Morgunblaðið - 14.01.1968, Síða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1968
Sigurd Revheim, sem planta ði skóg, sem skólastrákur, og
byggM sér íbúðarhús úr viðnum síðar.
Gömul íslenzk'mynt frá árunum 1922 til 1942 óskasf til kaups. Tilboð merkt: „Mynt 2881“ semdist Morigunblaðinu. Skattaframtöl - bókhald Annast um skattaframtöl. Tek einnig að mér smærri bókhöld og bókthaldsupp- gjör. Uppl. í síma 52246.
Til sölu Mercedes Benz 220 árg. ’55. Verð kr. 50.000.00 Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Simi 37225. Skrifstofuhúsnæði Til leigu nú þegar tvær teppalagðar stofur neðst við Laugaveg. Uppl. í síma 37146.
íbúð óskast sem næst Miðbæmum. Uppl. í síma 82892. Starfsstúlkur óskast. Skíðaskálinn, Hveradölum.
Tek saum Sauma síða og stutta kjóla, sníð, máta og hálfsauma. Sauma gluggatjöld, tek alls k. breyt. Sigríður Ás- mundsd., Álftam,. s. 38201. Aðstoða við skattframtöl byggingarskýnslur O'g fl. Verð kr. 450.00—750.00. — Innifalið kærur og bréfa- skriftir síðar ef með þarf. Sigurður S. Wium, s. 40988.
3ja herb. íbúð óskast til leigu. Uppl. í síma 37457 í dag og eftir kl. 7 næstu kvöld. Fóstra óskar eftir að leigja 2ja—3ja herb. íbúð með föndurtkennslu fyrir augum. Jarðhæð æski leg. Uppl. í síma 50227.
Svefnbekkur Vel með farinn 1 manns svefnbekkur tii sölu. Á sama stað 2 kjólar úr ull- arefni og 1 frabki, nr. 40. Sími 34903. Ung reglusöm hjón óska eftir lítilli íbúð á leigu. Uppl. í síma 30115.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Kópavogur Lítið hreinlegt iðnaðarhús- næði óskast til leigu. Mæfcti vera bílskúr. Tilboð send- ist Mbl. fyrir mánud.kv. merkt: „Hreinlegt 2916“.
Lóan tilkynnir I Útsala - Útsala Mikil verðlækkun. Komið og gerið góð kaup. Bamafataverzhmin LÓAN, Laugavegi 20 B. (Gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg).
Raðhús í Fossvogshverfi
Til sölu er fokhelt raðhús á bezta stað í Fossvogs-
hverfi. Tilbúið til afhendingar strax.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Raðhús — 2909“.
Skógrækt ó íslandi er þjóðþriitunól
MÁSKE finnst mönnum hávet-
ur ekki vera sem beztur tími
til að tala um skógrækt, setur
hana ef til vill alltaf í samband
við sói og sumar, — en hitt
hlýtur þó að vera mönnum aug
ljóst, síðan farið var að rækta
greni- og furutréin sjgrænu hér
á landi, þá setja þau óneitanlega
mikinn svip á umhverfið, þar
sem þau standa keik, beinvax-
in og fallega græn upp úr snjón
nm, og bjóða stolt hinum ís-
lenzka vetri byrginn.
Vissulega var englnn vetur,
þegar við tókum þær tvær
myndir, sem með grein þess-
ari birtast austur í Haukadal,
rétt um miðjan ágúst sl. sumar.
Þá var einmitt einhver sú mesta
veðurblíða, sem lengi hafði kom
ið á landinu. Þar var þá statt
norskt skógræktarfólk til að
hjálpa okkur við gróðursetn-
ingu og aðhlynningu trjánna,
einskonar skiptinemar, því að
álika hópur fslendinga var þá
staddur í Noregi, sömu erinda.
Á annarri myndinni sjáum
við Niels Berg, bónda, sem
heima á rétt hjá Þrándheimi,
þar sem hann stendur hjá greni
hríslu, sem haann gróðursetti í
fyrri ferð sinni hingað árið
1955. Niels Berg sagði, að það
tæki tíma og þolinmæði að
rækta nytjaskóg, en það borg-
aði sig, og hann veit hvað hann
syngur, því að hann hefur eng
ar skepnur á sínum bæ, heldur
aðeins 60 hektara skóg, sem gef
ur honum nægar tekjur.
Niels Berg, skógarhóndi frá Þrándheimi, sem engar skepnur hef
ur á búi sínu, aðeins skóg.
Á hinni myndihni situr Sig-
urd Revheim hjá grenitré, sem
hann gróðursetti 1961. Sigurd
sagði okkur frá því, að þegar
hann var lítill skóladrengur,
hafi hann komið sér upp smá
skógi, og þegar bæði skógur-
inn og hann höfðu vaxið úr
grasi, hafi hann getað byggt sér
íbúðarhús úr viðnum.
Frá ferð okkar um Aust-
mannabrekku í Haukadal sl.
sumar eigum við góðar minn-
ingar, og styrkti hún trú okkar
á íslenzka skógrækt. Þrátt fyrir
allar staðreyndir um framtíð ís
lenzkrar skógræktar, eru til
menn, sem skella við þeim skoll
eyrum, og m.a.s. berjast gegn
þessu þjóðþrifafyrirtæki. — Við
skulum vona, að faddir þessar
hljómi æ sjaldnar í framtíðinni.
Og brátt rennur sá tími upp
á nýjan leik, að farið verður að
gróðursetja, og það er holl og
göfug vinna.
Minnugir orða Hannesar Haf
steins í Aldamótaljóðum, endum
við þetta greinarkorn með þessu
erindi hans:
„Sú kemur tíð, er sárin foldar
Hl eróa,
sveitirnar fyllast, akrar hylja
móa,
brauð veitir sonum móður-
moldin frjóa,
menningin vex í lundi nýrra
skóga“.
— Fr. S.
Sigurður Sölvason kaupmaður á
(Skagaströnd er sjötugur X dag
sunnudaginn 14. jan. Margir munu
hugsa hlýlega til hans á þessum
merkisdegi í lífi hans.
30. des. voru gefin saman í hjóna
band af séra Þorsteini Gíslasyni,
ungfrú Helga Reiharðsdóttir og
Gunnar Sigvaldason. — Heimili
þeirra er að Hraunbæ 66.
Nýja myndastofan, Laugav. 43b.
9. des. voru gefin saman í hjóna-
band af séra Jóni Þorvarðarsyni,
ungfrú Ingibjörg Kristjánsdóttir og
Þórarinn Einarsson. Heimili þeirra
er að Skálholtsstíg 7.
Nýja myndastofan, Laugav. 43b.
Vantar skrifstofustúlku
AÐILA f REYKJAVÍK vantar skrifstofustúlku,
helzt ekki seinna en í byrjun febrúar. Gott vald og
þjálfun í vélritun nauðsynleg. Viðkomandi starf er
þó ekki eingöngu fólgið í vélritun og getur verið
tiltölulega sjálfstætt. Upplýsingar er innihaldi nafn,
heimili, síma, aldur, nám og fyrri störf sendist
augl.afgr. Morgunblaðsins sem fyrst merkt:
„Febrúar — 2882“.
Til leigu
Til leigu eru um 80 ferm.
að Fellsmúla 19, (jarðhœð)
Húsnæðið er að mestu óskipt og hentugt
til ýmissa nota t.d. fyrir léttan iðnað,
teiknistofur, geymslur og fl.
Mögulegt að skipta því í 5 herbergi
(einstaklingsherbergi).
Upplýsingar í símum 30917 og 36392.