Morgunblaðið - 14.01.1968, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.01.1968, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1968 Jón Auðuns, dómpróf.: Vegur Páls og vegur þinn „HLÝTUR það ekiki að hafa ver ið Páli hræðileg minning, eftir að hann gerðist kristinn, að hafa látið sér vel líka að horfa á Stefián páslarvott myrtan, og að hafa jafnvel átt hlut að þeim voðaverknaði“? Svo isagði við mig maður, sem lesið hafði síðustu sunnudags- greinina. um hið grimmdarifulla morð á Stefiáni. Mér þykir vænt um að fiá tæki færi til að spjalla _við svo at- hugulan lesanda. Ég held að þessi atburður og aðrar ofsóknir Pláls gegn kristnum mönnum hafi náðið meiru en tíðast er talið um mótun trúarskoðana. En þær hafa orðið svo fyrirferðarmiklar í kristinni trúfræði, að miklu meira er vitnað til Páts en Krists í trúfræðj rétttrúnaðar- ins. . í 15 kap. fyrra Korintutoréfs, merkasta bréfkafla Páls, segir hann frá, hvernig Kristur hafi birzt upprisinn, og segir: ,.En síðast allra birtist hann einnig mér, því að ég er síztur postul anna og ekki verður þess að kallast postuli, með því að ég ofsótti söfnuð Guðs. En af náð Guðs er ég það, sem ég er“. Kristur hafði boðað mönnum iðrun og afturhvarf. En sú boð- un skipar miklu meira rúm í guðfræði Páls. Og hugmyndum hins mikla postula um það, að maðurinn sé af eigin rammleik einskis góðs megnugur gesti ekk ert áunnið fyrir eigin tilverkn- að en þiggi allt sem óverðskuld- aða gjöf Guðs, — þeim hugmynd um er vægast sagt erfitt að finna stað í Fjallræðunni, enda verið andmælt af mörgum ágæt um guðfræðingum. Deyjandi blóðvottur, laminn grjóti í hel. Hvernig gat slík synd orðin fyrirgefin. Gat ævilangt erfiði afplánað slíka sekt? Voru kvala- fullar ofsóknir, sem Páll varð síðar sjálfur að þola, nokkurt gjald við svo geigvænlegri skuld ? Og þó birtist Kristur uppris- inn jafnvel honum? Það varð Páli tvímælalaust tákn náðar Guðs. Annars vegar var hinn voða- legi sektanþungi, hinsvegar hin óskiljanlega gjöf, að Kristur vitraðist honum, — hlaut ekki náðin að verða brennipunktur- inn í trúarlífi Páls? Svo um- brotasöm sál, með sívakandi minningu um voðalega synd. hlaut að þurfa hið algera, snögga afturhvarf til að frelsast. Menn eru margvíslegir og leið ir þeirra margar. í>að er mikil fásinna, að ætla öllum eina og sömu leið, krefjast af öllum mönnum þess aftunhvarfs, sem var eina færa leiðin fyrir Pál. Bæði gerð hans' og fortíð hlutu að leiða hann til slíks aftur- hvarfs. Hitt er vafasamt, að gera guð fræði hans að mælisnúru allrar kristinnar kenningar og gera veg hans að vegi allra. Til þess var lífsreynsla hans of sérstæð. Þessvegna hefir það líka þrá- sinnis mistekizt herfilega svo- köiluðum vakningakristindómi og heittrúarstefnum að knýja menn á stórsyndarabekkinn til skyndilegs afturhvarfs. >að aft- uhhvarf hefir .þrásinnis viðrast fljótt af mönnum eins og ölvíma og skilur eftir vonbrigði og með vitund um stóra, auðvirðilega blekkingu, sem leiddi af sér frá hvarf frá allri trú. Með þá sérstæðu reynslu að baki að hafa fyrst verið haturs fullur ofsóknari kristinna manna og síðar eldlheitasti boðberi kristninnar, hlaut trúarlíf Páls að verða eins og það varð. í geð heitri sál hans brann æviharm- ur sektarbálsins. Því gaf hann upp alla von um mátt manns- ins til hins góða og friðþæging- ardauði Krists varð athvarf hans. Hitt er ekiki eins sjálfsagt, að gera hina sérstæðu reynslu hans að mælisnúru fyrir alla menn, og gera hana að ráðandi afli í trúfræði kirkju Jesú Krists. Enda hafa staðið rammar deilur um þá meginkenningu Páls, að maðurinn sé einskis góðs megn- ugur en þiggi sáluhjálp sina eins og glæpamaður konunglega náðun, og margir merkustu guð- fræðingar hafa talið Pál í þessu kominn langar leiðir frá Jesú. Kristi. Þeir voru ólíkir menn, með ó- líka gerð og ólíkan æviferil. Guðfræði Páls, áherzluþung- inn á friðþægingarkenningunni og náðinni sem bjöf Guðs til syndugs manns. gjöf sem Guð gæfi að algerlega sjálfráðum. vilja sínum en ekki í neinu satn, bandi við verðleika mannsins, — þessi guðfræði verður ekki skilj anleg nema hafður sé í huga fer ill Páls á fyrri árum og þá ekki sízt minning hans um blóðuga ásjónu Stefáns og aðild hans að þeim verknaði. Broddurinn leyndist alla ævi 1 hjarta Páls og mótaði guðfræði- hans. Þessvegna er fráleitt að gera hana að mælisnúru fyri*. alla menn og að ætla öllum öðrum veginn hans. Vanræktir hestar Þeir eru ekki fóðraðir svo að dögum skiptir, og hafa sum- staðar ekkert skjól fyrir veðri ENGIN Iífvera úr dýrarík- inu hefur verið dásömuð jafn mikið á íslandi og hesturinn, mannsins þarf- asti þjónn, bezti vinur, tryggðatröll, augnayndi og ljúfi leikbróðir. Um hann hafa verið skrifaðar stórar bækur, hugnæm ljóð, ótal smásögur, tugir blaða- greina. Og ófáar lífverur úr dýraríkinu er farið jafn illa með í dag. Hérna á dögunum, þegar tuttugu atiga frost var í höf- uðborginni, lögðu þrír félagar minir leið sína í lítinn sikúr skammt frá Reykjavík. Þetta var ekki fyrsíta ferðin þeirra þangað, til að líta eftir tveim- ur hesitum, seim þar eru geymdir í vægast sagt óhrjá- legum húsakynnum. Þeir voru kappklæddir, en nist- andi kaldur vindurinn smaug gegnum merg og bein, og þeir supu hveljur, eif þeir sneru sér upp í veðrið. Þegar þeir komu að skúrn- um, himdu liestarnir þar hreyfingalausir. Stórir klaka- drönglar héngu niður úr nasa holum þeirra og faxi. Þeir tóku kipp, þegar mennirnir birtust, hlupu til móts við þá og biðu eftirvæntingarfullir eftir að fá eitthvað að borða. Því miður höfðu þeir ekkert með sér, og sneru fljótlega til baka þungir í skapi eftir að hafa litið inn í sikúrinn og séð engin merki þesis að þeim hefði verið gefið. Þeir klifr- uðu yfir girðinguna og gengu að bílnum, en hestarnir hlupu meðfram henni, og fylgdu þeim eftir eins langt og þeir gátu. Við hliðina á hreysinu, sem hestamir voru geymdir í, er nokkuð sltór skúr og sæmi- lega hlýr. f honum eru geymd ar heybirgðirnar, en skúrinn var harðlokaður. Reynt var að fá heimild til að opna sikúr inn og gefa hestunum, en það hefði verið innbrot og beiðn- inni var synjað. Það var margbúið að tala við eiganda hestanna, en hann !ét sér ekki segjast. Tveim eða stað. Það var auðséð, að ég sjálfur ásamt félögum mín- um á þennan ömurlega stað. Það var auðséð, að hestarnir höfðu ekki verið fóðraðir í millitíðinni, og enn hímdu þeir hreyfinga- lausir við skúrinn. Hann var dimmur og óhrjálegur og svo langt síðan hafði verið hreins að út úr honum að hestarnir urðu að beygja sig til að kom ast inn. Það sáust engin merki þess að þeir hefðu teðjað siðast- liðina fjóra fimm daga, sem aftur bendir til þess að þeir hafi eikki verið fóðraðir í minnsta kosti viku. Og þá gerðist ég innbrotsþjófur. Það tók þó nokkurn tíma að sparka snjónum frá hlöðu- dyrunum og auðséð að það hafði ekki verið gert í nokk- urn tíma. Þegar ég kom út með heyfang, komu hestarnir Eigandi þessa hests hefur áríiðanlega ekki tognað í baki við að bera honum hey. Glæsileg hesthús? Það er svo langt siðan mokað var út, að þeir geta varla staðið uppréttir. báðir hlaupandi og ég hafði ekki tíma til að setja það nlð- ur áður en þeir voru byrjað-' ir að háma í sig töðuna. Annar hesturinn var auð- sjáanlega kominn til ára sinna. Framtennur hans voru svo sllitnar, að það mátti koma fingri á milli þeirra, þegar hann beit saman. Jaxl- arnir voru ágætir þannig, að hann gat tuggið með þeim, en jafnvel í kafagrasi að sumri til gæti hann eikki kroppað nema stærstu gras- toppana. Hann verður því s\ro til eingöngu að treysita á að honum sé gefið hey. LíkT leiga hefur eigandi hans aldrei lært að handleika hófjiárn, a.m.k. var það ekki að sjá á fótum hana. Hófarnir voru óskornir og afturfæturnir voru swo slæmir, að hann gekk svo til á hælunum. Hinn hesiturinn var yngri og ekki eins illa farinn. Við bárum eins mörg heyföng inn í hreys ið og við gátum troðið þangað, og héldum svo heim á leið. Nú eru þessir vesa- lingar sem betur fer komnir í gott hús og fá nóg að borða. En það var ekki eigandinn, sem kom því í verk, heildur úrsikurðuðu yfirvöld viðkom- andi sveitarfélags að þetta væri ekki viðunandi meðferð, og gerðu það því sjálf. Eig- andanum var svo tilkynnt þetta bréflega, en ekki veit ég hvort hann er búinn að heimsiækja þessa „vini sína“. Á öðrum stað nokkuð lengra frá Reykjavik voru 30 eða 35 hestar í girðingu. Beit er þar ekki mikil, sem m.a. mátti sjá á þvi að i sumum mátti telja rifbeinin þrátt fyr ir að þeir væru í vetrarhár- um. f þessari girðingu er ekkert Skjíl að finna og hest- arnir standa óvarðir í frosti og fimbulveðrum. „Þau eru rífleg vinnulaunin þeirra, ekki satt?“ Þes-)i girðing er nú ekki alveg ein? ömurleg á að líta, því að eigandanum var skipað að flytja ein 10 hrossana, sem verst voru út- leikin og koma þeim i hús. Og að sjálfsögðu efast. ég ekki um að hann hefur af gæzku sinni reist skýli fyrir þau siem eftir eru, og gætir þess vand- Fnamlhald á 'bls. 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.