Morgunblaðið - 07.01.1968, Page 4

Morgunblaðið - 07.01.1968, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1968 ♦ y * MAGNÚSAR SKIPHOLTI21 símar 21190 eftir lokun simi 40381 ' 1-44-44 mfíiF/m Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingóifsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 e3a 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. IrtSjL/yng? RAUOARARSTlG 31 SllVII 22022 Látið ekki dragast að athuga bremsurnar, séu þær ekki lagi. — Fullkomin bremsu- þjónusta. Stilling Skeifan 11 - Sími 31340 GÚSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8 - Sími 11171 AU-ÐVITAÐ ALLTAF Ekki gert upp á milli símnotenda Ritstjóri símaiskrórinnar skrifar á þessa leið: í pistli Velvakanda 30. nóv- ember 1967 og aftur 3. þ.m., er nokkuð veitzt að símaskránni. Það er þakkarvert að benda á tillögur, sem gætu komið að gagni til að gera símaskrána þannig úr garði, að hún komi að sem mestum notum fyrir símnotendur. Að gefnu tilefni bið ég Vel- vakanda, að birta eftirfarandi upplýsingar: Þegar sjálfvirku stöðvarnar í Reykjavík og Hafnarfirði voru teknar í notkun árið 1932 voru athugaðir möguleikar á að hafa eina símaskrá fyrir báð- ar stöðvarnar. Það mæltist INiý sending af HAIRSTOP I_ tvær stærðir. Einnig NOHAIR T ° Sama verð og (Q/Qo áður. Vesturgötu 2 - Sími 13155. ekki vel fyrix þá, og var horf- ið frá því. Á árunum 1932 til 1959 voru símanúmer Hafnfirð- inga, sem þess óskuðu prentuð í Reykjavíkurskránni. Vegna mikil'lar ásóknar frá sím notendum frá öðrum landshlut um um að fá sín nöfn einnig biTt, og var því óspart vitnað í fordæmið í Hafnarfirði, varð að taka fyrir það. Ekki af mein bægni heldur til að gera ekki upp á milli símnotenda. Flest- ir munu viðurkenna að óheppi- legt er að prenta t.d. Suður- nesja- eða Akureyrarsímanúm- er í nafnaskrá Reykjavíkur. Það mundi skapa óæskilega þró un. Það er aiveg rétt að nú hafa skapazt ný viðhorf, þegar nær samfelild byggð hefur risið í Reykjavík til Hafnarfjarðar. í undirbúningi eru ýmsar breyt- ingar á útgófu símaskrárinnar og hefur jafnvel komið til tals, að hafa /efna nafnaskrá fyriir „Stór-Reykjavík“, það er fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópa vog, Arnarnes, Garðahrepp og Haifnarfjörð. Æskilegt væri að heyra frá símnotendum sjálfum áiit þeirra á því fyrirkomulagi og þá einkum álit Hafnfirðinga og íbúa Garðahrepps. Símnotendur í Kópavogi, Sel- tjarnarnesi, Arnarnesi og þeir sem búa norðan Hraunshols- iækjar í Garðahrepp: eru nú þegar prentaðir í nafnaskrá Reykjavíkur í símaskránni. Af tæknilegum ástæðum varð að skipta Garðahreppi og tengja símnotendur, sem búsettir eru norðan Hraunsholtslækjar við sjálfvirku stöðina í Kópavogi, og síimnotendur sunnan kekj- arins við stöðina í Bafnarfirði og eru nöfn þeirra prentuð í nafnaskra Hafnarfjarðar. Þetta mundi breytast ef ein skrá yrði prentuð fyrir svæðið frá Reykja vík til Hafnarfjarðar. Um þessar mundir er unnið að útgáfu nýrrar götuskrár, þar er símnotenduim raðað eftir heimilisföngum og götunöfnum í stafrófsröð. Götuskráin nær yfir flest öll skráð símanúmer í Reykjavík, Kópavogi, Sel- Heimilishjálp í Skotlandi Kona á aldrinum 25—35 ára óskast til heimilisstarfa í Glasgow í Skotlandi. Þarf að geta séð um heimili og 3 börn. Uppl. verða veittar hjá Mr. Gould að Hótel Sögu mánudags- og þriðjudagskvöld eftir kl. 18. Garðahreppur Börn eða unglingar óskast til að bera blaðið út í Garðahreppi (Ásgarði og fl.) Uppl. í síma 51247. tjarnarnesi, Amarnesi, Garða- hreppi og Hafnarfirði. Það verður fróðlegt að heyra hvera ig símnotenduim geðjast að þeirri niðurröðun. ÍC Fleiri glíma við breytingar til bóta Það eru fleiri en íslend- ingar sem eru að glím,a við breytmgar tii bóta við útgáfu símaskráa. Með aukinni sjálf- virkni skapaist ýmis vandamál, sem þarf að leysa. Nú, þegar unnt er að velja sjálfvirkt síma númer milli landa og heims- álfa, er nauðsynlegt að sam- ræma niðurröðun nafna í síma skrár hinna ýmsu landa. T.d. í Danmörku og Svíþjóð er rað- að eftir eftirnafni og titli, í Noregi eftirnafni og skírnar- nafni, hjá okkur skírnarnafni og föður eða eftirnafni. Hvernig ætli íslendingar kynnu við ef farið yrði fram á, að raða í nafnaskrá síma- skrárinnar eftir föðurnafni eða ættarnafni (eftirnafni) til að auðvelda símnotendum er- lendra þjóða að finna símnot- endur í íslenzku skránni þeg- ar ísland tengist í sjálfvirkt símasambad við umheiminn, sem verður án efa í náinni framtíð. Bandaríkj amenn eru há- menntaðir í vísinduim og tækni og nota tæknina til hins ílr- asta á öllum sviðum, eins og allir vita. Þó er seinlegt að finna nöfn í símaskrám stór- borganna vestanhafs. Lítum í eina af New York skránum, t. d. Manhattan. Þar eru skamm- stafanir sem slíkar „wtehmkr" og „lwyr“, sem er „Watchmak er“ og lawyer", sérihljóðum er sleppt. Það þætti ekki fara vel í íslenzku máli. Þá vil ég víkja nokkrum orð um að númeraskiptum hjá sím notendum, en nokkurrar ó- ánægju gætir þegar skipta þarf um símanúmer ef flutt er á milli svæða sjálfvirku stöðv- anna. Það er ekki gert af mein- hægni né þjösnaskap heldur af tæknilegum og fjárihagislegum ástæðum. Það er nefnilega tak- mörk sett hve langar símalín- ur mega vera frá sjálfvirkri símstöð til srmnotenda. Þetta er ekki íslenzkt fyrirbrigði heldur alþjóðlegt. Það má eflaust að ýmsu fvnna í daglegri þjónustu sím ans og er hollt að heyra rétt- mæta gagnrýni, þá er auðveld ara að lagfæra þaíð sem aflaga fer. Eitt get ég fullyrt að yf- irstjóm og srtarfsfólk símans reynir eftir fremsta megni að veita góða þjónustu. Virðingarfyllst, Hafsteinn Þorsteinsson, ritstjóri símaskrárinnar. if Óviðkunnanlegt athæfi ,,Að kvöldi annars jóla- dags 1967. Kæri Velvakandi! Þá eru nú þessi blessuð jól að enda. Að vísu er sagt, að þau séu fram að þrettánda. Bæði þú og ég munum nú samt mæta til vinnu í fyrramálið. Oft hef ég nú ætlað að skrifa þér, en aldrei hafa bréfin samt komizt lengra en í ruslafötun'a hjá mér. Oftast hef ég skrifað, ef mér hefur fundilfct eitthvað að, eins og fleirum. Vona ég samt, að þetta bréf mitt lendi ekki í þinni ruslakörfu. Á aðfangadag jóla er það sið- ur flestra, sem hafa rnisst ást- vini sína, að minnast þeirra með því að fara að leiðum þeirra í kirkjugörðunum. í Fossvogs- kirkjugarði fara margir að leið- um sinna. Þó mikil sé þarna umferð, er þó eins og allir séu út af fyrir sig, ekki sízt á að- fangadag jóla. Fæstir vilja bera tilfinningar sínar á torg. hvað þá að láta taka myndir af sér og sínum við gröf ástvina. Allir hafa verið ótruflaðir af utanað- komandi þar til núna. Ungur maður hljóp þarna um allt og tók myndir í ákafa af fólki, sem var þarna við leiðin. Ég og fjölskylda mín vorum þarna, og réðst 'hann að Okkur og tók myndir, og urðum við fyrir miklu ónæði hans vegna. Við vorum þannig fyrirkölluð, að við gátum ekk; ráðizt að hon- um og rekið hann frá. Hefur það vafalaust verið svo um fleiri. Má þetta því sannarlega kallast furðulegt smekkleysi að geta fengið sig til að gera fólki ónæði á þessu-m stað. sem manni finnst, að ætti að vera allra staða friðhelgastur. Eru það því tilmæli mín, að þú korn ir því á framfæri við ráðamenn kirkj'ugarða. að þeir, láti varna þessum mönnum umeang um garðinn { þessum erindagiörð- um. Þetta gerir fólki ónæði og veldur miklum leiða. IJngi maður. Ég tók númerið af bílnum- sem'bú varst í. Hver var tilgangur binn? H°fur þú einhveria ánæffiu af harrni ann- arra? Leitaðu hér þá lækningar sem a-llra fyrst. Móffír". ic Vill meiri umferð- arfræðslu Guðrún Sigurðardóttir skrifar: ..Velvakandi minm! Af því að þú birtir nú svo mikið um dægurmálin okkar, langar mig á ný að biðj-a þig fyrir nokkur orð, af því að mér er þungt í skapi. Þó-tt einhverjum þyki það kannsk-e ekki kvenlegt sérstak- lega hef ég lengi haft áhuga á umferðarmálum og gert mér far um að fylgjast dálítið með þeim- þó a-ð ég segi sjálf frá. Og nú u-ndrar mig eitt stórlega: Hvernig í ósköpunum stendur á því, að núna í allt haust h-efur maður bara alls ekki heyrt bofs í útvarpinu um umferðarmál, og mi'klu, mifclu minna en I fyrrahaust. t. d.: þegar Pétur Sveinbjarnarson og þeir fluttu of-t í hverri viku umferðarþætti. leiðbeiningar o'g hvetjandi orð? Ég hélt nú satt að segia í minni fáfræði, að þetta ætti að vera og þyrfti að vera þveröfugt með tilliti til tilvonandi hægri umferðar. Ég er varla sú eina, sem hélt og vonaði, að nú fyrst, og ekki seinna en á síðasta haustinu fyrir umferðarrbeyt- inguna yrði hvers konar um- ferðarfræðsl-a aukin til stórra muna, eins og m-aður hefur heyrt að Svíarnir hafi -gert, en nú sýnir reynslan, að umferðar- fræðslunn; hjá okkur hefur hrakaff til stórra muna. Er þetta nú hægt, Velvakandi góður? Og hver ber ábyrgðina á þessu? Er ekki hægt að fá að vita það? Kannske bara enginn. Guffrún Sigurffardóttir".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.