Morgunblaðið - 07.01.1968, Page 24

Morgunblaðið - 07.01.1968, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1968 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA að spyrja Lögreglustjórann, sagði hann. Því miður, en ég hef fyr- irskipanir um þetta. Það tók nokkurn tíma að finna Jim. Þegar við loksins fundum hann, var hann úti á lóðinni, að reyna að finna ein- hver merki um fótspor konu, þessi, sem hann hafði séð um nóttina. En þau voru algjörlega horfin. Hann hafði nú ekki ann að í höndunum en það, sem hann hafði markað í yasaklútinn sinn, og hann var enn með efasemda- svip, þegar hann kom upp til okkar. En hann hleypti okkur nú samt inn og stóð yfir okkur til þess að sjá til þess, að við færðum ekki neitt úr lagi. Maud lá enn í rúminu sínu. Hún hafði ekki verið afklædd, og blátt silkiteppi hafðd verið breitt yfir hana. Gluggarnir voru galopnir og mjög kalt í her- berginu. Það var víst þessi buldi, sem verkaði svona illa á mdg. Hendurnar á mér voru svo óstyrkar, að ég hélt, að mér mundi ekki takast að opna skáp- inn. En hvorki hurðin í þi'linu né skápurinn sjálfur var læst. Hurð in var aftur, en innan við hana stóð skápurinn opinn upp á gátt. En það hafði engu verið stolið. Skartgripirnir voru þarna allir í öskjum sínum, eins og ég hafði skilið við þá. Aðeins vantaði þarna skrána, sem við höfðum samið, og svo umslagið, sem Tony átti að fá. 24. kafli. Það var komið hádegi, þegar Stewart, saksóknarinn, kom á vettvang. Bér var stórt mál í aðsigi, sem gæti aflað honum frama, ef vel tækist til. Dauði Morgans hafði ekki verið nema venjulegt morð, sem ekki var eftirtektarvert nema fyrir það eitt, að það hafði verið framið á landareign Wainwrights. En en var Maud Wainwright sjálf dauð. Hvort það var sjálfsmorð eða morð, var þetta stórmál. Á eftir bil hans þennan dag, komu einir þrír eða fjórir aðrir af ýmiskonar árgöngum, fullir af blaðamönnum og ljósmiyndurum. Ég sá hann sjálf, þar sem hann stillti sér upp fyrir framan dyrn- ar í leikhúsinu, til þess að hægt væri að taka mynd af honum, en Hopper stóð álengdar fjær með háðsglott á andlitinu. 52 Blöðin voru með myndina dag- inn eftir. Það var sýnilegt, að bæði Hopper og Jim voru vel til með að gefa honum eftir nægi- legt band til að hengja sjálfan sig í, því myndatextinn hljóðaði þannig: Saksóknarinn segir frú Wainwright hafa framið sjálfs- morð. Yfirleitt leit hópurinn þarna út eins og skemmtiferða- hópur frá Cook, þarna sem Stewart var fararstjóri að út- skýra það, sem fyrir augun bar. ,,Hér var líkið, piltar. Þið sjáið, að það hefur verið strikað kring um það með krít. Og byssan var þarna, niðri í lauginni. Sorglegt ti'lfelli. Sérlega sorglegt. Sýnir, að ekki eru peningarnir fynr öllu“. Jim tókst að halda blaðamönn- unum frá húsinu sjálfu. En Stewart var heldur betur í ess- inu sínu, þar sem hann sat í bóka stofunni ásamt Tony, Dwight Elliott, Jim, Hopper, og loksins sendi hann eftir mér. — Hvernig stóð á því, að þér fóruð út í leik- húsið í nótt — eða öldu heldur í morgun? Ég sagði honum frá því eftir beztu getu, að ég hefði vaknað snögglega, saknað hundsins, og svo framvegis. Hann hlustaði og horfði á mig, glúirinn á svipinn. — Þegar þér lögðuð af stað út í leikhúsið, voruð þér þá með lykil með yður? — Nei, það hafði mér ekki diottið í hug. Umbúða- Pappírinn hvíti 40 og 57 cm kominn Þorsteinn Bergmanr Heildverzlun . Sími 17-7-71 Stórt fvrirtæki vill ráða tvo starfsmenn nú þegar til skrifstofu- starfa. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Mbl. merkt: „5113“. [5 snittur IBRAUÐ. smurt brauöIHÖLLINI brauötertur M LAUGALÆK 6 opid frá kl. 9-23:30 9* SÍMI 30941<*B+næg bílastædi< Fiskibátar til sölu Átta fiskibátar af stærðunum frá 24 rúmlestum til 140 rúmlesta. Bátarnir eru allir í fyllsta standi ásamt aðalvélum og tækjum. Lánakjör hag- stæð og útborgun hófleg. SKIPA. SALA Talið við okkur um kaup og sölu fiskiskipa. ENNÞÁ óbreytt verð d innihurðum Landsins mesta úrval SIGURÐUR ELÍ ASSON % Auðbrekku 52-54, Kópavogi, sími 41380 og 41381 — Þér fóruð þangað til þess að slökkva eldinn og höfuð eng- an lykil? — Ég fór ekki af stað út í þeim erindum. En hann hafði mig áreiðan- lega grunaða. Hann leit kiringum sig, og vænti sér sýnilega aðdá- unar hinna. En enginn hreyfði sig. — Þér höfðuð enga hugmynd um, að dyrnar á leikhúsinu væru þegar opnar áður en þér komuð þangað? Loksins var ég farin að sjá rautt. — Hvaða þýðingu getur þetta haft? sagði ég áköf. — Ein hver myrti frú Wainwright í nótt. Ef þér bara vilduð hætta þessum asnaspurningum og stilla yður upp fyrir ljósmyndarana, gætum við kannski orðið ein- hvers vísari. Þetta fyrirgaf hann mér aldrei. En hann hélt engu að síður áfram að láta spurningum rigna yfir mig. Hvað um járnskápinn? Hafði ég þekkt læsinguna? Hafði ég skilið hann eftir opinn um nóttina? Hvers vegna hafði frúin viljað skrásetja skartgrip- ina, og hvar var skráin. Tony hlustaði þögull og skuggaleguir á svipinn. Hopper svældi í ákafa. Hr. Elliott horfði á neglurnar á sjálfum sér og sló fingrum á borðið. En það var ómögulegt að þagga niður í Stewart. Hann náði í Hildu og hitt þjónuistuifólk ið, hvert á fætur öðru. Höfðu þau tekið eftir nokkurri breyt- ingu á frú Wainwright nýlega? Hafði hún verið döpur og þung í skapi? Gat það verið, að hún hefði falið byssu Tony einhvers staðar, til þess að nota hana sj'álf seinna? Loksins þoldi Tony ekki leng- ur við: — Segðu honum frá skránni og umislaginu, sem er horfið og svo skuilum við hafa okkur burt héðan. Ég er búinn að fá allt, sem ég get þolað. Ég gerði það og útskýrði eftir beztu getu, en þar hafði hann einnig svar á reiðum höndum. — Ég skil, sagði hann, — auðvitað getur þetta skýirt eldinn, sem var kyntur í leiklhúsinu. Hún hefur brennt þetta þar. Það er augsýni legt. Loksins fór hann, og sannfærð ur um, að Maud hefði framið sjálfsmorð. Hann fékk eitt glas áður en hann fór og flutti stutta ræðu yfir blaðamönnunum úti, að lokum. — Því miður piltar, þetta ligg ur í augum uppi. Hún hafði ver- ið veik. Slæm fyrir hjartanu. Gerði enda á því á auðveldasta hátt. En seinna getur kannski eitthvað komið í ljós. En eins og er, lítur þetta út fyrir að hafa verið sjálfsmorð. Þið megið hafa það e.ftir mér. Þetta var allt heldur and- styggilegt — að sjá þetta mann- kerti með hátíðasvipinn, þarna úti í garðinum, myndavélarnar í fullum gangi, en svo sorg og hryggð inni í búsinu. En að vissu leyti var þetta rétt hjá honum. Á ytira borðinu leit þetta út eins og sjálfsmorð, og jafnvel Tony var farinn að efast. Þegar þessu var lokið, fann hann mig í skrifstof- unni minni, liggjandi fram á borðið, og hann varð hræddur á svipinn. — Til hvers hefði hún átt að gera það, Pat? sagði hann. — Hún vair hamingjusöm. Ég hef aldrei þekkt hamingjusamari konu. Og hún var kát og hug- rökk alveg fram að þessum síð- asta sjúkdómi sinum. En jafnvel þá .... hvers vegna ekki segja neitt við mig? Við vorum svo samrýmd. Maður skyldi halda ...... Utsýnarkvöld í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU, sunnud. 7. janúar kl. 8.30 e.h. Ingólfur Guðhrandsson ræðir um ódýra ferðamöguleika og sýnir kvikmynd frá Spánarströndum. Guðjón B. Jónsson sýnir litskuggamyndir frá Blómaströnd Ítalíu. Ferðahappdrætti: Vinningur ferð til London og til Spánar eða Ítalíu. Dansað til kl. 1. Þátttakendur í Útsýnarferðum í fyrra eru hvattir til að taka myndir sínar með. Aðgangur ókeypis og öllum heimill\ meðan húsrúm leytir. - Hittumst heil, og mœtið stundvíslega FERDASKRIFSTOFAN UTSÝN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.