarra landa. Sérstakri nefnd sem falið var að fjalla um þetta mál hefur verið gert að skila áliti fyrir 11. janúar. Bandaríska blaðið The Times, segir að farmiðaskattur hafi svo oft verið nefndur á opinberum Tvö innbrot TVÖ INNBROT voru framin í Reykjavík aðfararnótt laugar- dagsáns. Brotizt var inn í veit- ingahúsið Hábæ, við Skólavörðu stíg og brotið þar og hramlað á báðum hæðum og í kjallara. M.a. hafði hurðin fyrir víngeymsl- unni verið mölbrotin og síðan lagt tii atlögu við áfengisflösk- urnar með þeim árangri að 25 voru brotnar. Ekki var unnt að sjá í fljótu bragði hvort ein- hverju hafði verið stolið. Þá var og farið inn í heild- verzlun Eiriks Ketilssionar, að Vatnsstíg 3. Þar voru heldur óþriffalegir náungar á ferðinni. Þeir ruddu niður úr öllum hill- um og grýttu vítt og breitt um verzlunina. Þá höfðu þeir einnig rifið upp pakka og kassa, en frá- gangurinn var slíkur að ekki var strax hægt að sjá hvort ein- hverju hafði verið stolið. vettvangi að talið sé líklegast að hann verði lagður á, þegar þing ið kemur saman á ný. Stungið var upp á að slíkur skattur yrði lagður á árið 1962, meðan Kenn- edy var við völd, en horfið frá því þar sem talið var að það gæti haft óheppileg áhrif á Kennedy-viðræðurnar. Ferðaskrifstofumenn óttast að ef farmiðaskatturinn verði lagð ur á muni fólk með meðaltekj- ur sitja heima, en það er ein- mitt það sem hefur gert sér fjöl farnast til Evrópu. En þar sem kosningar eru á næsta leiti telja ýmsir að stjórnin muni veigra sér við að leggja hömlur á ferða frelsi Bandaríkjamanna með far miðaskatti, og muni því reyna aðrar leiðir. í því sambandi hef- ur helzt verið talað um hækkað- an söluskatt á farmiðum með skipum og flugvélum eða þá nokkurs konar daggjöld fyrir hvern dag sem eytt er til ferða- laga utan Bandaríkjanna, líklega 6 dollarar á dag Týndui hestui SJÖ VETRA hestur tapaðist á Kjalarnesi í nóvember og þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan hef- ur hann ekki komið í leitirnar. Hesturinn er brúnn að lit, tagl- prúður og markið er heilrifað vinstra. Þeir sem gætu gefið ein- hverjar upplýsingar eru vinsam- legasit beðnir að hafa samband við Jón E. HalidórsEon, hjá rann- sóknarlögreglunni, sámi 21100. ' * " Jón Helgoson stórkoupm. lútinn JÓN HELGASON stórkaupmaður í Kaupmannahöfn lézt sL fimmtu dag, 83ja ára að aldri. Hafði hann kennt vaniheilsu um skeið. Jón var um árabil búsettur í Rússlandi fyrir byltinguna 1917 og stundaði íþróttakennslu við hirð keisarans. Síðan fluttist hann til Kaiupmannahafnar og annaðist þar verksmiðjurekstur og heildverzlun. Hann var kvæntur Kristínu •listmálara, dóttur GuðmUndar Bergssonar póstmeistara. Eiga þau einn son, Bjöm viðskipta- fræðinig, sem búsettur er í Kaup mannahöfn. Jón Helgason var mi'kiU íþróttamaður. Hann var vel lát- inn og virtur maður meðal allra sem honum kynntuist, ekki sízt meðal íslendinga í Kaupmanna- höfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.